Þjóðviljinn - 22.11.1967, Blaðsíða 8
*
SIÐA — ÞJÓÐVIUINN — Miðvikudiagur 22. nóvesm.ber 1967.
WINSTON
GRAHAM:
MARNIE
55
— Ætlið þér að telja mér
trú um að þér vitið ekkert urn
söluna á hlutabréfum Marks í
Rutland & Co.?
— Hefur Mark selt hlutabréf-
m sín í Rutland & Co ? Hvaða
vitleysa er þetta. Það myndi hon-
um aldrei detta £ hug.
— Já, en hann hefur nú gert
það samt — eða er að þvi kom-
inn að gera það. Hann sagði
okkur það á stjómarfundinum
í morgun. Hann og Rex hafa selt
öll hlutabréfin sín Glastonbury
Investment Trust.
Ég góndi á hann. — Ég hélt
einmitt að þér vilduð að Rex
seldi Glastonbury.
Hann hló reiðilega. — Jæja,
svo að þér hélduð það. Nei, sann-
leikurinn er sá, að þér hafið
gert okkur andstyggilegán grikk-
Þjónninn kom með teið og ég
hellti í bollann hans. Svo sagði
HARÐVIÐAR
ÚTIHURÐIR
TRÉSMIÐJA
Þ. SKÚLASONAR
Nýbýlavegi 6
Kópavogi
sími 4 01 75
Hárgreiðslan
Hárgreiðslu og' snyrtistols
Steinu og Dódó
Laugav 18. III. hæð flyfta
Sími 24-6-16
PERMA
Hárgreiðslu- og snyrtistota
Garðsenda 21. SIMl 33-968
hann: — Þér lásuð einu sinni
bréf sem pábbi átti að fá. Hann
sagði mér frá þvi. Og þér hafið
auðvitað sagt Mark hvað stóð í
þeim bréfum, er ekki svo?
— Ég skil ekki af hverju þér
eruð svona reiður. Það voruð
reyndar þér sjálfur og faðir yð,-
ar, sem vöktuð áhuga Malcolms
Leicester á þessum hlutabréfum,
'ferry.
— Veit ég vel- Við vissum
nefnilega að Newtbn-Smith-
mæðgin myndu ekki vilja selja
okkur. En við hugsuðum sem
svo að ef til vill væri hægt að
fá þau til að selja óviðkomandi
aðilai og það væri sérlega þægi-
legt fyrir okkur, að þessi mikla
hlutabréfaeign færi úr höndum
Newton-Smith-mæðginanna yfir
til Glastonbury, þvi Glastonbury
fengi á þann hátt rétt til að fá
menn í stjómina og þá myndum
við og hann til samans hafa
fleiri atkvæði en Rutland-hóp-
urinn og fá þannig sanngjamari
aðstöðu til áhrifa en nú er.
Eftir athafnir míngr vikuna á
undan, var næstum eins og þetta
kæmi mér ekki við. Mér fannst
það svo ofurfjarlægt, jafnfjar-
lægt og það stæði í sambandi við
Mollie Jeffries eða einhvern
hipna en alls ekki mig. Mér
fannst eins og ég væri þegar
komin langt burt frá öllu þessu.
— Og hvað er þá athugavert
við það þótt Mark selji öll hluta-
bréfin sín — þótt ég trúi því alls
ekki að hann ætli sér það.
— Hann ætlar að gera það, og
það táknar að Glastonbury verð-
ur ekki neinn minnihftitii heldur
eignast svo mikið magn af bréf-
um að þeir verða því sem næst
eigendur, en faðir minn og ég
verðum ekki annað en núll og
nix.
Teið mitt var orðið of sætt og
ég hellti vatni í það.
— Já, en var það ekki eitthvað
svipað sem þið feðgarnir reynduð
að gera gagnvart Mark?
Terry lagfærði slifsið sitt og
var í sýnilegu uppnámi. — Jæja,
þér eruð þá á hans bandi, vina
mín. Það var aðeins það sem
ég vildi vita.
— Ég er hreint ekki á bandi
neins. Þetta kemur mér ekki við.
Þetta eru peningar Marks og
hann hlýtur að mega gera við
þá það sem honum sýnist. En af
hverju eruð þér að segja mér
allt þetta?
— Ætli þér getið nú ekki haft
töluverð áhrif á Mark?
Ég góndi á hann. — I svona
málum? Alls engin.
— Ég er alls ekki viss um það,
Nú stendur þannig á að Glasion-
bury Investment Trust hefur gert
tilboð um kaup á hlutabréfum £
Rutland & Co. fyrir gengið sjö-
tíu og tvö. Mark tilkynnti okkur
það í dag. Það er bréf í prent-
un, sem senda á til allra hlut-
hafa utan fjölskyldunnar, þar
sem mælt er með því að taka
boði Glastonburys. Það bréf
verður sent út á mánydag — svo
að enn er tími til að draga það
til baka, kæra vinkona.
