Þjóðviljinn - 29.10.1967, Page 4
4 SlÐA — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 29. októiber 1967.
Ctgefandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — SósíaMstaSokk-
urinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Suðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Slgurður T. Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðustíg 19.
Sími 17500 (5 línur) — Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. —
Lausasöluverð krónur 7.00.
Einhuga gegn kjaraskerðingu
'y'erkalýðshreyfingin á íslandi hefur risið gegn
kjaraskerðingarhótunum ríkisstjómar Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðuflokksins einróma og
einhuga. Morgunblaðið á því að vonum bágt í áróðri
sínum, hefur m.a. reynt að grípa til þeirrar blekk-
ingar að Eðvarð Sigurðsson, fonmaður Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar og Verkamannasam-
bands íslands, hafi í þingræðu haft að einhverju
leyti aðra afstöðu til málsins en aðrir þingmenn
Alþýðubandalagsins sem talað hafa. Þetta er ger-
samlega tilhæfulaust, ræðan var birt í Þjóðviljan-
um 23. þ.m. og ætti að taka af öll tvímæli um þenn-
am blekkingaráróður Morgunblaðsins, og mætti
þá einnig vitna í einróma mótmæli Verkamanna-
félagsins Dagsbrúnar og Alþýðusambandsins.
| ræðu sinni við 1. umræðu kjaraskerðingarfrum-
varpsins á Alþingi sagði Eðvarð on.a.: „Stærsti
hluti þessara aðgerða er afnám á niðurgreiðslum
á nauðsynjavörum almennings og er talinn nema
410 miljónum króna á ársgrundvelli. Hér er um
að ræða allar brýnustu nauðþurftirnar, mjólk,
kjöt, kartöflur, og það á að gerast án allra bóta,
fólk á að taka á sig þær byrðar sem þessu nemur.
Eins og oft er búið að taka fram kemur þetta harð-
ast niður á láglaunafólki og bamafjölskyldum,
vegna þess að þetta fólk notar langstærsta hluta
tekna sinna til að kaupa þessar brýnustu nauðsynj-
ar. Ég vil segja það strax, að ég tel að með þessu
sé rofinn grundvöllur allra kjarasamninga. Sam-
kvæmt gildandi lögum og samningum ætti fólk
að fá 8% kauphækkun til að mæta þeim verðhækk-
unum, sem þessar ráðstafanir fela í sér. Hér er um
að ræða eins vel frágengna hluti í þeim efnum og
hægt er að hafa. Af þessu leiðir að ég hlýt að líta
svo á, að þessar ráðstafanir séu í raúninni stríðs-
yfirlýsing gagnvar'f verkalýðshreyfingunni, sem
hún hljóti að svara á sínum tíma. Afleiðingin
hlýtur að verða nýr ófriður á vinhumarkaðnum,
nýtt ófriðartímabil“.
Jgðvarð lagði áherzlu á í ræðu sinni að ifram-
koma ríkisstjórnarinnar gagnvart verkalýðs-
hreyfingunni, ekki sízt varðandi vísitöluatriði júní-
samkomulagsins, væri ámælisverð, það atriði hefði
verið lagt til grundvallar við kjarasamningana
1965 og 1966 án þess að ríkisstjómin eða atvinnu-
rekendur hefðu hreyff hinum minnstu mótrnæl-
um, en nú tilkynnti ríkisstjórnin fyrirvaralaust að
þetta atriði júnísamkomulagsins væri ekki lengur
í gildi. „Þegar svona er að farið vil ég ekki vera að
tala um drengskap og drenglyndi í fraimkomu við
verkalýðshreyfinguna. Það er allt annað og allt
önnur orð sem þar ættu við“, sagði Eðvarð. Enda
er það svo, að málatilbúnaður ríkisstjórnarinnar
með kjaras'kerðingarfrumvarp sitt ber allan hlæ
sams konar þjösnaskapar og þegar þyingunarlaga-
frumyarpið var á döfinni 1963, og hótunum um
kjaraskerðingu er haldið áfram í Morgunblaðinu
samtímis því að talað er um að hafa nú, eftir dúk
og disk, samráð við verkalýðshreyfinguna. — s.
Barna* og skólafatn-
aður á tízkusýningu
Konur í Styrktarfélagi van-
gefinna efna í dag. sunnu-
daginn 29. okt. til tveggja fjöl-
breyttra skemmtana í Súlna-
sal Hótel Sögu. Skemmtanirn-
ar hefjast kl. 3 og kl. 8,30 sd.
Meginþáttur beggja skemmt-
ananna er sýning á bamafatn-
aði frá verzlununum Ýr og
og Teddybúðinni, svo og kven-
skóm og öðrum skófatnaði frá
Steinari Waage og Skóverz!-
uninni Sólveigu í Hafnarstraeti.
Börn úr Dansskóla Hermanns
Ragnars sýna fiatnaðinn og
nokkra nýæfða dansa, enn-
fremur sýna ungiingar úr
sama skóla nýjustu táninga-
dansana. Þá verður og dans-
sýning frá ballettskóia Eddu
Scheving, „kisudans" og fleira.
11 ára telpa, Guðrún S. Birgis-
dóttir, syngur lög úr kvik-
............... ....... <
Verndun og efl-
ing landsbyggðar
Á fundi neðri deildar Aliþing-
is á fimmtud. flutti Gísli Guð-
mundsson framsöguræðu fyrir
frumvarpi sem hann flytur
ásamt fimm öðrum Framsókn-
arþingmönnum „um sérstakar
ráðstafanir til að stuðla að
vemdun og eflingu Iandsbyggð-
ar og koma í veg fyrir eyð-
ingu Iífvænlegra byggðarlaga".
