Þjóðviljinn - 22.11.1967, Síða 3

Þjóðviljinn - 22.11.1967, Síða 3
Miðvikudagur 22. nóvember 1967 — ÞJÖÐVXLJINN — SlÐA 3 Veröa miljón manns brátt atvinnulausir á Bretlandi? LONDON — Þrátt fyrir gengisfellingu pundsins eru efna- hagsvandræði Breta fjarri því að vera leyst. segir frétta- ritari AFP 1 London og telur að efnahagsvandræðin séu meiri frá pólitísku sjónarmiði en efnahagslegu. Fram á föstudagskvöld' gerði Harold Wilson forsætisráðherra sér vonir um að hann gæti fengið stórlán með góðum kjör- um frá seðlabönkum stórveld- anna. En það er staðreynd að Wil- son neyddist ekki aðeins til að snúa sér til alþjóða gjaldeyris- sjóðsins og fara fram á lán sem var ekki nema helmingur af því sem hann hafði vænst (um 1,4 miljarðar dollara) en einn- ig verður hann að framkvæma margvíslegar strangar efnahags- ráðstafanir heimafyrir. Talið er segi fréttaritari AFP að gengisfellingin og hinar nýju ráðstafanir muni hafa eftirfar- andi áhrif í Bretlandi: 1. Framfærslukostnaður mun hækka uih 4 til 5 prósent. 2. Atvinnuleysr mun vaxa og mjög bráðlega verða miljón atvinnuleysingjar á Bretlandi. 3. Fjárfesting í iðnaði mun minnka að mun. Forvextir eru nú 8 prósent, og það er mjög erfitt að fá lán í bönkum. ★ Þcgar allt kemur til alls mun lykillinn að árangri eða vand- kvæðum Wilsons liggja hjá verkalýðsfélögunum. Og þar eru verkföll hafnarverkamanna og verkamanna í byggingariðnað- inum ekki uppörvandi fyrir rík- isstjórnina. Verkamannafíokkur óskipturmeð Wilson LONDON 21/11 — Stjórnarandstaða brezka íhaldsflokks- ins gerði harða hríð að ríkisstjórninni í umræðum um gengisfellinguna á þingi í dag. En þingmenn Verkamanna- flokksins virðast einhuga með ríkisstjórninni. " .. Russell-dómstóllinn er að störfum í Danmörku HRÓARSKELDU 21/11 — Mannsheili og nýra sem tekin voru úr fómarlömbum bandarískra fHsasprengja voru í dag sýnd fyrir Russell-dómstólnum, sem nú situr í.Hró- arskeldu. Það var bandaríski prófessorinn A. Mictowsky sem sýndi þessi líffæri og útskýrði hvernig flísasprengjur dreifa þúsundum smábrota í líkama fómardýranna sem fyrir verða. Herdómstóll í Aþenu dæmdí í kvöld Konstantin PiIIinis og fornlcifafræðinginn Leoudas í ævilangt fangelsi fyrir að hafa tekið þátt í „Þjóðernissveitinni“ sem stefndi að því að steypa valdaræningj- unum grísku. Þriðji maður var dæmdur í 15 áira fangelsi, kona nokkur í 10 ára fangelsi og þrír menn í fimm ára fangelsi hver. Tíu af hinum 31 sem stefnt var fyrir réttinn voru sýknaðir. Mynd- in er úr herréttinum í Aþenu er sakborningar voru sýndir blaðamönnum í strangri hergæzlu- A. Mictowsky prófessor sem er háskólakennari í læknisfræði við Háskólann í París fór nýlega í heimsókn til Norður-Vietnam, þar sem hann sá marga og heyrði sem særzt höfðu af flísasprengj- um. Fyrr í dag hafði norður-viet- nömsk heimildarmynd um fóm- ardýr bandarísku flísasprengj- anna og eldsprengja verið sýnd. Fyrr í dag gerði forseti vís- indanefndar dómsins, Frakkinn A. Behar grein fyrir upplýsing- um um notkun Bandarikjamanna á eiturefnum. Hann sagði að um 867.400 hekt- arar af hrísökrum og öðru rækt- uðu landi hefðu verið eyðilagðir með eiturefnum á árirui 1967. A. Behar hefur einnig verið í Vietnam og gerði hann grein fyrir því sem hann heyrði og sá í landinu og staðfesti það, að Bandaríkin hefðu nptað fosfór- og aðrar eldsprengjur gegn þorpum sem augljóslega stóðu víðsfjarri hernaðarmikilvægum stöðum. Bandaríski hæstaréttarmála- i flutningsmaðurinn, Stanley Falkn er fordæmdi hina svonefndu Tonkin flóa ályktun, sem hann taldi brjóta í bág við