Þjóðviljinn - 27.01.1968, Síða 8
3 SÍÐA — ÞOOöVTMltní — Iðugaæðagur 22. JaaSae 1968.
i
er, eirtn úr upphseöunum sem
liflr á rentunum aí rentunum.
Veit ekki hvar Sheila krækti í
hann, en hún byrjaði eitthvað að
rjála við póló og áður ep nokkur
vissi var allt komið í gang. En
6ennilega hefur hrossalyktin orð-
ið henni um megn. Og Rönny
sigldi sinn sjó.
— Nsest kom .... við skulum
sjá. Elisha sló fágaðri nögl í
framtennumar. — Já, alveg rétt.
Náungi að nafni Odonnell.
Leikari. Edgar? Edmond? Ég
man það ekki, því að enginn
nefndi hann skímamafni nema í
leikskrám. Þér hljótið að muna
eftir honum, herra Queen, gló-
andi svört augu og egghvass
prófíll. Sá fyrsti sem lék Hamlet
samkvæmt Kerfinu og eftir það
var hann aldrei kállaður annað
en Hamlet Odonnell.
— Þér sögðuð þrír á fjórum
árum.
Winterson skýrði frá því að
hann hefði verið erlendis allt ár-
ið 1961 og hefði því ekki fylgzt
með. — Ég hef enga hugmynd
um hvað gerðist meðan ég var að
kynna mér tízkuna í París og
Róm. Hún hafði þess vegna get-
að hoppað upp í til heilbrigðis-
málaráðherrans- Hamlet var sá
hamingjusami árið 1962 þegar ég
kom til baka. Og síðan .........
Winterson þagnaði.
Þögnin var þykk t>g svört eins
og blek. Dane var á svipinn eins
og honum væri flökurt. Ashton
TRÉ5MIÐJA
Þ. SKÚLASONAR
Nýbýlavegi 6
Kópavogi
sími 4 01 75
Smurt brauð
Snittur
VIÐ ÓÐINSTORG
Sími 20-4-90.
ELLERY QUEEN:
fjórða
hliðin
á
s
McKélI var fölur og lotlegur.
Þetta voru þá nýjar fréttir fyrir
þá báða, hugsaði Ellery. Og
Júdý hélt dauðahaldi í stólbrík-
umar, eins og hún væri efst í
hárri rennibraut.
— Ég hefði trúlega átt að gera
mér ljóst, að fyrr eða síðar
myndi fara illa fyrir Sheilu
Grey, sagði Winterson að lokum.
— Og þó ....... hún var svo
dæmalaust aðlaðandi, þegar hún
var ástfangin. Hún hafði þörf
fyrir ástina. Það var eldsneytið
sem hún gekk fyrir, ástin og
starfið ....... Hamingjan góða,
hvílík sóun. Heimurinn lá fyrir
fótum hennar.
Allt í einu var hann ekki leng-
ur hlægilegur lítill spjátrungur
með dældaðan skalla. Andlit
hans var harmþrúngið. Ellery
hugsaði: Bann elskar hana enn.
Winterson spratt á fætur. —
Ef það er eitthváð fleira sem
ég get frætt yður um, þá hafið
þér nafnspjaldið mitt hér. Hikið
ekki við að leita til mfn. Sælar
ungfrú Walsh, herra McKell.
Við Dane sagði hann: — Ég
óska yður alls góðs.
Ashton sagði: — Bíllinn
minn —
— Þökk fyrir, en ég held ég
gangi smáspöl- Síðan kinkaði
hann kolli til allra og brosti
kurteislega og þaut síðan út úr
sjúkrastofunni og skildi eftir
minningu um skrumskælt andlit
og þef af tyrknesku tóbaki.
— Og herra Winterson þurfti
sannarlega að létta á sér, sagði
Ellery. — Mér þætti gaman að
vita hve mörg ár hann hefur
beðið éftir þessu tækifæri án
þess að vita það sjálfur.
— Hann var ógeðslegur. Júdý
gretti sig.
— Þetta var líka upplýsinga-
lind sem við mættum ekki láta
ónotaða. Ég verð að treysta á
ykkur sem augu mín, eyru og
fótleggi.
— Segið okkur hvað þér vilj-
ið láta gera, herra Queen, sagði
McKell eldri.