Þar er lagt til að komið verði
á fót byggðajafnvægisnefnd til
að rannsaka málin og stjórna
framkvæmdum af hálfu ríkis-
ins, og ennfremur Byggðajafn-
vægissjóði, sem fái til um-
ráða 2% af tekjum ríkissjóðs
ár hvert (nú um 94 miljónir
króna) til að vinna að þessum
málum.
Framsöguræðan var ýtarleg,
vandlega samin og prýðilega
flutt og máiið sjálft vandasamt
þjóðfélagsmál, en aðeins örfáir
þingmenn virtust hafa tíma til
að hlýða á kynningu Gísla á
þpssu athyglisverða frumvarpi.
ÆF
★ N.k. sunnudag verður flutt
★ af segulbandi annað erindi
★ Asgeirs Ðlöndals Magnús-
★ sonar um heimspeki marx-
★ ismans. Erindið nefnist: Hin
★ dialektiska efnishyggja marx-
★ ismans. — ÆFR.
myndunum „Sound of Music“
og „Mary Poppins" með und-
irleik Magnúsar Péturssonar,
sem einnig annast undirleik á
fatasýningunni og dönsunum.
Á kvöldskemmtuninni leika
þær Kolbrún Sæmundsdóttir og
Eygló Haraldsdóttir ennfremur
fjórhent á píanó. Á síðdegis-
skemmtuninni, sem einkum er
ætluð „allri , fjölskyldunni".
verður farið f leiki og börn-
um úr áhorfendahópnum gef-
inn kostur á að taka þátt í
þeim og vinna til smáverðlauna.
Kynnir á báðum skemmtunun-
um er Hermann Ragnar Stef-
ánsson, danskennari.
Kaffi og gosdrykkir verðaiil
sölu á sfðdegisskemmtuninni og
matur er framreiddur frá kl.
7 fyrir þá, sem þess óska, en
öll veitingasála er á vegum
Hótel Sögu.
Skyndihappdrætti verður á
báðum skemmtununum og
margt girnilegt á boðstólum.
Ágóðinn af skemmtuninni og
happdrættinu rennur f sérsjóð
kvenna' í Styrktarfélagi van-
gefinna, en fé úr honum er
eingöngu varið til kaupa á inn-
búi, leik- og kennslutækjum
fyrir vistheimili vangefins fólks.
Hafa konurnar á undanfömum
9 árum aflað fjár í sjóðinn af
miklum dugnaði og veitt ár-
lega ríflega fjárupphæð úr
honum til kaupa á húsbúnaði,
m.a. f dagheimillið Lyngás hér
í borg, Skálatunsheimilið og
sundlaugina þar, til Sólheima i
Grímsnesi o.fl. Nóg verkefni
eru enn fyrir hendi. Nægir t.d.
að benda á húsbúnaðarkaup til
gamla hússins í Skálatúni, sem
verið er að innrétta á ný fyrir
15 vistmenn, á hælisbyggingu á
Akureyri, sem nýlega er hafin,
og á þá staðreynd að dagheim-
ilið Lyngás, sem Styrktarfélag-
ið rekur er begar orðið of lít-
ið, þ.e. aðsóknin orðin meiri
en svo að hægt sé að fullnægja
henni.
Konumar f Styrktarfélagi
vangefinna hafa undanfarin ár
haft basár og kaffisöllu rétt
fyrir jólin, en reyna nú' nýja
fjáröflunarleið til viðbótar. Þær
heita nú á velunnara sfna og
bess málefnis, er þær vinna
fvrir að sækja skemmtanirnar á
Hótel Sögu i dag, sunnudag,
sjálfum sér til ánægju ogsjóðn-
um til tekjuauka. Þess má geta
að aðgöngumiðar að báðutn
skemmtununum verða seldir frá
kl. 2 í dag.
Stdlsmiöir
Svissneskt fyrirtæki í Straumsvík vill ráða
til starfa í Straumsvík:
1. Stálsmiði til vinmi í allt að 35 m hæð.
2. Rafsuðumenn vana rafsuðu (röntgenprófun)
við erfiðar aðstæður í allt að 35 m hæð.
Enskukunnátta æskileg.
Skriflegar umsóknir sendist fyrir 2. nóv.
ítil Joint-Contractors, pósthólf 201, Hafnar-
firði.
FÍFA augjýsir
Stórkostleg verðlækkun á peysum og úlpum fyrir
böm og fullorðna.
Verzlið yður í hag — Verzlið í Fífu.
Verzlunin FlFA
Laugavegi 99 (inng. frá Snorrabraut).
@ntinental
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÖGLUM
sem settir eru í, með okkar íull-
komnu sjálívirku neglingarvél.
veita íyllsta öryggi x snjó ög
hálku.
Nú er allra veðra von. — BíðiS
ekki eítir óhöppum, en setjið
C0NTINENTAL' hjólbarða', með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustoía vor er opin alla daga
frá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 Sími 3-10-55.
KOMMÓÐUR
og eik
Húsgagnaverzlun Axels Eyjélfssonar
Skipholti 7 — Sími 10117.
Vatteraðir nylonjakkar
hettuúlpur, peysur og terylenebuxur. —
Athugið okkar lága verð. — Póstsendum.
Ó. L. Laugavégi 71
Sími 20141.
Frímerki - Frímerki
íslenzk, notuð og ónotuð. — 1. dags umslög, inn-
stungúbækur, tengur og margt fleira.
FRÍMERKJAVERZLUNIN
Grettisgötu 45 (Verzlun Guðnýjar) t