Þjóðviljinn - 11.06.1967, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Sunnuciitgur U. juni 1-óZ.
Otgefan 3i: Sameiningarnoftkur alþýðt — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivai H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Siguröur Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingast).: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj-: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, aígreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust 19.
Simi 17500 (5 línur) — Askriftárverð kr. 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00-
Eining alþýðunnar
Ðjartsýni, stórhugur, dirfska, trúmennska, þrot-
" laúst starf — allt þetta hefur einkennt íslenzka
verkalýðshreyfingu, gefið henni reisn og fært
henni stóra sigra í áratuga baráttu um alþýðuimál-
staðinn. Manna hennar sem í ríkustum mæli hafa
haft til að bera þessa eiginleika er minnzt með
þakklátum hug, ævi þeirra beindist ekki að því
að upphefja sjálfa sig heldur að einu marki: að
hefja alþýðu til fullrar vitundar um mátt hennar
og hlutverk; beindist að því að efla og móta verka-
lýðshreyfinguna, samtök hinna snauðu og rétt-
litlu, svo alþýðan hefði afl til að fylgja eftir kröf-
um sínum um kjör mönnum sæimandi, um fyllsta
rétt íslenzks þegns, um menningarlíf, um land-
vöm gegn erlendri ásælni, um alþýðuvöld. Um
hina sem brugðust í þeirri baráttu, um „sæmd“
verkfallsbrjó'tsins, um „heiður“ liðhlaupans, er
þess helzt að vænta að miskunn gleymsku og þagn-
ar notist þeim.
17'erkalýðshreyfingin, alþýðusamtökin, er snúin
* tveim þáttuim, annar þeirra verkalýðsfélögin,
hinn stjórnmálaflokkur eða flokkar sem vaxa upp
úr verkalýðsfélögunum vegna skilnings á nauðsyn
stjórnniálabaráttunnar. Það tokst eftir erfiða ;og
langa baráttu að sameina verkalýðsfélög landsins
í eina heild, Alþýðusamband íslands. Sundrungin
í stjórnmálasamtökum alþýðunnar er enn stað-
reynd, og er orðin íslenzkri alþýðu dýr. Þeirri
sundrungu hlýtur að Ijúka mað kynslóðinni sem
nú er ung, alþýðu íslands hlýtur á næstu áratug-
um að takast að efla ein stjórnmálasamtök, sam-
eina kraftana til hinna stóru átaka í sókn alþýðu-
fólksins til betri kjara, til áhrifa og valda.
TTverj'ar alþingiskosningar geta orðið mikilvæg-
ur áfangi að því marki að efla ein stjórnmála-
saimtök alþýðunnar, — en þær geta líka orðið ti.l
þess að tefja þá þróun og torvelda hana, láti al-
þýðufólk blekkjast af áróðri afturhaldsflokka eða
taki að skipta sér í nýja og nýja hópa í stað þess
að treysta raðirnar, efla ein stjórnmálasamtök.
í kosningunum í dag er vonin um aukinn styrk
alþýðumálstaðar á þingi, vonin um að takast megi
að fella óvinsæla ríkisstjórn og breyta hættulegri
stjórnarstefnu, bundin því einu að Alþýðubanda-
lagið hljóti aukinn þingstyrk næsta kjörtímabil.
Þar munar mestu um hlut Reykjavíkur, en í borg-
arstjórnarkosningunum í fyrra vann Alþýðu-
bandalagið í Reykjavík eftirminnilegan sigur, bætti
viið sig um þúsund atkvæðum. Takist í dag að
fylgja þeim sigri eftir, er tryggð þingseta Magn-
úsar Kjartanssonar, Eðvarðs Sigurðssonar og Jóns
Siiorra Þorleifssonar. Engarí þeirra þárf að kynna
reykvískri alþýðu 1 kosningaáróðri. Sefasýkishróp
úr ýmsuim áttum um þá Magnús, Eðvarð og Jón
Snorra sem „ofstækismenn“ og „einræðissinna“
vekja einungís vorkunnlátt bros Reykvíkinga. Með
starfi sínu í þágu alþýðumálstaðarins hafa þeir
allir um áratuga skeið lagt sitt fram, og það starf
þekkja Reykvíkingar, — þrotlaust starf að kjara-
málum, að landvarnarmálum, að hagsmuna- og
Fyrstu tölurnar koma kl. 11,
síðustu á mánudagskvöUið
í Reykjavík verður talið strax
og kjörfundi lýkur, upp úr kl.
