Þjóðviljinn - 08.04.1967, Page 3
Laugardagur 8. april 1967 — ÞJÓÐVII*n£íN — Sfe>A J
Skuldar þrjá miljarði en vísar til samninga við Mussolini
Páfi er ríkari en ítalska ríkið
en hann vill ekki greiða skatt
Stalín spurði einhverntíma að því hvað páfinn
hefði margar herdeildir. Spurningin var nokkuð
út í hött — ef spurt er um veraldlegt vald páfa
er rétt að orða spurninguna þannig: hvað á páfi
mi'kið af peningum? Það gera margir á Ítalíu í
dag og bæta við: hefur hann borgað skatt af
þeim?
Þetta er ekki nýtt vandamál
á Ítalíu og nú er það á dagskrá
í sambandi við nýtt stjórnar-
frumvarp um skatt af ágóða af
hlutabréfum og verðbréfum. All-
ir hluthafar á Ítalíu, erlendir og
innlendir, verða að borga þenn-
an skatt, en Vatíkanið er und-
anþegið.
Enginn heldur því íram að
stjórnin geri þetta af fúsum
vilja. Hún hefur verið undir
miklum þrýstingi frá Vatíkan-
inu, sem hefur ekki greitt þennan
skatt í fimm ár. Fjármálasér-
fraeðingar páfaríkis hafa hótað
því að selja öll ítölsk hlutabréf
páfa ef stjórnin samþykkir ekki
skattfrelsið.
Samningurinn 1929
Vatíkanið heldur því fram, að
samkvæmt samningi milli Muss-
olini og páfa frá 1929 skuli ekki
aðeins Vatíkanið heldur og *>11
kaþólsk samtök á ítalíu vera
skattfrjáls. Kristilegir demókrat-
ar og nýfasistar hafa jafnan stutt
túlkun Vatíkansins á samningi
þessum, en aðrir flokkar eru
frumvarpinu andvígir — þótt
sósíalistar í ríkisstjórn hafi lof-
að að greiða því atkvæði.
Fyrir . Vatíkanið er hér aðeins
um „prinsípmár1 að ræða. En
fyriT ítalska ríkið hefur þetta
mál einnig efnahagslega þýðingu.
Það sem Vatíkanið skuldar í
skatt fyrir siðustu fimm ár, og
það sem það hefur sloppið við
að greiða áður hefur ekki svo
mikla þýðingu fyrir fjárhag
þess, en þessi upphæð getur orð-
ið allþung á metunum hjá ít-
alska ríkinu. Vatíkanið er nefni-
lega allmiklu ríkara en ítalska
ríkið.
Hve ríkur er páfi?
Það er ekki unnt að svara
með neinni nákvæmni hve ríkur
páfi er. Vatíkanið birtir enga
reikninga. Og það fyrsta sem sá
maður gerir sem valinn er til
starfa í kúríunni, miðstjórn
Saðgreiðslukerfi
Framhald af 10. síðu.
í framkvæmd og atvinnurekend-
um óhagstæðara. Taldi Eðvarð
að hvorutveggja væri ósannað,
nú þegar séu atvinnurekendur
orðnir aðalinnheimtumenn skatt-
anna, og breytingin ætti ekki að
íþyngja þeim.
Þá væri það talið til ókosta að
menn kynnu að verða ófúsari til
yfirvinnu og ýta undir frekari
launakröfur. Taldi Eðvarð hvor-
ugt þjóðfélagslegan vanda þó
drægi úr hinum óeðlilega langa
vinnudegi og kaup hækkaði.
Þá yrði að athuga hvort stað-
greiðslukerfið ætti að ná til
launþega einna. og hvort ætti að
láta það ná til alls landsins í
einu. Úr því sem komið væri,
fyrst loforðin um framkvæmd
málsins hefðu einungis reynzt
orð teldi Eðvarð ekki ástæðu
til annars en samþykkja tillögu
stjóttiarinnar um að Alþingi
feli stjórninni áframhaldandi at-
huganir í málinu.
