Þjóðviljinn - 08.04.1967, Síða 10
!■■■»
Erverðmunur-
inn eðlilegur?
Undanfarin ár hefur Bygg-
ingarfélag verkamanna haft i
smíðum þrjú stigahús aðBól-
staðahlíð 46 tii 50 og flytja
þangað inn þrjá;íu og tvær
fjölskyldúr á næstu vikum í
samsvarandi fjölda íbúða í
þessu fjölbýlishúsi.
Þarna er um að ræða átta
2ja herbergja íbúðir, átta 3ja
herbergja íbúðir og sextán
4ra herbergja íbúðir. Fróðlegt
er að athuga samanburð á í-
búðarverði í fjölbýlishúsinu
við Bólstaðahlíð við Reyni-
melsíbúðimar hjá Bygginga-
félagi verkamanna og sjó-
manna og kemur þá út furðu-
legur verðmismunur.
Þannig kostar 4ra herbergja
íbúð á Reynimelnum kr. 680
þúsund og er þá miðað við
96 fermetra að innanmáli, —
hinsvegar kosta 4ra herbergja
íbúðir í fjölbýlishúsinu við
Bólstaðahlíð 1,1 miljón króna
og er hún líka 96 fermetrar
að innanmáli eða nákvæmlega
jafnstór.
Þá kosta 2ja herbergja í-
búðimar við Reynimel kr.
480 þúsund miðað við 2ja
herbergja íbúðirnar við Ból-
staðahlíð, en þær kosta um
770 þúsund króna.
Hér er varla um eðlilegan
mismun að ræða, þó að eitt-
hvert tilvik sé um frágang í-
búðanna, — væri fróðlegt að
fá skýringu á þeim mismun.
Verkamannaíbúðimar við
Bólstaðaihlíð njóta opinberrar
fyrirgreiðslu af almannafé og
byggingarfélagið hefur ána-
tuga reynslu í smíði fbúða og
er ekki hægt að segja það
sama um Reynimelsíbúðimar.
Þannig fá kaupendur 4ra
herbergia fbúðanna kr. 540
þúsund lán til 42ja ára, en
þurfa að greiða 550 þúsund
út við afhendingu.
í dag em 1300 fjölskyldur
á biðlista hjá Byggingarfélagi
verkamanna og tekur 8 til 10
ár að komast í íbúð hjá þessu
byggingarfélagi fyrir nýjan fá-
lagsmeðlim, — er lætur skrá
j sig í dag.
! Seinagangur þykir á smiði
íbúða hjá þessu þyggingarfé-
lagi og er vart um fljótræðd
að ræða við útreikninga.
Hjá Byggingarfélagi verka-
manna og sjómarma voru í
gærdag komnar um 700 fjöl-
skyldur á biðlista og tekur S
til 6 ár að komast i fbúð á
þeirra vegum.
Þeir hafa nú opnað skrif-
stofu að Reynimel 88 ogsinna
fyrirspumum á mánudögum
og fimmtudögum.
Blaðskák TR:TA
SVART: TA:
Jón Björgvinsson
Þorgeir Steingrímsson.
abcdef gh
abcdef gh
HVÍTT: TR:
Arinbjöm Guðmundsson
Guðjón Jóhannsson
20. — Ha—b8
Nemendasýning Danskennarasambandsins
★ í dag og á morgun kl. 3 sið-
degis, sunnudag efnir Dans-
keunarasamband íslands til
nemendasýningar í Austur-
bæjarbíói og er þetta fyrsta
sameiginlega danssýningin
sem sambandið efnir til.
★ Á sýningunni konia fram neni-
endur úr Ballettskóla Eddu
Scheving, Listdansskóla Guð-
nýjar Pétúrsdóttur, Ballett-
skóla Sigríðar Ármanns,
Dansskóla Hermanns Ragn-
ars og eru á dagskránni ball-
ettar, samkvæmisdansar og
barnadansar.
Myndin liér að ofan er af einu
atriði sem sýnt verður en það
er indverskur dans sem nem-
endur í Dansskóla Katrínar
Guðjónsdóttur sýna.
Úthlutun á f jölbýllshúsa-
lóðum í Breiðholtshverfi
■ Á fundi borgarráðs sl. fimmtudag var samþykkt með
þrem samhljóða atkvæðum tillaga lóðanefndar, dagsett 3.
þ.m., um að gefa eftirtöldum aðilum kost á fjölibýlislóð-
um í Bre i ðhol tshverfi:
Eyjabakki 2-4-«-*-M-12-14-16:
Haukur Pétursson hf., Austur-
brún 39, og Sigurður Guð-
mundsson, Laugamesvegi 67.
Ámi Vigfússon, Silfurteigi 1.
Eyjabakki 1-3-5-7-9-11-13-15:
ÞJÓÐHÁTÍÐ
1974
Þingsályktunartillagan um hé-
tiðahöld á eilefu alda afmælils-
landsbyggðar var til umnæðu á
fundi sameinaðs bings í gær og
flutti Bjami Benediktsson fram-
söguræðu.
