Þjóðviljinn - 27.01.1968, Page 3

Þjóðviljinn - 27.01.1968, Page 3
BaHgaMlagttr 23. janéap 1868 — MOEWHíJXNN — SlÐA J Pueblomálið á fundi Öryggisráðsins í gær Johnson: Við beitum öllum ráðum til að fá Pueblo aftur WASHINGTON, NEW YORK, SEOUL 26/1 - Enn eru margar blikur á lofti vegna töku bandaríska njósnaskipsins Pueblo úti fyrir ströndum Norður- Kóreu. Bæði Johnson forseti og Dean Rusk hafa lýst því yfir að stjóm þeirra geti ekki sætt sig við þetta „sjórán“ eins og það er orðað, og fregnir berast af eflingu bandarísks herstyrks í Suður- Kóreu og á hafinu í kring. Öryggisráðið kom til fundar í dag til að ræða málið, að beiðni Banda- ríkjanna, og var búizt við löngum óg hörðum kappræðum. Johnson og Rusk •Johnson forseti hélt útvarps- rseðu um málið í gærkveldi og sagði stjóm sína aldrei sættasig við töku skipsins, kvað ha'na neyta allra ráða til skjótrar lausnar á mátlinu og væru banda- riskir herir við öllu búnir. Dean Rusk utanríkisráðherra lýstitöku skipsins sjórán af verstu tegund, því skipið hefði aldrei vcjrið í norðurkóreskri landhelgi og það mundi hafa verstu afleiðingar ef áhöfn skipsins yrði leidd fyrir rétt. En í dag hafði málgagn kommúnistaflokks Norður-Kóreu, Rodong Shinmon, sagt að þeir sem beri ábyrgð á því að Pueblo rauf landhelgi fullvaida ríkis, verði að sæta ábyrgð fyrir af- brot sín. Þá hefur útvarpsstöðin í höf- uðborg Norður-Kóreu í þriðja sinn útvarpað játningu fráBuc- her skipstjóra um að hann hafi stundað njósnir í Uandhelgi — en Bandarikjamenn hafa lýst þær- yfírlýsingar falsaðar. Bandaríkjamenn hafa haft samband við fulltrúa þeirraríkia seim veittu' þeim lið í Kóreustríð- inu um 'málið og skýrt þeim frá diplómatískum og öðrum ráðum sem reynd verða til að fá skipið og áhöfnina aftur. Ennfremur var haldinn sérstakur fundurhjá fastanefnd NATO í Brússel um málið. Sovét og Japanir Sovézka stjórnarblaðið Izvest- ía gagnrýnir Bandaríkin harðlega í dag fyrir Pueblomálið og lýsti þá ákvörðun Jöhnsons að bjóða út varaHið strfðsmóðursýki. Samt virtust líkur benda til að sov- ézka stjómin íhugi ný tilmæli Bandaríkjastjórnar um milli- göngu í málinu, þótt ekki sé lik- legt að hún hafi sérstakan áhuga á beinni aðild að þvi. Ýmsir vilja ekki gera of mikið úr möguleik- um Sovétstjórnarinnar til aðhafa áhrif á stjórn Norður-Kóreu, sem hefur gætt hlutleysis í deil- um hennar og þeirrar kínverslcu. Sérfræðingar japönsku stjórn- arinnar telja ekki ólíklegt að á- höfninni af Pueblo verði skilað, en ekki skipinu. Benda þeir m.a. á að svo hafi farið með þau suðurkóresk skip sem norðan- menn hafa tekið. Sáttfúsir? AFP fréttastofan segir að blöð f höfuðborg Suður-Kóreu, Seúl hafi birt fréttir um að „óþekkt- ar flugvélar hafi kastað sprengj- um á hæðir skammt fyrir norð- an núverandi landamæri Norð- ur- og Suður-Kóreu og að komið hafi tíl vopnaðra átaka á landa- mærunum. Talsmenn Bandaríkja- hers segja ólfklegt að risaher- skipið Enterprise komi nær ströndum Norður-Kóreu en 100 sjómílur, en það var sent til Wonsanflóa í gær. Blöð í Seúl segja bandaríska kafbáta komna