Þjóðviljinn - 22.07.1967, Side 6
-r
*
g SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 22. júlí 1Ð6L
• Ljósadýrðin í Tivoli
Fáir leggja svo lcið sína tii Kaupmannahafnar að þcir komi ckki í Tivoii, skcmmtigarðinn frœga í hjarta borgarinnar, njóti þar dag-
stundar i fögru og scrkcnnilcgu umhvcrfl cða sicki hina margvíslcgustu skemmtistaði og veitinga þcgar á kvöldið cr Iiðið. Ljósa-
dýrðin er mikil í Tivoli-garðinum þcgar rökkva tekur, eins og sjá má hér á myndinni af garðinum framan við tónlcikahöllina-
• Ungir Reykvík-
ingar á alþjóða-
mót aðventista
• Fimm ungir aðventistar úr
Roykjavík eru að leggja af stað
á alþjóðamót ungra aðventista í
Vín. Alls sækja mótið fimm
þúsund ungmenni frá þrjótiu
löndum. Sonja, Harrí og Eríc
Guðmundsson, Ester Bjarna-
dóttir og Garðar Cortez verða
fulltrúar æskulýðsfélags aðvent-
ista í Reykjavík á þessu mikla
alþjóðamótl-
Mótið, sem Suður-Evrópu-
deild aðventista stendur að,
hefst þriðjudagskvöldið 25. júlí
í Stadthalle í Vínarborg með
skrúðgöngu, þar sem bornir
verða þjóðfánar þeirra landa,
sem þarna eiga fulltrúa, og
munu þátttakendur verða
klæddir þjóðbúningum sínum-
Mótið stendur til 29., júlí.
Tilgangur þessa móts er að
ræða ábyrgðarhluta hinna ungu
gagnvart heiminum í dag og
benda á hvað þeir geti lagt af
mörkum tll uppbyggingar og
velfamaðar föðurlands síns og
annarm landa. Sér í .lagi verð-
ur lögð áherzla á afstöðu að-
ventsafnaðarins í sambandi við
algjört bindindi hennar á á-
fengi og tóbak og siðgæðisregl-
ur, sem byggjast á kenningum
biblíunnar — undirstöðuatriöi
varanlegrar lífshamingju.
★
Nokkrir tónleikar verða haldn-
ir á mótínu. Til dæmis verður
þar tvöhundruð manna blást-
urshljómsveit frá Þýzkalandi,
kórar frá Tékkóslóvakíu og
Póllandi og strokhljómsveit frá
Bandaríkjunum.
Miklir ræðumenn frá Ástral-
íu, Afríku, Sviss og Frakklandi
munu láta til sín heyra.
(Aðscnt).
® 12. þing Verk-
stjórasambands-
ins
12. þing Verkstjórasambands
Islands var haldið dagana 15.
og 16. júlí sl. að Hallormsstað.
Til þingsins voru mættir 41
fulltrúi fyrir 9 félagsdeildir, en
félög innan sarnbandsins eru nú
14 með um 680 félagsmönnum
um land allt-
Á þinginu var fjallað um hin
margvíslegu áhugamál samtak-
anna, þó fræðslumál verk-
stjóra og kaup — og kjaramól
hafi borið hæst.
Álit þingsins var að nauð-
syn beri til að auka og efia
menntun verkstjóra, þannig að
þeir séu betur færir um að
annast þau verðmæti, sem um
hendur þeirra fara, bæði pen-
ingaleg verðmæti, en þó ekki
síður hin mannlegu verðmæti
einstaklinganna sem þeir
stjórna-
Þingíð taldi að nauðsyn beri
til þess að launakjör verkstjóra
séu bætt, einkum með það í
huga, að með því sé starfið
gert eftirsóknarvert og til
þess að gegna því fáist betri og
hæfari menn, enda sé það þjóð-
hagslegur ávinningur.
Verkstjórasamband Islands
hefur ókveðið að hefja nú fljót-
lega kynnlngu á samtökum
verkstjóra og með því ná sam-
an öllum þeim sem að verk-
stjórn starfa inn í heildarsam-
tökin, þannig að þeim sé betur
unnt að gegna hlutverki sínu.
