Þjóðviljinn - 04.01.1968, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 04.01.1968, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐVTLJINN — Fimmtudagur 4. janúar 1968. Útgeíandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: ívar H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson. Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson. Framkvstj.: Eiður Bergmann. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. Sími 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 120.00 á mánuði. ->* Lausasöluverð krónur 7,00. Hvaða sættir? rÉT\ J forustugrein Morgunblaðsins í gær er sagt að merkasti atburður síðasta árs séu „þær sættir sem tókust á erfiðum tímum milli ólíkra hags- munahópa í þjóðfélaginu" og kemur fram af sam- henginu að þama er átt við gengislækkun, afnám vísitölubóta á kaup og nýja óðaverðbólgu. Æski- legt væri að Morgunblaðið skýrði nánar hvað við er átt með slíkum almennum staðhæfingum. Hve- nær tókust sættir um það að verklýðssamtökin imyndu una því að engar bætur fengjust fyrir sí- hækkandi verðlag, hvar var sú sættargerð samin, hverjir samþykktu hana og samkvæmt hvaða um- boði? Blaðið hefur að vfsu haldið því fram marg- sinnis að tilteknir, nafn^rmndir forustumenn verk- lýðssamtaka hafi sýnt mclri „ábyrgðartilfinningu" en aðrir, en á það skortir einnig að blaðið skýri nánar í hverju sú ábyrgðartilfinning“ hafi birzt. J^aunafólk er nú óðum að finna fyrir því í verki hvað hlýzt af efnahagsaðgerðum þeim sem hóf- ust í októbermánuði með stórfelldri hækkun á hversdagslegustu matvælum og nær senn til allra nauðsynja. Fyrsta desember s.l. var þegar komin til framkvæmda raunveruleg kauplækkun sem nam 4-5%, og allt bendir til þess að senn verði lækkun á umsömdu tímakaupi verkafólks orðin um 10% að jafnaði og tilfinnanlegust hjiá þeim sem lægstar tekjur höfðu fyrir. Reynt er að halda því fram að þetta kjararán sé óhjákvæmileg afleið- ing af erfiðu árferði og versnandi viðskiptakjör- um, en sú kenning fær ekki staðizt. Á síðasta ári er talið að þjóðartekjur muni hafa lækkað um 4-5%, en þær höfðu hins vegar vaxið í raunveru- legum verðmætum um 50% síðan 1958. Þrátt fyrir þá erfiðleika sem við var að fást á síðasta ári eru þjóðartekjur að árinu loknu meira en 40% hærri en þær voru fyrir áratug. Þessi stórfellda hækkun á þjóðartekjum hefur hins vegar ekki birzt í hlið- stæðri hækkun á tímakaupi verkafólks; kaupmátt- ur tímakaupsins hélzt mikið til óbreyttur á þessu tímábili — og er eftir síðustu efnahagsaðgerðir orðinn mun lægri en hann var 1958. Á þessum tíma hefur þannig verið um að ræða stórfellda og vaxandi misskiptingu á þjóðartekjum; þær afleið- ingar sem stafa af ranglátri stjómarstefnu eru margfalt stórfelldari en áhrif verðfalls og minnk- andi afla. Og áhrifin nú verða þeim mun tilfinn- anlegri sem orðið hefur háskalegur samdráttur á atvinnu og raunar víðtækt atvinnuleysi á ýmsum stöðum. Jjessar staðreyndir eru alvarlegasta umhugsunar- efni launafólks um þessar mundir, og því munu margir taka undir þær fyrirspumir Þjóðviljans hvenær sættir hafi tekizt um það að verklýðssam- tökin létu sér þetta hlutskipti lynda, hvar þvílíkir samningar hafi verið gerðir og hverjir séu hinir „ábyrgu menn“ sem að þeim hafi staðið. Stendur væntanlega ekki á Morgunblaðinu að gera nánari grein fyrir hinu almenna umtali sími um „merk- asta atburð síðasta árs.