til Wonsanflóa, þar sem Pueblo var tekið, en þær fregnir hafa ekki verið staðfestar. Hitt er vit- að, að mikill fjöldi flugvéla norð- anmanna er á sveimi yfir fló- anum á eftiriitsflugi. öryggisráðið Sfðustu fréttir: Öryggisráðið kom til fundar um málið íkvöld. Fulltrúi Sovétríkjanna, Morozof, vísaði á bug ákæru Bandaríkja- maiina gegn Norður-Kóreu og hélt því fram í staðinn að nær- vera Bandaríkjahers í Suður-Kór- eu væri höfuðforsenda viðsjár- verðs ástands þar um slóðir. Ráð- ið samþykkti að taka kæruna fyrir gegn atkvæðum fulltrúa Sovétríkjanna, Ungverjalands og Alsírs. Goldberg, fulltrúi Banda- ríkjanna sagði að það væri skylda ráðsins að taka mál þetta fyrir sem skipti svo miklu um frið og öryggi, og væri ekki önnurstofn- un þýðingarmeiri þegar um slfk mál væri að ræða. Þjóðviljann vant- ar blaðbera í eftir- talin hverfi: Hverfisgötu efri. Háskólahverfi. Skipholt. Höfðahverfi. ÞJÓÐVILJINN Sími 17-500. B-52 flugvélar tíiir gestir við Tulestöð Enn leitað að vetnissprengjunum KAUPMANNAHÖFN 26/1 — Bandarískir sérfræðingar vinna enn að því að leita að vetnis- sprengjunum fjórum sem hröp- uðu skammt frá Thule ásamt með sprengjuþotunni sem bar þær. Fundizt hafa, auk brota úr einni sprengjunni, 4 sprengju- fallhiífar, og er greinilegt að kviknað hefur í þeim. Bandarfkjamenn halda fastvið fullyrðingar sínar um að ekki stafi hætta af geislavirkni vegna atburðarins. Um 650 Grænlend- ingar búa í grennd við Thule og er sagt að enginn hafi verið nær en 15 km frá slysstaðnum. Danska stjórnin sem nú situr til bráðabirgða, mun hafa hætt við að bera fram sérstök mót- mæli vegna atburðarins, en krefst ítarlegrar rannsóknar á öllu því sem hann varðar. Danskir liðsforingjar í herstöð- inni á Thule hafa skýrt blaðinu Politiken frá bví að sjá megi B-52 sprengjuþotur frá Thule á hverjum degi allt árið um kring. VAUXHALL BEDFORD UMBOÐIÐ ÁRMÚLA3 SÍMI 38900 Sé þetta ekki í fyrsta sinn að þær hafi leitað nauðlendingar á herstöðinni. Þá segja þeir og að þessar risaflugvélar fari yfir grænlenzkt land. Leshrræninginn náðist aftur MONTREAL 26/1 — Einn af að- ildarmönnum Igstarránsins mikla í Bretlandi 1963, Oharies Wilson, var handtekinn í smábæ í Queb- ecfylki í dag. Ræningjarnir náðu þá í um 300 miljónir króna og hefur mikilll þluti þess fés ekki komið fram. Wilson var handtekinn 1964 og dæmdur í 30 ára fangelsi, en strauk úr fangelsinu eftir fjóra mánuði. Tvö síðustu árin hefur hann búið með konu sinni og þrem börnum í Kanada, en þang- að komst hann á fölsku ve/a- bréfi. 30 Afríkumenn dæmdir fyrír skæruhernað i Suðv.-Afríku PRETORIU 26/1 — Þrjátíu Afríkumenn voru sekir fundnir fyrir rétti í Pretoriu í dag fyrir tilraun til voppnaðrar uppreisn- ar í Suðvestur-Afríku, sem er fyrrverandi þýzk nýlenda sem stjómað er frá Suður-Afríku. Enginn þeirra mun þó hljóta dauðadóm. Mennirnir eru ákærðir fyrir manndráp, árásir á lögreglu, vopnaburð ofl. Dómarinn sagði að dæma mætti mennina til dauða, en það yrði ekki gert vegna þess að kommúnistar hefðu blekkt þessa menn. Aðrir benda þó á mótmæli gegn þess- um