bandarísku stjórnarskrána. Tonkin ályktunin , sem sam- þykkt var á Bandaríkjaþingi í ágúst 1964 veitir Bandaríkjafor- seta aukið vald til að stjórna striðinu í Vietnam, en sam- kvæmt bandarísku stjómar- skránni er það aðeins þingið sem getur lýst yfir stríði. Ihlutun Bandaríkjanna í Viet- nam er raunverulegt stríð, þó formleg stríðsyfirlýsing hafiiekki verið gefin út, sagði Falkner. Falkner tók til meðferðar fjölda annarra þátta í . stríði Bandaríkjanna í Vietnam, sem hann taldi brjóta bæði stjórnar- skrána og Seato-varnarsáttmál- ann. ★ Stríðsrekstur Bandaríkjamanna í Vietnam þverbrýtur fjölda al- þjóðlegra sáttmála og samninga, sagði hann. Stórorusta á bökk- um Jórdanár í gær TEL AVIV og AMMAN 21/11 — ísraelskar orustuþotur eyðilögðu í dag sex jórdanska skriðdreka sem höfðu haf- ið skothríð að frámvarðarstöðvum ísraelsmanna á vestur- bakka Jórdan. Talsmaður ísraelsku herstjórn- arinnar skýrði frá þessu í dag og jafnframt að ísraelsk flugvél hefði verið skotin niður, en neitaði því að þær hefðu verið tvær eins og . Jórdaníumenn sögðu. Fréttamenn í Tel Aviv segja að þessi orusta í dag hafi ver- ið hin alvarlegasta síðan stríð- ið var háð í júní. Tveir ísraelskir hermenn létu lífið og einn særðist. Talið er að Jórdaníumenn hafi látið skríða til skarar í dag í hefnd- arskyni við hernaðaraðgérðir ísraelsmanna á þessu sama svæði í gær, en þá létu 14 Jórd- aníumenn lífið. Samkvæmt fréttum frá Tel Aviv var jóröanska stórskota- liðinu komið fyrir á mánudags- kvöld og snemma í morgun hóf það skothríð á stöðvar ísra- elsmanna á langri víglínu á svæðinu við A1 Suhart. Einum klukkutíma síðar fóru í’sraelskar þotur á loft en þeim hefur ekki verið beitt síðan í stríðinu í júní, og tveim og hálfum tíma eftir að Jórdaníu- menn hófu skothríðina var or- ustunni lokið. í opinberri ísraelskri yfirlýs- ingu í dag eru Jórdaníumenn sakaðir um að hafa undirbúið árásina í dag og hefðu jórdansk- ir hermenn gert sig seká ‘ úm margvíslegar ögrunaraðgerðir á þessu svæði að undanförnu. í Amman er sagt að ísra- elskar flugvélar hafi gert mikl- ar loftárásir á flóttamannabúð- ir við Kerame og fleiri staði. James Callaghan Á síðustu mánuðum hafa verkamenn um allt Bretland sýnt vaxandi óánægju með stjórnina og — oft á tlðum — Wilson sjálfan. En fjármálaráðherra Breta James Callaghan mun verða fyr- ir svörum er stjórnarandstaðan hefur árás á ríkisstjórnina á þingi. Bandankjamenn / herkví / ,mestu orustu í 5- Vietnam' SAIGON 21/11 — Bandaríkjamönnum tókst í dag að bjarga 140 sinna manna, sem höfðu særzt í hörðustu og dýrustu segir fréttaritari Reuters á vígvellinum við Dakto. segir fréttaritari Reuters á vígvellinum við Dak-to. Talsmaður Bandaríkjahers skýrði frá því að 71 maður úr flugherdeild hefðu verið drepnir í átökum við norður-vietnamska hermenn sem haldið hafa banda- rískri herdeild í herkvi síðan á sunnudag. Fram á kvöld í dag hafði norður-vietnömskum hermönn- um tekizt að koma í veg fyrir að þyrlur Bandaríkjamanna gætu flutt birgðir og liðsauka til hinnar innikróuðu herdeildar. Bandaríkjamenn notuðu eld- vörpur gegn andstæðingum sín- um, sem hafa hvergi hörfað. Jafnframt gera Bandaríkjamenn loftárásir á 15 mínútna fresti á Norður-Vietnamana. Forseti tyrkneska ins heitir innrás á NICOSIA 21/11 — Ríkisstjórnin á Kýpur hélt því fram í dag, að tyrfcnesk herflugvél hefði framið lofthelgisbrot í 25 mínútur snemma í dag. Hafði flugvélin flogið frá norðri til suðurs yfir eynni og m.a. flogið yfir Nicosiu. Forseti tyrkneska herráðsins, Cemal Tural, lýsti því yfir í dag að tyrkneskur