Þjóðviljinn - 07.12.1967, Síða 3
Fimmtudagur 7. dsssmber 1G67 — ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA J
Óeirðir í bandarískum borgum
vegna métmæla gegn stríðinu
NEW YORK 6/12 — Óeirðir urðu í dag í tveimur banda-
xískum borgum, New York og Philadelphia, þegar lög-
regla réðst gegn fólki sem safnazt hafði saman á götum
úti til að mótmæla stríðinu í Vietnam.
Nokkur hundruð andstæðingar
stríðsins reyndu að ryðjast inn í
Waldorf-Astoria gistihúsið í New
York þar sem til stóð að Dean
Kusk utanríkisráðherra héldi
ræðu í hádegisverðarboði. Lög-
reglan beitti kylfum sínum og
rak mannfjöldann á flótta.
Þetta var þriðji áreksturinn
milli lögreglumanna og andstæð-
inga Vietnamstríðsins í New
York í dag. Fyrr um daginn
höfðu þeir síðamefndu reynt að
brjótast inn í ráðhús borgarinn-
ar og þeir reyndu einnig að grýta
stærstu herskráningarstofuna í
New York. Þar hrópuðu þeir
„Náið í drengina heim“, og „Frið
nú“ og sóttu að skráningarstof-
DAGFINNUR
DÝRALÆKNIR
Læknirinn sem talaöi
öll heimsins dýramál
eftir HIIGH LOFTING
í þýðingu Andrésar
Kristjánssonar, ritstjóra
unni úr þrem áttum. Lögreglan
lokaði götunum sem liggja að
henni. „Farið ekki þangað. Þið
verðið drepnir1' var hrópað að
mönnum sem komu til að láta
skrá sig til herþjónustu.
Þarna urðu miklar sviptingar,
a.m.k. 25 menn voru handteknir,
og röð og reglu var ekki komið
á aftur fyrr en riddaralið lög-
reglunnar hafði verið kvatt á
vettvang. Sams konar aðgerðir
gegn skráningu nýliða í herinn
MADRID 6/12 — Stúdentar i
Madrid efndu í dag, þriðja dag-
inn í röð, til mótmæla gegn
Francostjóminni. Þeir hlóðu bál-
köst úr dagbllöðum á háskólalóð-
inni og kveiktu í en sungu sam-
tímis níðvísur um Franco og eig-
inkonu hans.
Dagblaðabrennan var haldin til
að mótmæla skrifum blaðanna
um mótmaelaaðgerðir stúdenta
að undanfömu. Fjölmennt lög-
munu verða víða um Bandaríkin
í eina viku-
I Philadelphia voru 74 menn
a.m.k. handteknir þegar fjöldi
manna settist á gangstéttina við
skráningarstofu þar til að hindra
að nýliðar kæmust til að láta
sl..á sig i herinn. I gær höfðu
um 2-500 manns tekið þátt í
sams konar aðgerð á sarna stað
og þá vom 264 menn handteknir.
Meðal þeirra vom þrír heims-
kunnir menn, bamalæknirinn
Benjamin Spock, skáldið Ailen
Ginsberg og Conor Cmise
O’Brien, írski diplómatinn sem
á sínum tíma var fulltrúi SÞ í
Kongó en er nú prófessor við há-
skólann í Philadelphia.
reglulið var í næsta nágrenni við
háskólann, en skipti sér ekki af
því sem fram fór. Þrír stúdentar
verða nú leiddir fyrir rétt í Mad-
rid fyrir þátttöku þeirra í átök-
um sem á fimmtudaginn urðu
milli háskólastúdenta og lög-
reglunnar. Eftir þau átök var
háskólanum lokað það sem eft-
ir var vikunnar, en óeirðir hóf-
ust aftur þegar hann var opn-
aður á mánudaginn.
Ný hjartagræðsia
misheppnaðist
NEW York 6/12 — Læknar við
sjúkrahús í New York reyndu í
dag að græða hjarta í nýfætt
sveinbaro sem var ekki hugað
líf vegna hjartagalla. Hjartað
var tekið úr öðru nýfæddu barni
sem fæðzt hafði með vanskap-
aðan heila. Hjartað var tekið
úr því um leið og það lézt og
grætt í hitt. Aðgerðin virtist
hafa tekizt vel, en sveinbarnið
dó skömmu eftir hana. Enn er
ekki vitað um dánarorsökina, en
víst þykir þó að hún hafi ekki
verið sú að líkami bamsins hafi
ekki sætt sig við aðkomuhjartað.