Hugur minn var reyndar langt
burtu. Ég gat með engu móti
fengið áhuga á málinu, Um hvað
var hann eiginlega að tala?
— Haldið þér í raun og veru
að ég gæti stöðvað fyrirætlanir
Mark? Þér eruð ekki með réttu
ráði. Og hvers vegna ætti ég að
reyna það?
Terry svaraði ekki, heldur
hallaði sér aftur á bak í stóln-
um og horfði á eftir ungri stúUeu,
sem var á leið út úr veitinga-
stofunni. Hann byrjaði að horfa
á fæturna og renndi augunum upp
á við með hægð-
Á eftir hélt hann áfram að
tala á einhvem undarlega loðinn
og undarlegan hátt. Mér fannst
einhvem veginn serri hann væri
að reyna að tengja mig við allt
þetta mál; en ég skildi ekki al-
mennilega hvemig það mátti
verða, þvi að ég hlustaði tæpast
é hann. Enda stóð mér á sama.
Ég hafði hvorki áhuga á vanda-
málum Terrys né Marks. Fyrir-
tækið Rutland & Co. skipti mig
ekki meira máli en þvottareikn-
ingurinn frá f fyrri viku.
Ef til vill hefði ég átt að
höggva eftir þvi, að hann skyldi
yfirleitt snúa hér til mín. Ég
hefði átt að skilja, að hann
eygði einhverja björgunarleið í
mér. En ég áttaði mig ekki á
því.
Ég minntist ekki á þetta við
Mark, hvorki þetta kvöld né hið
næsta. Ég var niðursokkin í
mínar eigin hugsanir og á þriðju-
daginn reið ég Forio yfir til
Newton-Smith mæðginanna, því
að við Mark áttum að fara með
þeim á veiðar á miðvikudaginn.
Þetta var hræðileg ferð, því að
ég vissi að þetta var í síðasta
skipti sem ég gat verið ein með
Forio. Á miðvikudaginn yrði
krökkt af fólki kringum okkur,
og það var allt annað.
Þegar til kom þá fann ég, að
ég myndi sakna ýmislegs. Það
var Richards fjölskyldan og
blindu mennirnir. Þennan stutta
tíma sem ég hafði þekkt þetta
fólk hafði ég tengzt því inni-
legri vjnáttuböndum en ég hafði
áður þekkt. Og það hafði sxna
kosti að vera húsmóðir í eigin
húsi og svona líka indælu húsi.
— Mark var fjörugur og ræð-
inn við morgunverðarborðið. Við
áttum að aka yfir til Newton-
Smith mæðginanna og veiðamar
áttu að hefjast klukkan tíu. Þeg-
ar ég sá Mark í þessu skapi,
varð mér fyrst Ijóst hversu fá-
skiptinn og niðurdreginn hann
hafði verið undanfamar vikur.
Og þetta var síðasti morgunverð-
urinn sem ég myndi nokkurn
tíma borða með honum. Annað
kvöld myndi ég gera mér er-
indi inn í svefnherbergið til
hans, meðan hann var ið hátta,
og svo myndi ég skipta um
lykla þegar hann sæi ekki til
og ......
Ég spurði Mark: — Er þao
rétt að þú sért búinn að selja
hlutabréfin þín í Rutland & Co.,
Mark?
Hann leit upp og brosti: —
Já, það er ekki fjarri sanni. Við
höfum fengið tilboð frá náung-
um sem viljá kaupa og við ráð-
leggjum öllum hluthöfum okkar
að taka því boði.
— Já, erf hvers vegna? Það
hefði ég' ekki haldið að þú gæt-
ir hugsað þér.
— Ég gat það ekki heldur fyr-
ir nokkrum mánuðum. En síðan
hefur mér orðið Ijóst, að það er
sama hve lengi ég vinn hjá Rut-
land & Co. og hvað ég geri, ég
losna aldrei við þá erfiðleika
sem eitruðu tilveruna fyrir föður
mínum. Og svo hugsaði ég með
mér að í rauninni skipti nafn
engu máli. Það má fjúka.
— Og hvað ætlar þú þá að
gera — á eftir?
— Sennilega gerist ég meðeig-
andi í öðru fyrirtæki. Ég hef á-
huga á fleiri en einni prent-
smiðju; það eru menn sem reka
eigin útgáfustarfsemi, og það
gæti verið skemmtilegt. Ég hef
alltaf ætlað að segja þér þetta,
en ég vildi bíða þangað til það
var klappað og klárt-
— Og hinir — hvað gera þeir?
— Rex? Hann dregur sig í
hlé eins og ég. En hann er
annars stórrikur þar fyrir utan.
Og Holbrookfeðgarnir? Ef þeir
verða kyrrir, þá geta þeir sjálf-
sagt haldið sætum sínum í
stjóminni.
