Þjóðviljinn - 11.06.1967, Blaðsíða 3
Suiirwidogiur 11. júní 1967 — ÞJÓÐV7UINN — SÍÐA J
— SPJALLAÐ VIÐ OTVARPS-
MENN OG SJÖNVARPSMENN
ÞEGAR SÁLMA-
LAGSD LENTIÁ
FÓNINN Á
KOSNINGANÓTT
Á engum fréttastpfum mæðir
meira fréttamiðlun af kosn-
ingaúrslitum en þeim hlutlausu
stofnunum útvarpi og sjónvarpi.
Eru þessar fréttastofnanir svo
til einráðar lengi vel um tíð-
indi ill eða góð, — kannski er
aldrei tiplað eins fínt þessa
braut hlutleysis, þó að naktar
og miskunnarlausar staðreyndir
talnanna fljúgi út í loftið öðru
hvoru nótt og dag á slíkum ör-
tlagatímum.
í gamla daga var þetta orðið
nokkuð fastmótað hjá útvarp-
inu. Þuilurinn sat á skyrtunni
við hljóðnemann með grammó-
fóninn og þlötubúnkann öðrum
megin og vatnsglas og karöfflu
hinum megin og las svo upp í
grið og erg kosningatöíur, —
þegar líða tók á nótt varðþetta
frjálslegra og kaffikanna komin
í. spilið og búið að bretta upp
skyrtuermarnar, og fréttamið-
arnir streymdu að úr ótalkjör-
dæmum svo tugum skipti úti á
landsbyggðinni.
Þá var stundum ekki gáð á
plötumar áður en þær fukui.é
fóninn, — einu sinni hailaði á
íhaldið í Vestur-Skaft. undir
slMkum kringumstæðum og
sálmalagið „Faðir andanna’
hljómaði á hverju býli á land-
inu. Það þótti nú mörgum ó-
þarflega djúpt tekið í árinni,
þó að nokkur íhaldsatkvæði
kæmust ekki til skila, — á
hverjum sorpkassa hér í borg-
inni. er gefið i skyn, hvernig i-
haldsatkvæðunum reiðir raun-
verulega af í baráttunni fyrir
hagsmunum fólksins.
Þar á undan höfðu eldhús-
dagsumræður dregizt fram yfir
miðnætti og ein plata hrökk
svona óvart á fóninn í lokin-
Hvaða lag var það? „Rokkarn-
ir eru þagnaðir“, — þá brosti
margur kjósandi í skegg sitt.
Spike Jones og
og skopsögur
■ Svona verður þetta líka með
gamla laginu næstu nótt í út-
varpinu, — annars vill Guð-
mundur Jónsson hnika til dag-
skránni og er ætlunin að lesa
upp, þingvísur og rifja upp
gamlar skopsögur úr kosninga-
baráttunni, — tvær smásögur
verða lesnar upp með tilheyr-
andi atburðarás úr kosningum,
— búið er að velja fimmtíu
kórlög og marza, — þá er
ætlunin að spila Spike Jones,
ef hallar á íhaldið, — leirtau
■ brotið í massavís og borð og
stólar með brauki og bramli
og þvottabalar beyglaðir með
dósahringli.
Aðeins verða lesnar upp
kosningatölur úr Reykjavík og
fyrstu tölurnar úr Reykjanes-
kjördæmi og lýkur útvarpinu
klukkan fimm um morguninn
og á þá alít að liggia ljóst
fyrir í höfuðstaðnum.
‘ Við litum inn á fréttadeild
ríkisútvarpsins í gærdag og var
þá Jón Magnússon, fréttasjóri
að raða niður verkefnum, —
.þannig er ætlunin að láta heyra
í kjósendum á kjörstöðum og
verður sennilega Hafnarfjörður
fyrir valinu og kannskl Kópa-
vogur, og birtar verða tölur um
kjörsókn í allan dag fram á
kvöld-
Öll krummaskuðin
fyrir vestan
Þá litum við inn í sjónvarps-
deild ríkisútvarpsins við I>auga-
veg og hittum þar aðmáliMagn-
ús Bjarnfreðsson og Ólaf
Ragnarsson, — hefur undir-
búningur að kosningadagskrá
sjónvarpsins aðallega hvílt á
þeim félögum og ræddum við
stundarkorn við þá.
— Það er nokkrum erfið-
leikum bundið að útbúa kosn-
ingadagskrána af því að kjör-
dæmin eru svo fá og stór, —
erfiðleikum bundið að sk'apa
fjölbreytta og lifandi dagskrá
af þeim sökum, sagði Magnús.
— Er þetta ekki bara Tíma-
áróður síðan í gamla daga frá
kjördæmabreytingunni? sögðum
við í S'tríðni.
Og við gengum á verkstæð-
in og þar voru þeir að smíða
í gríð og erg fyrir væntanlega
kosningadagskrá. Þar sat til
dæmis maður við ákaflega
huggulegt starf. Hann var að
teikna G-ið <og klippti síðan
út og dreifði í kringum sig, og
út um allt lágú G-in.
— Er ekki hægt að teikna
kross fyrir framan G-in?spurð-
um við.
Það gera kjósendurnir,
sagði klippingameistarinn.
Annar sat við að klippa út
ísland og var orðinn dofinn
í annarri hendinni við að klippa
út Vestfirði, — gerði það ná-
kvæmlega og samvizkulega, —
þú getur sleppt einhverju af
þessum krummaskuðum, sagði
annar stjórnandinn.