Þingmenn sem töluðu, Gils
Guðmundsson og Ólafur Jó-
hannesson og Gísli Guðmundsson
vom á einu máli um að efna
bæri til veglegrar þjóðhátíðar
1974. Gils, sem er einn nefndar-
manna f undirbúningsnefndinni,
skýrði tillögur nefndarinnar og
hugmyndir, og kvað hana hafa
talið rétt að koma þeim á fram-
færi við Alþingi nú þegar. Með
þingsályiktunartillögunni væri
lagður grundvöllur að framhalds-
starfi nefndarinnar og frekari úr-
vinnslu úr hugmyndunum.
Valdimar Magnússon, Heiðar-
gerði 63, og Öskar og Bragi sf.
Rauðalæk 21.
Dvergabakki 2-4-6-8-10-12-14-16:
Bústaður sf., Safamýri 44.
Dvergabakki 18-20-22-24-26-28-30
-32:
Atli Eirí'ksson, Hjálmholti 10,
og Steinverk hf. Skólavörðu-
stíg 4 e.
frabakki 18-20-22-24-26-28-30-32:
Jón Hannesson, Rauðagerði 8,
og Sólgarðar sf, Rauðalæk 21.
Jöfrabakki 2-4-6-8-10-12-14-16:
Byggingaframkvæmdir sf, Álf-
heimum 19. Byggingasamvinnu-
félag lögreglumanna. Magnús
G. Jensson, Stóragerði 21, o.fl.
Bjöm Sigurðsson, Safamýri85,
Ölafur H. Ámgson, Sólheimum
22, og Grétar Áss Sigurðsson,
Bergstaðastræti 55.
Eyjabakki 18-20-22-24-26-28-30-32:
Byggingafélag sjómanna og
verkamanna.
Kóngsbakki 2-4-6-8-^.0-12-14-16:
Byggingasamvinnufél. atvinnu-
bifreiðastjóra.
Gatnagerðargjald ákveðst kr.
34,50 pr. rúmmetra og áætlast kr.
600.000,00 pr. fjölbýlishús, sem
jafnframt er lágmarksgjald. Á-
ætlað gatnagerðargjald greiðist í
einu lagi fyrir hvert fjölbýlis-
hús. Frestur til greiðslu gjalds-
ins er til 1. m-aí n.k., og feilur
úthlutunin sjálfkrafa úr gildi,
hafi gjaldið þá ekki verið greitt.
Fyrir 1. júlí n.k. ber bygginga-
samvinnufélögum að senda borg-
arráði til samþykktar skrá yfir
þá aðila, sem hyggjast byggja a
vegum þeirra. Verða þessir aðil-
ar að uppfylla þau skilyrði um
úthlutun, sem borgarráð sam-
bykkti 22. febrúar 1966. Borgar-
verkfræðingur setur alla nánari
skilmála, þ.á.m. um byggingar-
og afbendingarfrest.
Laugardagur 8. apríl 1967 —■ 32. árgangur — 79. tölublað.
Lyfjafræðingaverk-
fall á mánudaginn?
Eins og frá var sfcýrt hér
í blaðinu í gær hafa lyfja-
fræðingar boðað verkfall frá
og með n.k. mánudegi, 10.
apríl, hafi samningar ekki
tekzt fyrir þann tíma milli
félags lyfjafræðinga og apó-
tekara. í gærkvöld kl. 9 boð-
aði sáttasemjari ríkisins til
samningafundar með deilu-
aðilum og stóð fundurinn enn
er blaðið fór í prentun.
Lyfjafræðingamir sögðu upp
samningum sl. haust frá og með
1. janúar sl. að telja. í febrúar
sl. boðuðu þeir svo til verkfalls
þar eð samningaumleitanir höfðu
ekki borið neinn árangur. Að
beiðni ríkisstjómarinnar frest-
uðu þeir hins vegar verkfallinu
og lofaði ríkisstjómin að láta
fara fram athugun og samanburð
á launakjörum lyfjafræðinga og
annarra háskólamenntaðra
manna, svo sem verkfræðinga.
Mun einhver athugun hafa ver-
ið gerð en um niðurstöður henn-
ar er blaðinu ekki kunnugt.
Engir samningafundir hafa ver-
ið haidnir síðan verkfallinu var
frestað í febrúar og þar til nú.
Þjóðviljinn átti í gær tal við
formenn félaga lyfjafræðinga,
Axel Sigurðsson, og apótekara,
Birgi Einarsson, en þeir vörðust
báðir allra frétta af því hve mik-
ið bæri á milli.
Komi til verkfalls sagði Birgir
Einarsson að eigendur lyfjabúð-
anna, sem allir eru lyfjafræðing-
ar að mennt, myndu afgreiða
lyfseðla eftir sem því kæmust
yfir þannig að apótekin verða
öll opin eftir sem áður. Nær
verkfallið aðeins til lyfjafræð-
inga, en ekki aðstoðarfólks eða
afgreiðs-lufólks í lyfjabúðunum.