“ — m. ÓLÆSI Tll IVJ - HINDRUN Á LEIÐ TIL LYÐRÆÐIS 0G ÞROSKA Kosningar á Indlandi fara fram !með nokkuð svipuðum hætti og hérlendis. Menn fá kjörseðla, fara inn í klefa og greiða atkvæði leynilega, svo sem leikreglur lýðræðis krefj- ast. Þó er á þessu munur sem gæti virzt lítiH við fyrstu sýn, en vert er að veita athygli. Spurningin vaknar um það hvort slíkar kosningar geti raunverulega verið undirstaða sanns Oýðræðis. Vegna þess að mikill hluti af íbúum Indlands er ólæs, eru ekki nöfn flokka og frambjóðenda á kjörseðlun- um, heldur merki eins og ux- ar, kofi, fíil, reiðhjól og þess háttar. Og i stað þess að kjós- andinn setji kross við merki þess flokks eða framþjóðanda sem hann vill kjósa, þá eru notuð fingraför. Einhver kann að segja að þetta fyrirkomulag sé einmitt trygging fyrir lýðræði, þarsem það veiti ólæsum möguleika tiil að taka þátt í frjálsum ogleyni- legum kosningum án þess að þurfa að styðjast við hjálp kjörstjórnarstarfsmanns. En geta ólæsir kjósendur í raun og sannleika myndað sér skoð- un um þann. flokk eða þá frambjóðendur, sem þeir eiga kost á að velja til forsjár fyrir hagsmunum sinum og lands síns, á grundvelli fáeinna framboðsræðna? Það er mikið efamál að sá.sem hvorki kann að lesa né skrifa, hafi hæfileika til að hugsa rökrétt og meta hilutlægt mismunandi flokka, Kristján Flygenring verk- fræðingur hefur sent blaðinu eftirfarandi athugasemd með ofangreindri fyrirsögn: „Vegna skrifa í' blaði yðar þann 22. þm. um almennan fund um hitaveitumál óskar undirritaður að takaþetta fram: Samkvæmt ábendingu skrif- stofu Verkfræðingafélags ís- lands sneri einn fullltrúi Hús- eigendafélags Reykjavíkur sér til míp og bað mig að mæta á almennum fundi félagsins þann 20. þm., taka þátt í umræðum á fundinum og bera fram gagn- rýni á Hitaveitu Reykjavíkur. Bejðni þessari var þegar íupp- hafi hafnað. Aftur á móti gaf ég ádrátt um að setja á blað nokkur minnisatriði, aðallega um verðlagningu á heitu vatni, sem gætu orðið ábending í mál- ef nalegum (málflutningi þess ræðumanns, sem stjórn Hús- eigendafélagsins fengi í staðinn fyrir mig, því eðliiegt er að Húseigendafélagið beiti sér fyr- ir þvi að fá mál þessi tiH um- ræðu og komi þeim á fastan grundvöll. Atriði þessi komu skýrt fram í símtali og við af- hendingu efnis þessa og lét ég þess þá jafnframt getið, að fyr- ir mig væri almennur fundur sem þessi ekki réttur vettvang- ur til þess að koma framþeim málum, sem ég þyrfti að fá leyst. Hafi formaður Húseigendafé- lagsins, sem ég hafði áldrei samband við, á einhvern hátt geflð í skyn, þegar hann las upp punkta þessa, að þetta væri greinargerð, eða helztu kaflar úr ræðu, sem éghafíátt að flytja um hitaveitumál, eins og fram kemur í blöðum þeim, sem um málið skrifa, þá er það annaðhvort misskilningur eða freklegt trúnaðarbrot af bans hendi. A bHs. 6 birtið þér „greinar- gerð" mína (án leyfis, sem □ Á Iiðnu ári beittu UN- ESCO-nefndir Norðurland- anna fimm, Danmerkur, Finnlands, lslands, Noregs og Svíþjóðar, sér fyrir því, að safnað var fé til baráttu gegn ólæsi full- orðinna í f jórum héruðum norðvestast I Tanzaníu i Afríku, þ.e. héruðunum Musoma, Nwanza, Shiny- anga og Bukoba, sem eru við sir.