Þjóðviljinn - 16.04.1967, Qupperneq 13
Sunmtida'gur 16. aprfl 1967 — X>JÓÐVILJINN — SlÐA
Samskiptí Sovétr. og Kína
Framhald al 9. síðu.
izt á sveif með afturhaldssinn-
um í auðvaldslandi gegn sósí-
alistískri vinaþjóð sem átti
hendur sínar að verja. Það má
vera ljóst af því sem ég hef
sagt hér áður að ég tel ekki að
ágreiningurinri um þetta mál
hafi verið nein meginorsök vin-
slitanna. Það er þó rétt að í
landamæradeilum Kína og Ind-
lands sem stóðu næstu 3—4 ár-
in hölluðust Sovétríkin, ef
nokkuð var, fremur að málstað
Indverja og féllust m. a. s. á
að veita þeim hernaðaraðstoð
meðan enn gat litið svo út að
erjurnar á landamærunum yrðu
meiri og stórfelldari en reynd-
in varð. Ég hef áður látið í ljós
þá skoðun að Kínverjar hafi
haft réttinn sín megin í þess-
ari deilu. Þó vil ég ékki þver-
taka fyrir að Sovétríkin hafi
vegna skákstöðu sinnar í tafli
heimsmálanna haft gildar á-
stæður til þess að reyna að
halda vinfengi við Indland sem
á þeim tíma a.m k., í stjóm-
artíð Nehrus, var enn ein helzta
máttarstoð þriðja heimsins. En
vist er það að ekki var sú af-
staða sem Sovétríkin tóku í
þessu máli til þess fallin að
jafna ágreining þeirra viðKina.
Þessi ágreiningur hefur auð-
vitað komið fram i mörgum
heimsmálum og liggur þar
kannski næst við að nefna
mismunandi afstöðu til Banda-
ríkjanna. Þar hefur þó aðal-
lega verið um að ræða gagn-
kvæmar og marklitlar ásakan-
ir beggja að hinir væru hand-
bendi eða hjálparkokkar banda-
rískra heimsvaldasinna. Kín-
verjar hafa auðvitað fulla á-
stæðu til að telja Bandaríkin
höfuðóvin sinn og því eðlilegt
að þeim hafi líkað illa sú við-
leitni sovétstjórnarinnar síð-
asta áratug að bæta sambúðina
við þetta forusturíki auðvalds-
heimsins. Þó skyldi ekki lagt
of mikið upp úr þessum ágrein-
ingi. Utanríkisstefna kínversku
alþýðustjórnarinnar hefur yfir-
leitt mótazt af mikilli raun-
sýni, og engin ástæða til að
ætla annað en þeir gætu alveg
eins og Sovétrfkin séð sér hag
í að leita samkomulags um
modus vivendi við Bandaríkin.
Ég leiði hjá mér hinar hvim-
leiðu deilur um það hvort rík-
ið hafi reynzt Vietnömum bet-
ur, eðá öllu heldur hvort hafi
svikið Vietnama herfilegar. Vi-
etnamar reyna sjálfir eftir
fremsta megni að komast hjá
því að gera upp á milli þess-
ara tveggja bakhjarla sinna.
Ég sagði áðan að utanríkis-
stefna Kínverja hefði yfirleitt
mótazt af raunsýni. Þessu verð-
ur þó ekki haldið fram fortaks-
laust. Þótt hyggindi og var-
færni hafi oftast ráðið í skipt-
um þeirra við aðrar þjóðir hef-
ur það ekki ævinlega veriðsvo.
Og ég vildi leyfa mér að halda
þvi fram að þegar þeir hafa
brugðið út af meginreglu sinni,
íþegar þeir hafa að ástæðulausu
eða ástæðulitlu egnt aðra til
andstöðu við sig eða fullsfjand-
skapar, þá hefur það stafað af
:þvf að þeir hafa hagað sér gagn-
;vart öðrum á sama eða svipað-
an hátt og þeir saka Sovétríkm
um að hafa komið fram við sig,
iþ.e. af hroka, tillitsleysi til
annarra, skilningsleysi á þeim
sérstöku aðstæðum sem hver
þ.ióð býr viðí Þetta á þannig
við um skipti þeirra af t.d.
Júgóslövum, Kúbumönnum og
Indónesum, sVo að dæmi séu
nefnd. íhlutun kínverskra
kommúnista í málefni kommún-
istaflokka í öðrum löndum hef-
ur ekki gefizt betur en afskipti
sovézkra kommúnista af málum
kínverska flokksins.
Ég hef nú tæpt á nokkrum
þeim atriðum 'sem ég tel skipta
máli til glöggvunar á deilum
kínverskra og sovézkra komm-
únista. Ég geri mér fyllilega
Ijóst að mörg og veigamikil at-
riði hafa orðið útundan sem á-
stæða hefði verið til að nefna.