11, sagði Páll Iindal borgar-
lögmaður, formaður yfirkjör-
stjómar. Byrjað verður að
flokka niður atkvæðin eitthvað
fyrir þann tíma og verður hóp-
ur manna lokaður inni við það.
Fyrstu tölur koma strax eftir
kl. 11 og við gerum ráð fyrir
að talningu verði lokið um svip-
að leyti og i fyrra eða um kl. 4.
I Reykjavík voru á kjörskrá
á föstudag 46232 kjósendur, en
við þá tölu átti eftir að bætast
í gær nokkur hópur sem kærð-
ur var inn á síðustu stundu og
dragast frá þeir sem látizt hafa
siðan kjörskrá var samin, í
byrjun aþríl.
Atkvæðatalning í Reykjanes-
kjördæmi hefst einnig fljótlega
eftir að kjörfundi lýkur, líklega
milli 12 og 1 um nóttina og má
búast' við fyrstu tölum fyrir .ol.
1 og lokatölunum milli 4 og
5 um morguninn, að því er
formaður yfirkjörstjómar þar,
Guðjón Steingrímsson sagði
Þjóðviljanum. Atkvæðunum
verður safnað með bílum, senni-
lega með aðstoð lögreglunnar
og talning fer fram í Góðtempl-
arahúsinu í Hafnarfirði. 1
Reykjaneskjördæmi eru 16922 á
kjörskrá.
Atkvæði úr Vesturlandskjör-
dæmi verða talin í Borgamesi
þegar kjörkassarnir úr öllu
héraðinu eru þangað komnir og
bjóst Þórhallur Sæmundsson
□ Þeir sem ætla að
sitja við útvarpstækin sín
og fylgjast með kosninga-
úrslitunum aðfaranótt
mánudagsins munu kom-
ast í rúmið á fremur
skikkanlegum tíma eða
um kl. 4, þegar síðustu
tölur koma úr Reykjavík
og Reykjaneskjördæmi.
Fyrstu tölunum má bú-
ast við strax upp úr
klukkan 11.
□ Úr öðrum kjördæm-
um koma tölur ekki fyrr
en á mánudag, úr Vestur-
landskjördæmi strax um
morguninn, hinum síðdeg-
is, samkvæmt þeim upp-
lýsingum sem Þjóðviljinn
fékk hjá formönnum yf-
irkjörstjórnanna. Talning
hefst nú fyrr í mörgum
kjördæmum en oft áðúr
og er allt gert til að flýta
fyrir, t.d. á að safna at-
kvæðum á Vestfjörðum
með flugvél og á Aust-
fjörðum verður varðskip
sennilega í förum með
suma atkvæðakassana.
bæjarfógeti á Akranesi, sem er
formaður yfirkjörstjómar, varda
við að talning gæti hafizt fyrr •
en kl. 6 um morguninn, svo
fyrstu tölur úr kjördæminu
koma sennilega ekki fyrr-en kL
7 til 8 um morguninn. Kjós-
endur á kjörskrá í Vesturlands-
kjördæmi voru á föstudags-
kvöld 6931, en Þórhallur glerði
ráð fyrir að sú tala breyttist
eitthvað í gær. Talsvert mikið
hafði verið kosið utan kjör-
fundar á Akranesi og stöðug
kosning síðustu dagana.
