Þjóðviljinn - 01.10.1967, Qupperneq 12
/
Atvinnuleysi vof-
ir yfir á Akureyri
Fram.hald af 1. síðu.
3. Að gerðar verði tafarlausar
ráðstafanir til þess að Slippstöð-
in hf. fái verkefni við nýsmíð-
ar fiskveiði- eða flutningaskipa.
4. Að starfsemi Niðursuðu-
verksmiðju K. Jónsson og CO.
verði efld með því að léttaverk-
smiðjunni hráefnisöflun og
tryggja henni aukinn markað
fjrrir framleiðsluvörur sínar.
5. Að Tunnuverksmiðja ríkis-
ins verði starfrækt ásamt verk-
smiðjunni á Siglufirði að því
marki, að tunnubirgðir í land-
inu verði a.m.k. jafnmiklar á
' næsta sumri og þær voru nú í
vertíðarbyrj un.
6. Að fyrirhugaðri niðursuðu-
verksmiðju Valtýs Þorsteinsson-
ar verði veitt nægilegt stofnlán
til að unnt sé að hefjast handa
um byggingu hennar r\jú í haust.
7. Akureyrarbær leitist við að
halda uppi svo mikilli vetrar-
vinnu fyrir verkamenn, sém
frekast verður við komið vegna
veðráttu.
Fundurinn telur, aðbrýn nauð-
syn sé á, að starfsemi Atvinnu-
málanefndar Norðurlands verði
haldið áfram í haust og vetur
og henni fengið til ráðstöfunar
nokkru ríflegra fjármagn en áð-
ur, m.a. með tilliti til stuðnings
við heimalandanir togaranna og
niðursuðuiðnaðinn.
Fundurinn lýsir stuðningi sín-
um við þá ákvörðún miðstjórnar
Alþýðusambands Norðurlands að
hefja á næstunni viðræður við
ríkisstjórnina um atvinnumál
Norðurlands og mælir einnig
með því að ASl taki upp við-
ræður við ríkisstjómina um
þessi efni“.
Brjóstmynd af Jóni Eyþórs-
syni í Jökulheimaskálanum
Sunnudagur 1. október 1967 — 32. árgangur — 220. tölutolað.
Skotið á höfuð-
borgina í Biafra
Húsmæðrafélag Rvikur hefur
vetrtirstarfið ínýju húsnæði
Húsmæðrafélag Reykjavíkur er
í þann veginn að hefja vetrar-
starf sitt, sem er fjölbreytt eins
og venjulega. Húsmæðrafélagið
hefur starfað I 33 ár, og hefur
lengst af verið í vandræðum með
Dags Leifs Ei-
ríkssonar minnzf
um næstu helgi
Undanfarin ár hefur íslenzlc-
ameríska félagið gengizt fyrir há-
tiðahöldum í sambandi við dag
Leifs Eiríkssonar, sem er 9. okt.
og mun svo einnig gert í ár með
athöfn við Leifsstyttuna á Skóla-
vörðuholti og árshátíð félagsins.
Þar eð 9. okt. ber upp á mánu-
dag hefur verið ákveðið aðhalda
árshátíðina á föstudagskvöldið 6.
október og athöfnina sunnudag-
inn 8. okt.
húsnæði, en hefur nú flutzt í ný
og vistleg húsakynni að Hall-
veigarstöðum, og þar mun öll,
kennsla á vegum félagsins fara
fram í vetur.
Að þessu sinni hefst starfsem-
in með fjögurra kvölda nám-
skeiðum, þar sem þennt er,
hvernig hægt er að hagnýta til
vetrarins mat, sem nú er á mark-
aðnum á góðu verði. Getur ver-
ið mikil hagsbót fyrir húsmæð-
ur að kunna að fara rétt með
þennan mat og leggja hann í
frystikistu eða ísskáp í réttum
umbúðum. Kennd verður með-
ferð og frysting grænme1's og
kjötmetis svo og slláturgerð.
Á næstunni hefst svo 5—6
vikna matreiðslunámskeið fyrir
yngri og eldri konur og síðan
saumanámskeið og munu hús-
mæðrakennarar sjá um alla þessa
fræðslu. öllum konum er heim-
il þátttaka í námsikeiðunum. Þær
sem áhuga hafa á þátttöku geta
fengið allar nánari upplýsingar
í símum 1-47-40 og l-:26-83.
