Þjóðviljinn - 08.04.1967, Side 2

Þjóðviljinn - 08.04.1967, Side 2
2 SlÐA — ÞJÖÐVTLJTNN — Laugardagur 8. aprfl 1967. Yfirborgarfógeti svarar Kára Helgasyni Kári B. Helgason heíur rit- að í dagblöð borgarinnar lýs- ingu á embættisfaerslu minni í sambandi við gjaldþrot hans, og fyrirtækja hans. Ég sé ekki ástæðu til að svara þeim skæt- ingi, sem felst í ritsmíð hans um mig, en vil í fáum orðum lýsa afskiptum mínum af gjald- þrotamálum hans. 1. — Þann 16. nóvember 1965 barst skiptarétti Reykja- víkur svofellt bréf: „Þar sem Almenna bifreiða- leigan h.f., Klapparstíg, Reykja- vík, getur ekki staðið í skilum við lánardrottna sina og þar sem sumir þeirra eru farnir að taka eignir úr vörzlu fé- lagsins, þá leyfum við okkur hér með að óska þess að þér, herra yfirborgarfógeti, takið 32 fljót á Kýpur, samt vatnsskortur Fyrir þá sem ekki eru hnút- unum kunnugir, virðist verk- efni þriggja sænskra verk- fraeðinga nánast fjarstætt: að fara til eyjar, sem er minni en Skán, og reyna að bæta þar úr vatnsskorti, þó þar séu 32 fljót. Sérfræðingarnir, sem eru í þjónustu Sameinuðu þjóðanna, heita Sture Eresund, Kenneth Marelius og Sven Tömquist. Verkefni þeirrai er að leysa eitt alvarlegasta vandamál Kýpur- búa — og lausnin er fólgin í því að safna regnvatninu á eynni. Regnmagnið er að meðaltali 490 mm á ári, en regnið fellur á óheppilegustu stöðum, nefni- lega í fjöllunum, og á óheppi- . legasta árstíma — á veturna, og megnið af vatninu rennur til sjávar með fljótunum. Kýpurbúar eiga tilveru sína og afkomu að verulegu leyti undir landbúnaði. Loftslagið veldur því, að þeir geta rækt- að ávexti og grænmeti fyrr en íbúar nokkurs annars Evrópu- lands, og hafa þeir miklar gjaldeyristekjur af þessum af- urðum. I náinni samvinnu við Sam- einuðu þjóðimar og sérstofnan- ir þeirra hefur stjómin á Kýp- ur unnið að siðan 1961 áætl- un til langs tíma, áætlun sem miðar að því að hagnýta vatns- magnið á eynni. Áætluninni má skipta í þrjá þætti. Gera á meira en 100 stíflur í fljótin 32. Verkfræðingamir Eresund og Marelius eru sér- fræðingar í stíflugerð og starfa undir stjóm kínversks sér- fræðings. Um það bil 50 stífl- ur eru fullgerðar eða í bygg- ingu. Rannsókn á málmsteini og neðanjarðarvatni var hafin ár- ið 1963 og mun standai yfir í fimm ár. Neðanjarðarvatnið er kannað fyrir reikning Samein- uðu þjóðanna af verktökum í Tel Aviv undir stjóm Töm- quists Þriðji þátturinn nefnist „Yf- irlit, leiðsögn og áætlanir um notkun vatnsins“. Hér er ætl- unin að hjálpa ríkisstjóminni við að móta „vatnsveitustefnu" (m.a. með löggjöf um eftirlit með vatninu). Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) hefur á hendi framkvæmd þessa verkefnis. Stjórnin á Kýpur og þróunar- áætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) standa straum af kostnaðinum við þetta. Hugboð um, hvaða þýðingu nægilegt vatnsmagn getur haft, fengu menn árið 1965, þegar óvenju- miklir óþurrkar leiddu til þess að landbúnaðarframleiðslan jókst um 50 prósent. (SÞ). Keppi- keflið ? Hingað til hefur verið talið að Varsjárbandalagið ætti sér fáa erindreka á íslandi. At- lanzhafsbandalagið hefur átt hér dygga umboðsmenn, en andstæðingar þess hafa lýst óbeit sinni á öllum hernaðar- bandalögum, mælt með af- vopnum og hlutleysi íslands. En nú hefur Varsjárbandalag- ið allt i einu eignazt mál- svara hérlendis og hann ekki af lakara taginu, sjálft mál- gagn utanríkisráðherrans. Al- þýðublaðið segir í gær að í Evrópu sé nú hernaðarjafn- vægi og „ef menn vilja halda þessu jafnvægi á ekki að af- nema Atlanzhafsbandalagið eða Varsjárbandalagið." Þarna eru þessi hernaðarbandalög greinilega lögð að jöfnu og það talið mjög æskilegt á- stand að þau safni liði, hvort andspænis öðru, grá fyrir járnum, og að ekki hallist á um tortímingargetuna. Má segja að í þeirri afstöðu birt- ist næsta nýstárleg tegund af hlutleysi. Fyrir nokkrum árum var Benedikt Gröndal gerður að heiðursforingja í bandaríska flughernum í ánægjulegu samkvæmi á Keflavíkurflug- velli. Skyldi hann nú hyggja á hliðstæð metorð austan- tjalds? Að taka mark á Morgunblaðið segir i gær að allir telji sérfræðinga mik- il þarfaþing, menn sem á- stæða sé til að taka mark á. En það viðhorf verði einnig að ná til hagfræðinga, hinna ágætu sérfræðinga Jónasar Haralz og Jóhannesar Nordals. Fyrir sjö árum héldu þessir hagfræðingar því fram að þjóðin væri að farast; annar líkti henni við mann sem væri að þvi kominn að hrapa bú Almennu bifreiðaleigunnar h.f. til gjaldþrotaskiþta. Skrá um éignir og skuldir hlutafélagsins vérður afhént eins fljótt og unnt er. Stödd í Bandaríkjum Norður- Ameríku. — F.h. Almennu bifreiðaleigunnar h.f. Kári B. Helgason (sign.) Þórlaug Hansdóttir (sign.) Máría Helgadóttir (sign)“. Samkvæmt þessari beiðni var bú Almennu bifreiðaleigunnar h.f. tekið til gjaldþrotaskipta- meðferðar, með úrskurði upp- kveðnum 26. nóv. 1965. Upp- skrift á eignum búsins fór fram 7. og 9. desember 1965 og framkvæmdi uppskrift þessa Jónas Thoroddsen, borgarfóg- eti að viðstöddum fram- kvæmdastjóra félagsins Kára B. Helgasyni og benti hann á þá bíla, sem hlutafélagið ætti, 36 að tölu, auk annarra eigna. Innköllun var siðan gefin út 27. nóvember 1965. Á skipta- fundi sem haldinn var 30. nóv- ember 1965 voru mættir 9 kröfuhafar eða umboðsmenn þeirra, og var þá ákveðin upp- boðssala á 14 bifreiðum til- heyrandi búinu. Á skiptafundi 10. desember 1965 voru mættir nokkrir umboðsmenn kröfu- hafa, sem kröfðust sölu á op- inberu uppboði á þeim bif- reiðum, sem þá voru enn ó- seldar og hélt bæði þessi upp- boð Þórhallur Einarsson, full- Af hálfu Kára B. Helgason- ar komu hvorki fram á skipta- fundum né í uppboðsrétti mót- mæli gegn sölu bifreiðanna. Allir skiptafundir voru þó lög- lega boðaðir og uppboðin aug- lýst á venjulegan hátt í dag- blöðum borgarinnar. Lýstar kröfur í þrotabú