í gærkvöld voru deiluaðilar
á samningafundi. Stóð fundur-
inn stutt, en annar fundur hefur
verið boðaður á morgun.
Málverka- og höggmyndasýn-
ing í Listasafni ríkisins
■ í dag laugardag verður opnuð
málverka- og höggmyndasýning
í Listasafni ríkisins. Eru þar
sýnd málvcrk og nokkrar högg-
myndir cftir Nínu Sæmundsson
sem hún arfleiddi safnið að og
sömuleiðis málverk eftir aðra
listamenn sem komu heim frá
námi erlendis á árunum 1920
til 1930. Sýningin mun standa í
sex vikur eða til 21. maí.
Frú Selma Jónsdóttir, forstöðu-
maður Listasafnsins sýndi blaða-
mönnum sýninguna í gær og
sagði við það tækifæri að list-
málaramir sem eiga verk þar
hefðu allir fæðst rétt fyriraMa-
mótin. Verkin eru öll í eigu
Listasafns rikisins, nokkurþeirra
eru úr safni Markúsar ívarsson-
ar sem er nú eign safnsins.
Listmálaramfr sem verkem
sýnd eftir eru auk Nínu; Gunn-
iaugut- Blöndal, Guðmundur Ein-
arsson frá Miðdal, Jón Þorleifs-
son, Finnur Jónsson, Sveinn Þór-
arinsson, Karen Agnete Þórar-
insson, Eggert Laxdal, Ólafur
Túbals, Höskuldur Björnsson,
Ásgeir Bjamþórsson, Brynjólfur
Þórðarson, Kristinn Pétursson,
Magnús Á. Árnason, Freymóður
Jóhannsson og Kristján Magnús-
son, en sá síðasttaldi lézt ungtrr
að árum:
Nina Sæmundsson fæddist ár-
ið 1892 og lézt 1965. Hún arf-
leiddi Listasafnið að mörgum
verka sinna, en ekki eru þau öil
á þessari sýningu.
Málverka- og höggmyndasýn-
ingin verður opin á sunnudög-
um kl. 1,30 — 6, á þriðjudögum
og fimmtudögum kl. 1,30 — 4,
og á teugardögum kl. 1,30 — 6.
Loforðin um staðgreiðslu
skatta reyndist markiaus
Minnkandi tekjur verkamanna hrökkva varla
fyrir sköttum og húsnæðiskostnaáinum
Loforðin um að tekið skyldi
upp staðgreiðslukerfi skatta hafa
reynzt orð og ekkert annað, sagði
Eðvarð Sigurðsson á Alþingi í
gær, þegar til umræðu var ný-
flutt tillaga ríkisstjórnarinnar
um að henni skuli enn falin
framkvæmd „athugun málsins“
Benti Eðvarð á að stundum
hefði svo að segja verið búið að
Hinir vísu Borgfirðingar
í Luxemborgarferðalagi
Sem kunnugt er efndi Rík-
isútvarpið til spumingaiþátt-
arins „Sýslurnar svara“ í
fyrravetur. Kepptu þar full-
trúar allra sýslufélaga á land-
inu, þrír frá hverri sýslu, og
urðu Borgfirðingar hlutskarp-
astir, sigrnðu þeir reyndar
með glæsibrag. Loftleiðir
buðu sigurvegurunum í Lux-
emburgarferð á sínum trma
og eru Borgfirðingarnir íyrst
nú að notfæra sér það góða
boð. fóru þeir félagar til Lux-
emborgar í gær og koma heim
aftur é föstudag. Á mynd-
inni sjást hinir vísu Borgfirð-
ingar við brottförina í gær en
Magnús Sigurðsson, bóndi,
Gilsbakka, sr. Einar Guðna-
son í Reykholti og Sigurður
Ásgeirsson, bóndi Reykjum.
■(■■■ ■■■■■!
dagsetja framkvaemd máldim og
tiltekið árið þegar staðgreiðslu-
kerfi skyldi hefjast.
Eðvarð minnti á helztu rökin
fyrir því að verkalýðshreyfing-
in hefur haft áhuga á að skatt-
innheimtunni yrði breytt á þenn-
an veg. Nefndi hann þar fyrst
ójafnar tekjur frá ári til árs.
Taldi hann það koma mjög við
verkamenn í Reykjavík þessar
vikur vegna þess hve tekjur
þeirra hafi dregizt saman, vegna
minnkandi yfirvinnu og fleiri á-
stæðna. Mundi ekki óalgengt
að tekjurnar færu mestallar í
skatta og húsnæðisgjöld.
Þá mótmælti Eðvarð nokkr-
um fullyrðingum í áliti milli-
þinganefndar um staðgreóðslu-
málið sem nefndin hefði talið
ókosti þess kerfis. Nefndin teldi
að kerfið væri allmikið dýrara
Framhald á 3. síðu.