Þjóðviljinn - 03.01.1968, Síða 3
MiðviJcudagur 3. janúar 1963 — ÞJÓÐVXLJIISrN — SÍÐA J
Aukinn spamaður á
ai verja dollarann
Johnson boðar minnkun f járfestingar erlendis,
hemaðarútgjalda og lánveitinga til útlanda
WASHINGTON 2/1 — Johnson Bandaríkjaforseti kunn-
gerði í nýársboðskap sínum margvíslegar ráðstafanir til
þess- að draga úr hinum mikla greiðsluhalla Bandaríkjanna
sem að verulegu leyti stafar af stríðinu í Vietnam.
Þær ráðstáfanir sem Johnson
nefndi í boðskap sínum eru þess-
ar: Takmörkuð verður fjárfest-
ing bandarískra fyrirtækja er-
lendis og dregið úr láfíveitingum
til útlanda, minnkuð verða út-
gjöld í erlendum gjaldeyri vegna
vígbúnaðar og dregið úr kostn-
aði við utanríkisþjónustuna,
jafnframt því sem lagt verður
að bandamönnum Bandaríkjanna
að auka vopnakaup sín hjá
þeim. Þá verður lagt mikið kapp
á að draga úr þeim gjaldeyris-
kostnaði sem stafar af ferðalög-
um Bandaríkjamanna til útlanda,
jafnframt þvi sem reynt verður
að auka ferðamannastrauminn
til Bandaríkjanna.
Bandaríkjamenn verða hvatt-
ir til að dveljast heima í orlofi
sínu, en einnig er búizt við að
lagt verði fyrir þingið frum-
varp sem gerir ráð fyrir að lagð-
ur verði sérstakur skattur á alla
Bandaríkjaþegna sem ferðast til
útlanda. Kemur til mála að þeir
verði látnir borga „'dagsektir",
eríska meginlandsins. Ætlunin er
að spara á þennan hátt um
500 miljónir dollara i erlendum
gjaldeyri.
Ný hjartagræðsla
tókst í Höfðaborg
Hjarta grætt í 58 ára gamlan mann úr 24 ára
gömlum blökkumanni. Aðgerðin tók 5 stundir
HÖFÐABORG 2/1 — Læknum við Groote Schuur-sjúkra-
húsið í Höfðaborg tókst aftur í dag að græða hjarta úr ný-
látnum manni í sjúkling sem skammt átti ólifað vegna
hjartabilunar. Aðgerðin tók fimm klukkustundir og gekk
allt að óskum.
Jolmson áhyggjufullur
Þessi boðskapur Johnsons hef-
r fengið misjafnar undirtektir
þ.e. ákveðna upphæð fyrir hvern baeði í Bandaríkjunum og er-
dag sem þeir dveljast utan am-
Aramót
Framhald af 10. síðu.
Siglufjörður
Áramótagleði fór vél fram hér
í Siglufirði. yoru haldnir tveir
1 áramótadansléikir, fyrir eldri-
kynslóðina að Hótel Höfn og
fyrir hina siglfirzku bítla í Al-
þýðuhúsinu og var lítil ölvun .á
þessum dansleikjum sagði Vil-
berg Þorláksson í gærdag.
Þrjár brennur loguðu glatt á
gamlárskvöld. Tvær uppi í hlíð-
inni fyrir ofan kaupstaðinn og
ein á uppfyllingargarði. Mi'kið
erfiði er að flyt.ia allan efnivið
í bálkestina upp snarbratta
fjallshlíðina, en sigl'firzkir dreng-
ir eru knáir og duglegir við
þessa framkvæmd á ári hverju.
Sérstök helgi hvílir alltaf yfir
Fvanneyrarskál og er brúnin frá
norðri til suðurs skreytt ljósa-
röð — að þessu sinni sextíu og
átta ljósum — og fjölgar þessum
ljósum eftir þvi sem iíður á öld-
ina.
Fyrir neðan í hlíðinni logar
svo á ártalsskreytingu — að
þessu sinni 1967—1968. Sáust
þessar skreytingar illa er leið á
nýársnótt vegna éljagangs af
norðri. Frá ári til ára eru per-
urnar og annað tilheyrandi
geymt í skýlí upp í Hvanneyrar-
skál, en þetta smáhýsi er í eigu
pósts og síma.
