Þjóðviljinn - 03.08.1967, Qupperneq 4
4 slÐA — Þ.TÓÐVILJHSTN — Fimmtudagur 3. ágúst 1967
Otgefandi: • Saimeiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn. N
Ritstjórar: Iviai H- Jónsson (áb). Magnús Kjartansoon,
Siguröui Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Frámkvstj.: Eiður Bergmann.
Ritstjórn. afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólarvörðuat 10.
Sími 17500 (5 linur) — Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð kr. 7.00-
Á að neita að semja?
JJve lengi ætlar Vinnuveitendasambandið svo-
nefnda að þrjózkast - við að semja við Verka-
mannafélagið Hlíf um kaup og kjör verkamanna í
Straumsvík? Ætlar samband þetta, sem er á-
hlaupalið afturhaldsins í landinu í baráttu gegn
verkalýðshreyfingunni og eins konar deild í Sjálf-
stæðisflokknum, að viðhafa þá bardagaaðferð að
neita að ganga til heiðarlegra samninga við verka-
lýðsfélag sem boðar verkfall og lætur það skella á,
og svo sé ríkisstjórn íhaldsins og Alþýðuflokksins
kvödd til og látin gefa út bráðabirgðalög som
manna verkfallið og skammta verkamönnum kaup
og kjör eða kveða á um þvingunargerðardóm?
Margt bendir til að þetta vaki fyrir Vinnuveitenda-
sambandinu. í samspili við hina erlendu verktaka,
en þegar er sýnt að hrokafull framkoma og skiln-
ingsleysi á íslenzkar aðstæður muni ekki auðvelda
framkvæmd verksins sem þeim hefur verið falið.
Það er og athyglisvert, að hinir erlendu verktakar
hafa flutt inn fólk sem látið er vinna verk iðn-
lærðra manna en hefur þegar að er gáð engin iðn-
réttindi. í saimbandi við stórframkvæmdir eins
og bygging Straumsvíkurhafnar og alúmínverk-
smiðju, þar sem útlendir verktakar og eigendur
koma til, er auðsætt að hlutaðeigandi verkalýðs-
félög íslenzk þurfa að vera vel á verði gegn sam-
vizkuleysi og óprúttni erlendra hrokagikkja, sem
telja sér flest leyfilegt við „hina innfæddu“.
gitt blaða ríkisstjómarinnar, Vísir, sagði í fyrra-
dag í forystugrein að verkfallið í Straumsvík
sé „ljótur blettur á viðkomandi verkalýðsfélögum“.
Það er rödd Vinnuveitendasambandsins sem þann-
ig talar, rödd blaða Sjálfstæðisflokksins, sem tal-
ið hafa flest eða öll verkföll „ljótan blett“ á verka-
lýðsfélögunum og hafa lagt sig fram 'til að berjast
á móti kröfum alþýðusamtakanna. um kjarabætur
og aukinn rétt alþýðu. Vinnuveitendasambandið
og íhaldsblöðin töldu verkföllin miklu 1955 til
stórkostlegrar skammar, en þá knúðu verkamenn
m.a. fram löggjöfina um atvinnuleysistrygginga-
sjóðinn. Og síðan hefur verkalýðshreyfingin knú-
ið fram með afli sínu ekki einungis kauphækkanir
heldur líka löggjöf um húsnæðislán, um smíði
1250 íbúða fyrir láglaunafólk í verkalýðsfélögun-
um, um aukið orlof og bættar almannatryggingar,
svo nokkuð sé nefnt. Verkalýðshreyfingin mun
hér eftir sem hingað til láta sem vind um eyrun
þjóta þó hvíni í afturhaldsblöðum að það sé „ljót-
ur blettur“ að þau gegni ætlunarverki sínu, sem
sóknarsveit og vöm íslenzkrar alþýðu.
yið boðun og framkvæmd verkf^llsins 1 Straums-
vík hefur Verkamannafélagið Hlíf í einu og
öllú farið að samkvæmt gildandi lögum. Ætlí
Vinnuveitendasambandið að svara fyrir sig og hina
erlendu verktaka með því að misbeita valdi rík-
isstjórnar til að bæla niður kjarabaráttu íslenzkra
verkamanna og gera samningsrétt þeirra að mark-
leysu, hlýtur verkalýðshreyfingin að svara þeirri
bardagaaðferð á viðeigandi hátt. — s.