1 stjórn Verkstjórasambands-
ins til næstu tveggja ára voru
kjörnir: Forseti Bjöm E. Jóns-
son Hafnarfirði, meðstjómend-
ur: Atli Ágústsson Reykjavík,
Adolf Petersen Reykjavík, Guð-
mundur B. Jónsson Vogum,
Guðni Bjamason Reykjavík og
Helgi Pálsson Reykjavík.
• Trúlofun
• Hinn 7. Júlí sl. opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Kristborg
Haraldsdóttir, Skólavörðustíg
28, Stykkishólmi og Trausti
Tryggvason, Miðtúni 74, Rvík.
13.00 Öskalög sjúklinga.
Sigríður Sigurðardóttir kynn-
ir.
14.30 Tónleikar og þættir um
útilíf, ferðalög, umferðarmál
og slíkt, kynntir af Jónasi
Jónassyni.
16.35 Dóra Ingvadóttír t)g
Pétur Steingrímsson kynna
nýjustu dægurlögin.
17.05 Frlðrik Páll Jónsson velur
sér hljómplötur.
18.00 Winkler-systkinin syngja
n'okkur lög.
19.30 Hljómsveitir Béla Sand-
ers, AÍfs Blyverkets o.fl. leika.
2000 Daglegt líf.
Árni Gunnarsson fréttamað-
ur sér um þáttinn.
20.30 Einleikur á harmoniku:
M. Ellegárd lei'kur verk eft-
ir O. Schmidt, J- Ibert og
T. Lundquist. B. Lylloft leik-
ur á slagverk.
21.00 Staldrað við í Prag.
Þorgeir Þorgeirsson segir frá
dvöl sinni þar í borg og
kynnir tónlist þaðan.
21.45 „Gróandi þjóðlíf".
Fréttamenn: Sverrir Hólmars-
son og Böðvar Guðmundsson.
22 00 'S'msar þýzkar hljómsveitir
og söngvarar ílytja dans- og
dægurlög.
22.30 Fréttir og veðurfregnir.
Danslög-
24.00 Dagskrárlok.
★ Skrifstofan er opin virka daga
kl. 4—6 daglcga- Félagshcim-
ilið er cinnig opið alla virka
daga kl. 4—6 og þriðjudags-
og fimmtudagskvöld kl. 8,30
til 11,30.
★ Þeir fciagar sem enn skulda
félagsgjöld fyrir árið 1966 cru
áminntir um að greiða þau
sem fyrst á skrifstofu ÆFR.
VINNUFERÐ
A sunnudaginn verður farin
vinnuferð í skála Æ.F.R. 1
Sauöadölum. Lagt af stað kl.
2 e.h. frá Tjarnargötu 20. Fé-
lagar tilkynni þátttöku í síma
17513.
• Fellini í Stjörnubíói
• Stjömubíó sýnir uni þessar mundir kvikmyndina 8V2 cftir
ítalska snillinginn Fedcrico Fcllini. Myndin hér að ofan er af
Marcello Mastroianni og Sandra Milo í hlutverkum sínum í 8’/2-
Margir munu kannast við Mastroianni t. d. fyrir frábæran Icik
hans í „La Dolcc vita“.
An efa hafa margir beðið með óþreyju cftir að þcssi mynd
yrði sýnd hér, en hún var framleidd 1963.
íslenzkur texti er með 8V2 og virtist hann í fljótu bragði vera
heldur óvandaður, t.d. stóö skýrum stöfum á einum stað: „Slöggtu
Ijósið . . !“. En enginn skyldi þá láta slíkt aftra sér frá því að
sjá þessa skemmtilegu mynd.
Mögulegt aí koma á banni
á neðanjarðartHraunum
Genf 20/7 — Fulltrúar Svia á afvopnunarráðstefnunni
í Genf lögðu í dag fram álitsgerð, þar sem segir að það
ætti að vera mögulegt að ganga frá banni við kjamorku-
tilraunum neðianjarðar á núverandi fundartíma ráðstefn-
unnar.