— Ég vil að allir þessir fjór-
ir menn sem Elisha Winterson
nefndi verði athugaðir nánar og
gengið úr skugga um hvar þeir
voru að kvöldi hins 14. septem-
ber. Nei, ekki fjórir, heldur
fimm. Winterson líka. Já, byrj-
ið á Winterson. Síðan Foster, þá
— hann leit í minnisbók sína
— Hurt, þá Van Vester og loks
Odonnell.
Dane var að hjálpa Júdý í
kápuna-
— Ég ekal ganga í þetta und-
ir eins, herra Queen, sagði Asht-
on McKell. — Fá einhverja af
mönnum Pinkertons — heila her-
deild ef þörf krefur.
—v Agætt. Og komið skýrslum
þeirra til mín strax Og þeir Ijúka
störfum.
Loks var hann einn og eins
og aflraunamaður sem slakar
á öHtrm vöðvum, slakaði Ellery
á og sökikti sér dýpra og
dýpra niður í hugsanir sín-
ar. Það var eitthvað þarna ....
eitthvað .... Hann blakaði
hendinni til að fjarlægja lyktina
af tóbaki Wintersons. og um leið
rak hann augun í spjaldið sem
hann notaði sém blævæng og sá
að það var nafnspjald Winter-
sons. Hann las þáð viðutan.
Og um leið varð andlitið á
Ellery jafnhvítt og spjaldið
sjálft.
— Gat það verið að .........?
Þegar roðinn kom aftur í
banga hans, tautaði hann eitt-
hvað um aulaskap og heimsku.
Eftir það gat hann varla beð-
ið eftir skýrslunumi
Þegar skýrslurnar tóku að ber-
ast, sendi Ashton McKell þær
til Ellerys sem raðaði þeim í
hlaða á skrifborðið sitt: Winter-
son, Foster, Hurt, Van Vester,
Odonnell.
Hann rýndi i þær.
Að kvöldi hins 14. september
hafði.
— Winterson verið í franskri
flugvél á leið til Rómabórgar.
Blaðamenn í Orly höfðu rætt við
hann um tízkuna, vitnað í kurt-
eislegt blaður hans, tekið mynd-
38
ir af honum þegar hann fór upp
í vélina. Italskir blaðamenn
höfðu gert eitthvað svipað þeg-
ar hann kom til Rómar.
— Foster hafði verið í Chica-
go. Hann hafði skipt um at-
vinnu skömmu eftir vinslitin við
Sheilu Grey Og flutzt til Ohica-
go með konu og tvö börn og átt
þar heima síðan. Þegar- morðið
var framið hafði hanh setið á
'ráðstefnu með brjóstahaldara-
framleiðendum í sambandi við
auðlýsingaherferð í viðurvist ótal
varaforseta.
— John F. „Jack“ Hurt III.
var ekki lengur í hópi kapp-
aksturshetja. Árið 1961 hafði
hann misst stjóm á bifreið sinni
í kappakstri; þegar hann var
dreginn út úr brennandi flak-
inu. var hann látinn.
— Foster var einnig látinn.
Hann hafði drukknað árið áður
undan strönd Florida.
— Edwin „Hamlet“ Odonnell
hafði verið í Englandi að leika
hlutverkið sem hann var fræg-
astur fyrir. Þegar; morðið var
framið í New York hafði hann
verið að herma eftir Elisábeth
Taylor sem Cleopötru í kvöld-
veizlu í London í návist fjöl-
margra miður allsgáðra brezkra
leikara. Vesta Morisey sjálf tók
ábyrgð á honum-
Og hver sem hafði skotið
Sheilu Grey til bana, þá hafði
það ekki verið neinn þessara
fimm fyrrverandi elskhuga.
En þá vissi Ellery begar að
%
það hefði éfcki getað verið neirm
þeirra hvort eð var.
Þegar Dane kom á sjúkrahúsið
að morgni hins 31. desember,
var allt á rúi og stúi í herbergi
Ellerys. Alls staðar voru bækur
og föt, tösfcur stóðu opnar, verið
var að tæma blómavasa 'og EU-
ery hoppaði um á alúmínhækjum
sínum með gleðibragði.
— Á þá að útskrifa þig eftir
allt saman? spurði Dane. — Ég
hélt þú hefðir sagt að læknirinn
hefði skipt um skoðun.
— Ég lét hann skipta um hana
upp á nýtt, hreytti Ellery út úr
sér. Fari það kolað ef ég ætla að
hýrast í þessu greni í eitt ár í
viðbót. Ég held annars að þau
séu guðsfegin að losna við mig.