þetta námu samtals kr. 4.487.096,18 m.m.. 2. — Með úrskurði uppkveðn- um í skiptarétti Reykjavíkur 26. janúar 1966 var bú Kára B. Helgasonar tekið til skipta- meðferðar, sem gjaldþrota, skv. kröfu Magnúsar Fr. Áma- sonar hrl„ dags. 1. des 1965 og Brands Brynjólfssonar hdl. dags. 18. jan. 1966. Uppskrift á búi þessu fór fram að við- stöddum þrotamanni Kára B. Helgasyni 3. febrúar 1966 og benti hann á eignir búsins. Uppskrift þessa fram- kvæmdi borgarfógeti Jónas Thoroddsen. Innköllun til skuld- heimtumanna búsins var géfin út 10. febrúar 1966. -4> fram af hengiflugi, hinn við villtan vegfaranda á eyði- mörk. Ástæðan var uppbót- arkerfi, styrkir, niðurgreiðsl- ur og hverskyns önnur að- stoð við atvinnuvegina, en allt það fyrirkomulag þyrfti að uppræta. Nú sjö árum síðar halda þessir hagfræð- ingar uppi víðtækara upp- bótarkerfi en sögur fara af; styrkir og niðurgreiðslur nema næstum því tveimur miljörð- um króna á ári; og sérfræð- ingamir segja nú að allt sé þetta harla gott. Fyrir sjö ár- um höfðu þeir þungar áhyggj- ur af verðbólgunni og sögðu að aðeins væri um tvennt að velja, enga verðbólgu eða óðaverðbólgu, og þjóðin yrði að velja fyrri kostinn. En eftir það fóru þeir hina leið- ina og hafa um sjö ára skeið stjórnað margfalt örari verð- bólguþróun en dæmi eru um i nokkru nálægu landi. Fyrir sjö árum sögðu þeir að frjáls verzlun og afnám verðlagseftirlits væri flestra meina bót. Nú hæla þeir sér af svokallaðri verðstöðvun, verðlagseftirliti sem nær til hverskonar sölu og þjónustu. Það er misskilningúr hjá Morgunblaðinu að þjóðin vilji ekki taka mark á þessum hag- fræðingum. Meinið er það að þeir taka ekkert mark á sjálf- um sér. — Austri. Lýstar kröfur í bú þetta námu samtals kr. 10.775.086,99 og eru þar með ekki taldir ýmsir kostnaðarliðir í sam- bandi við skiptin. Skiptafundir voru haldnir í búi þessu af borgarfógeta Unn- steini Beck dagana 3. nóv. og 7. des 1966 og 28. marz 1967. Á skiptafundi, sem haldinn var 3. nóvember 1966 var ákveð- in uppboðssala á eignum þessa bús, þ.á.m. á hluta þess í Njálsgötu 49, en á þeim fundi voru mættir flestir kröfuhafar í búinu. Gjaldþroti, Kári B. Helgason, mætti þar einnig sjálfur til að leiðrétta upplýs- ingar, sem hann hafði gefið borgarfógeta við upphaflega uppskrift búsins. Hann óskaði þó ekki að sitja fundinn til enda þótt hann vissi, að á- kvörðun yrði tekin um ráð- stöfun eignanna. Samkvæmt þessari ákvörðun skiptafundarins í búinu, var ákveðin uppboðssala á hluta búsins í Njálsgötu 49, og var það uppboð auglýst í 11., 14. og 16. tbl. Lögbirtingablaðsins 1967 og auk þess í 5 dagblöð- um borgarinnar nokkru fyrir uppboðsdag. Rétt áður en upp- boðið skyldi hefjast kom í Ijós, að vafi lék á því, hvort tiltek- in veðsetning á húsinu Njáls- götu 49 næði aðeins til eign- arhluta Kára eða til alls húss- ins og þótti því nauðsynlegt að fresta uppboðssölunni þar til öruggar upplýsingar kæmu