Nú um næst síðustu helgi fór
, flokkur karla og kvenna úr
Jöklarannsóknafélagi Islands til
Jökulheima og var aðalerindið
að afhjúpa brjóstmynd af Jóni
Eyþórssyni, veðurfræðingi, í
hinum nýja og vandaða skála,
i er Jöklarannsóknafélagið hefur
j reist í Jökulheimum. Brjóst-
I myndina hefur Ríkharður Jóns-
| son gert og var gifsafsteypa af
henni gefin Jóni á sjötugsafmæli
hans, en síðan tóku Grímsvatna-
konur og menn sig saman um
að láta steypa hana í bronz. Var
sú mynd afhjúpuð i Jökuliheim-
um á laugardagskvöld. Ritari fé-
iagsins, Sigurður Þórarinsson,
flutti þar ávarp og rakti hann
gagnmerkt brautryðjandastarí
Jóns á sviði jöklarannsókna, svo
og önnur hans miklu og marg-
háttuðu menningarstörf, sem
hann taldi enn ekki hafa verið
Björn efstur á
Septembermótinu
Björn Þorsteinsson, Islands-
meistari í skák, varð sigurveg-
ari á Septembermóti Taflféilags
Reykjavíikur með 8 vinninga af
9 mögulegum.1 Annar varð Jón
Friðþjófsson með 7‘A vinning, en
baráttan um efsta sætið varð
einvígi milli þeirra er leið á
mótið. Jón vann Björn, (sem
vann allar aðrar skákir sínar),
en tapaði fyrir Pétri Eiríkssyni
og gerði eitt jafntefli.
I þriðja til fimmta sæti með
6 vinninga voru Benóný Bene-
diktsson, Bragi Björnsson og Jó-
hann Sigurjónsson.
Hraðskákmót Taflfélagsins
hefst í dag kl. 1,30 í hinu nýja
húsnæði félagsins að Gronsás-
vegi 46.
metin að verðleikum. Þorvaldur
Þórarinsson, lögfræðingur, tók
einnig til máls og mjög í sama
streng.
Á eindálkamyndinni sést stytt-
an, sem stendur við gafl aðalsal-
arins í nýja skálanum, sem nú
er nær lokið að innrétta. (Ljósm.
Halldór Gíslason). Á þrídálka
myndinni sést nýi skálinn til
vinstri og' gamili skálinn til
hægri, en sá skáli, sem reistur
var vorið 1955, hefur síðustu
sumrin verið bústaður þeirra, er
framkvæma veðurathuganir í
Jökulheimum yfir sumarmánuð-
ina. — (Ljósm. Magnús Jóhanns-
LAGOS 30/9 — Samkvæmt
fréttum sem borizt hafa til Lag-
os var í 'gærkvöld skotið úr
sprengjuvörpum á Enugu, höf-
uðborg lýðveldisins Biafra —
eða austurfylkis Nígeríu, sem
hefur sagt sig úr lögum- við sam-
bandsstjórnina.
Ekki hafa fengizt upplýsingar
um það hvaða tjóni sprengj-
urnar hafa valdið. í útvarps-
ræðu í dag sagði forseti Biafra,
Ojukwu að hann væri ákveðinn
í að verja Enugu fyrir öllum
Bræðrastjórn
Vetrarhjálpar
Borgarráð hefur samþykkt að
skipa í stjórn Vetrarhjálparinn-
ar fyrir árið 1967 þá séra Jón
Þorvarðarson, Þorkel Þórðarson
framfærslufulltrúa og Kristján
Þorvarðarson læknir. Þeir Jón og
Kristján eru bræður.
Þá hefur borgarráð samþykkt
að Magnús Þorsteinsson verði
ráðinn framkvæmdastjóri Vetr-
arhjálpai’innar.
Fegurstu garðarnir í Hafnar-
firði verðlauna ðir í sumar -
Fegrunarfélag Hafnarfjarðar
gekkst fyrir skoðun skrúðgarða
á þessu sumri og fór hún fram
um miðjan ágúst. Úrskurður
dómnefndar er sá, að fegursti
skrúðgarður I^ejarins á þessu
sumri, sé garðurinn að Kirkju-
vegi 9, eign frú Evu Jóhanndótt-
ur og Ólafs Sigurðssonar.
Hverfisviðurkenningar hljóta:
Vesturbær: Garðurinn Kirkju-
vegi 8, eign frá Unu Guðmunds-
dóttur óg Aðalsteins Sigurðsson-
ar.
Suðurbær: Garðurinn Hring-
braut 75, eign frú Sigríðar Sím-
onardóttur og Sigmundar
Bjarnasonar og frú Önnu Árna-
dóttur og Ketils Eyjólfssonar.
Kinnahverfi: Garðurinn Fagra-
kinn 15, eign frú Hallfríðar
Gísladóttur og Steinþórs Hóse-
assonar.