málaferlum erlendis. sem byggja á því að Sameinuðu þjóð- irnar - hafa svipt Suður-Afríku umboðsstjórn yfir Suðvestur- Afríku og hafi hún því ekki um- boð til að dæma í þessu máli. Mennirnir hafa m.a. verið sak- aðir um að hafa þegið þjálfun í skæruhernaði í Ghana, Alsír, Egyptalandi, Sovétríkjunum og Kína. É*eir hafa neitað sig seka um það sem þeir eru sakaðir um. Leiðtogar Vinstrísósíalista, Erik Sigsgaard, Willy Brauer, og eiginkona Brauers bíða með eftir- væntingu í svipnum eftir úrslitum endurtalningarinnar. Síðar glaðnaði yfir þeim. (,,Information“). Dönsku Vinstrisósíalistarnir fengu kjörna fjóra kingmem Endurtalning atkvæðanna leiddi í Ijós að þeim höfðu verið vantalin 227. Baunsgaard falin stjórnarmyndun KAUPMANNAHÖFN 26/1 — Vinstrisósíalistar munu þrátt fyrir allt fá fjóra þingmenn á danska þjóðþinginu. Endur- talning atkvæða leiddi í ljós að við fyrstu talningu höfðu þeim verið vantalin 227 atkvæði, og þá vantaði þvi 110 atkvæði til að ná fullum tveimur prósentum greiddra at- kvæða. Eftir endurtalninguna hafa þeir 117 atkvæðum framyfir og eiga því rétt á fiórum uppbótarsætum. Þetta er að vísu enn ekki endanlega staðfest, því að enn er eftir lokatalning atkvæðanna, en engar líkur eru taldar á því að þessi niðurstaða breytist við hana. Vinstrisósíalistar munu þá,- eins og áður segir fá fjóraþing- menn, einn frá hverjum stærstu flokkanna, sósíaldemókrötum, Róttækum, Vinstrimönnum ogl- haldsflokknum. Samanlagt fá því SF og VS 15 þingmenn, eða fimm færri en sameinaður SF-flokkur- inn hlaut í síðustu kosningum. Munu víst fæstir hafa búizt við að flokksbrotunum myndi hald- ast svo vel á fyilginu eftir allar bær miklu deilur innan SFsem á wndan höfðu farið. Þingmenn VS munu verða hau fjögúr sem mest höfðu sig í frammi á þingi og utan í vinstriarmi SF áður en bing var rofið og flokkurinn klofnaði, eða bau Erik Sigsgaard, Kai Moltke. Pia Dam ofl Hanne Reintoft. Það bre"ir engu um valda- hlutföllin milli flokkanna áþingi að VS fær fjóra þingmenn, en það mun vafalaust styrkja vinstriöflin, bæði í verklýðsflokk- unum þremur og Róttæka flokkn- um sem mestan sigur vann við kosningamar. Róttæki flokkur- inn hefur jafnan verið andvígur vígbúnaðarbrölti Dana og hefur haft það ofariega á stefnuskrá sinni að Danir ættu að skera niður hernaðarútgjöldin. Róttæki flokkurinn var eini borgaraflokk- urinn á þeim Norðurlöndum sem gengu f Atlanzhafsbandalagið sem var andvígur aðild að því. Baunsgaard falin , stjórnarmyndun Friðrik konungur fól’ í dag Hilmari Baunsgaard, leiðtoga Róttæka flokksins, að hefja við- ræður við leiðtoga hinna flokk- anna í þvi skyni að reynt yrði að mynda stjórn sem hefði veruleg- an meirihluta þings að baki sér. Baunsgaard kvaðst vonast að ljúka þeim viðræðum á bremur- fjórum dögum. Fyrr í dag höfðu leiðtogar sós- íaldemókrata, þeir Jens Ottó Krag og Per Hækkerup, flutt konungi þá samþykkt fráflokks- stjórn sinni að mynda bæri nýja stjórn undir forystu sósíaldemó- krata. — Við viljum að mynduð - sé þjóðleg stjórn á breiðum grundvelli, sagi)i Krag, og við