íslenzkir sundmenn búa sig undir þátttöku í Norðurlandamóti:
Unga sundfólkið lofar góðu,
ágæt met sett í fyrrakvöld
□ Á sundmóti, sem sundmenn gengust fyrir í
nýju sundlauginni í Laugardal á þriðjudagskvöld
til undirbúnings fyrir sundfólkið sem fer á Norð-
urlatidamótið í sundi eftir nokkra daga, náðist
góður árangur í ýmsum greinum, og þar voru sett
tvö mjög góð met í kvennasundum. Voru það þær
stöllurnar Guðmunda Guðmundsdóttir frá Sel-
fossi og Sigrún Siggeirsdóttir sem ettu met í
400 m skriðsundi og 200 m baksundi. Guðmundur
Gíslason var ekki langt frá meti í þeim einstak-
lingsgreinum sem hann tók þátt í.
Mesta athygli á móti þessu
vakti hin smávaxna og geð-
þekka 13 ára sundkona frá
Selfossi, og fékk hún verðskuld-
að klapp áhorfenda er hún kom
að marki eftir að hafa baett
fyrra met sitt í 400 m. skrið-
sundi um 5 sek., en tíminn var
5:17,3. Þessi unga stúlka hafði
mjög gott sundlag og vargreini-
lega vel undir þetta sund búin.
Hin ágæta sundkona, Hrafn-
hildur Krist.iánsdóttir, fékk
ekkert við hraða Guðmundu
ráðið, og náði aðeins að halda
í við hana fyrstu 50 metrana.
Til gamans má geta þess að
þegar Guðmunda setti fyrra met
sitt bætti hún það einnig um
5 sek. Þetta var í annað sinn
sem Guðm-jnda keppti í þessu
sundi í 50 m. laug.
í annan stað yakti Sigrún
Siggeirsdóftir athygli fyrir á-
gætt baksund sem endaði með
ný.ju íslenzku meti, bætti hún
það um meira en 7 sek., og
er það glæsilegt afrek. Sigrún
er mjög glæsileg stúlka á velli
—-<?>
mm
Alfried Krupp með syni sinum
og einkaerfingja, Arndf
Alfried Krupp
látinu, 59 ára
Alfried Krupp, eigandi hins
mikla þýzka auðhrings, sem lézt
í fyrradag, tæplega sextugur,
var einn af auðugustu mönnum
heims' þótt hann yrði fyrr á
þessu ári að afsala sér óskor-
uðum yfirráðum yfir hinu
mikla fyri-rtæki vegna fjár-
þröngar sem það var komið í.
Hann hafði verið dæmdur í 12
ára fangelsi fyrir strlðsglæpi,
en var látinn laus eftir þrjú
ár, enda átti hann marga hauka
í homi í bandarískri yfirstétt.
Hann fékk einnig allar eignir
sínar aftup. þótt samkomulag
hefði verið gert um það að þeim
yrði skipt til ao koma í veg
fyrir að hergögn frá Krupp yrðu
enn eiriu sinni uppistaðan í nýju
þýzku herveldi. Á siðari árum
höfðu hin ýmsu fyrirtæki Krupp-
hringsins þó lagt megináherzlu
á framleiðslu véia og tækja til
friðsamlegra þarfa. '
og hefur að því er virðist flest
það sem góða sundkonu þarf
að prýða, og þá ekki sízt
hressilegt keppnisskap. Sigrún
hefur synt frá einu meti til
annarrs að undanfömu og
sannarlega á hún eftir að
koma við sögu sundsins, ef hún
heldur áfram á þessari braut.
Þá er vert að geta hinnar
12 ára gömlu Helgu Gunnars-
dóttur úr Ægi sem varð önnur
í 200 m. bringusundi kvenna.
Sund hennar var mjög gott og
tími góður miðað við aldur og
sannarlega hefur hún ekki sagt
sitt síðasta orð. Matthildur Guð-.
mundsdóttir hinn nýbakaði Is-
landsmeistari sigraði.
Tími Leiknis Jónssonar f 200
m. bringusundi var sá bezti sem
náðst hefur í 50 m- laug, en
hann var 2,48,4 mín., og á hann
vafalaust eftir að bæta þann
tíma með meiri æfingu í laug-
inni.