fram um þetta atriði og stóð því ekki til að eignin yrði seld í þetta skipti. Að gefnu tilefni skal það tekið fram, að áður en bú Kára B. Helgasonar var tekið til gjaldþrotaskiptameðferðar, hafði farið fram fjárnám í inneign hans hjá skrifstofu Biskups, eftir kröfu Jóns Ara- sonar hdl„ vegna FORD-um- boðsins, Kr. Kristjánssonar h. f„ en áður mun hann hafa á- vísað hluta af innstæðunni Ás- birni Ólafssyni h.f. Gildi þess- ara ráðstafana eru nú til at- hugunar hjá öðrum lánar- drottnum í búinu. 3. — Að lokum skal þess getið, að Fasteignaviðskipti h. f„ sem þrotamaður Kári B. Helgason var einnig fram- kvæmdastjóri fyrir, var með úrskurði uppkveðnum 5. októ- ber 1966 tekið til skiptameð- ferðar, sem gjaldþrota og fór uppskrift fram sama dag. Inn- köllun til skuldheimtumanna var gefin út 1. nóv. 1966 og námu lýstar kröfur í því búi kr. 273.207,70. Eignir búsins voru við uppskrift metnar á kr. 9.400,00. Þessar athugasemdir tel ég nægja að svo stöddu til að hreinsa mig og embættið nf þeim óhróðri, sem fram kemur í ritsmíð Kára B. Helgasonar og dagblöðin hafa tékið til birtingar athugasemdalaust. Reykjavík, 6. apríl 1967. KR. KRISTJÁNSSON. Yfirborgarfógetinn í Reykjavík. Pompidon falin stjórnarmyndun PARÍS 6/4 — De Gaulle for- seti fól í dag Georges Pompi- dou að mynda nýja stjóm, en ráðuneyti hans sagði af sér rétt áður en nýkjörið þing kom saman fyrr í vikunni. Gaull- istar hafa nú mjög nauman meirihluta á þingi. Ekki er bú- izt við að Pompidou geri nein- ar meiriháttar breytingar á stjórninni. 250.000 dollara lausnargjald LOS ANGELES 6/4 — EUefu ára drengur kom heim til for- eldra sinna í Los Angeles í dag heill á húfi eftir að fað- ir hans, auðkýfingur að nafni Herbert J. Young, hafði greitt 250.000 dollara (rúmlega 10 milj. kr.) lausnargjald. Drengn- um hafði verið rænt snemma á mánudagsmorgun. Fermingar á morgun Fermingarböm í safnaðar heimili Langholtsprestakalls sunnudaginn 9. april kl. 13,30. Stúlkur: Anna Gerður Riohter, Nökkva- vogi 52. Anna Svanhildur Sigurðardótt- ir, Skeiðarvogi 111. Auður Tryggvadóttir, Fells- múla 7. Bára Jóhannsdóttir, Sólheim- um 56. Bergþóra Oddgeirsdóttir,, Nökkvavogi 33. Birna Garðarsdóttir, Langholts- vegi 108, Guðný Linda Magnúsdóttir, Sólheimum 27. Guðrún Björk Tómasdóttir, Gnoðavogi 20. Heiga Erlendsdóttir, Gnoðavogi 64. Sigrún Sigurðardóttir, Nökkva- vogi 22. Sólveig Victorsdóttir, Sigluvogi 3. Valdís Guðjónsdóttir, Álfheim- um 26. Valgerður Kristín Gunnarsdótt? ir, Álfheimum 9. Þórunn Björg Birgisdóttir, Álf- heimum 60. Drengir: Andrés Þór Bridde, ÁlfheimUiTi Ebeneser Bárðarson, Nökkva- vagi 39. Gísli Jafetsson, Suðurlands- braut 79. Gísli örvar Ólafsson, Sæviðar- sundi 36. Halldór Guðlaugsson, Lang- holtsvegi 200. Hlynur Möller Langholtsvegi 204. Jóhann Magnússon, Sólheimum 44. Jóhann Hinrik Gunnarsson, Gnoðavogi 26. Jóhannes Kristján Sólmundar- son, Skeiðarvogi 15. Karl Ottesen, Gnoðavogi 