Akureyrl
Það voru sömu læknarnir sem
framkvæmdu aðgerðina i dag cg
fyrir einum mánuði græddu
hjarta i Louis Washkansky, en
einnig sú aðgerð heppnaðist að
nokkru, þótt sjúklingurinn létist
18 dögum síðar úr lungnabólgu,
og aðgerðinni stjórnaði nú sem
þá prófessor Chris Barnard.
í dag var hjartað tekið úr 24
ára gömlum blökkumanni, Clive
Haupt. sem í morgun lézt úr
heilablæðingu. Það var grætt í
58 ára gamlan tannlækni. Phil-
ip Blaiberg að nafni. í stuttorðri
tilkynningu frá sjúkrahúsinu um
aðgerðina var sagt að hjarta-
græðslan hefði gengið að óskum
og líðan sjúklingsins væri eftir
vonum.
Blaibe'rg hafði fengið meðvit-
und aftur eftir eina tvo tíma og
seint í kvöld var frá því skýrt
að aðkomuhjartað ynni alveg
Fjórir áramótadansleikir voru
haldnir á Akureyri og fóru hið
bezta fram, sagði lögreglan á
staðnum- Þeir voru háldnir að
Hótel KEA, Sj álfstæðishúsinu,
Alþýðuhúsinu og dunuðu þar til
klukkan fjögur um nóttina — þá
var nemendadansleikur í Gagn-
fræðaskólanum' og stóð hann til
klukkan þrjú um nóttina-
Éljagangur fór vaxandi á ný-
ársnótt og var fremur ill færð
heim um nóttina og undir morg-
un. Allt gekk þó vel fyrir sig
um nóttina.
Á Akureyri loguðu sextán
brennur á gamlárskvöld og flug-
eldaskothríð í góðu gengi og
snrengjulæti að venju. Ártala-
skreyting var ekki sett upp í
Vaðlaiheiði að þessu sinni og
hefði enda varla sézt fyrir élja-
gangi.
1 gær var sextán stíga frost
á Akureyri og snjðkoma fór vax-
ajidi. Ill.færð var komin á veg-
um úti í sveitinni.
lendis,. Einkum hafa þeir sem
starfa að ferðamálum látið í ljós
mikil vonbrigði. í Bandaríkjun-
um er sagt að fremur ætti að
stuðla að því að fá útlendinga
þangað en meina landsmönnum
að fara til útlanda. Ef þessi
fyrirætlun nær tilætluðum ár-
angri má búast við að það hafi
aukna erfiðleika í för með sér
fyrir Breta, sem öðrum fremur
hafa haft dollaratejcjur af banda-
rískum ferðamönnum.
Mimii herstöðvaútgjöld
Þá er ætlunin að spara einar
500 miljónir dollara með hag-
kvæmari rekstri herstöðva
Bandarikjanna erlendis, en nú
eru um 1.5 miljón bandarískir
hermenn utanlands. Mestur hluti
þeirra er í Vietnam, en ekki
er þess getið að neinar fyrirætl-
anir séú um að draga úr her-
kostnaðinum þar, sefn nú mun
vera hátt i 30 miljarða dollara
á ári. Tekið er fram að ekki
sé ætlunin að fækka í banda-
ríska hernum erlendis umfram
það sem þegar hefur verið á-
kveðið.
f Reutersfrétt segir að i New
York séu fésýslumenn mjög and-
vígir þessum fyrirætlunum
Johnsons. Með þeim sé farið
algerlega rangt að því að leysa
vandamálið. Fréttaritarar Reut-
ers í Vestur-Evrópu segja hins
vegar að þar sé þessum ráðstöf-
ununi vel tekið meðal fjármála-
manna, en annað hljóð sé í þeifn
sem starfa að ferðamálum. Ár-
ið 1966 kom meira en hálf önn-
ur miljón ^bandarískra ferða-
manna til Vestur-Evrópu og
skildu þeir þar eftir um 920
miljónir dollara.
