Þjóðviljinn - 27.01.1968, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 27.01.1968, Qupperneq 10
Myndin er tekin í Þjóðleikhúsinu í gær, talið frá vinstri: Baldvin Halldórsson, Guðlaugur Rósin- kranz og Halldór Laxness. ( Ljósm. Þjóðv. A. K.). Þjóðleikhúsið: íslandsklukkan eftir Lax- ness frumsýnd 31. janúar — höfundurinn með verk í skáldsögu- og leikritsformi í skrifborðsskúffunni □ Þjóðleikhúsið frumsýnir íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness. miðvikudaginn 31. þessa mánaðar, undir stjóm Baldvins Halldórssonar, sem einnig leikstýrði Prjónastof- unni Sólin. □ íslandsklukkan var sem kunnugt er frumflutt við opn- un Þjóðleikhússins 1950, endursýnd 1952 og 1956 er skáld- ið fékk Nóbelsverðlaun og urðu þetta samtals yfir 80 sýn- ingar og áhorfendur um 50 þúsund. □ Eftir 12 ára hlé er nú aftur ráðizt í að sýna íslands- klukkuna 'í þeirri trú að hún eigi enn hljómgrunn hjá Bátur frá Bíldudal sekkur: Albert bjargaði á- höfninni, 5 manns Kl. 19,50 f gærkvöld fann varðskipið Albert gúmbát á reki með fimm mönnum á sunnanverðum Patreksfjarðar- flóa. Voru menniynir af vélbátnum Ver frá Bíldudal, sem sokkið hafði laust fyrir klukkan 15 um daginn. Náðu varðskipsmenn öllum skipsbrotsmönnunum um borð og og fór Albert með þá til Patreksfjarðar þar sem farið var með þá á sjúkrahús. Voru þeir allir ómeiddir en mjög þrek- aðir, enda versta veður er þetta gerðist. Dauft er yfir at- vinnulífinu í Nes- kaupstað í vetur Neskaupstað 24/1. — Þrír bátar verða gerðir út héðan á net í vebur og er ráðgert að þeirlandi aflanum hér. Þá munu tveir bátar fara á togveiðar. öll mjöl- framleiðsla síldarbræðslunnar er farin héðan en nokkuð er eftir af saltsíid. Engri síld hefur verið landað í Neskaupstað síðan fyrir jól og er atvinnuástandið ekki gott. Mun atvinnuleysisskráning nú vera hér í undirbúningi. Nokkrir smærri bátar hafa róið af og til í þessum mánuði með línu og aflað vel begar á sjó hefur gefið. Netaverkstæði Friðriks Vil- hjálmssonar sem hefur verið bÝð- ingarmikill atvinnuveitandi hér é staðnum undanfarna veturmun hafa líti'l verkefni f vetur og verður lítil starfræksla þar. Ekki er búizt við að neinn afli berist hér á land að ráði fyrr en síðari hluta vetrar því að bátamir fara á loðnuveiðar til að byrja með. I Framhaldsþing | ASf hefst kl. | 2 á mánudag ■ N.k. mánudag kl. 2 e.h. hefst framhaldsfundur 30. þings Alþýðusambands ís- ■ lands og verður þingið haldið í samkomuhúsinu j Lídó. Á dagskrá þingsins er ■ aðeins eitt mál: Laga- og j skipulagsmál Alþýðusam- j bandsins en afgreiðslu þess ■ var frestað um eitt ár á j þingið upphaflega að koma 30. þinginu sem haldið var í nóv. 1965. Átti framhalds- saman í nóv. sl. en var þá frestað fram í janúar vegna j hirts ótrygga ástands er þá ríkti í atvinnu- og kjara- málimum 5 : Auk dagskrármálsins er j liklegt að þingið taki til 5 umræðu ástandið i at- ■ vinnu- og kjaramálum. ■ AKRANES Þorrablót Alþýðubandalagsins verður haldið í Rein laugardag- inn 3. febrúar «kl. 20. Skemmtinefndm. þjóðinni. Sem fyrr segir. var íslands- klukkan frumflutt við opnun Þjóðleikhússins