Tollfrjáls fisk-
innflutningur
BRUSSEL 6'12 — Framkvæmda-
nefnd EBE í Brussel hefur heim-
ilað Itahu að flytja inn tollfrjálst
frá löndum utan bandalagsins
34.000 lestir af söltuðum þorski
og skreið á nsesta ári. Það kann
að vera að þessi innflutnings-
kvóti verði aukinn.
„Pillan" er talin
valda gulusótt
STOKKHÓLMI 6/12 — Enginn
vafi getur leikið á því lengur
að getnaðarvamalyf sem tekin
eru inn geta valdið bæði gulu
og sjúklegum breytingum á lifr-
inni, segir ritari þeirrar sænsku
nefndar sem kannar aukaáhrif
af lyfjum, dósent Weterhold.
Madrid-stúdentar efna enn
til mótmæla gegn Franco
ItÓKAITOVFAX
’ ÖIFV OG ÖRLYGliR
mm VOAARSTRÆTI 12
SÍMI 18660
Stytta ætti leið í stúd-
entsprófið um eitt ár
segir Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra
Nokkrar umræður urðu á
fundi sameinaðs þings í gær
um skólamál, og svaraði Gylfi
Þ. Gíslason menntamálaráð-
herra fyrirspurnum frá Matthí-
asi Á. Mathiesen um skólarann-
sóknir.
Lagði Gylfi áherzlu á að
skólalöggjöfin frá 1946 væri fyrst
og fremst rammalöggjöf hvað
varðar skólaskyldustigin, og væri
hægt að koma við breytingum
á flestu því sem löggjöfinni
væri fundið til foráttu án þess
að þyrfti að breyta lögum.
Hefðu breytingar á skólakerfinu
ekki strandað á fræðslulogunum
frá 1946
Löggjöfin um framhaldsmennt-
un og sérskóla hefði hins veg-
ar verið í endurskoðun og væri
það að nokkru leyti enn, lög
hefðu verið sett nýlega um ein-
staka þætti hennar og yrði hald-
ið áfram að huga að löggjöfinni
um menntaskóla og fleiri atriði.
★ Stúdentar einu ári yngri
Meðal þeirra atriða sem ráð-
herrann taldi að breyta þyrfti
væri of hár stúdentsaldur. Teldi
hann að stúdentar ættu að vera
einu ári yngri en nú er algeng-
ast, og í athugun væri hvar
helzt sé hægt að stytta leiðina
um eitt ár, þó yrði það sjálfsagt
á skyldunámsstiginu.
Þá skýrði ráðherrann allýtar-
lega frá skólarannsóknadeildinni
sem komið hefur verið upp við
menntamálaráðuneytið og Andri
Isaksson veitir forstöðu, og
helztu athugunum og tilraunum
sem þar er unnið að.
Einnig töluðu Vilhjálmur
Hjálmarsson, Ingvar Gíslason og
Bjami Guðbjömsson auk fyrir-
spyrjanda. — Taldi Vilhjálmur
mikið vanta á að nemendur ættu
alstaðar kost á skólavist til að
ljúka skyldunámi sínu, til þess
vantaði skólahúsnæði, og átta
ára skólaskyldan væri ekki
framkvæmd. Gylfi skýrði frá að
enn væru fámennir dreifbýlis-
hreppar sem ekki hefðu afl til
að framkvæma átta ára skóla-
skylduna og hefðu því enn und-
anþágu, en að sjálfsögðu bæri
að stefna að því að öll böm
og ungmenni ættu kost átta ára
skólagöngu.
• SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA •
FRÓÐLEIKSÞÆTTIR 06 SÖGUBROT
flyfur fjölbreyttasta ritgerðasafn íslenzks
höfundar að efni til. Þar. er persónusaga
tekin til meðferðar, réttar- og tónlistar-
saga, grundvöllur íslenzkrar hagsögu er
treyetur til muna, leystar gátur Valþjófs-
staðahurðarinnar, Iesið í eyður fornra
handrita, galdrablað dregið í dagsljósið
og brú skotið yfir veraldarhafið á stólp-
um erlendra menningarleyfa, sem hér
finnast.