Ég sagðist í újpphafi ekki vera
þess um kominn að kveða upp
endanlega dóma eða algilda úr-
skurði um deiluatriðin. Þeir
sem vilja hinni róttæku verx-
lýðs- og þjóðfrelsishreyfingu
vel hljóta að harma þessa
sundrungu í röðum hennar. Þó'
er mér næst að halda að hér'
eigi það við að fátt sé svo með)
öllu illt að ekki boði nokkuð.
gott. Hugmyndafræðilegur á-
greiningur kínverskra og sov-
éakra kommúnista hefur þann-
ig orðið til þess að í eittskipti
fimmköllum.
Um einlægni konungshollra
Dana verður ekki efazt, en hjá
ýmsum sýnist hún þó haldast
nokkuð í hendur við ábatavon-
ina, a.m.k. eru þeir ófáir
dönsku framleiðendurnir og við-
skiptaaðilarnir sem telja það
mikils virði að geta flaggað
hinni konunglegu hirð á vöru-
merkjum sínum eða verzlunar-
pappírum; hvað skyldu þeir
t.d. vera margir sem auglýsa á
vöruumbúðum sínum: Lever-
andör til det Kgl. danske hof?
En hin konunglega hirð er
ekki bara talin góð auglýsing
hjá athafnamönnum einkafram-
fyrir öll hefur verið vikið frá
þeim einstefnusjónarmiðum sem
kunna að hafa haft sitthvaðtil
síns ágætis á vissu skeiði, en
myndu vera hreyfingunni fjöt-
ur um fót við þau skilyrði sem
henni eru nú búin. Þau orð
Bertolts Breehts hafa enn
sannazt að kommúnisminn sé
það eirifalda sem erfitt sé að
gera. Hverjuín sósíalista er
hollt að hafa þau orð jafnan í
huga — og nú líður varla sá
dagur að við séum ekki minnt-
ir á þau.
Cins og áður var getið verður
mikið um dýrðir í sumar þeg-
ar Margrét ríkisarfi og Hinrik
prins verða gefin saman í
hjónaband. Búizt er við þús-
undum erlendra fréttamanna
til Kaupmannahafnar í tileíni
hjúskaparins, og er reyndar
gert ráð fyrir að þeir dveljist
þar í borginni nokkra næstu
daga á eftir og fylgist þá með
aðalhátíðahöldunum í sam-
bandi við 800 ára afmæli höf-
uðborgar Danmerkur. Þau há-
tíðahöld verða mikil og fjöl-
breytt — og segir nokkuð frá
þeim í næstu grein. I.H.J.
Meira og minna sunduriaust
Framihald af 7. síðu.
greiða fargjald, hópazt saman
með látum á almannafæri, kast-
að reykbombum á Amalíuborg-
artorgi, efnt til hommabrúð-
kaups á ráðhústorgi, þ.e.a.s.
„gefið saman“ með tilhlýðilegri
viðhöfn ungmenni af sama
kyni; einstaka provoar hafa
gengið með áletruð skilti á
fjölförnum götum (í vetur sást
t.d. einn af eldri provo-kyn-
slóðinni við storkagosbrunninn
á Strikinu með skilti þar sem
á var letrað „Mere hash til
Martin“), aðrir hafa borið fram
„kröfur“ um að fá greidda 25
aura í hvert skipti sem þeir
nota almenningssalerni i(!) og
svo framvegis.
Sv„„. eru 1 ^
provoanna jafn fáránleg og
klæðnaður þeirra er afkáraleg-
ur og óhreinn, enda líta flest-
ir á „hreyfinguna" sem mein-
lítið grín unglinga, tízkufyrir-
bæri sem grípur um sig meðal
ákveðinna aldursflokka en
hjaðnar síðan eins og bóla þeg-
ar tímar líða eða tekur á sig
nýjar myndir.
Þó hafa lögregluyfirvöldin i
Kaupmannahöfn tekið spor-
vagnaævintýri provoanna al-
varlega — og að sjálfsögðu sýnt
festu þegar lítilsvirðing hefur
verið sýnd þjóðhöfðingjanum
eða hans fólki öllu. Því að Dan-
ir eru að því er virðist lang-
flestir hollir sínum kóngi,
drottningu, prinsessum og
prinsum; það fer ekki íramhjá
neinum sem til Danmerkur
kemur að þar er konungdæmi,
allstaðar brosa þau Friðrik
kóngur og Ingiríður drottning
til manns niður af veggjum,
hvort sem komið er inn í gisti-
hús, veitingastaði. skip eða
verzlanir — og vangamynd
konungs geymir maður í buddu
eða vasa á krónupeningum og
taksins, heldur er líka allt sem
í kringum hana snýst, skraut-
legt og gamaldags og snobbað,
óspart notað til að draga að
útlenda ferðamenh, og létta
jafnframt á pyngju þeirra.