Magnús Jónsson fjármálaráð-
herra flutti framsöguræðu um
tillöguna, og kom fram í ræðu
hans að ýtarleg skýrsla um störf
milliþinganefndar hefði verið af-
hent þingmönnum.
kaþólsku kirkjunnar, er að
sverja að halda því leyndu sem
hann kemst að í embætti.
L’Espresso, óháð vinstriblað,
er eina ítalska blaðið sem hef-
ur reynt að gera grein fyrir
ríkidæmi páfagarðs. L’Espresso
heldur því framy að Vatíkanið
skuldi sem svarar þrem miljörð-
um króna í skatt.
Brezka hagfræðitímaritið Ee-
onomist hefur tekið fjárhag
Vatíkansins til athugunar og
komizt að svipuðum tölum.
Economist telur að Vatíkanið
eigi í verðbréfum sem svarar
240.000 miljónum króna, en að-
eins tíundi hluti þess fjár sé á
Ítalíu sjálfri.
Eða með öðrum orðum: Hluta-
bréfaeign Vatíkansins ein er
svipuð og samanlagður gullforði
og gjaldeyrisforði franska rikis-
ins.
Miljónir Mussolinis
Kaþólska kirkjan er auk þess
mesti jarðeigandi heimsins, og
er þó ekki átt við það land sem
tengt er kirkjulegum stofnun-
um heldur venjulegt arðbært
land, einkum í Evrópu og Ame-
ríku.
í Róm á kirkjan heilar útborg-
ir og verðmæta hluta gamla
borgarkjarnans. Á „kraftaverka-
árum“ í ítölsku efnahagslífi var
kirkjan eitt af stærsta bygging-
arfyrirtækjum Rómar.
Þegar páfi og Mussolini gerðu
með sér samninginn 1929 og
Vatíkanið varð sjálfstætt ríki
var kirkjan þegar orðin mjög
efnuð. Fasisminn blóðsaug ít-
alskt efnahagslíf til að geta
keypt sér þennan samning. Með
því móti var traustum stoðum
rennt undir efnahagslegt vald
kirkjunnar.
Árið 1929 gaf Ítalía kirkjunni
nítján miljónir punda. Sérstök
nefnd var sett til að ávaxta þetta
fé og laut hún forystu snjalls
fjármálamanns, Bernadiono Nog-
ara, og hefur hún margfaldað
þessar miljónir Mussolinis.
Þægileg aðstaða
Allir fjármálamenn hljóta að
öfunda þau starfsskilyrði sem
Vatíkanstjórnin býr við. Hún
hefur fullt frelsi til að gera sem
henni bezt líkar og þarf eng-
um að standa reikningsskap. í , matísk forréttindi gera fjár-
Vatíkaninu eru engir skattar málamönnum Vatíkansins auð-
greiddir — og heldur ekki á velt um vik. Þau gefa þeim
ítölsku landi. Hún getur lagt góðar upplýsingar um atburði í
í hvaða fjárfestingu sem vera stjórnmála- og efnahagslífi sem
skal. Og hvar sem er. Kirkjan koma að góðu haldi í fjármála-
þekkir ekki landamæri, og dipló- 1 starfi þeirra um allan heim.
Sendinefnd SÞ er
nú farin frá Aden
ADEN 7/4 — Þriggja manna í Aden en ekki þrjár vikur eins
sendinefnd frá Sameinuðu þjóð- og ráð hafði verið gert fyrir.
unum hefur verið í Aden til að
rannsaka ástandið í Suður-Ara-
bíubandalaginu svonefnda, flaug
til Rómar í dag og hefur gefizt
upp við verkefnið. Voru nefndar-
menn harðorðir í garð brezkra
nýlenduyfirvalda og sökuðu þau
um skort á samstarfsvilja.
