Þjóðviljinn - 04.04.1967, Síða 12

Þjóðviljinn - 04.04.1967, Síða 12
HÍP er 70 ára í dag Rætt við Jón Ágdstsson formann félagsins Elzta starfandi verka- lýðsfélag á landinu er sjötugt í dag. Hið íslenzka prentarafélag var stofnað þennan dag árið 1897. Það tók við af Prentarafélag- inu, sem var stofnað 10 ár- um fyrr eða 2. janúar 1887, en starfaði ekki nema í þrjú ár. Fyrsti formaður HÍP var Þorvarður Þor- varðarson. Þjóðviljinn sneri sér til núverandi for- manns, Jóns Ágústssonar, og bað hann að segja lítil- lega frá starfi félagsins á sl. 10 árum, en á sextugs- afmæli félagsins birtist hér í blaðinu ýtarleg grein um sögu þess og starf þess tíma. — Ég tel, sagði Jón, að íé- lagið haíi unnið mjög merki- legt brautryðjendastarf á sín- um tíma miðað við þann tíð- aranda, sem þá ríkti. Til marks um þann anda, sem ríkt hefur í félaginu, finnst mér einna merkilegast, að það á allar sínar fundargerðabæk- ur frá upphafi og efast ég um að mörg önnur félög litlu yngri geti státað af því. Síðustu 10 árin hafa kjara- málin verið efst á baugi eins og nærri má geta og merk- ustu áfangana á þeirri leið tel ég vera samningsákvæðið um lífeyrissjóðinn, sem náðist fram árið 1959, en sjóðurinn tók til starfa 10. júní það ár. Þá hefur félaginu orðið prýði- lega ágengt í styttingu vinnu- tímans, en það mál er lengi búið að vera á stefnuskrá þess. Strax árið 1908 er sam- ið um styttingu vinnudagsins úr 10 klst. í 9 klst. og árið 1920 er samið um 8 stunda vinnudag og kom hann til 1920/1921. 1962 er síðan sam- ið um 44 stunda vinnuviku og Prentaraheimiliö að Hverfisgotu 21. árið 1966 er samið um að koma á 40 stunda vinnuviku í áföngum til 1. janúar 1972. Á þessi tvö atriði vildi ég leggja sérstaka áherzlu og á hinn bóginn er ekki hægt að segja annað en að prentarar njóti sízt verri kjara en önn- ur sambærileg félög og minna mætti á að náðst hafa fram merk samningsákvæði í sam- bandi við veikindadaga Félagslífið Árið 1941 keypti félagið jörðina Miðdal í Laugardal og árið eftir risu þar 14 sumar- bústaðir í eigu einstakra pren.U ara. 14 bústaðir til viðbótar hafa verið reistir þar frá ár- inu 1957 og árið 1960 var kom- ið þar upp orlofsheimili fyr- ir stéttina. Orlofsheimilið ýtti mjög undir að einstakir menn byggðu sér bústaði í landinu, en framkvæmdir höfðu legið þar niðri um langt árabil. Um félagsstarfið almennt er heldur lítið að segja. Ástandið í verkalýðshreyfingunni í heild er þannig að allt félags- starf er að langmestu leyti bundið við kaupgjaldsbarátt- una. Við höfum samt reynt að halda uppi spilakvr' 'tim hér í heimilinu og hefur það gefið góða raun, þó nú sé heldur að draga úr aðsókn að þeim. Hinsvegar höfum við haft góða reynslu af kvikmynida- sýningum fyrir böm félags- manna é vetrum. Sú starfsemi hefur farið fram á tímabilinu frá þvi í október og fram í apríl og notið stöðugra vin- sælda. Svo höldum við auð- vitað uppi allskonar fyrir- greiðslu við félagsmenn í sambandi við lánamál og fleira. 1 þessu samtbandi er kannski rétt að koma því að, að atvinnuleysi er ekkert í stéttinni núna og hefur ekki verið í langan tíma. Sem bet- ur fer er meira um það að komið sé til að fala menn i vinnu, heldur en að félags- menn æski milligöngu félags- ins um ráðningu. Norrænt samstarf Framtíðarverkefni félagsins auk kjarabaráttunnar, tel ég vera að fylgjast með tæknl- þróuninni í prentverki, sem búast má við að verði örari í framtíðinni en verið hefur. Félagið má ekki daga uppi á þeim vettvangi. HlP er meðlimur í alþjóða- sambandi bókagerðarmanna og höfum við alltaf haft ein- hver bréfleg viðskipti við starfsbræður okkar á Norður- löndunum. Þeir hafa hinsveg- ar hvatt okkur til að auka þessi samskipti og höfum við hugsað okkur að gera bað á