her yrði settur á.land á Kýpur. Ian MacLeod sem er fjármála- ráðherra í skuggaráðuneyti stjórnarandstöðunnar sagði að* Mesti Gin- og klaufaveikifar- aldur aldarinnar OSWESTRY, ENGLANDI 21/11 — Gin og klaufaveikin sem nú herjar á Bretlandi var í gær sögð hins versta sem gengið hef- ur í landinu á þessari öld. Landbúnaðarráðuneytið brezka hefur birt tölur sem sýna að fram til þessa hefur 130.725 dýr- um verið slátrað vegna veikinn- ar. Dýralæknar og aðstoðarfólk vinna allan sólarhringinn að því að rannsaka gripi í leit að fyrstu ummerkjum pestarinnar. Haugarnir af skrokkum voru orðnir svo miklir að grípið var til þess ráðs að sprauta yfir þá benzíni. og bremna þá. ríkisstjórnin hefði kastað milj- ónum punda á glæ vegna vit- lausrar fjármálastefnu og sagði. að Wilson forsætisráðherra hefði nú ekki aðeins lækkað gengi pundsins en einnig ,sinna eigin loforða og bæri honum að segja af sér hið bráðasta. MacLeod hélt því fram að rík- isstjórnin hefði eytt miljarði punda í það að styðja gengi pundains á því tímabili að á- kveðið var að lækka það íyrir tveim vikum og þar til í gær. Anthony Crossland iðnaðar- málaráðherra yarði aðgerðir rík- isstjórnarinnar og taldi þær mundu mjög bráðlega leiða það í ljós að iðnframleiðslan stóryk- ist í landinu og verzlunarjöfn- uður yrði hagstæðari í ár en verið hefur árum saman 1 dag var gengi nýsjálenzka pundsins lækkað um tæp tutt- ugu prósent og er nú jafnt gengi ástrals'ka dollarans. í París er sagt að de Gaulle sé staðráðinn í því að leggja til nýrnar atlögu við Bandaríkja- dollar bráðlega. Hcrshöfðinginn neitaði að svara því, hvenær þetta ætti að gerast. Þrátt fyrir þessi ummæli herslhöfðirtgjans telja fréttamenn í Ankara, að enn hafi ekki verið teknar endanlegar ákvarðanir. í Ankara er alimenn talið að hægt verði að komast hjá því að lenda í stríði við Griikki, ef ó- standið á Kýpur helzt nokkurn TCginn óbreytt enn um bríð. 1 Ankara er almennt talið að heimildum að ríkisstjórn Grikk- lands óttist að Tyrkir hafi kannski ákveðjð að beitS valdi. Hinn nýi gríski utanríkisráð- herra Pipinelis átti í dag við- ræður við sendiherra Bandaríkj- anna Philip Talbot og gaf síðan Konstantín kóngi skýrslu um á- standið. Orðrómur koms<t á loft í herráðs- Kýpur Aiþenu í dag að herútkall væri yfirvofandi. Tyrkland jók í dag útgjöld sín til hermála um 175 miljónir líra og það var ekki gefin nokkur skýring á þessari viðbót við fyrri fjárhagsáætlanir til hersins. Viðbúnaður. á Kýpuir Ríkisstjórnin á Kýpur býr sig undir það að kalla grískættaða varahermenn í herinn vegna yf- irvofandi hættuástands. Fulltrúi gríska herforingjaráðs- ins er kominn til Nicosia til að útnefna nýjan yfirmann hersins á Kýpur, sem á að taka við af George Grivas, sem kallaður var til Aþenu fyrir þrem dögum. Orustan síðastliðna þrjá daga er einhver hin blóðugasta sem Bandaríkjamenn hafa lent ílengi. Talsmaður bandaríska hersins skýrði frá þvi &ð síðan hemað- araðgerðir þeirra hófust þarna í miðhálendi S-Vietnam skammt frá landamærum Kambodja fyrir þrem vikum hafi 1183 Vietnamar látið lífið, en 240 Bandaríkja- menn og 798 Bandaríkjamenn hafa særzt. Stjórn V-Bengal vikið frá KALKUTTA 21/11 — Fylkis- stjórinn í Vestur-Bengal kallaði sambandsherinn í Kalkútta í dag eftir að hann hafði vikið sjórn- inni frá völdum. Fylkisstjórinn sagði að stjóm- in, sem er samsteypustjóm vinstri flokka, væri undir stjóm kommúnista og hefði gert ráð- stafanir til að fá fulltingi Kín- verja til að tryggja sér völdin f fyikinu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.