Hvaleyrarholt: Garðurinn
Móabarð 24, eign frú Hönnu Elí-
asdóttur og Magnúsar Elíasson-
ar.
Ýmsir garðar, sem áður hafa
fengið verðlaun og viðurkenn-
ingu félagsins, eru enn í mjög
góðu ástandi og öðrum til fyrir-
myndar.
Þá athugaði nefndin einnig
um útlit og snyrtimennsku við
húseignir, sérstaklega í miðbæn-
um. Því miður var ástand í
þessum efnum ekki þannig, að
ástæða þætti til verðlauna né
víðurkenninga.
Þá vill nfefndin láta þess get-
ið, að útlit Nýju bílftslöðvarinn-
ar sé mjög snyrtilegt og eig-
endum hennar til sóma. Enn-
fremur vill dómnefndin ekki
láta hjá liða að geta Olíustöðv-
arinnar við Hvaleyrarbraut, en
umgengni öll þar og útlit ætti
að vera • öðrum atvinnufyrir-
tækjum til fyrirmyndar.
árásum og ekki komi til mála
að flytja á brott íbúana sem
eru um tíu þúsund talsins. Gaf
hann þó leyfi til að börn og
mæður þeirra færu frá borg-
inni.
í einni frétt segir að sam-
bandsherinn sé nú í aðeins átta
km. fjarlægð frá borginni.
Ilaun stóð ekki lengi þurrviðris-
kaflinn og er nú spáð áfram-
haldandi rigningu með öllu til-
heyrandi. En þótt fullorðna fólk-
ið amist við vcðurfarinu kunna
sumir þá list að finna beztu
hliðarnar á hverju máli, eins og
t.d. sá litli á. myndinni hér að
ofan, sem tckin var við Þver-
árrétt á sunnudaginn var. —
(Ljósm. Þjóðv. vh.).
W 4
I
Nýju dansarnir í vefur:
Topol, Dúkkudans,
Sneeker, Carl
Alan Stomp, Soul og U, la, la, vals
Nýju dansarnir í ár eru
miklu skemmtilegri og fall-
egri en þeir hafa verið und-
anfarin ár, sagði Heiðar Ást-
valdsson danskerinari í við-
tali við blaðið, en dansskóli
hans tekur til starfa eftir
mánaðamótin. Helztu nýju
dansarnir nú eru Topol, Pupp-
et .Dance (dúkkudans), Sneek-
ers, Carl Alan Stomp, Soul,
Ooh, la la og fleiri, auk margra
skemmtidansa og verða þess-
ir dansar kenndir' í skóla
Heiðars í vetur fyrir utan alla
venjulega samkvæmisdansa.
Á þingi hjá The Imperial
Society of Teachers of Danc-
ing, kennarasambandi, sem
aðalkennarar við Dansskóla
Heiðars eru meðlimir í, var
Heiðar fenginn til að sýna
alla nýjustu dansana með
Peggy Spencer sem kynnti þá
á þinginu. Guðrún Pálsdóttir
og Edda Pálsdóttir sýndu þar
frumsaminn dans sem vakti
mikla hrifningu.
Kennarar skólans hafaekki
setið auðum höndum í sumar,
heldur notað tímann tiil náms
og æfinga, bæði fengið er-
lenda kennara hingað heim
og farið utan. Eins og áður
geta nemendur skólans, sem
aflað hafa sér nægrar kunn-
áttu í dansi (tveggja vetra
nám), tekið próf og fengið
alþjóða dansmerkið, en auk
þess gefst nú eldri nemend-
um tækifæri til að taka þátt
í framhaldsnámskeiði og reyna
við brons-, silfur eða gull-
merkið.
Heimsmeistararnir koma
hingað.
Kennarar hafa ekki leyfi
til að prófa nemendur sína
sjálfir við þessi framhalds-
próf og verður að fá viður-
kennda prófdómara frá The
Imperial Society of Teachers
of Dancing. Er ákveðið að
prófdómari hér verði Bill Ir-
ving, sem er heimsmeistari í
dansi ásamt Bcbby konu sinni.
Munu þau hjónin koma
hingað í apríl og sýna á loka-
dansleik skóllans og væntan-
lega gefst einnig fleirum en
nemendunum tækifæri til að
sjá dans heimsmeistaranna.
T- h. Heiðar Ástvaldsson og Guðrún Páls-
dóttir dansa pxisadoble.
T. v. Heimsmeistararnir í dansi, Bill og
Bobby Irvine, sýna listir sínar á lslandi
|
i