bann hátt, að senda fulltrúa á kynningarráðstefnur, sem haldnar eru til skiptis á hin- um Norðurlöndunum árlega og myndum við bannig fá norræna prentara í heimsókn til okkar fimmta hvert ár. Ef þeir telja sig geta grætt á sam- starfi við okkur, ættum við ekki síður að geta grætt á samstarfi við þá. Félagið hefur engar undir- deildir, að öðru Ieyti en því. að starfandi er sérstök kvennadeild. En meðlimum hennar hefur heldur farið fækkandi undanfarið. Heimilið hér að Hverfis- götu 21 keypti félagið árið 1941. Við höfum ekki hugsað okkur að selja það, enda er það vel staðsett og fellur inn í skipulag. Hinsvegar eru alltaf öðru hvoru uppi íraddir um að við þyrftum að auka við okkur húsrými. Allt slíkt er þó á bollaleggingarstiginu. — G.O. Maður fé!l af húsþaki I gær varð það slys í Efsta- sundi 71 að útlendur maður, Karlsson að nafni, féll af þaki hússins og meiddist á höfði og víðar. Hann var fluttur á slysa- varðstofuna, en ekki er kunnugt hve alvarleg meiðsl hans reynd- ust. Sjóvinnunám- skeiði Æskulýðs- ráðs lokið Hinu árlega sjóvinnunámskeiði á vegum Æskulýðsráðs Reykja- víkur lauk 20. marz s.l. Á nám- skeiðið voru innritaðir um 50 þiltar, og lauk rúmlega helm- ingur þeirra tilskyldu prófi í sjóvinnubrögðum. Hlutu þeir að venju sjóferðabók, þar sem til- greindur er árangur hvers fyrir sig. Efstur í framhaldsflokki varð að þessu sinni Hafsteinn Harð- arson, og við námskeiðsslitin af- henti formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, Jón Sigurðsson, honum farandbikar, sem gefinn var af Sjómannafélaginu. Efsfcur í byrjendaflokki varð Helgi Kristjánsson, og hlaut hann verðlaunabikar gefinn af Æskulýðráði. Auk þess hlutu viðurkenningu þeir Ebenezar Bárðarson, Viðar Ólafsson og Þorvaldur Gfslason. Aðalleiðbeinendur sl. vetur voru eins og áður þeir Hörður Þorsteinsson og Sigurður Óskars- son. Núverandi stjórn HÍP. Talið frá vinstri: Fremri röð: Pálmi Arason, Jón Ágústsson formaður, Guð- rún Þórðardóttir og Óðinn Rögnvaldsson. Aftari röð: Stefán Ögmundsson, Halldór V. Aðalsteins- son og Pjetur Stefánsson. r Aðalfundur HIP var haldinn sl. sunnudag Aðalfundur Hins íslenzka prentarafélags var haldinn 2. apr- íl 1967. Var þar m.a. skýrt frá úrslitum stjómarkosninga og skipa stjórn félagsins nú þessir menn: Jón Ágnstsson, formaður, Stefán ögmundsson, ritari, Pét- ur Stefánsson, gjaldkeri, Pálmi A. Arason, 1. meðstjórnandi, Hall- dór V. Aðalsteinsson, 2. með- stjórnandi, Óðinn Rögnvaldsson, varaformaður, og Guðrún Þórð- ardóttir, formaður Kvennadeild- ar. Á aðalfundinum voru tveir prentarar kjömir heiðursmeð- limir, þeir Bjöm Jónsson og Þor- steinn Halldórsson. Kjörið var í nefndir og ýms- ar merkar tillögur samþykktar, m.a. var samþ. heimild til þess að félagið festi kaup á einu or- lofshúsa þeirra, sem Alþýðusam- band Norðurlands ætlar að byggja að Ulugastöðum í Fnjóskadal. Þá var samþykkt að láta fara fram rannsókn á gjaldiþoli Lífeyris- sjóðs prentara í því augnamiði að unnið verði að því að vinnu- tími prentara styttist eftir aldri á sama hátt og starfsmanna f op- ir.berri þjónustu, td. kennara. Einnig var samþ. að leita sam- vinnu við Félag ísl. prentsmiðju- eigenda og Iðnskóilann í Reýkja- vík um að komið verði á nám- skeiðum fyrir setjara og prent- ara, sem veiti aofona þekkingu á helztu nýjungum í prentiðn. Ennfremur var samþykkt að auka samstarf við stéttarbræður Framhald á 9. síðu. Þriðjudagur 4. apríl 1967 — 32. árgangur — 75. tölublað. Ferðamannastraumurinn eykst: Nær 35 þús. útlend- ingarkomuhér 1966 ■ Samkvæmt upplýsingum Jóns Sigurpálssonar hjá út- lendingaeftirlitinu komu á síðasta ári hingað til lands 34.733 útlendingar og eru í þeirri tölu taldir bæði ferða- menn og útlendingar sem hingað hafa komið í atvinnuleit. Hafa aldrei áður komið jafnmargir útlendingar hingað á einu ári en samsVarandi tala árið 1965 var 28.879. Á árinu 1966 komu alls hing- að til lands frá útlöndum 57.