höfum gert samþykkt um ýms atriði sem Róttækir kynnu að geta fallizt á. Krag kvaðst hafa rætt við Kari Skytte, einn af forystumönnum Róttækra, og hefði - verið ákveðinn nýr. fund- ur þeirra og sósíaldemókrata. SAIGON 26/1 — Allharðir bar- dagar geisa enn við bandarísku herstöðina Khe Sanh í norðvest- urhomi Suður-Vietnams. Banda- ríkjamenn segja flugvélar sínar hafa eyðilagt fallbyssustæði her- manna frá Norður-Vietnam inn- an landamæra Laos, en þaðan hafi verið haldið uppi skothríð á herstöðina. Bandarikjamenn telja sig eiga í höggi við tvö herfylki andstæð- inga við herstöðina. og segja þeir að ekki hafi þeir fyrr beitt jafn stórvirkum skotvopnum í styrjöldinni. Halda Bandaríkja- menn því fram að þessum að- gerðum stjórni Vo Nguyen Giap hershöfðingi, sem reyndist sigur- sæll í stríðinu gegn nýlenduher Frakka á sínum tima. f morgun réðust skæruliðar á bílalest sem flutti liðsauka til Khe Sanh og felldu átta banda- ríska hermenn og særðu 44. Síðari fregnir herma, að her- AÞENU 26/1 — 18 hershöfðingj- um og 15 ofurstum hefur verið vikið úr stöðum sínum til við- bótar þeim sem áður hafa verið reknir síðustu vikurnar: er þeim gefið að sök að hafa tekið þátt í misheppnaðri uppreisnartilraun konungs. t í dag var lögð fyrir Evrópu- ráðið í Strassburg tillaga frá hollenzkum öldungai'deildarþing- manni og brezkum verkamanna- flokksþingmanni um að ráðið svipti Grikkiand aðild nema þvi Formenn Ihaldsflokksins og Vinstriflokksins, Poul Sörensen og Poul Hartling, lögðu báðir til við konung að Hilmari Bauns- gaard yrði falin stjómarmyndun. Leiðtogar SF, Aksel Larsen og Morten Lange, mæltu með því við konung að Krag yrði falið að mynda nýja stjórn. Larsen taldi að minnihlutastjóm sósíal- demókrata kæmi mjög vel til greina, eða þá minnihlutastjórn Róttækra, en ekki nema allar aðrar leiðir hefðu verið þraut- reyndar. SF er reiðubúinn til stjómarsamstarfs með, sósíal- demókrötum og Róttækum. flokkur úr stjórnarhernum í La- os hafi leitað skjóls í hinni um- kringdu herstöð. ' Flokkur þessi gætti einu varðstöðvar hægri sinna fyrir austan svonefnda Ho Chi Minh leið, sem liggur um land þáð sem vinstrisinnar í La- os hafa á valdi sínu. Ekki vilja Bandaríkjamenn láta uppi hvað þeir ætli að gera við flokk þennan. Gúmíbátur úr St. Romauus fundinn OSLÓ 26/1 — Fundizt hefur gúmíbátur á reki skammt frá Noregsströndum og er nú ljóst að hann er af brezka togaranum St. Romanus frá Hull. Togarinn hélt úr heimahöfn, HuHl, 10. jan., á Noregs- eða íslandsmið og hef- ur hans verið saknað síðan. aðeins að þar væri komið á aft- ur sómasamlegu lýðræði. Þessir þingmenn hafa báðir heimsótt Grikkla-nd, rætt við fulltrúa stjórnarinnar og andstæðinga hennar og komizt að þeirri nið- urstöðu að Grikkland sé nú ai- gert einræðisríki. ★ Nú hafa Suður-Afríka og Port- úgal bætzt í hóp þeirra ríkja sem viðurkenna herforingjastjórnina í Grikklandi. Fylgja þau fordæmi m.a. Bretlands og Bandaríkjanna. Dregur nú til stóror- ustu við Khe Sanh? Hreinsanir enn í Grikkhndi

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.