Þjóðviljinn - 17.08.1967, Blaðsíða 4
4 SlÐA — MÓÐVILJINN — Fimmtudag!ur 17. ágúst 1967.
Otgefandi: Sameíningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflofck-
urinn.
Ritstjórax: Ivai H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurðui V. Friðþjófssnn-
Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj.; Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja Skólarvörðust- 19.
Simi 17500 (5 línur) — Askriftarverð kr. 105.00 á mánuöi. —
tausasöluverð kr. 7.00-
„Herrenvolk " og Islendingar
\r
Tslenzkir gróðaimenn í bandalagi við erlend auð-
félög — móti verkalýðshreyfingunni og allri al-
þýðu á íslandi; einmitt þetta virðist einn aðal-
þátturinn í hernaðarfyrirætlun afturhaldsmanna
á íslandi um þessar mundir. Verkalýðshreyfingin
er orðin öflug ef hún beitir valdi sínu, Vinnuveit-
endasambandið hefur reynslu af því. Það er held-
ur ekki einhlítt þó vald ríkisstjórnar og meiri-
hluta Alþingis sé lagt í hendur afturhaldsins, svo
reyndist haustið 1963, þegar ríkisstjórn Sjálfstæð-
isflokksins og Alþýðuflokksins hugðist setja þving-
unarlög gegn alþýðusamtökunum en neyddis'f til
að hætta við lagasetninguna á síðustu stundu,
vegna þess að ljóst var að lögin yrðu að engu höfð.
Ofurkapp Sjálfstæðisflokksins við alúmínsamn-
ingana er engin tilviljun, né kröfur Morgunblaðs-
ins uim að áfram verði haldið á þeirri braut. í
erlendum auðfélögum sem hent geta morð fjár í
herkostnað afturhaldsaflanna á íslandi í stríði
þeirra gegn verkalýðshreyfingunni, sér íhaldið nú
helzt fram'tíðarvon um völd og áhrif. Stórtap
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í kosningunum
undanfarið bendir til þess að fjöldagrundvöllur
Sjálfstæðisflokksins sé að bresta, þrátt fyrir allt
það fé og aðstöðu sem hann hefur. Afturhaldið á
íslandi óttast um þjóðfélagsleg völd sín og van-
treystir því að íslenzkur stafkarlsauður dugi; nú
þurfi erlenda bandamenn sem geti fleygt á borð-
ið þúsundum miljóna ef takast mætti að hressa
upp á fylgið.
\r
Tslenzk alþýða er að byrja að fá smjörþefinn af
hinum erlendu auðfélögum í Straumsvík, og
fádæimi er það „herrenvolk“ langt frá því að skilja
íslenzka verkamenn, íslenzka verkalýðshreyfingu,
íslenzkar aðstæður. Það kemur fram í framkomu
á vinnustað og ekki sízt í deilunni við Verka-
mannafélagið Hlíf, en þar er raunar „íslenzkur“
bandamaður, Vinnuveitendasambandið svonefnda
með í spilinu. Nú hefur miðstjórn Alþýðusambands
íslands lýst yfir fyllsta stuðningi sínum við Hlíf
í deilunni, og segir orðrétt í yfirlýsingu Alþýðu-
sambandsins: „Hlíf hefur áður gert samning við
Strabag-Hochtief vegna jarðvinnslu í Straums-
vík og er krafa félagsins sú, að ákvæði þess samn-
ings verði nú einnig viðurkennd af Hochtief-Vél-
tækni. Engar viðbótarkröfur eru gerðar. Alþýðu-
sambandið telur óhugsandi að gerður verði samn-
ingur um lakari verkamannakjör við hafnarvinn-
una, en þegar hefur verið gerður um jarðvinnsl-
una, og sé því engin önnur lausn hugsanleg á deilu
þessari, en að viðurkenning fáist á fyrra samn-
ingi. Er því heitið á öll sambandsfélög að veita
Hlíf allan nauðsynlegan stuðning í deilu þessari,
þar til samningar hafa tekizt“
17æntanlega tekst að gera þetta íslenzka sjónar-
* mið skiljanlegt hrokagikkjum þeim erlendum
og innlendum, sem neita að semja við Verka-
mannafélagið Hlíf, og ætti eindregin afstaða Al-
þýðusambands íslands að stuðla að þeim skiln-
ingsauka. •— s.