ðurströnd Viktoriu- vatns. Víðast á Norður- Iöndum hafa æskulýðs- samtök tekið að sér að afla fjárins, og hér á Is- landi tók Herferð gegn hungri að sér hlut fslands, 2600 dollara eða 148.200 kr. af því fé, sem HGH hafði þegar safnað. □ I sambandi við þessa Tanzaníu-herferð hefur fari'ð fram allvíðtæk upp- lýsingastarfsemi á Norð- urlöndum, bæði um ó- læsi almennt, um i vanda- mál efnahagslegrar van- þróunar, um Tanzaniuríki og aðstæður þar syðra o. fl. íslenzka UNESCO- ncfndin hefur Iátið þýða úr norsku grein þá sem hér birtist. framþjóðendur og stefnuskrár. Auk þess er sjónhringur hans mjög þröngur, og hann hefur tilhneigingu til að hugsa að- varðar við lög) undir fyrirsögn yðar ,,Hefur Hitaveitan selt svikna vöru hér í borg?“, og á bls. 13 birtist frjáls þýðing yð- ar á efni „greinarinnar", þar sem þér segið mig fyllilega gefa í skyn „að hitaveitan haíi á undanförnum árum selt svikna vörú“. v Ég lýsi því hér með yfir, ?ð þessi ummæli blaðs yðar eru freklegar falsanir og rangtúlk- un yðar og á ekkert, skylt við efni það, sem frarn kemur i „greinargerðinni“, eins og menn geta kynnt sér. Kristján Flygenring, verkfr." Vegna þessarar athugasemd- ar verkfræðingsins vilíl. í>jóð- viliinn taka eftirfarandi fram: A almennum fundi, er Hús- eigendafélag Reykjavíkur hélt i Sigtúni að kvöldi 20. desember, var umrædd greinargerð lesin upp af formanni félagsins, Páli S. Pálssyni hri. Var formaður- inn £ lok fundarins beðinn um leyfi til þess að birta umrædda greinargerð í Þjóðviljanum, og veitti hann hað góðfúslega. Hinsvegar láðist blaðinu að hringja f höfund greinargerð- arinnar og biðja um Heyfí hans tfl birtingar á þessum punktum hans og er sjálfsagt að biðja höfund afsökunar á því. Var talið nóg að biðja félagsfor- manninn uim leyfi á þirtingu bess, er hann las upp á fund- inum. Vitaskuld er fyrirsögnin blaðsins og jafnframthefurhver sem er leyfi til bess að draga sínar ályktanir af hinum upo- gefnu púnktum verkfræðings- ins. Kemur það áreiðanlega spánskt fyrir sjónir hitaveitu- notenda í gamla bænum, cf ekki má halda þvi fram með réttu, að Hitaveita Reykjavík- ur hafí selt svikna vöru á und- anfömum árum. — Rítstj. eins um þorpið sitt eða hags- muni þröngs hóps fremur en það sem kemur að gagni sam- félaginu, þjóðinni og heiminum. Ekki á þetta hvað sízt við af- stöðu ólæsra kjósenda til ut- anríkismála. Nú eru flest þau lönd sem þetta á við, aðilar að Sameinuðu þjóðunum, og utan- ríkismálin sikipta því ekki litlu. Xnnanlandsdeiliir þær og skortur á stjómmálafestu sem einkennir svo mjög þróunar- lönd, spretta vafalaust að veru- legu íeyti af því að mikill hluti fbúanna er ólæs og óskrifandi. Sú staðreynd að í mörgum nýj- um Afrikurfkjum hefur ríkt stefnuleysi af þessu tagi, svo og styrjaldir milli ættflokka, styð- ur þessa staðhæfingu, af því að í þessum löndum eru 80—85% íbúanna ólæsir. Lestrar- og skríftarkunnátta meginiþorra kjósenda i einu landi eru því óhjákvæmilegt skilyrði bess að unnt sé að leggja viðunandi grunn að lýðræðisstjórnarfari. Glögg sönnun þess að ólæsi getur verið alvarieg hindrun landflótta fólki, má sjá í Aust- urlöndum. UNRWA (hjálpar- og vinhustofnun Sameinuðu bjóðanna fyrir flóttafólk frá Palestínu) hefur í samvinnu við UNESCO (Menningar- og vísindastofnun SÞ) unnið mikið að því að veita ungu kynslóð- inni með kennslu sem allra beztan undirbúning undir líf- ið, og unglingqmir úr flótta- mannastöðvunum munu eftir 9 ára skólagöngu geta taliizt bezt menntu ungmenni arabísk nú á dögum. Þeir sem til þesshafa hæfileika geta svo fengið.hjáip m.a. frá UNRWA og UNESCO, til að halda áfram námi við iðnskóla, kennaraskóla, æðri