Þjóðviljinn - 15.06.1967, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 15.06.1967, Qupperneq 2
2 SlÐA — ÞJÖÐVTLJINN — Fimmtudagur 15. júní 1967. ÍslandsmóflS, 1. deild: Valur og Fram skildu jöfn 2:2 í sæmilegum leik á þriðjudagskvöldið □ Veðurguðirinir buðu ekki uppá sérlega skemmtilegt keppnisveður í fyrrakvöld, því að suðaustan strekkingur var á og kalsaveður, og skulum við nota tækifærið og kenna veðrinu um það aið ekki tókst betur til um hina knattspyrnu- legu hlið leiks Vals og Fram. Þó var ýmislegt lag- lega gert, enda þótt rnikið vanti á að listir leiks- ins væru í eðlilegu hlutfalli við stöðu liðanna, eða'þá kröfu sem géra þarf til fyrstudeildarliða. Valur hafði ekki heppnina með sér í leiknum og byrjaði heldur illa, _ þar sem Halldór Einarsson skoraði „glæsilegt" sjálfsmark, ef mætti orða það svo, með óverjandi skoti í blá- homið, en hann ætlaði greini- lega að spyrna frá til hliðar. Hreinn einlék óhindraður fram vinstra megin og sendi fyrir markið, en með fyrrgreindum árangri, og voru þá liðnar að- eins 4 mínútur af leiknum. Valsmenn láta sér ekki bregða og hefja þegar sókn sem end- ar með þ<ví að Gunnsteinn gef- ur Reyni sendingu fyrir mark- ið, og skorar Reynir og jafnar. Framarar höfðu vindinn í fangið og sóttu samt allhart á köflum, en þeim tókst samt ekki að skapa sér opin tæki- færi, og þessu svöruðu Vals- menn. Var fyrri hálfleikurinn nokkuð jafn, þar sem báðir reyndu að ná tökum á að- stæðum, og brá oft fyrir lag- legum samleik þótt alltof oft rynni það út í sandinn, og þá oftast fyrir skilningsleysi leik- manna, þegar þeir höfðu ekki knöttinn. Við það bættist að sendingar voru ekki nógu ná- kvæmar, og furðulegt var að sjá hve leikmienn höfðu litla og lélega yfirsýn yfir leikstöð- una. Þetta voru agnúar beggja liða, og þetta eru agnúar ís- lenzkrar knattspymu í dag, og þeir eru satt að segja ekki svo smávægilegir. Annars var viss spenna í leiknum, því að allt gat skeð. Búið var að skora tvö mörk á sömu mínútunni og báðir náðu áhiaupum senri gátu boðið upp á mark, ef heppnin væri með, en því miður gengur það oft svo þar sem um of mikla tilviljun er að ræða hvað skeð- ur._ Á 9. mínútu .er mikil þröng við Valsmarkið og má við öllu búast, en þessu er bjargað að því er virðist á síðasta augna- bliki. Þó að Válsmenn leiki undan vindinum er eins og þeir ráði ekki fyllilega við leik sinn og Að læra af reynslunni Sum blöðin halda því fram að klofningsfíamboð Hanni- bals Valdimarssonar hafi tryggt G-listanum og I-list- anum sameiginlega meira fylgi en Alþýðubandalagið hefði hlotið ef það hefði stað- ið einhuga að framboði þvi sem ákveðið -hafði verið á lýðræðislegan hátt. Tíminn heldur því fram að Fram- sóknarflokkurinn haíi tapað nokkrum hundruðum atkvæða til utanflokícalistans og við svipaðan tön kveður hjá blöð- um Sjiálfstæðisflokksins. Á- stæða er til að draga þessar ályktanir mjög í efa. Vitað var að Alþýðubandalagið átti vísan mjög verulegan kosningasigur í Reykjavík og engum fær dulizt að meginþorrinn ' af fylgi því sem I-listinn fær er kominn frá Alþýðubandalaginu, enda lögðu aðstandendur I-listans allt kapp á það í kosninga- baráttunni , að ófrægja G- listann — annað komst naum- ast að. Hafi; Hannibal náð í pokkur hundruð atkvæði frá borgaraflokkunum kemur það á móti að klofningsframboð hans vakti vonbrigði og ótrú hjá fjölmörgum sem stutt hafa