Nefndarmenn voru fimm daga
Loftorusta háð yfir landa-
mærum Israels og Sýrlands
TEL AVIV 7/4 — í dag kom
til harðra átaka á landamær-
um ísraels og Sýrlands. ísra-
elsmenn hafa skotið niður
sex flugvélar Sýrlendinga en
Sýrlendingar tvær fyrir ísra-
elsmönnum.
f Tel Aviv er sagt, að átökin
hafi byrjad á því, að Sýrlend-
ingar skutu á dráttarvél skammt
frá landamærunum við Genesar-
etvatn. Hafi þeir lialdið uppi
skothríð í fjóra tíma og sýr-
lenzkar flugvélar þar að auki
Líú forseti nefnd-
ur pappatígrisdýr
PEKING 7/4 ’ Enn voru haldnir
fjöldafundir í Peking og Öðrum
borgum til að krefjast þess að
Líu Sjaó-sí forseta verði vikið
frá. Aðalmálgagn kommún-
istaflokksins, Dagblað alþýð-
unnar, notar í dag fjórar síður
til árásar á forsetann. Þá hefur
fréttastofan Nýja Kína sent út
grein þar sem forsetinn er kall-
aður pappírstígrisdýr, rétt eins
og bandaríska atómsprengjan.
Kona Maós og Sjú En-læ for-
sætisráðherra eru sögð hafa
játað á sig ýmsar yfirsjónir í
upphafi menningarbyltingar-
innar, sem hafi orðið til þess
að andstæðingar Maós náðu
undirtökum í ýmsum samtökum.
gei*t loítárás á samyrkjubú í ls-
aðeins Vatíkanið heldur og öll
rael. fsraelska flughernum haii
verið skipað til árása og hefðu
sex sýrlenzkar þotur af gerð-
inni MIG-21 verið skotnar nið-
ur. Þrjár þeirra hefðu hrapaðtil
jarðar í Jórdaníu.
Talsmaður Sýrlenzku stjórnar-
innar sagði í Damaskus í dag,
að ísraelskar flugvélar hefðu
verið sendar til að þagga niður
í stórskotaliði Sýrlendinga. Fyrst
hefði brynvarin dráttarvél ekið
inn á hlutlausa beltið milli land-
anna í skjóli brynvagna, vél-
byssna og stórskotaliðs. Hafi þá
komið til átaka milli stórskota-
liðs beggja og síðan til loftor-
ustu og hefðu tvær þotur ísra-
elsmanna af Mirage-gerð verið
skotnar niður. Þorp í Sýrlandi
hefðu orðið fyrir sprengjum en
enginn látið lífið.
FRBDERIKSHAVN 7/4 — Norska
strandferðaskipið „Sætrevág" tók
um borð þrjá m'enn af áhöfn
sænsks báts sem stóð í ljósum
logum skammt norður af Skag-
en. Björgunarbátur frá Skagen
bjargaði fjórða manninum.
Barizt var lengi dags og var
bardögum ekki lokið þegar síð-
ast fréttist. Forsætisráðherra
Sýrlands sagði i útvarpsræðu i
gær að Sýrlendingar myndu
halda áfram skothríðinni til að
eyðileggja bækistöðvar árásar-
mannanna
Lögðu þeir enga dul á vonbrigði
sín og gremju. Brezki sendiherr-
ann í Róm var mættur á flug-
vellinum og bað þá fljúga áfram
til London til að ræða um málið
við Brown utanríkisráðherra.
Ú Þant aðalritari S.Þ. er nú
í Róm og hitti hann nefndar-
menn í dag.
Meðan á stóð dvöl nefndar-
innar blossuðu upp óeirðir milli
þjóðfrelsishreyfinganna tveggja,
MLF og FLOSY innbyrðis og
svo milli þeirra og Breta. Hreyf-
ingar þessar telja að stjórn sú
sem Bretar hafa komið á í land-
inu sýni ekki vilja þjóðarinnar.
SAIGON 7/4 Ky, forsætisráð-
herra Sagionstjómar, hótaði í
dag að senda herlið yfir landa-
mærin til Norður-Vietnams.
Segir hann að hermenn að norð-
an hafi ráðizt á borg eina
skammt frá landamærunum,
fellt þar 126 hermenn Sagion-
stjórnar og látið lausa 250 fanga,
flesta skæruliða er þeir tóku
fangelsi í borginni og sprengdu
það í loft upp.
Einkavinur Johnsons dæmd-
ur fyrir svik og fjárdrátt
WASHINGTON 7°4 — Bobby
Baker, fyrrum náinn samstarfs-
maður Johnsons forseta, var í
dag dæmdur í eins til þriggja
ára fangelsi fyrir skattsvik og
misnotkun á opinberu fé ístór-
um stfl.