■ Sjaldan eða aildrei hefur maður orðið vitni að jafn
tvísýnium knattspymukappleik eins og seinni hálfleik
rniHi ÍBV og Víkings. Þegar 15 mínútur voru eftir var
staðan 2:0 fyrir Víking, og áhorfendur farnir að sætta
sig við þessi úrslit. En ÍBV leikmennirnir voru á allt ann-
arri skoðun. Það var engu líkara en þeir vöknuðu af
þymirósarsvefni og það svo um munaði. Á þessum 15
mínútum sem eftir voru, tókst þeim að skora tvö mörk
og jafna þar með leikinn og voru auk þess hvað eftir
íslandsmótið, 2. deild:
Jafntefli Víkinga og Vestmanneyinga
2-2 í tvísýnum og skemmtilegum leik
Knattspyrrmgeta þessara liða
er mjög svipuð, enda varleik-
urinn jaín og tvísýnn allan
tímann. Þó var eins og Víking-
arnir berðust af meira krafti,
að síðustu 15 mín. undanskild-
um, begar ÍBV-menn fóru loks
í „gang“ fyrir ailvöru.
Þessi leikur hafði það fram
yfir marga aðra leiiki að allan
timann var eitthvað skemmti-
legt að ske. Hættuleg augna-
blik upp við mörkin, eða þá
hörkubarátta um knöttinn úti
á vellinum, en ekki þetta leið-
indáþóf eins og einkennir allt-
of marga leiki hjá íslenzkum
liðum.
Fyrsta mark leiksins kom á
12. mínútu. Hafliða Péturssyni,
innherja Víkings, var brugðið
í dauðafæri innan vítateigs og
dómarinn, Róbert Jónsson,
dæmdi réttilega vitaspyrnu sem
Ólafur Þorsteinsson sikoraði ör-
ugglega úr 1:0. Aðeins þrem
minútum seinna skora Váking-
ar aftur. Þeir hófu sókn upp
hægri kantinn og þaðan var
bolltanum spyrnt vel fyrir
markið til Hafliða Pétursson-
Handknatf leiksméf ið:
FH gegn F-ram
íslandsmótinu í handknatt-
leik utanhúss lýkur í Hafnar-
firði annað kvöld. Þá keppa
til úrslita i kvennaflokki Val-
ur og KR og í karlaflokki
Fram og FH.
f úrslitaleik i a-riðli i karla-
flokkj sigraði FH Víking mjög
naumlega í fyrrakvöld með 14
mörkum gegn 13, og sama
kvöld vann Víkingur ÍR með
29:25.
ar, sem skaut viðstöðulaust
uppundir þverslá og inn. Sér-
staklega fallegt mark. Áfram
var sótt og varizt á víxl og á
32. mín. komust fBV-menn í
dauðafæri en Víkingar björg-
uðu á línu.
Vestmannaeyingamir byrj-
uðu seinni hálfleikinn af nokkr-
um krafti, en tókst þó aldrei
að sikapa sér veruleg mark-
tækifæri. Þessi orraihríð þeirra
stóð aðeins í fimm til tíu mín.
en svo var eins og liðið brotn-
aði algjöriega niður. Þá sner-
ist taflið við og Víkingar sóttu
nær látlaust í 20 mín. Hvað
eftir annað voru þeir nærri
þvi að skora, en . Pálil í ÍBV-
markinu varði oft meistaralega.
auk þess björguðu Vestmanna-
eyingamir einu sinni á línu.
Þannig er svo staðan þegar<j>
aðeins 15. mínútúr eru eftir.
Þá var engu líkara en hver
einasti leikmaður ÍBV hefði
fengið vítaminsprautu. A.m.k.
hef ég aldrei orðið vitni að
slíkum gífurlegum endaspretti
hjá knattspyrnuliði.
A 30. mín. s.h. er dæmd horn-
spyrna á Ví'king. Hægri út-
herji ÍBV framkvæmir spyrn-
una og sendir boltann til Sæ"-
ars Tryggvasonar, sem skallaði
í netið 2:1. Eftir þetta var lát-
ílaps sókn á jVíkingsmáhkið ^oga
á 37. mín. er .sóknarmarir.i'
Vestmannaeyinga brugðið í
dauðafæri og dómarinn benli
samstundis á vítapunktinn.