SKUGESJA
FRÓÐLEIKSÞÆTTIR 06 SÖ6UBR0T
mun verða talin ein merkasta bókin, er
út kemur á þessu ári. — Bókamenn og
aðrir, sem unna góðum og fögrum bók-
um, œttu því að tryggja sér eintak af
bókinni á meðan hún enn er fáanleg.
FRÓÐLEIKSÞÆTTIR OG SÖGUBROT
er sönnunargagn þess, að hér er vel
unnið að íslenzkri sagnfrœði, þótt að-
stœður séu erfiðari en skyldi og margt
saskist seint. — Á síðari hluta 20. aldar
hefur enginn lagt meira að mörkum til
rannsóknar íslenzkri sögu en Magnus
Már Lárusson.
FRÓÐLEI KSÞÆTTI R OG SÖGUBROT
eftir Magnús Má Lárusson prófessor
Magnús Már Lárusson er manna fróðastur um lög forn og ný, hagfrceÖingur góður og guðfrœðingur og
laginn að nota tœkni nútímans. AIIs staðar er hann skyggn rýnandi heimilda og dregur lœrdóma af
mikilli yfirsýn.
SKUGGSJÁ • SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA • SKUGGSJA •
Samstarf og sundrung
Aksel Larsen formaður og Jens Otto Krag forsætisráðherra.
Horfur em nú á því að
gengislækkun dönsku krón-
unnar, eða öllu heldur ráð-
stafanir þær sem talið var
nauðsynlegt að gera vegna
j hennar, muni verða minni-
j hlutastjórn sósíaldemókrata að
■ falli og myndu þá nýjar þing-
kosningar verða í Ðanmörku
j strax upp úr áramótunum.
! Danir urðu fyrstir allra til að
fara að fordæmi Breta og
fella gengið, að vísu aðeins
um rúman helming af geng-
j islækkun sterlingspundsins.
Danir em flestum öðmm
■ þjóðum háðari sölu afurða
: sinna á brezikum markaði og
það var því varla umtalsverð-
• ur ágreiningur milli stjórn-
■ málaflokkanna um gengis-
lækkunina sjálfa. Þingmenn
j Sósíalistfska alþýðuflokksins
j (SF) sem stutt hafa ríkis-
stjórn Krags síðan verkilýðs-
flokkamir tveir fengu nauman
; meirihluta á þingi í kosning-
■ unum fyrir rétt rúmu ári (89
; af 175) greiddu atkvæði með
j frumvarpi stjórnarinnar um
! gengislækkunina. Ríkisstjóm-
in boðaði strax að hún myndi
bera fram tillögur um „hlið-
; arráðstafanir" vegna gengis-
lækkunarinnar, annars vegar
til að bæta landbúnaðinum
það tjón sem hann myndi
verða fyrir vegna þess að
j danska krónan fylgdi ster-
! lingspundinu ekki alla leið,
hins vegar til að koma í veg
: fýrir að hækkun á verðlagi og
: kaupgjaldi myndi vega upp á
j móti áhrifum gengislækkunar-
innar. Það var heldur ekki
■ umtalsverður ágreiningur milli
■ verklýðsflokkanna um það að
: einhverjar slíkar ráðstafamr
myndu vera nauðsynlegar. En
I það kom hins vegar brátt f
ljós að harla lítið samkomu-
■ lag var á milli flokkanna eða
: öllu heldur innan SF um
! hvaða ráðstafanir bæri að
■ gera. Það eru þær deilur sem
■ válda því að stjórn Krags
: riðar nú til falls.
Tiillögur hennar voru í meg-
inatriðum á þá leið, að
■ jafnframt því sem komið yrði
j 1 veg fyrir alla hækkun á-
: lagningar á vöruverð væri
i skattþegnum öðmm en laun-
: þegum gert að greiða sérstak-
an gengislækfcunarskatt í eitt
■ skipti fyrir öll, en hlutur
■ launþega yrði sá að afsala sér
j um tíma og eilífð öðrum af
! tveim skömmtum verðbólgu-
uppbótar sem vitað var að
beir myndu eiga rétt til frá
áramótum. (Danskir launbegar
! fá uppbót vegna verðhækk-
ana þegar vísitailan hefur
hækkað um ákveðinn stiga-
; fjölda, en þá ekki sem pró-
: sentu af grunnkaupi, heldur
j fá allir jafnan skammt sem
! miðast við hækkun á algeng-
ustu framfærsluliðum). Verð-
; bólga hefur verið í Danmörku
j undanfarin misseri og mán-
• uði og það þótti ljóst að laun-
þegar myndu hafa átt kröfu á
■ tveimur verðbólguskömmtum
: þótt engin gengislækkun hefði
j orðið, enda áhrifa hennar
tæpast farið að gæta enn að
; ráði. Stjórn SF sem nær ein-
■ vörðungu er skipuð mönnum
j úr vinstri armi flokksins
j lagðist eindregið gegn þessari
■ fyrirætlun ríkisstjórnarinnar,
: bœði af því að hún gæti ekki
talizt nauðsynleg gengislækk-
unarinnar vegna, að hún
myndi bitna harðast á þeim
ilaunþegum sem mlnnstu
hefðu úr að spila, og síðast en
ekki sízt af þvi að kaupskerð-
ingin átti að verða varanleg;
tímabundnir erfiðleikar vegna
gengislækkunarinnar skyldu
notaðir til að hafa kaup af
launbegum um aldur og ævi.