Yfirkjörstjórn Vestfjarðakjör-
dæmis hyggst nota tæknina út
í æsar og ætlar, ef veður leyfir,
að senda flugvél um Stranda-
sýslú og Barðástrandarsýslu til
að safna saman atkvæðaköss-
unum, eftir því sem formaður
hennar, Guðmundur Karlsson
forstjóri, sagði okkur- Takist
þetta vonumst við til að geta
byrjað að telja um hádegi á
mánudag, sagði Guðmundur,
annars kann talningin að drag-
ast fram á þriðjudag. Það yrði
erfitt. að safna atkvæðunum
með bílum, vegir hér eru enn
mjög slæmir, sérstaklega Þing-
mannaheiðin og fleiri fjallveg-
Úr. .
Talningin fer fram á ísafirði
t)g tekur 3-4 tíma. Á kjörskrá
á Vestfjörðum eru 5383, en sú
tala breytist smávegis. Talsvert
hefur verið um kosningu utan
kijörfiundar, bæöi á Isafirði,
Patreksfírði og víðar, og eru
það fyrst og freimst sílltíarsjó-
mennimir sem hafa drifið sig
í að kjósa áður en þeir héldu
á vertíð.
Guðbrandur Isberg fv. sýslu-
maður er fórmaður yfirkjör-
stjámar í Norðurlandskjördæmi
vestra og vildi hann engu spá
um hvenær útvarpshlustendur
mættu búast við fyrstu tölum
þaðan. Tainingin fer fram i
Féíagsheimilinu á Blönduósi,
6agði hann, og við gerum ráð
fyrir að geta byrjað kl. 1 á
mánudag. En þá er eftir að
opna alla kassana og athuga
kjörgögnin og það tekur langan
tíma. Svo geta komið ágrein-
ingsatriði svo ég vil ekki spá
um hve langan. tlíma talningin
tekur. Ef allt gengur vel kemur
þetta kannski seinrn hluta
mánudagsins-
Kjósendur eru um 5730 tals-
ins, og fremiur lítið hefur ver-
ið kosið utan kjörfundar í kjör-
dæminu.
Taining atkvæða úr Norður-
landskjördæmi eystra fer fram
i á Akiureyri og sagði fommaður
yBrkjörstjómar þar, Ragnar
Steinbergsson lögfræðingur, að
undirbúningur að talningu hæf-
ist um níuleytið á mánutíags-
Framhaltí á 7. síðu.
Mikið hefur veriðum alþjóð-
leg skákmót að undanförnu,
svo sem venjulega á þessum
árstíma, en þar sem við fé-
lagarnir höfum staðið í próf-
lestri og öllu þvi amstri, sem
slíku fylgir. Nú um mánaðar-
skeið, höfum við ekki haft tök
á að birta þætti reglulega. Fyr-
ir því hefur efni hlaðizt að
og því miður er ekki að sjá,
að við munum hafa nokkur
tök á að gera því öllu viðhlít-
andi skil.
Á tímabilinu frá 24. marz til
1. apríl fór fram í Monaco all-
merkt skákmót á vegum „Les
Amis d’Europe Eches“. Teflt
var í fjórum flokkum, stór-
meistaraflokki, tveim riðlum
meistarafl. og opnum flokki. í
stórmeistaraflokknum voru
þátttakendur 10 og sigraði
bandaríski stórmeistarinn Ro-
bert Fischer örugglega, Waut
7 vinninga, tapaði aðeins einni
skák. í öðru sæti varð Smisloff
(Sovétr) 6V2, 3.—4. Bent Lar-
sen (Danm.) og Geller (Sov.),
6 v., 5. Matanovic (Júgósl.) 5
v. 6.—7. Gtigorie (Júgósl.) og
W. Lombardy (BandarJ 4V2 v.,
8. Forintos (Unigiverjail.) 4, 9.
dr. Mazzoni (Frakkl.) 1. v., 10.
dr. Bergaseyu (FrakkL) % v.
Til stóð að rúmenski stór-
meisitarjnn F. Gearghiu yrði
einnig meðal þátttabenda, en,
hann kornst ekki á mótsstað í
tæka tíð vegna vegabaæfeerfið-
leika.
Fischer
í meistaraflokki. A sigraðí
Gereben (ísrael) og í meistara-
flokki B. Maric (Júgósl.) og
Teschner (V.Þýzkal.).