Johnson sagði einhvemtíma um
Baker að hann væri einn af á-
reiðanlegustu, tryggustu og
hæfustu vinum sínum.
Baker hafði hlotið mjög skjót-
an frama og orðið ritari John-
sons er hann var foringi demó-
krata í öldungadeild þingsins.
Baker var fundinn sekur um
öll sjö ákæruatriðin, m.a. umað
hafa notað 80 þúsund dollara,
sem Demókrataflokkurinn áttiog
ætlaði að nota til kosningabar-
áttu, til eigin þarfa. Mikið af
peningunum fór til að reka mót-
el, sem Baker var hluthafi í.
Baker gat átt á hættu að verða
dæmdur í allt að 48 ára fangelsi
og 47 þúsund dollara sekt. Hann
ætlar að áfrýja dómnum.
Toppleysi bannað
NEW YORK 7/4 Borgarstjórinn
í New York, Lindsey, hefur
bannað að þernur á veitinga-
húsum gangi um með nakin
brjóst. Mega þær vera næsta
fáklæddar en er þeim þó skylt
að hylja geirvörtumar.
Humphrey tekið
með formælinqum
PARÍS 7/4 — Humphrey, vara-
forseti Bandaríkjanna, hlautekki
sérlega blíðar viðtöikur þegar
hann kom til Parísar í dag.
Margar þúsundir andstæðinga
stefnu Bandaríkjanna í Vietnam
höfðu uppi mótmælaaðgerðir þar
sem varaforsetinn sýndi sig og
hrópuðu vígorð eins og t.d.
„bandarískir morðingjar", „Hum-
phrey go home" og „Farið burt
frá Vietnam".
Til átaka kom milli lögreglu
og kröfugöngumanna þegar
Humphrey skyldi leggja blóm-
sveif að gröf óþekkta hermanns-
ins og voru 129 handteknir eft-
ir hressileg slagsmál þar semum
10 til 15 manns særðust. Mót
mælaaðgerðum linnti heldur
ekki meðan Humphrey var við
minnismerki Georgs Washing-
tons. Kastað var eggjum ogplast-
pokum með rauðri málningu að
bíl varaforsetans.
Átta af þeim ellefu stúdent-
um sem handteknir voru í Ber-
lín í gær, grunaðir um áformum
að mjrrða Humphrey voru látn-
ir lausir í morgun um leið og
varaforsetinn fór frá Vestur-
Berlín. Dómari kvað ekki nægar
ástæður til að halda þeim leng-
ur í fangelsi.
Nú gefum v/ð ðoð/ð Volkswagen-bil,
sem kostar 136.800,- krónur
Hvers konar bíll er það?
Nýr VOLKSWAGEN 1200
Hann er me5 hina viðurkenndu
1.2 lítra vél, sem er 41.5 h.a. —
Sjólfvirku innsogi — Al-sam-
hraðastilltur fjögurra hraða gír-
kassa — Vökva-bremsur.
Hann er me5: Rúðusprautu —
Hitablöstur ó framrúðu ó þrem
stöðum — Vindrúður, til að fyr-
irbyggja dragsúg í loftræstingu
— Tvaer hitalokur við fótrými að
framan og tvær afturí.
Hann er með: 'Oryggislæsingar
á dyrum — Hurðahúna, sem eru
felldir inn í hurðarklæðningu,
og handgrip á hurðum.
Hann er með: Stillanleg from-
sæti og bök — þvoftekta leður-
líkisklæðningu á sætum — Plast-
klæðningu í lofti — Gúmmímott-
ur á gólfi — Klæðningu á hlið-
um fótrýmis að framan.
Hann er með: Krómaða stuðara
*— Krómaða hjólkoppa — Króm-
lista ó hliðum.
Þér getið fengið VW 1200 I
perluhvitum,
Ijósgráum,
rubí-rauðum
og blóum lit.
Og verðið er
kr. 136.800,—
KOMIÐ, SKOÐIÐ OG REYNSLUAKIÐ
Sími
21240
HEILDVERZLUNIN
HEKLA hf
Laugavegi
v170-172