Einn helzti ráðgjafi de Gaulle
forseta í fjármálum, Jacques
Rueff, taldi hæpið að þessar ráð-
stafanir myndu bera tilætlaðan
árangur. Minnkun gjaldeyris-
notkunar Bandaríkjanna erlend-
is myndi hafa í för með sér að
gjaldeyristekjur þeirra minnk-
uðu einnig, og ástandið myndi
því ekkert batna, öllu fremur
versna. Annar franskur tals-
maður sagði að það fyrsta sem
Bandaríkin ættu að gera til að
leysa fjárhagsvandræði sín væri
að binda sem fyrst enda á
stríðið í Vietnam.
Johnson hefur gert út sér-
staka sendiboða til að skýra fyr-
ir vinveittum ríkisstjórnum þess-
ar ráðstafanir. Katzenbaeh að-
stoðarutanríkisráðherra kom í
dag til London og hélt þaðan
eftir skamma viðdvöl til Bonn.
Hann mun leggja að vesturþýzku
stjórninni að auka enn vopna-
kaup sín í Bandaríkjunum.
Læknar gera sér allgóðar von-
ir um að Blaiberg muni geta
lifað aðgerðina af. Bent er á
að hann sé að sumu leyti betur
undir aðgerðina búinn en öðru
leyti verr en Washkansky var.
Washkansky var sykursjúkur og
það olli því að líkami hans var
síður fær um að hrinda frá sér
aðkomuvef, en hins vegar var
hann fársjúkur maður og verr
farinn en Blaiberg.
W§ hsfsií *iP2ar
212ÖQQ
Chris Barnard
óaðfinnanlega og ekkert benti
til þess að aukakvillar myndu
gera vart við sig.
Aðgerðin hófst í morgun kl.
8 að ísl. tíma, aðeins örskömmu
eftir að Haupt hafði látizt og
hún gekk öllu fljótar fyrir sig
en sú fyrir mánuði. Áður hafði
með góðum fyrirvara verið geng-
ið úr skugga um að blóðflokkur
og vefjaflokkur þeirra Haupts og
Blaibergs voru þeir sömu svotil
og munurinn a.m.k. ekki svo
mikill að það útilokaðj líffæra-
flutning á milli þeirra.
KHÖFN 2/1 — Vinstrisósíalist-
arnir í Danmörku hafa nú tryggt
sér að þeir geti boðið fram við
þingkosningarnar sem fram fara
23. janúar — og vel það. Þeir
hafa þegar safnað 21.000 undir-
skriftum meðmælenda með fram-
boði þeirra, en tæplega 16.000
hefðu nægt. Undirskriftasöfnun-
inni er lokið en ókomnir eru
enn listar frá ýmsum flokksdeild-
um og að þeim meðtöl,dum munu
undirskriftimar sennilega verða
um 25.000. Flokkurinn mun bjóða
fram í öllum kjördæmum. Stefnu-
skrá hans verður birt að lokn-
um fundi sem haldinn verður 7.
janúar. Framboðslistar flokksins
verða auðkenndir með bókstafn-
um. Y, en hafnað var beiðni hans
um bókstafinn V, sem Vinstri-
flokkurinn hefur einu sinni not-
að í Kaupmannahöfn.
J ó I a gIeði
Framhald af 10. síðu.
skáldinu til mikils sóma og flutt
á frumlegan hátt. Um leið og
flutningur fór fram á sviöinu
voru sýndar beggja megin sviðs
skuggamjmdir í samræmi við
efnið.
Jóhannes úr Kötlum var gest-
ur á jólagleðinni og tók hann
til máls að dagskrá lokinni og
þakkaði þann heiður er honum
hafði verið sýndur. Viðstaddur
var einnig Gylfi Þ. Gíslason
menntamálaráðherra og frú.
BLAÐ-
DREIFING
Þjóðviljann vantar
blaðbera í eftirtal-
in hverfi:
Hverfisgötu neðri,
Ilverfisgötu efri,
Múlahverfi,
Miklubraut,
Yoga I.,
Óðinsgötu,
Laufásveg,
Háskólahverfi,
Tjarnargötu,
Rauðalæk.
ÞJÓÐVILJINN
Sími 17-500.
Z
Tilboð óskast ura sölu á ^fni og vinnu við gerð
ytri þaka á nýbyggingu Tollstöðvar í Reykjavík.