Við skulum nú líta á tvær
skákir frá þessu móti.
Hvítt: dr. Mazzoni (Frakkl.)
Svart: R. J. Fischer (Bandar.)
Sikileyjar-vörn
1. e4 c5
2. Rf3 d6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6
6. Bg5 e€
7- H Db6
(Eit,thvert mest umdeilda og
glæfralegasta afbrigfii Sikil-
eyj arvarnarinnar)
8. Dd2 —
(Vilji hvitur komast hjá peðs-
fóm leikur hann bezt Rb3).
8. — Db2
9. Hbl 10. e5 Da3
Smyslov
(Algengast. aðrar leiðir sem til
greina koma eru, 10. f5 (sjá
Fischer — Geller) 10. Bxf6 eða
10. Be2).
10. — dxe5
11. fxe5 Rfd7
12. Bc4 Da5!?
(Nýjung, venjulega er leikið
hér Be7 t.d. Bilek — Fischer
Stokkhólmi 1962, eða 12. —
Bb4 Tringov — Fischer Hav-
ana 1965. — Með þessum leik
heldur Fischer hinsvegar opn-
um möguleikanum Bc5).
13. Rxe6!?? fxe6
14. Bxe6 Dxe5f
15. De3?
(Meiri möguleika bauð Kdl
þótt svartur hafi að vísu tvo
létta menn og hrók fyrir
drottninguna).
15. — Dxe3ý
16. Bxe3 Rc6
17. Rd5 Bd6
18. 0^-0 Rf6!!
(Leiðin til einföldunar þar sem
svartur fær nýtt liðsmuninn).
19. Rxf6f gxf6
20. Hxf6 Ke7
21. Bxc8 Kxf6
22. Bxb7 Re5
23. Bxa8 Hxa8
(Svartur hefur nú riddara
gegn tveim peðum en verður
að gæta þess vel að láta ekki
skipta á báðum peðum sín-
úm).'' ■ : •
-24. Hb7 Hc8
'25. Ha7 Hc6
26. Bd4 Kf5
27. c3? Hxc3
28. Hxa6 —i
(Auðvitað ekki Bxc3
Bc5f).
28. — Hclf
29. Kf2 Rg4ý
30. Ke2 Bxh2
31. Kd3 Hdlt
32. Kc4 Hd2
33. a4 Hxg2
34. Ha8 Ke4
35. He8ý Re5f
36. Bxe5 Bxe5
37. a5 Hc2f
38. Kb5 Kd5
39. Hd8t Bd6
40. HhS —
(Eða 40. a6, Hb2f; 4L
Kc6; 42. Hc8f, Bc7f; 43. Ka4,
Kb6 og svartur vinnur).
40. — Hc7
41. Kb6 Hd7
42. Hc8 Be5
43. Hc5t, Ke4
44. Hc4f Bd4f
45. Kb5 h5
og hvitur gafst upp.
Hvítt: Fischer
Svart: Geller
Sikileyjax-vörn
1. e4 c5
2. Rf3 d6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6
6- Bg5 e6
7. f4 Db6
8. Dd2 Dxb2
9. Hbl Da3
10. f5 Rc6
11. fxe6 fxe6
12. Rxc6 bxc6
13. e5 Dd5
14. Rxd5 cxd5
15. Be2 dxe5
16. 0—0 Rc5f
17. Khl Hf8
18. c4 Hxflf
19. Hxfl Bb7
20. Bg4 dxc4
21. Bxe6 Dd3
22. Del Be4
23. Bg4 Hb8
24. Bdl Kd7
25. Hf7f Ke6
Hvítur gafst upp.
Jón Þ. Þór.
framfaramálum þjóðarinnar. í dag ríður á að
dreifa ekki kröftunum, skipta ekki upp liði, held-
ur einbeita samtakaafli alþýðunnar, allra land-
varnarmanna, að einu marki, að einum framboðs-
lista, G-listanum, í öllum kjördæmum landsins.
Með því móti gætu orðið verulegar breytingar á
íslenzkum stjómmálum næsta kjörtímabil. —- s.