Alþýðubandalagið, og er líklegt að Alþýðuflokkurinn hafi notið góðs af því. Hinn áþreifanlegi áranguir af klofn- ingsframboði Hannibals varð sá hér í Reykjavík, að enda þótt kjósendur ákvæðu að Sjálfstæðisflokkurinn skyldi tapa þingsæti hélt hann því samt: Ólafur Bjömsson við- reisnarhagfræðingur varð kjördæmakosinn í stað Eð- varðs Sigurðssonar formanns Dagsbrúnar; atvinnurekand- inn Sveinn Guðmundsson 1 Héðni varð uppbótarmaður i stað Jóns Snorra Þorleifsson- ar, eins traustasta forustu- manns verkalýðshreyfingar- innar í Reykjavík. Þetta valt aðeins á rúmum 400 atkvæð- um sem I-listinn eyðilagði i þágu SjálfStæðisflokksins. Ekki er heldur neinn vafi á því að klofningsframboðið í Reykjavík spillti fyrir Al- þýðubandalaginu • um land allt, frambjóðendur G-listans fundu hvarvetna fyrir því í kosningabaráttunni. Á Vest- fjörðum leiddi það til þess að Alþýðuflokkurinn vann þing- sæti það sem Hannibal Valdi- marsson hafði áður haft. í Norðurlandskjördæmunum báðum tapaði Alþýðubanda- lagið nokkru fylgi, vafalaust til Alþýðuflokksins og fyrst og fremst vegna klofnings- ins, en það leiddi m.a. til þess að hinn dugmikli stjómmála- maður, Ragnar Arnalds, verð- ur ekki á þingi þetta kjör- tímabil. . Af þessari reynslu ber Al- þýðúbandalaginu að læra; þvílíkir atburðir mega ekki endurtaka sig. — Austri. þegar komið er upp að vítateig Framara tekst þeim ekki að sameinast um lokaátakið, það er eitthvað laust í reipunum. Það er ekki fyrr en á 32. mínútu að eitthvað verulegt gerist, en þá gera Framarar á- gætt áhlaup, sem vörn Vals fær ekki stöðvað. Elmar Geirs- son er kominn inn á miðjan völlinn, og þar fær hann knött- inn og spyrnir fast í hægra horn marksins og Gunnlaugur hefur ekki möguleika að verja. Nokkru síðar er Hreinn í sæmilegu færi en skotið mis- tekst. Undir lok hálfleiksins virðist sem Valur sé heldur að sækja í sig veðrið, og á næst síðustu mínútu hálfleiksins, er mikil hætta við Frammarkið, en Valsmönnum mistekst og Framarar standast storminn, og þannig endar hálfleikurinn 2:1 fyrir Fram, en jafntefli hefði gefið sannari mynd af gangi leiksins. Valsmenn í baráttuhug í síðari hálfleik höfðu Vals- menn vindinn og hina kviku Framara á móti sér, en þrátt fyrir það voru þeir mun meira í sókn, sýndu meiri baráttu- vilja en þeir hafa gert hingað til og ógnuðu Fram nú mun meira en áður. Á 8. mín. ieiks- ins á Bergsveinn gott skot á markið, en Þorbergur fær ekki haldið knettinum, og hrekkur hann til Hermanns sem skorar viðstöðulaust. Stóðu nú leikar 2:2. Á 15. mín. var Reynir kom- inn innfyrir; og skaut, en Þor- bergur varði ljómandi vel í hórn. Nökkrum mín. ^íðar á Bergsveinn annað skot á mark Fram, en Þorbergur varði. Stqttu síðar er ■ það Helgi Númason sem á ágætt skot að marki Vals, og mátti þar ekki miklu muna. Á síðustu mínútum leiksins virðist sem Valur ætli aðknýja fram úrslit, og sækja Valsmenn tíðum og ógna marki Fram, og ivoru varnarmenn oft hart að þrengdir, en Valsmönnum tókst ekki að skora eða skapa sér verulega opin færi, og end- aði leikurinn með jafntefli 2:2. 