Það fer yfirleitt og hefur far-
ið á undanförnum árum heldur
lítið fyrir andstæðingum kon-
ungsdæmisins í Danmörku, lýð-
veldissinnunum — gagnstætt því
sem átt hefur sér stað t.d. í
Svíþjóð. Helzt er að mönnum
þyki kostnaðurinn af hirðhald-
inu óhæfilega mikill. Til dæm-
is hafa orðið nokkur blaðaskrif
undanfarna mánuði vegna þess
aukna kostnaðar sem ríkissjóð-
urinn danski hefur orðið að
taka á sig í sambandi við
væntanlega giftingu Margrétar
prinsessu og ríkisarfa og Hinr-
iks prins. Þau verða gefin sam-
an 10. júní í sumar og verður
þá mikið um dýrðir i Kaup-
mannahöfn. Um alllangt skeið
hefur verið unnið að gagnger-
um og dýrum endurbótum á
einum hluta Amalíuborgar, þar
sem þau hjón fá inni eftir gift-
inguna. Og þjóðþingið hefur
samþykkt, að tillögu ríkis-
stjórnarinnar, að lauri ríkisarf-
ans — eða framlag til hans úr
ríkissjóði — hækki úr litlum
250 þús. kr. (dönskum) í 900
þús. kr. árlega, auk þess sem
eiginmaður krónprinsessunnar
fær í framtíðinni 75 þús. kr. á
ári hverju í eigin vasa. Þetta
framlag ríkissjóðs til Hinriks
prins er auðvitað gert til þess
að hann þurfi ekki að ganga
til konu sinnar eins og hver
annar ölmusumaður og biðja
um fáeinar krónur í hvert
skipti sem hann þarf á vasa-
peningum að halda.
10 miljónum króna (d) á að
safna meðal dönsku þjóðarinn-
ar og kaupa fyrir höll utan
Kaupmannahafnar handa ungu
hjónunum. Það verður þjóðar-
gjöfin til þeirra.
★
Jón Finnsson
hæstaréttarlögmaðui
Sölvhólsgötu 4.
(Sambandshúsinu III. hæð)
símar 23338 og 12343
SMURSTOÐIN
Kópavogshálsi
Sími 41991
Opin trá kl. 8—18.
A fostudÖKum kl. 8—20.
☆ ☆ ☆
HEFUR ALLAR
algengustu smurolíuteg-
undir fyrir diesel- og
benzínvélar.
BRIDGESTONE
HJÓLBARÐAR
Síaukin sala
sannar gæðin.
B.RI DG ESTONE
veitir aukið
öryggi í akstri.
BRIDGESTONE
ávailt fyrirliggiandi.
GÓÐ ÞJÓNUSTÁ
Verzlun og viðgerðir
Gúmmbarðinn h.f.
Brautarholti 8
Sími 17-9-84
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
Auglýsið í Þjóðviljanum
Hamborgarar
Franskar kartöflur
Bacon og egg
Smurt branð og
snittur
SMÁRAKAFFI
Laugavegi 178.
Sími 34780.
Geríð við bílana
ykkar sjálf
— Við sköpum áðstöðuna
Bílaþjónustan
Auðbrek>> 53. Sími 40-145.
Kópavogi.
ÍBÚÐA
BYGOJENDUR
Smíði á
INNIHURÐUM
hefur veriö
sérgrein okkar
um árabil
Kynnið yður
VERÐ
GÆÐI
AFGREIÐSLTJ
FREST
14.
SIGURÐUR
ELÍASSON%
Auðbrekku 52 - 54,
Kópavogi,
sími 41380 og 41381
TPUIO-FUNAP „
HRINGIR/í
Halldór Krístinsson
gaillsmiður. Oðinsgötu «
Simi 16979
Nýja
þvottahúsið
Simií 22916.
Ránargötu 50.
20% afsláttu- af öllu
taui — miðast við 30
stykki.
Smurt brauð
Snittur
brauð bcer
við Óðinstorg.
Sími 20-4-90.
HÖGNI JÓNSSON
Lögfræði- og fasteignastofa
Bergstaðastræti 4.
Sími 13036,
heima 17739.
Sængurfatnaður
— Hvítnr og mislitur -
ÆÐARDUNSSÆNGUB
GÆSADÚNSSÆNGUB
DRALON SÆNGUB
*
SÆNGURVER
LÖK
KODDAVER
riði*
Skólavörðustíg 21.
S Æ N G U R
Endumýjuro gömlu sæng-
urnar, eigum dún- og fið-
urheld ver og gæsadúns-
sængur og kodda af ýms-
um stærðuro
Dún- og
fiðurhreinsun
Vatnsstíg 3. Simi 18740.
(örfá skref frá Laugavegi)
Viðgerðir
á skinn- og
rúskinnsfatnaði.
Góð þjónusta.
Leðurverkstæði
Úlfars Atlasonar.
Bröttugötu 3 B.
Sími 24-6-78.
Snorrabraut 38
Þar sem ekki hefur tekizt
að fá framlengt Ieigusamn-
ingi um húsnæðið á Snorra-
braut 38, verður verzlun-
inni þar lokað um miðj-
an aprfl n.k. Til þess tima
seljum við allar vörur i
verzluninni með miklum
afslætti
Athugið að allar
vörur eru seldar
með afslætti, hvort
sem um er að ræða
nýkomnar vörur
eða eldri.
#
Eftir að verzluninni hefur
verið lokað biðjum við við-
skiptavini okkar að snúa
sér til verzlananna á Lauga-
vegi 38 eða Skólavörðu-
stíg 13.
Skálaoifrðustíg 36
Sími 23970.
ÍNNHeiMTA
iðonA&t&rðHF
Vö CR öezt