Útboðslýsing. er afhent á skrifstofu vorri gegn
skilatryggingu kr. 500.00.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri miðviku-
dagihn 31. janúar 1968 kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140
Yfirlýsing Hanoistjórnarinnar:
Viiræiur geta orðii
ef árásunum linnir
Nýja árið hófst með hörðum bardaga og miklu
manntjóni skammt frá landamærum Kambodju
HANOI og SAIGON 2/1 — Utanríkisráðherra Norður-Viet-
nams, Nguyen Duy Trinh, hefur í útvarpsávarpi sagt að
þegar Bandaríkjamenn hafi skilyrðislaust hætt loftárásum
og öðrum hemaðaraðgerðum ge,gn- Norður-Vietnam muni
stjóm þess fús að ræða við Bandaríkjastjóm um þau mál
sem báðar varðar um.
Talsmaður bandariska utanrfk-
isráðuneytisins sagði í Washing-
ton í dag að Bandaríkjastjóm
reyndi nú að komast að þvi
hvaða skilning ætti að leggja í
bessi ummæli utanríkisráðheira
Norður-Víetnams. Virðist það
benda til þess að Bandaríkja-
stjórn ætli enn að virða að vett-
ugi þessa margítrekuðu yfirlýs-
in,gu stjómar Norður-Víetnams
um að samningaviðræður geti
hafizt þegar Bandaríkin hafi
skilyrðislaust hætt öllum hemað-
araðgerðum gegn landinu.
Harður bardagi
Bandaríska herstjómin í Sai-
gon sagði í dag að einn harðasti
bardagi stríðsins hefði verið
Ceaoseseu ræSir
við Tító í dag
VÍN 2/1 — Þeir Ceausescu, for-
seti Rúmem'u, og Titó, forseti
Júgóslaviu, munu hittast á morg-
un, miðvikudag, sennilaga í
veiðimannakofa við landamæri
ríkjanna. Líklegt er talið að þeir
muni á fundinum samræma af-
stöðu sina til þeirrar ráðstefnu
kommúriistaflokka sem boðað
hefur verið að haldin verði í
Búdapest í febrúar.
háður í dag snemma skammt
frá landamærum Kambodju.
Hefði verið barizt í tíu klukku-
stimdir eftir að þjóðfrelsiisher-
menn gerðu árás á bandarískt
virki. Að orustunni lokinni
hefðu 358 árásarmenn legið eft-
ir í valnum, en Bandarikjamenn
hefðu misst 23 fallna en 153
særða. Sagt er í Saigon að marg-
ar viðureignir hafi orðið meðan
á vopnahléinu um áramótin stóð
og hafi samtals 380 þjóðfrelsis-
hermenn fallið. en 27 Banda-
ríkjamenn.
Verðlam
Framhald af 1. síðu.
slfkar forsendur látnar lönd og
leið, og hvorugur þeima sem nú
væri sómi sýndur meðlimur í rit-
höfundaféflagi. 1 rithöfundasjóðn-
um eru nú um 400 þúsund krón-
ur. Styrkurinn er veittur án
skilmála, en er einkum ætlað að
auðvelda mönnum u,ndirbúning
ritstarfa, einkum ef hann er
samfara utanför.
1 stjórn sjóðsins eru þeir Vil-
hjálmur Þ. Gíslason og Andrés
Bjömsson frá ríkisútvarpinu,
Stefán Hörður Grímsson og Helgi
Sæmundsson fyrir rithöfundafé-
lögin og próf. Steingrímur, skip-
aður af menntamálaráðherra.
ÍSLENDINGAR OG HAFIÐ
HUGMYNDA-
SAMKEPPNI
Athygli skal vakin á, að 'frest-
ur til að skila tillögum að merki
sýningarinnar „ÍSLENDINGAR
* OG HAFIГ rennur út 10. jan-
úar. ’
FRAMLEIÐENDUR -
INNFL YTJFNDUR
Einnig er framleiðendum og
innflytjendum, er hafa í hyggju
að taka þátt í sýningunni, bent
á, að þeir verða að hafa til-
kynnt um þátttöku sína fyrir
10. janúar. — Upplýsingar um
kostnað og annað fsest í síma
10655 næstu daga.
Tillögum að merki og tilkynn-
ingum um þátttöku ber að skila
til skrifstofu Sjómannadags-
ráðs, Hrafnistu.
Sýningarstjórnin.