2:1 fyrir Val hefði verið sanni nær. Þetta unga Framlið sýndi enn einu sinni að það eru efnilegir leikmenn, með ýmsa góða eig- inleika, og kemur þar til: létt- leiki og töluverður hreyfan- leiki og er framlínan þar betri helminguririn. Vörnin virðist ekki átta sig á þessu nýja ,,tengiliða“-kerfi, og sérstak- lega í sieinni hálfleik tóks Vals- mönnuan að smjúga í gegnum þessar Veilur, þótt þeim tækist ekki að notfæra sér það betur. I vörninni voru beztir þeir Jó- hannes Atlason og Baldur Scheving, sem er ákaflega virkur bæði í sókn og vörn, Sigurður Friðriksson slapp og vel. í framlínunni vour beztir þeir Elmar, Einar og Erlendur, og raunar ekki mikill munur á þeim, því að Hreinn og Helgi áttu nokku|S góðan leik, og í heild er þessi framlína skemmtileg og á vafalaust eftir að bíta frá sér. Valsliðið virðist heldur í „sókn“, baráttuviljinn að koma, en það hefur skort á mjög undanfarið. Vörnin er betri helmingur liðsins, með þá Þor- stein, Áma og Sigurð Jónsson. Sigurjón skilar sínu hlutverki nokkuð vel. Framlínan er ekki eins sam- stillt, en þar er Hermann bezti maðurinn og virðist í vaxandi mæli skynja það hlutverk sitt að halda línunni saman, en það er dálítið hennar ljóður að hún er dreifð, og virðist eiga dálítið erfitt með að ná sáman á alvörustundum. Reynir gerði margt laglega, og þeir Bergsveinn og Ingvar börðust, og þá sérstaklega Bergsveinn. Með meiri hraða væri Gunnsteinn mun virkari en hann fer laglega með knött- inn. Dómari var Magnús Péturs- son og hefur oft tekizt betur upp, en slapp þó sæmilega. Frímann. 47 kepptu í sundi á héruðsmótí UMSK Héraðsmót U.M.S.K. í sundi fór fram í Varmárlaug i Mos- fellssveit laugardaginn 3. júní sl- Keppendur vora 47 frá 2 félögum; U.M.F. Aftureldingu, Mosfellssveit og U.M.F. Breiða- blik, Kópavogi. Afturelding var sigur úr býtum í stigakeppni félaganna og hlaut að verðlaun- Flest stig einstaklinga hlutu Anna Guðnadóttir og Bernhard Linn. Aftureldingu, 20 stig. tj'rslit í einstökum greinum þéssi: 1 flokki telpna 14 ára og yngri 100 m bringusund. mín. Bjamveig Pálsdóttir A 1:58,3 Anna Guðnadóttir A 1:58,8 Ásta Jóhannsdóttir A 2:02,0 6x25 m boðsund- 1. Sveit Aftureldingar min. 2:40,0 I flokki drengja 14 ára og yngri. 100 m bringusund. Magnús Jóhannsson B Sturlaugur Tómasson Á Georg Magnússon A 25 m skriðsund. Georg Magnússon A Pétur Tlhors A Siguröur Andrésson A 25 m baksnnd. mín. 1:57,2 2:02,0 2:02,0 sek. 17,5 17,9 18,4 sek. 20,4 25 m skriðsund. Bjamveig Pálsdóttir A Margrét Baldursdóttir A Anna Guðnadóttir A 25 m baksund. Margrét Baldursdóttir A Anna Guðnadóttir A Hildíg. Haraldsdöttir B sek. 19,9 20,2 21,4 sek. 24,7 28,2 30,4 Pébur Tíhors A Marteinn Valdimarsson A 27,1 Magnús Jóhannsson B 27,1 6x25 m boðsund. mín. 1. Á sveft Áftureldingar 1:59,1 2. B sveit Aftureldingar 2:16,3 I flokki stúlkna 15 ára ogeldri 100 m bringttsund. Beamhald á 9. síðu. FRÍ undirbýr þátt- töku í 0L í Mexíkó □ Hér fer á eftir skrá um frjálsíþróttamót sem hald- in verða á vegum Frjálsíþróttasambands íslands í sumar. Árangur á þeim mótum sem farið hafa fram í vor géfur vonir um að meiri tíðinda sé að vænta á frjálsíþróttamót- í sumar en undanfarin ár. Margir efnilegir nýliðar um hafa komið fram á innarahússmótum í vetur, og verður fróðlegt að sjá hvemig þeir standa sig á sumarmótunum. 24.—25. júní. Sveinameistara- mót íslands. Mótið verður háð í Vestmannaeyjum og er fyrir pilta 16 ára og yngri (fæddir 1951 og síðar). 1—2. júlí Drengjameistara- mót íslands. Mótið verður háð á Akureyri og er fyrir pilta 18 ára og yngri (fæddir 1949 og síðar. 8.—9. júlí. Unglingameistara- mót íslands. Mótið verður háð í Reykjavík og er fyrir pilta 20 ára og yngri (fæddir 1947 og síðar). 