Þjóðviljinn - 01.06.1967, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.06.1967, Blaðsíða 1
Fimmludagur 1. júní 1967 — 32. árgangur — 120. tölublað. Utankjörfundarkosning Utankjörfundarkosningin 1 Melaskólanum stendur yíir daglega kl. 10—12, 2—6 og 8—10. Þeir sem eiga lögheimili úti á landi en eru í Reykjavík og verða það á kjördag ættu að greiða atkvseði sem allra fyrst svo tryggt sé að atkvæðin verði komin til skila á við- komandi kjörstað fyrir kjördag. Reykvíkingar, sem ekki verða í bænum á kjördag, ættu að kjósa strax utan kjörfundar. Kosningasjóðurinn G-listinn vill minna á og beina þeim tilmæl- um til allra sinna stuðningsmanna að þeir reyni, hver eftir sinni getu, að hressa upp á kosningasjóðinn. Hann ræður því miður illa vfð þær háu fjárha^ðir sem allir hlutir kosta nú á þessum síðustu og verstu viðreisnar- tímum. G-listinn. aup sjómanna er lækkað um 30% Fyrstu sildarbátaxnir eru þegar farnir út. Þorsteinn fór í fyrrinótt, Gísli Árni í gærmorgun og hér á myndinni sjást skipverjar á Ásberg var að taka nótina um borð um miðjan dag í gær. Sjá frétt á baksíðu. — (Ljósm. Þjóðv. Hj. G.). Reykjavíkurgangan — gegn herstöðvum, fasisma og erlendri ásælni Undirbúningur REYKJAVÍKURGÖNGU 1967 er nú í full- um gangi. Gangan verður á sunnudaginn kemur og héfst kl. 13,15 með því að þátttakendur safnast saman á mótum Suðurlandsbrautar og Langholtsvegar. Á leiðinni verða haldnir þrír stuttir fundir, sá fyrsti við Hamrahlíðarskól- ann, annar við. Skothúsveg handan Tjamarbrúar og sá síðasti í lok göngunnar við Leifsstyttuna á Skólavörðu- holti. Áaatlað er að gangan öll standi yfir í u.þ.b. 5 klst. Daigskrá göngunnar verður í stórum dráttum sem hér segir: Kl. 13,15 Safnazt saman við mót Suðurlandsbrautar og Langholtsvegar. Um kl. 15,Ö0 Fundur við menntaskólann í HamraWið. Fund- arefni: Grikkland.. Sigurður A. Magnússon, blaðamaður, ávarpar fundarmenn. Um kl. 17,30 Fund'ur við Skothúsveg. Fundarefni: Víetnam. Vilborg Dagbjartsdóttir, kennari, ávarpar fundinn. Um kl. 18,00 Göngunni lýkur við Leifsstyttu á Skólavörðu- holti. Haldinn verður stuttur fundur, helgaður herstöðvamálinu og kröfunni um íslenzka utan- ríkisstefnu. Ávarp flytur Jóhannes úr Kötlum. skáld. Reykvíkingar, látið skrá ykkur í REYKJAVÍKURGÖNGU 1967. Símar göngunnar eru 1-75-13. 2-47-01 og 3-79-93. Hemámsand- stæðingar, gefið ykkur fram til starfa fyrir gönguna. Samein- umst í að gera REYKJAVÍKURGÖNGU 1967 að SIGURGÖNGU. FRAMKVÆMDANEFND REYKJAVÍKURGÖNGU 1967. Munið kosningahappdrœtti G-listans - GERIÐ SKIL <$>- Bræðslusíldarverðið skammtað kr. 1.21 í stað kr. 1.71 í fyrrasumar: — Ríkisstjórnin hafði forustu í þessari árás á lífskjör sjómanna Kaup síldveiðisjómanna hefur v^rið lækkað um 30% frá því í fyrra. Þetta felst í úrskurði yfirnefndar verðlagsráðs sjávarútvegsins, sem samþykkti á fundi í fyrrinótt áð bræðslusíldarverðið frá 1. júní til 31. júlí 1967 skuli vera 1,21 kr. hvert kíló. Verðið í fyrra, frá 9. júní til 30. september, var 1,71 kr. Með verðákvörðun þessari er freklega ráðizt á lífskjör síldveiðisjó- manna, sem hefja nú vertíðina hálfum mánuði til mánuði síðar en í fyrra vegna veiðibanns ríkisstjórnarinnar í maí, og eftir lélega vetr- arvertíð. Það er að sjálfsögðu ríkisstjórnin sem gegnum stjórn Síldarverk- smiðja ríkisins og embættismenn sína hefur haft úrslitaákv' ðun á þessa verðlagningu, sem kemur fram sem ósvífin, stórfelld kaup lækkun í garð sjómanna. .... KOSNINGA- SKRIFST0FA ALÞÝDU- BANDALAGSINS KOSNINGASKRIFSTOFA AI- þýðubandalagsins í Tjarnar- götu 20 er opin kl. 10—10 daglega, símar 17512 og 17511. IvOSNINGASKRIFSTOFA