í álitsgérðinni er einnig gerð
nánari grein fyrir tillögum Svía
um kerfi til að hafa eftirlit með
kjamorkutilraumma neðanjarð-
ar, en samkvæmt Jyví er ekki
nauðsynlegt að senda eftirlits-
menn með kerfinu til viðkom-
andi landa nema annað hvort
ár.
Svíar telja að nútíma aðferð-
ir séru orðnar svo fullkamnar,
að það muni gera ágreining
Bandaríkjanna og Sovétrikjanna
um fyrirkomulag eftirlitsins að
engu.
Svíar segja að aðferðirnar séu
orðnar svo virkar, að nú séu
allir möguleikar á því að ræða
um eftirlrt erlends frá.
Þetta er nálægt viðhorfi Sov-
étríkjanna, en þau telja að að-
ferðir hvers lands um sig séu
nægjanlegar til þess að hafa
eftirlit með neðanjarðartilraun-
um annarra ríkja.
Bandarikjamenn telja aftur á
móti, að enn þurfi að senda eft-
irlitsmenn á viðkomandi staði til
að tryggja að bannið sé ekki
brotið.
„Vígahnetiirnir"
gervitungl frá
Sovétríkjunum?
PARlS 19/7 Vísindamenn við
frönsku athugunastöðina í Mau-
don sögðust 1 dag vera þess full-
vissir að fyrirbæri þau sem sáust
á lofti yfir Vestur-Evrópu í gær
og vöktu mikla athygli hefðu
stafað frá sovézku gervitungli
sem skotið hefði verið upp um
klukkan 18.00 á mánudag, Gervi*.
tunglið hefði farið á braut mjög
nálægt jörðu og hefði farið i að-
eins um 100 km hæð yfir Frakk-
land í fimmtu umferð sinni að-
faranótt þriðjudagsins.
Fulltrúi Svia á afvopnunar-
ráðstefnunni sagði, að núver-
andi umræður um bann við
neðanjarðartilr. væru sönnun
þess, að kjamorkuveldin vildu
raunverulega koma sdíku banni á.
Súkarnó til valda
DJAKARTA 19/7 — Skýrt var
fró því í Djakarta i dag að kom-
ið hefði verið upp um samsæri
foringja í hemum og embættis-
manna sem hefðu ætlað að stofna
tifl uppreisnar siðari hluta þessa
ménaðar í þvf skyni að koma Sú-
kamo aftur tál valda.
Samsærismenn hefðu verið
handteknir. Meðal þeirra munu
vera a.m.k. fimmtán foringjar í
hemum.
BLIKUR
fer austur um land til Vopna-
fjarðar 29. þ.m. Vörumótbaka á
mánudag og þriðjudag til Homa-
fjarðar, Djúpavogs, Breiðdalsvík-
ur, Stöðvarf jarðar, Fáskrúðsfjarð-
ar, Reyðarfjarðar, Eskifjarðar,
Norðfjarðar, Mjóafjarðar, Seyð-
isfjarðar, Borgarfjarðar og
Vopnafjarðar.
HERÐUBREIÐ
fer frá Reykjavik 30. þm vesi-
ur um land í hringferð. Vörumót-
taka á þriðjudag og miðvikudag
til Patreksfjarðar, Tálknafjarðar,
Bildudals, Þingeyrar, -Flateyrar,
Súgandafjarðar, Bolungarvíkur,
lsafjarðar, Ingólfsfjarðar, Noro-
urfjarðar, Djúpavíkur, «. Sksgar.
strandar, Sauðárkróks, Siglu-
fjarðar, óflafsfjarðar, Akureyrar,
Húsavíkur, Kópaskers, Raufar-
hafnar, Þórshafnar og Bakka-
fjarðar.
HAUSTTÍZKAN
Tökum upp daglega næstu viku glæsilegt úrval
af haust- og vetrarkápum í tízkulitum. — Einn-
ig nýjustu tízku í allskonar kjólum.
Fáið yður kjól og kápu, greiðið útborgun eftir
samkomulagi og afganginn eftir hentugleikum.
KJÓLABOÐIN KIÓLABtJSIN
Lækjargótu 2 Bankaatræti 10
1
(
I
Jl