En það kom á daginn sem
oftar að undanfömu að tals-
verður meirihluti þingflokks
SF með formann flokksins,
Aksel Larsen, í broddi fylk-
ingar reyndist vera á annarri
skoðun en yfirgnæfandi meiri-
hluti flokksstjórnarinnar —
eða hafa kannski öllu fremur
aðra afstöðu til samstarfsins
við sósíaldemókrata en vinstri
menn. Larsen og félagar
munu hafa viðurkennt að
mótbárur vinstri manna væru
réttmætar, en þá skiptir það
höfuðmáli að stofna á engan
hátt samstarfinu i voða; láta
heldur undan kröfum — og af-
arkostum — samstarfsmann-
anna en eiga á hættu að þeir
rifti því og taki aftur upp þá
samvinnu við borgaraflokkana
sem staðið hefur danskri
verklýðshreyfingu fyrir þrif-
um um áratugi. Sú stjórn
vinstri manna sem kosin var
á sfðasta flokksþingi er alger-
lega sammála formanninum
um nauðsynina á samstarfi
við sósíaldemókrata, og gerir
sér að sjálfsögðu Ijóst að slíkt
samstarf tékst ekki án tilslak-
ana af beggja hálfu, en vinstri
menn telja að tilhliðran:r
megi aldrei brjóta í bága við
þá meginstefnu að þjóðfélag-
inu sé þokað í átt til sósíal-
isma samtímis því að staðinn
sé vörður um stundarhags-
muni verklýðsins.
Látlausar samningaviðræður
hafa staðið þar yfir und-
anfarið, innan SF og milli SF
og sósíaldemókrata. Nokkuð
hefur áunnizt i þeim viðræð-
um, en þó miklu minna en
vinstri menn telja viðunandi.
Krag lagði í gær fram á þinai
fmmvarp sitt um „hliðarráð-
stafanir". Hann hefur fallizt
á þá einu kröfu vinstri manna
að kaupskerðingin verði tíma-
bundin (til tólf mánaða), en
hafnað öllum öðrum kröfum
þeirra (t.d. um niðurskurð víg-
búnaðarkostnaðar. lögbind-
ingu 40 stunda vinnuviku,
fjögurra vikna orlof) sem áttu
að gera kaupskerðinguna létt-
bærari. Jafnframt hefur Krag
hótað þvi að segja af sér og
rjúfa þing ef frumvarpið verð-
ur fellt. Hann gæti setið á-
fram og það bykir vafasamt
að hann myndi láta verða af
hótun sinni: Sósíaldemókratar
myndu tapa fylgi og það yrði
bá bið á því að hann ætti
afturkvæmt í forsætisráð-
herrastólinn. Hótun hans um
afsögn byggist á bví að hann
telur að SF myndi standa enn
verr að vígi ef kosningar
færu fram nú. Með beirri
hótun ætlar hann að knýja
vinstri bingmenn SF til að
sitja a.m.k. hjá við atkvæða-
greiðsluna; bannig kynni
frumvarpið að fá nauman
meirihluta. Hvemig svo sem
fer em taldar miklar líkur á
að SF muni klofna á auka-
þingi flokksins um aðra helgi
og báðir armar hans virðast
gera bæði ráð fyrir því og
kosningum: Fulltrúar beggja
hafa spurzt fyrir um það í
innanríkisráðuneytinu hvorum
myndi bera réttur til fram-
boðs í nafni flokksins ef haon
klofnar. ás.