Viktor Helgason skoraði ömgg-
lega úr vítaspyrnunni, 2:2.
Nú náði spenningurinn fyrst
hámarki. Þær 7 mínútur sem
eftir voru gat enginn í stúlc-
unni setið fyrir spenningi. Þrí-
vegis á þessum lokamínútum
munaði aðeins hársbreidd að
Vestmannaeyingum tækist að
skora. En heppnin var með
Víkingum og jafntefli varð
staðreynd.
Liðin:
Uppistaðan i báðum þessum
liðum em kornungir og stór-
efnilegir piltar. Vissulega þail
hvonugt . liðið að kivíða fram-
tíðinni ef rétt er á málunum
haldið hvað viðkemur þjálfun
liðanna.
í Vestmannaeyjaliðinu bar
einn rnaður af, hann heitir
Sævar Tryggvason, ákaflega
laginn og vel leikandi knatt-
spyrnumaður, sem gaman verð-
ur að fylgjast með í fram-
tíðinni. Auk hans áttu Viktor
Helgason miðvör^ur og Magn-
ús Helgason v.bakvörður báð-
ir góðan. leik. ;
í Víkingsliðinu er sömusögu
að segja, einn maður bar þar
af, v.framvörðurinn Gunnar
Gunnarsson, mjög efnilegur
leikmaður. Markvörðurinn og
Hafliði Pétursson h.innherji
em báðir mjög efnilegir leik-
menn.
Dómari var Róbert Jónsson
og dæmdi nokkuð sæmilega.
Þó var leiðinlegt að sjá unga
menn apa þá vitieysu eftir
nokkmm eldri dómaranna að
stoppa upphlaup þannig að liö-
ið sem brýtur af sér hagnast
á brotinu. Auk þess sem mér
finnst Róbert dæma of mikið
á allskonar smábrot, sem engu
máli skipta. En hann hefur
það framyfir marga reyndari
dómara að vera fyllilega sam-
kvæmur sjálfum sér í dómurn,
og er það góðs viti. Hitt getur
lagazt. — S.dór.
Tilboð óskast í götu- og holræsagerð í norðan-
verðum Kópavogshálsi (Dalbrekkru).
Tilboðsgögn verða afhent í skrifstofu bæjarverk-
fræðings í Kópavogi, gegn kr. 1000 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð í Félagsiheimili Kópavogs
kl. 14, 28. ágúst 1967.
Byggingarnefnd
Hafnarfjarðarvegar
í Kópavogi.
Stó/kur — Vinna
Eina eða tvær stúlkur, sem vilja vinna
við mat og bakstur, vantar strax í Hreða-
vatnsskálann.
Hreðavatnsskálinn.
Ferðaskrifstofa okkar hefur nýlega gefið út bækling
um IT-ferðir til Oslo, Kaupmannahafnar, Helsinki,
Amsterdam, Glasgow, London og Luxemborgar á
tímabilinu frá 1. apríl til 31. október. f ferðum þess-
um gefst ferðamanninum tækifæri til þess að fá ódýr-
ar ferðir til þessara landa þar sem innifalið er í verði
gisting, morgunmatur og ferðir innan þessara landa
eftir eigin vali. Takið ekki ákvörðun um ferðalagið
án þess að kynna ykkur þessi kjör. Sendum bækling-
inn til þeirra er óska. Lítið inn í skrifstofu okkar og
látið okkur skipuleggja ferðalagið. — Auk þess selj-
um við farmiða með öllum flugfélögum innanlands og
utan, farmiða með skipum, járnbrautum. — Hringið
og við sendum yður miðana heim ef óskað er
LA NDSH N t
FÉRÐASKRIFST OFA
IAUGAVEG 54 - SÍMAR 22890 & 22875 -BOX 465
lítso/o næstu dngn
MIKILL AFSLÁTTUR.
ÓJL Traðarkotssundi 3
(fnóti Þjóðleikhúsinu). Sími 23169.
»
4