— Eru þeir óánægðir með
þetta?
— Já, það eru þeir. En ég get
ekki séð að þeir hafi ástæðú til
að kvarta; það voru þeir sem
vöktu áhuga- Malcolm Leicesters
á málinu. En Rex hefur annars
séð um þetta síðasta.
— Hann er slyngari en hann
Iítur út fyrir að vera-
— Að undanteknum fyrstu
tveim fundunum við Leicester
hef ég unnið fyrir opnum tjöld-
um. Tilboðið er nú lagt fyrir
hluthafanai á fullkomlega lögleg-
an hátt. Hann reis á fætur. —
En nú verðum við að fara að
flýta okkur .... Ég hef verið
á báðum áttum lengi vel, en nú
er ég loks búinn að taka ákvörð-
un, og það er eins og ég sé
kominn úr skyrtu sem mig klæj-
aði undan. Það hefur verið býsna
óskemmtilegt að standa í þessu
mánuð eftir mánuð. En ég er
nokkurn veginn viss um að þetta
verður þægilegra fyrir Holbrook-
feðgana, þegar þeir eru búnir að
kyngja þessum fyrsta beizka bita.
Afbrýðisemi er andstyggileg —
og hún er jafnólþægileg fyrir
báða aðila-
Ég reis á fætur með hægð og
þá sagði Mark: — Marnie, ég
vona að þú leyfir mér bráðum
að snúa mér _til Strutts og hinna
fyrirtækjanna tveggja. Ég vil
helzt fara til þeirra í eigin per-
sónu — og alein. Ég held að ég
geti komizt að samkomulági við
þá.
— Hvernig þá? "
— Ég ætla að reyna dálítið,
sem Westerman gat ekki stungið
upp á, af þvi að það er ólög-
legt. En ég, hef hugsað mér að
segja við þessa menn, að ég sé
fús til að endurgreiða stolnu
peningana með því skilyrði að
þeir falli frá allri málssókn.
Ég hristi höfuðið. Það er ekki
víst að þú komist langt með það,
því að þeir eru sjálfsagt tryggð-
ir-
— Ef til vill — og ef til vill
ekki. Það eru ekki allir jafn-
forsjálir. Og það er að minnsta
kosti tilvinnandi að reyna.
Sólin var að brjótast gegnum
þpkuna þegar við ókum að heim-
an. Rétt áður en við komum á
leiðarenda spurði hann: —
Hvemig vissirðu þetta með
hlutabréfin í Rutland & Co.?
— Dawn sagði mér það.
— Dawn veit ekkert um það-
Starfsfólkið hefur ekki hugmynd
um þetta.
Ég þagði.
Og þá sagði hann: — Þegar þú
lýgur svona gróft og heimsku-
lega að mér, þá missi ég alveg
móðinn aftur. Er það Terry sem
hefur sagt þér þetta?
— Já.
— Þú heldur t>á áfram að um-
gangast hann?
— Nei- En hann hringdi og
sagðist þurfa að tala við mig.
Við drukkum saman te íyveit-
i ingastofu í St. Albans.
I FÍFA auglýsir
\
\ Verzlunin FÍFA
Laugavegi 99.
(inngangur frá Snorrabraut)<
I
Þar sem verzlunin haettir verða allar vör-
ur seldar með 10% — 50% afslætti
GOLDILOrK!^ |iun-deaiier
pottasvairpur sem getur ekkl ryðgað
SKOTTA
— Sötraðu ekki svona æðislega, Donni, það gerir roig tauga-
óstyrka — einmitt þegar ég þarf á sálarjafnvægi að halda . . .
Binangrunargler
Húseigendur — Byggingameistarar.
Útvegum tvöfalt einangrunargler með miög stetb
um fyrirvara.
Sjáum um ísetningu og allskomar breytingar 6
»luggum. Útvegum tvöfalt gler í lausafög os sjá-
um um máltöfeu.
Gerum við sprungur 1 steyptum veggjum með
baulreyndu gúmmíefni
Gerið svo vel og leitið tilboða.
SÍMI 5 11 39.
NYKOMIÐ
Peysur, úlpur og terylenebuxur.
O. L. Laugavegi 71
Simi 20141.
BlLLINN
Gerið við bíla ykkar sjólf
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
BlLAÞJÓNUSTAN
Auðbrekku 53. Kópavógi — Sími 40145.
Lótið stilla bílinn
|
Onnumst hjóla-, ijósa- og mótorstillingu
Skiptum um kerti. platínur. ljósasamlokur
— Örugg þjónusta.
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32, sími 13100
Hemlaviðgferðir
• Rennun. bremsuskálar
• Slípum bremsudælur.
• Límurn á bremsuborða.
Hemlastilling hf.
Súðarvogi 14 — Sími 30135.