Selfyssingar eru stöðugt að
þrengja sér meir og meir inní
fremstu raðir sundmanna, því
að Ingunn Guðmundsdóttir sigr-
aði f 100 m. skriðsundi stúlkna
á ágætum tíma eða 1,07,8 mín.
Guðmundu hefur áður vérið
getið, og f 4x100 m. skriðsundi
kvenna sigruðu Selfbssstúlk-
umar sveit úr Ármanni og
Ægi.
Þá virðist sem Ægir sé að
eignast marga unga og efnilega
sundmenn, sem kom ekki að-
eins fram í hinum ýmsu sund-
um heldur einnig í boðsundi
drengjasveitarinnar, og bó munu
nokkrir góðir hafa verið fjar-
Sigrún Siggeirsdóttir.
verandi. Svipað er um Ár-
mannsdrengina að segja.
Það vakti athygli að KR átti
engan sundmann á mótinu, held-
ur ekki ÍR. Hafnfirðingar voru
heldur ekki með, en sundlaug-
in þar hefur verið lokuð um
skeið.
Þá má geta þess að árangur-
inn í 4x50 metra boðsundi karla
mun verða viðurkenndur sem
nýtt ísl- met í 50 m. laug, en þar
er um að ræða sveit Ármanns
og drengjasveit Ægis.
Áhorfendur vt>ru alltof fáir
í þessu fagra veðri og fallega
útsýni úr stúkunni.
Árangur í einstökum grein-
um:
400 m. skriðsund kvenna-
1. Guðmunda Guðmundsdóttir
UMF-Selfossi 5.17,3
2- Hrafnh Kristjánsd. Á. 5.29,1
200 m. skriðsund karla-
1. Guðmundur Gíslas. Á. 2.14,1
2. Guðm. Þ. Harðars- Æ. 2.21,0
3. Eiríkur Baldurss. Æ. 2.21,9
200 m. bringusund kvenna.
1. Matth. Guðmundsd. Á. 3.11,7
2. Helga Gunnarsd. Æ. 3.24,4
3- Inigibj. Einarsd. Æ. 3.47,8
20Q m. bringusund karla.
1. Leiknir Jónsson Á. 2-48,4
2. Ólafur Einarsson Æ. 2.59,0
3. Þórður Gunnarsson UMF-
Selfossi 3.15,1
100 m. skriðsund stúlkna.
1- Ingunn Guðmundsdóttir
UMF-Selfossi 1.07,8
2. Halla Baldursd- Æ. 1.27,9
3. Þórdfs Guðmundsd. Æ. 1.32,1
100 m. baksund drengja.
1. Sigmundur Stefánsson
UMF-Selfossi 1.22,0
2. Ólafur Einarsson Æ- 1.23,5
3 Halldór Ástvaldsson Á. 1.28,0
200 m. baksund kvenna.
1. Sigrún Siggeirsd. Á. 2.47,3
2. Hrafnh. Kristjánsd. Á- 3.09.4
200 m. fjórsimd karla.
1. Guðm. Gíslasbn Á. 2.25,3
2. Guðm. Þ. Harðars. Æ. 2-41,0
3. Gunnar Kristjánss. SH. 2.45,6
4x100 m. skriðs. kvenna.
,1- Sveit UMF-Selfossi 4.59.8
2- Sveit Ármanns / Ægis 5.32,4
I sveit UMF-Selfoss voru:
Guðmunda Guðmundsdóttir,
Sólveig Guðmundsd. (systir
Guðmundu), Ásrún Jónsdóttir
og Irigunn Guðmundsdóttir.
4x100 m. skriðs. karla-
1. Sveit Ármanns 4.41,1
2. Drengjasveit Ægis 4.50,0
1 sveit Armanns voru: Guð-
mundur Gíslason, Halldór Ást-
valdsson, Gunnar Guðmunds-
son og Gísli Þorstefnsson.
Þess má að lokum geta að
næsti stórviðburður sundmanna
hér heima verður á Isafirði
fyrstu helgina f september, en
þá fer þar fram Unglinga-
meistaramót Islands. Er gert
ráð fyrir mikiMi þátttöku, og
allt bendir til þess að þar ná-
ist góður árangur í mörgum
gremum.
Frfmann.
•líIMHDVIS"
niðursuðuYörur eru be«tar i fcrðalagíö
4