Al- þýðubandalagsins sem var til húsa í Lindarbæ er flutt að MIKLUBRAUT 34, símar: 20805 og 18081, opið kl. 9—6. HAFIÐ SAMBAND við kosninga- skrifstofurnar og Iátið skrá ykkur til starfa á kjördag. Stjórn samtaka . síldarsjó- manna kom saman á fund í gærmorgun og samþykkti ályktun þar sem hún lýsir yfir að samtökin telji óeðli- legt að sjómenn og útgerðar- menn taki á sig óbætt verð- fallið sem orðið hefur á sildarafurðum, þar sem öll þjóðin hafi notið góðrar af- komu síldveiðanna á undan- förnum árum. Samtök síldveiðisjómanna krefjast þess, að þegar gerð- ar verða ráðstafanir útgerð- inni til handa verði hlutur sjómanna bættur að sama skapi og hlutur útgerðarinn- ar. Samtök síldveiðisjómanna tel'ja ennfremur að vinna beri að niðurféllingu út- flutningsgjalds af sjávaraf- urðum, að hærra markaðs- verði sjávarafurða með betra sölufyrirkomulagi og aukinni nýtingu aflans. SJÓMANNAKAUPIÐ EKKI TIL RÁÐSTÖF- UNAR Það er sannarlega nóg komið af því að ríkisstjómin, síldarvenksmiðjumar og emb- ættismenn ráðist að lífskjör- um sjómannastéttarinnar eins og hér hefur enn verið gert. Það má vart dragast lengur að ráðherrum, for- stjórum og embættismönnum sé kennt það, að sjómanns- kaupið er ekki til ráðstöfun- ar og stórfelldar kauplækk- anir sjómanna verði ekki látnar viðgangast, á sama tíma og allar aðrar starfs- stéttir' landsins hyggja á bætt kjör. Yfirlýsing verðlagsráðs sjávarútvegsins um síldar- verðsákvörðunina og yfirlýs- ing stjórnar Samtaka síld- veiðis'jomanna eru birtar annars staðar í blaðinu. <$>- Flugvél fórst vi6 Viðey í gærkvöld Það slys varð í gærkvöld að lítil flugvél steyptist í sjó- inn skammt norðaustur af Viðey. Að því er bezt er vitað fórst einn maður með vélinni. Slysið varð skömmu fyrir kl. níu í gærkvöld. Að því ar lögreglan tjáði blaðinu í gærkvöld sáu menn er voru á báti þarna á sundinu að lítil flugvél flaug skammt frá þeim mjög lágt, fór svo að annar vængur hennar snart yfirborð sjávar og hvolfdi vélinni þá og stakkst í sjó niður umsvifalaust. Þessir sjónarvottar voru að- eins um 200 m frá slysstaðn- uin. Innan skamms voru komn- ir á vettvang bátar og frosk- menn frá lögreglunni, slysa- vömum og öðrum aðilum og voru þeir enn á slysstað laust fyrir kl. 23 í gær. Ekki var vitað um tildrög slyss- ins, hvort um vangá' flug- mannsins eða vélarbilun var að ræða. Flugvél þessi er af Cherokke-gerð. Tillögur Alþýðubandalagsins í borgarstiórn Reykjavíkur: Bætt verði úr atvinnuleysi unglinga — borgin hefji smíði 200 leiguíbúða ■ Á dagskrá bo-rgarstj ómarfundarins í dag eru nokkrar tillögur borgarfulltrúa Alþýðubanda- lagsins. ■ Þeir Guðmundur Vigfússon og Sigurjón Björnsson flytja tillögu um að tekið verði til gaumgæfilegrar athugunar hverjar ráðstafan- ir unnt sé að gera af hálfu borgaryfirvalda til að greiða fyrir atvinnumöguleikum þeirra ung- linga í borginni á þessu sumri, sem eru eldri en svo, að þeir verði teknir í Vinnuskólaim, og fá heldur ekki vinnu á almennum vinnumark- aði. ■ Jón Snorri Þorleifsson flytur tillögu um að borgaryfirvöld hefji nú þegar undirbúning að byggingu 200 íbúða í fjölbýlishúsum. Skuli í-' búðir þessar vera af mismunandi stærðum og vera leiguíbúðir ætlaðar bamafjölskyldum í húsnæðishraki, fólki sem býr í lélegu eða ó- hæfu húsnæði og u»gum hjónum sem eru að hef ja búskap. ■ Jón Snorri flytur einnig tillögu um gæzlu- velli fyrir böm í nýjum borgarhverfum og Sigurjón Björnsson flytur tillögu um helgar- skemmtanir unglinga. !■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■«■■»■■! HHHiMmniiniHiiuiiaill

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.