-702 menn með skipum og flugvélum- Þar af voru eins og áður segir 34.733 útlendingar en íslending- ar sem komu frá útlöndum voru 23.147. Hins vegar fóru 23.302 Islendingar til útlanda á árinu. Stafar mismunurinn á þessum tölum meðal annars af því að áhafnir sem fara út til þess að sækja skip fara á skrá hjá útlendingaeftirlitinu sem ferða- menn er þær fara út en ekki þegar þær koma heim, þá eru þær skráðar á viðkomandi skip. Árið 1965 komu 18.679 tslend- ingar heim frá útlöndum en aö- eins fleiri fóru til útlanda. Alls kbmu hingað til lands á síðasta ári útlendingar af rösk- lega 70 þjóðemum. Flestir voru Bandaríkjamenn eða 11.756. Næstir í röðinni eru Danir og Færeyingar 5856, Þjóðverjar eru þriðju í röðinni 4580 að tölu og Bretar fjórðu en þeir voru 3718. Af þessum tölum sést að á ár- inu 1966 hefur komum útlend- inga hingað til lands fjölgað um 5854 og mun láta nærri að það sýni ferðamannaaukninguna, þótfc einhver aukning hafi sennilega orðið á því að útlendingar leit- uðu hingað eftir atvinnu. Mikil fjölgun hefur einnig orðið á utanförum Islendinga á sl. ári eða nær 4500. Mörg má/ til umræðu í gær á fundi Norðurlandaráðs HELSINKI 3/4 — Allmörg mik- ilvæg mál varðandi atvinnulíf, menningu og f jarskipti voru rædd á almennum fundi Norðurlanda- ráðs í Helsinki eftir hádegi í dag. Nefndarfundir höfðu verið fyrir hádegi. x Laganefnd ræddi um stöðu Færeyja í Norðurlandaráði og var samþykkt að vísa því máli til ríkisstjórna Norðurlanda, en það verður síðar tekið fyrir aft- ur í nefndinni. Efnahagsmálanefndin sem á morgun á að skila áliti um markaðsmálin fjallaði um tillögu sænska þingmannsins Leifs Cass- els um að Norðurlönd hafi sam- eiginlega afstöðu í þeim við- ræðum sem kunna að eiga sér stað við EBE. Ekki er búizt við að tillagan verði samþykkt. Einna mestar umræður á hin- um almenna fundi urðu um til- lögu um samræmingu á lagasetn- ingu um rétt manna til að koma fram leiðréttingum í útvarpi. Kvenfélag sósíalista Fundur í kvöld, þriðju- ! daginn 4- apríl. ■ Dagskrá: 1. Félagsmál. 2. Skýrslur sem félaginu hafa borizt. 3. 1. maí. 4. Eystrasaltsvikan og kvikmynd frá Austur- Þýzkalandi. i KAFFI. — Félagskonur, ] mætið vel og stundvíslega ■ og takið með ykkur gesti. Stjórnin. '■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■•■■■ Jón Kristinsson er í 12. —14. sætii Halle eftir 9 umferðir Að loknum 9 umferðum á svæðamótinu í Halle er Jón Kristinsson í 12.—14. sæti með 31 * * * * * 7 * * * * * * 14 15/, vinning. I 6. umferð tapaði hann fyrir Ungverjanum Port- isch í langri og erfiðri skák. I 7. umferð vann hann Svíann Kinnmark en tapaði í 8. og 9. umferð fyrir þeim Petersen frá Dammörku og Zwaig, Noregi. 1 10. umferð átti Jón að tefla við Miniev, Búlgaríu. Blaðskák TR:TA SVART: TA: Jón Björgvinsson Þorgeir Steingrimsson. Staðan eftir 9 umferðir er annairs þessi: 1. Portisch Ung- verjalandi 814, 2. Hort, Tékkó- slóvakíu 7V2, 3—5. Uhlmann, A- Þýzkalandi, Vesterinen, Fin.n- landi og Besser, V-Þýzkalandi, 6, 6- Zwaig, Noregi, 5V2> 7. Zinn, A-Þýzkalandi 5, 8.—9. Johansson, Svíþjóð og Matulovic, Júgóslaviu, 4V2 og biðskák sín á milli, 10. Ciocaltea, Rúmeníu 4%, 11. Kuijpers. Hollandi, 4, 12. — 14. Jón Kristinsson, Kinnmark, Svíþjóð og Miniev, Búlgaríu 3V2> 15. —18. Petersen, Danmörku, Mi- nic, Júgóslavíu, Gerusel, Vestur- Þýzkal. og Havansi, Finnlandi, 3, 19. Camilleri, Italíu 2 Og 20. Pet- rusiak, Póllandi, iVi- abcdet gh abcdef gh HVÍTT: TR: Arinbjörn Guðmundsson Guðjón Jóhannsson 18. — Kf7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.