skóla, háskóla o.s.frv. Þeirhafa einnig von um að geta farið úr vonleysinu í flóttamannabúðun- um og fengið sér vel launaða stöðu í Kuwait, Saudi-Arabíu, Bahrei'n, Lfbýu og öðrum Ar- abalöndum. En hvemig eiga þéir að geta haldið sambandinu við foreldra sina sem eftir eru í búðunum og kunna hvorki að lesa né skrifa? Þetta verðurt'l þess að foreldramir verða að leita hjálpar hjá læsum og skrifandi nágranna eða ein- hverjum sem getur hjálpað þeim til að skrifa bréfin, en í því felst aftur að aðrir, oft algerlega ökunnugir kynnast fjölskyldumáluhi, sem þeirættu helzt ekki að fá að vita um. Þess vegna hafa margarmæð- ur meðal flóttamannanna dreg- ið af þessu réttar ályktanir og tekið þdtt í námskeiðum ílestri og skrift sem UNRWA hefur komið af stað fyrir konur í saumastofunum f flóttamanna- búðunum seinni hluta dags. Eftir nokkum tíma geta þær sjálfar skrifað bömum sínum og lesið bréf frá þeim án þess að biðja aðra um hjálp og án þess að aðrir séu með mefið niðri í einkamálum þeirra. En mæður sem eiga börn eða aðra ættingja í öðrum Ar- abalöndum eru þó ekki einu nemendumir á, þessum síðdeg- isnámskeiðum. Þangað til fyrir fáum árum hefur verið ógern- ingur að senda stúlkurnar í skóla, og langflestar af stærri stúlkunum og uppkomnum kon- um meðal flióttafólksins hafa þvi aldrei gengið í skóla. Marg- ar þeirra reyna i þessum kvennamiðstöðvum að ná þvf sem vanrækt hefur verið. í einum búðunum á Gazasvæð- inu voru til að mynda sjð bed- úínastúlkur svo heillaðar af þessari nýju kunnáttu sinni að þær gátu staðið tímunum sam- an við töfluna. Ein þeirra las upphátt, en önnur skrifaði á töfluna. Þær höfðu áreiðanlega eins gaman af þessu og æsku- lýðurinn hér hefur af nýjustu dægurlögunum. Annars læra konumar ekki eingöngu lestur og skrift íþess- um kvennamiðstöðvum. Þær læra um meðferð’ ungbarna, matargerð. hefísuvernd og þess háttar. Þá kemur lestrar- og skriftarkunnátta að góðu gagni, því að það er vart möguHegt að muna utanlbókar uppskriftimar sem þær eiga að læra — jafn- vel þótt einfaldar séu — og leiðbeiningar í saumum ogþess háttar yrðu að minna gagni ef konurnar gætu ekki teiknað og skilið mynztur. Til. gamans má skjóta því hér inn að margar eldri kon- ur sækja þessar miðstöðvar, ekki til að læra, heldur tfí að ná sér í tengdadóttur. Þær konur sem lært hafa lestur ogskrift, matargerð, unglbamameðferð, heilsufræði og fíeira, erumetn- ar meira sem húsmæður, en þær sern enn era ólæsar. Þessi tvö dæmi sýna gredni- lega hversu alvariegur þrösk- uldur ólæsi er á vegi fyrir þroska lífvænlegs lýðræðis og hvílík aukabyrði það getur orð- ið á landflótta fólki. Því skipt- ir miklu að reynt sé að ryðja frá þessum hindrunum með samæfðum átökum og undir forystu UNESCO. Að því leyti getur starfsemi Norðurlanda, sem ráðgerð er i Tanzaníu ver- ið til fyrirmyndar. Svo sem kunnugt er, verður þessi starf- semi i fjórum af 60 héraðum iandsins — og vænta má þess að hringurinn stækki, breiðist út sem þekking. > Eitt héraðið sem norræna á- ætlunin nær til er West Lake Region, og í þessu sambandi má nefna að með hoödsveikiá- ætluninni sem barnahjálpar- samtök SÞ í Noregi og Svíþjóð vinna að þama, er einnig unn- ið gegn ólæsi. Bæði f aðal- Framhald á 7. siðu. H4OLBAR0AR frá RASIMOIMPORT MOSKVA : EINKAUMB MARS TRADRNG CO Laugavegi 103. SIMI 17373_I vegna skrifa um hitaveitumál

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.