Og bama var búið að klippa
út Island og síðan var það
úðamálað á maghonitplötu, og
ætlunin er að afmarka kjör-
dæmin, — þá verða settar litlar
Ijósaperur í hvert kjördæmi
og í sjónvarpssal táknar slökkt
Pera, að talning sé ekki hafin,
blikkandi pera, að talning
sé yfirstandandi og stöðugt Ijós,
að talningu sé lokið-
Snámenn
Einn sat við að mála gríðar-
stórt spjald með hálfhringum
og klukkuvísum og á að sýna
aukningu eða lækkun í pró-
sentuvís á heildaratkvæðamagni
flokkanna og gert ráð fyrir
sveitfilum að fimm prósentum —
upp eða niður — og fer þessi
smíði auðvitað í vaskinn, ef
sveiflunar verða stórfeíldari
milfi flokkánna.
Svona er allt komið undir
kjósendum þennan dag.
Þeir félagar eru búnir að
útvega sér spámenn og kpma
þeir frám í sjónvarpinu fjórum
mínútum eftir að kjörstöðum
er lokað í borginni.
Fyrst kom til greina að fá
pólitíska ritstjóra tid þess að
spá, — hætt var við það á
síðustu stundu, þar sem þeir
voru eiginlega negldir upp við
vegg og hægt að nota þessa
spádóma í annarlegum tilgangi
síðar.
Þannig hafa verið fengnir
sem spámenn Indrjði G. Þor-
steinsson, Matthías Johannes-
sen, Kristján Bersi Ölafsson
og Jón Múli Árnason.v
Ekki er ætlunin að sjónvarpa
mikið eftir miðnætti á mánu-
dagsnótt. — þó ætla þeir að
sýna brúðkaupsmyndir dönsku
krónprin.sessunnar og franska
greifans og verða þær nýjar
af nálinni, — beint frá danska
sjónvarpinu.
Á mánudagskvöld verður
mikið sj'ónvarpað 'frá kosningun-
um, — aátlunin er að sýna kvik-
my.ndir af öllum kjörstöðum
á landinu og koma bær sem
svipleiftur bak viðkosningatölur
úr hverju kjördæmi, — þá
verða hafðar uppi persónu-
kynningar og allskonar fróð-
leikur um kosningaúrslit frá
fyrri kosningum og allt er þetta
stílað upp á líf og fjör.
MYNDIR OG TEXTI: G. M.
Ferskar og nýjar hugmyndir á ferðinni í sjónvarpinu og eru þessir menn að vinna að undirbún-
ingi kosningadagskrár enda í fyrsta skipti sem sjónvarpað er frá kosningum hér á landi. Frá v.:
Sigurður Örlygsson, Magnús Bjarnfreðsson, Björn Björnsson, Ólafur Ragnarsson og Björn Krist-
Þcttta verður með gamla laginu í útvarpinu á kosninganótt. Grammófónninn, plötubúnkinn og
vatnsglasið hjá útvarpsþulnum og kosningatölur í gríð og erg. — Hér á myndinni er Ragnheiður
Asta Pétursdóttir, þulur, við útsendingu í gærdag og kaffikannan verður áreiðanlega notuð á
kosninganótt — (Ljósm. Þjóðviljinn G.M.).
Nasser dregur afsögn sína
tif baka að kröfu ’iingsins
KAIRO og NEW YORK 10/6 —
Nasser, forseti Egyptalands, dró
í morgun til baka yfirlýsingu
um að hann segði af sér for-
setaembætti.'
Þessari ákvörðun Nassers var
útvarpað beint frá fundi í eg-
ypzka þinginu, sem kom saman
til að ræða það ástand sem
skapaðist eftir afsögn Nassers í
gær. Áður höfðu hundij-uð þús-
unda farið í kröfugöngu um
götur Kaíró og heimtað að Nass-
er yrði áfram við völd og þing-
ið hafði svarað afsögn hans með
svohljóðandi samþykkt: „Við
segjum nei, nei — þú ert leið-
togi vor og forseti lýðveldisins
meðan þú lifir“.
í bréfi frá Nasser tfl forseta
þingsins, Sadat, segir, að hann
vilji halda áfram að gegna
störfum forseta „þar til búið
er að binda endi á afleiðingar
árásarinnar" — en síðan muni
hann láta þjóðaratkvæðagreiðslu
skera úr um framtið sína. Hann
segist sannfærður um að hann
eigi að segja af sér, én hinsveg-
ar geti hann fyrir sakir ábyrgð-
artilfinningar ekki annað en
tekið tillit til afstöðu fólksins.
Enn hefur ekki komizt á
vopnahlé milli ísraels og Sýr-
lands. Útvarpið í Damaskus til-
kynnti í morgun, að nú geisuðu
götubardagar í borginni Kun-
eitra, sem er 16 km inn-an landa-
mæranna og 65 km frá Dam-
askus.
Öryggisráðið kom saman á
fund í morgun til að ræða mál-
ið. Ú Þant, framkvæmdastjóri
SÞ upplýsti, að formaður sýr-
lenzk-JÍsraelsku vopnahlésnefnd-
arinnar hefði tilkynnt að ísra-
elsmenn hefðu gert loftárásir á
Damaskus í morgun kl. 9.23.
Sýrlendingar kröfðust þess að
þessar árásir ísraelsmanna yrðu
fordæmdar og fulltrúi Sovétrikj-
anna, Fjodorenko, tók undir þ m
kröfur. Fulltrúi Bandaríkjanna,
Goldberg, sagði að loftárásirnar
væru alvarlegt rof á vopnahlé-
inu, en bað ráðið að safna einn-
ig upplýsingum um stórskotá-
árásir Sýrlendinga við Galileu-
vatn.
QBQBBQB □ M
NYTIZKU
KJÖRBÚÐ
Kynnist vörum, verði og þjónustu.
Góð bílastæði.
KRON Stakkahlíð 17
i