Ef ég gæti bara lært að hand-
fjatla þessar bannsettar stultur.
Ó — fyrirgefðu, Kirstin.
Hann var næstum búinn að
berja glæsilegu, sænsku hjúkr-
unarkonuna og þegar hann var
að reyna að koma í veg fyrir
það, datt hann næstum sjálfur^
Dane hljóp til og reyndi að koma
í veg fyrir frekari beinbrot-
— Herra Queen, sagði fallega
hjúkrunarkonan. — Þú mátt ekki
nota hækjumar svona. Svbna....
-4 Ég er breyttur, sagði Ellery.
Og hann settist. — Meðal ann-
arra orða, Dane, í kvöld er það
sem Skotamir kalla hogmanay,
og ég ætla að halda smágilliboð
í fbúðinni —
— Hvaða íbúð?
— Minni. Kirstín, þú manst
hvað ég sagði við þig, þegar
sementsbrækumar voru skomar
af mér?
' — Æ, hvaða leiðindi, ég get
ekki komið, sagði hjúkrunarkon-
an og roðnaði. — Sture, skipið
hans kemur. Við erum saman á
kvöldin, skilurðu?
— Hver er Sture? spurði —
Ellery.
Hún tautaði eitthvert sænskt
orð. — Já, vinur minn — nei,
jú, kærastinn minn. Hann er
annar stýrimaður. Nú förum við
til Svíþjóðar og hann fær vinnu
í skrifstofu skipafélagsins. Við
giftum okkur. Ög svo baut hún
á brott kafrjóð í andliti-
— Og það er ekki nema gott
um það að segja, sagði Ellery
þungbúinn. — Að þurfa að vera
undir sama þaki og þessi gyðja
án þéss að mega snerta hana,
hefur verið mér næstum óbæri-
legt. Sture! Alltaf hafa Svíam-
ir heppnina með sér. Annars
ætlaði ég reyndar ekki að bjóða
Kirstínu í áramótaveizluna mína.
Hún á aðeins að vera fyrir litla
hópinn okkar. Þið komið örugg-
lega öll saman? Ágætt. Hvemig
væri að þú hjálpaðir mér að láta
niður?
Jólatréð sem Ellery hafði ekki
fengið að sjá meðan það var
upp á sitt bezta var enn á sín-
um stað, þegar þau þrjú úr Mc-
Kellfjölskyldunni og Júdý Valsh
komu í fbúðina klukkan hálftfu
betta kvöld. Vegna síðbúinna
jóla Ellerys og sumpart vegna
“amallá áramótavenja, hafði Mc-
Kellfólkið haft meðferðis gjafir.
Ramon var með fangið fullt af
beim.
Queen fulltrúi var þama Ifka,
ekki beinlínis mildur á svipinn.
(Hvað þykistu eiginlega vera að
gera? hafði hann spurt Ellery.
— Það er svo sem nógu slæmt
ÚTSALA - ÚTSALA
Stórfelld verðlækkun á öllum vörum verzlunar-
innar. — Notið þetta einstaka tækifæri og gerið
góð kaup.
ALLT Á AÐ SELJAST!
VERZLUN GUÐNYJAR
Grettisgötu 45
þríhyrningnum
HARPir er ilmandi efni sem hreinsar
salernisskálina og drepnr sýkla
-
SKOTTA
— Það er aðeins eitt athugavert við Donna; hann hefur ekki
lánstraust.
Gerið við bíla ykkar sjólf
Við sköpum aðstöðuna. — Bílaleiga.
BlLAÞJÓNDSTAN
Auðbrekku 53. Kópavogi — Sími 40145.
Látið stilia bílinn
Önnumst hjóla*. Ijósa- og mótorstillingu.
Skiptum um kerti. platínur, Ijósasamlokur.
— örugg þjónusta.
BÍLASKOÐUN OG STILLING
Skúlagötu 32. sími 13100
Hemlaviðgerðir
• Rennun: bremsuskálar.
• Slípum bremsudælur.
• Límum á bremsuborða. 1
N /
Hemlastilling hf
Súðarvogi 14 - Sími 30135.
Bifreiðaeigendur
Þvoið, bónið og sprautið bílana ykkar sjálfir Við
sköpum aðstöðuna Þvoum oe bónum ef óskað er
Meðalbraut 18, Kópavogi.
Sími 4-19-24.
t