24., 25,, 26. júlí. Meistaramót íslands, karlar dg konur, fyrri hluti. Mótið fer fram í Reykja- vík. 19.—20. ágúst. Bikarkeppni FRÍ, úrslit. Mótið fer fram í Reykjavík. Keppni þessi er milli einstakra héraðssambanda innan FRÍ,- en- þó eru félögin Ármann, ÍR pg. KR U Reykja-.. vík sérstakir keppnisaðilar hver fyrir sig. Keppni þessi fór en úr því getur ekki orðið að þessu sinni. I. —2. júlí. Tugþrautarkeppni í Kaupmannahöfn. Mót þetta er haldið í sambandi við 800 ára afmæli Kaupmannahafnar. Óvíst um fjölda bátttakenda héðan. II. —12. júlí. Landskeþpni unglinga milli Noregs, Finn- lands og Sviþjóðar, sem háð verður í Stavanger, Noregi. Þetta er árleg keppni þessara landa og hefur Frjálsíþrótta- sambandið nú óskað eftir því að nokkrir íslenzkir unglingar gætu tekið þátt í þessu móti, ef einstök félög eða héraðs- sambönd vildu senda sína beztu unglinga til þessarar keppni. Sambandsaðilar eru vinsamlega beðnir ag hafa samband við stjórn FRÍ um þetta mál. Danir hafa oft átt einstaka þátttakendur í þessu’ 'móti. i; ‘V 16.i—17. september. Meistara- mót Norffurlanda í tugþraut fyrst framí fyrra og þQW^rfMI'dið í Kaupmannahófn. ast afbragðsvtel, en í úrslita- keppni tóku þátt 6 lið. Gert er ráð fyrir undankeppni á nokkrum- ’ stöðum úti á landi, sem lokið verði við fyrir 1. ágúst og skal einn þáttakandi vera í hverri grein, frá hverj- um aðila. 26.—27. ágúst. Afmælismót FRÍ, en sambandið verður 20 ára í ágústmánuði n.k. Á þetta mót hefur verið boðið þátttak-<j> endum frá Póllandi og Dan- mörku og væntanlega verða keppendur frá fleiri þjóðum. Um leið fer fram svonefnd Unglingakeppni FRÍ, en það úrslitakeppni í flokki sveina, drengja og kvenna af ölluland- inu, sem náð hafa beztum árangri fram að þessum tíma. Þarna koma saman 4 beztu í hwerri grein og greiðir Frjáls- íþróttasambandið hluta af ferðakostnaði' utanbæjarfólks. 2.-3, september. Meistara- mót íslands, síðari hluti hér í Reykjavík. MÓT ERLENDIS 24.—25. júní. Bikarkeppni Evrópu í Dublin. Riðlakeppni fer fram í nokkrum borgum Evrópu á þessum tíma_, en í okkar riðli keppa auk íslands, Belgía og írland. Luxemburg hefur hætt við þátttöku í keppninni. Einn kieppandi 1 er í bverri grein. Gert er ráð fyrir aukakeppni í írlandi á eftir. Við höfum gert okkur von um lands- keppni við Skota í þessari ferð, Ovíst er uúi fjölda þátttakenda héðan. 27—28. september. Lands- keppni í tugþraut í Schwerin í Austur-Þýzkalandi. Keppend- ur verða 3. t Boð hafa borizt um þátttöku í fleiri mótum t.d. Skotlandi en ekkert hefur verið ákveðið urri þátttöku í þeim. Sveinameistara- mótið háð í Eyjum 24.-25. Sveinameistaramót íslands í frjálsum íþróttum verðiur háð í Vestmannaeyjum dagana 24. og 25. júní 1967, og er fyrir pilta 16 ára og yngri (þá sem fæddir eru 1951 og síðar). Keppt verður í eftirtöldum greinum: FYrri dagur: 100 m hlaup, 400 m hlaup, 4x100 m boð- , hlaup, hástökk, þrístökk, kúlu- varp (4 kg), og spjótkast (600 gr.). Síffari dagur: 200 m hlaup, 80 m grindahlaup, langstökk, stangarstökk, kringlukast (1 kg), og sleggju'kast (4 kg). ÞátttÖkutilkynningar skulu sendar Ólafi Sigurðssyni, Tún- götu 20, Vestmannaeyjum, eða í síma 98-1261, fyrir 22. júní, 1967. jL Bó/struð húsgögn SEL Á VERKSTÆÐISVERÐI: Sófasett, Svefn- bekÍkL — Tek klæöningar. Bólstrunin, Baldursgötu 8.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.