32. Kristján Jón Krisjinsson, Ljós- heimum 6. Magnús Jónsson, Sólheimum 9 Ragnar Guðjónsson, Gnoðavogi Sigurður Jónsson, Langholts- vegi 178. Símon Ásgeir Gunnarsson, Álf- heimum 9. Sveinn Magnús Sveinsson, Sigluvogi 9. öm Kristinsson, Goðheimum 1. Fermingar í Fríkirkjunni, sunnudaginn 9. apríl kl. 2 eh. Prestur sr. Þorsteinn Björnsson, Stúlkur: Anna Lísa Björnsdóttir Brekku- gerði 7. Anna Jónína Hauksdóttir, Sæ- viðarsundi 70. Ásdís Þórarinsdóttir, Álfhóls- vegi 83, Kópavogi. Eyrún Björg Jónsdóttir, Háa- leitisbraut 39. Guðrún Margrét Sigurbjörns- dóttir, Hrísateig 3. Jóhanna Pétursdóttir, Melgerði 20. Karólína Guðrún Friðgeirsdótt- ir, Hjallabrekku 12. Kristín Guðrún Guðmundsdótt- ir. Fornhaga 11. Kristín Bára Jörundsdóttir, Álfheimum 34. Kristín Sigurðardóttir, Kapla- skjólsvegi 61. Margrét Jóna Sveinsdóttir, Léifsgötu 27. Njála Sigurbjörg Vídalín, Suð- urlandsbraut 23. Ólafía Aðalsteinsdóttir, Safa- mýri 56. Sigrún Siggeirsdóttir, Grettis- götu 92. Sólrún Ólína Siguroddsdóttir, Brekkugerði 10. Stefanía Guðríður Björnsdóttir, Miðtúni 2. Svanhildur María Ólafsdóttir, Laugavegi 163. Svava Valgerður Kristinsdóttir, Suðurlandsbraut 92A Drengir: Guðmundur Gíslason, Vestur- götu 30. Guðmundur Halldór Guð- mundsson, Ljósvallagötu 12. Guðmundur Guðmundsson, Hringbraut 109. Guðmundur Rúnar Þórisson, Kárastíg 8. Gunnar Jónsson. Skúlagötu 61. Jón Pétur Jónsson, Kópavogs- braut 100. Lárus Konráðsson, Óðinsgötu 8. Magnús Ámason, Rauðalæk 25. Ólafur Pálsson, Gnoðavogi 38. Páll Þormar Konráðsson, Óð- insgötu 8. Samúel Páll Magnússon, Háa- leitisbraut 37. Sigurgeir Már Jensson, Safa- mýri 95. Sigurður Helgi Óskarsson, Meistaravöllum 25. Símon Már Gissurarson, Ból- staðahlíð 34. Skarphéðinn Kristján Guð- mundsson, Fomhaga 11. Víglundur Rúnar Jónsson, Suð- urlandsbraut 93. Bústaðaprestakall: Ferming í Kópavogskirkju 9. aprfl kl. 2 e.h. — Prestur séra Ólafur Skúlason. TELPUR: Ásdís Björgvinsdóttir, Langa- gerði 36. Áádís Emilsdóttir Pétersén; Sogavegi 72. Bryndís Júlíusdóttir, Soga- vegi. 101. Guðný Jónína Valberg, Langa- gerði 16. Hrafnhildur Eyþórsdóttir, Rétt- arholtsvegi 79. Hulda Sólborg Haraldsdóttir, Langagerði 42. Jóna Guðrún Ólafsdóttir, Ás- garði 121. Margrét Bárðardóttir, Bústaða- vegi 73. Sigrún Bergmann Baldurs- dóttir, Sogavegi 18. Sigrún Ólafsdóttir. Bústaða- vegi 51. Sólborg Bjarnadóttir, Búða- gerði 5. PILTAR: Eggert Guðmundsson, Ás- garði 30. Halldór Bjarnason, Bústaða- vegi 87. Hallmundur Guðmundsson, Tunguvegi 42. Valur Ragnar Jóhannsson, Ásgarði 65. FERMINGARSKEYTI Landssímans Símar 06 og 11005 Tekið verður á móti fermingarskeytum í síma 0 6 og 1 1 0 0 5 kl. 13—20 á laugardag og kl. 10—20 á sunnudag. Til að forðast óvenjulegar tafir á skeytasendingu á sunnudag, er mönnum ráðlagt að senda skeytin á laugardag, en þau verða þó ekki borin út fyrr en á sunnudag. Ritsímastjóri.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.