ásamt Nýársnótt- inni og Fjalla-Eyvindi. Áður hafði þjóðleikhússtjóri hvatt Halldór Laxness til að breyta skáldsögunni í leikritsform og gerði hann það í samvinnu við Lárus Pálsson. Leikritið átti strax miklum vinsældum að fagna, það var einstakt að svo margir sæju íslenzkt leikrit á þeim tíma og hefur þessi met- aðsókn ekki verið slegin enn. Þjóðleikhúsið hefur sýnt þrjú önnur leikrit eftir Laxness,- Silf- urtunglið. Strompleikinn og Prjónastofuna Sólin og Leikfé- lag Reykjavíkur sýndi Dúfna- veizluna og Straumrof. Er Laxness var að því .spurð- ur hvort hann væri með nýtt verk í smíðum sagði hann eitt- hvað á þessa leið: — Ég var að skrifa leikrit í fyrravetur en það vildi verða langt og efnið var mikið. Skrifaði ég því í frásagn- arformi í næstu umferð. Ég á því verkið í tveimur formum í vinnustofu minni, þau eru eng- an vegin nákvæmlega eins en fjalla um skyld efni. Ég á mikla vinnu fyrir höndum, en ætli það fari ekki að greiðast úr því þeg- ar kemur fram á sumar. Þá var Laxness spurður að því hvort efnið væri sótt í sam- tímann. Hann hló við og sagði að þetta væri alls ekki annáll ársins, efnið væri sótt í þann listræna tíma sem yrði að vera í hverju skáldverki. ^Leikendur í íslandsklukkunni eru fast að 40 að meðtöldum aukaleikurum, eru það allir karlleikarar Þjóðleikhússins, en ekki alveg allt kvenfólkið. Breytt hefur verið um leikara í flest- um hlutverkunum. Jón Hreggviðsson er leikinn af Róbert Amfinnssyni (áðurlék Framhald á 2. síðu. Þjóðviljinn náði í gærkvöld tali af Hannesi Þ. Hafstein fúll- trúa Slysavarnafélags íslands, sem var með Albert þegar mönn- unum var bjargað. Sagði Hann- es, að Ver sem er frá Bíldudal, 35 tonn að stærð, hefði farið í róður í gærmorgun og átti bát- urinn eftir um 2 mílur í Kóp, er sjór skall á honum og lagði hann á hliðina. Rétti báturinn sig ekki aftur við en áhöfninni tókst að setja út gúmbát og komast í hann áður en Ver sökk. Var klukkan um 14,45 í gær er báturinn sökk. Hannes sagði að Albert heíði verið á leið frá Bíldudal til Patreksfjarðar er skipið fann gúmbátinn. Var þá versta veð- ur, 8—9 vindstig, og mikill sjór, 9 stiga frost og éljagangur. Sáu varðskipsmenn neyðarblys um kl. 19,20 og annað skömmu síðar. Rétt á eftir komu þeir að bátm um og hafði þeim tekizt að bjarga öllum skipsbrotsmönnun- um heilum á húfi urp borð ,í Albert um kl. 19,50. Hélt Albert síðan beint til Patreksfjarðar með skipsbrotsmennina og kom þangað um kl. 20,50. Voru skips- brotsmennirnir látnir fara beint á sjúkrahúsið á Patreksfirði. Eins og áður segir var Ver frá Bíldudal og var eigandi hans, Snæbjörn Árnason, jafnframt skipstjóri á honum. Munu aðrir skipverjar einnig vera frá Bíldu- dal. Benti Hannes Hafstein blaðamanninum á að hringja á sjúkrahúsið og tala við skipstjór- ann til þess að fá nánari upplýs- ingar um slysið. Þjóðviljinn hringdi síðan á sjúkrahúsið á Patreksfirðj í gær- kvöld og bað um að fá að tala við Snæbjörn en fékk það svar að læknirinn bannaði honum að fara í símann. blaðamaðurinn bað þá um einhvern annan af á- höfn Vers en fékk það svar að þeim væri öllum bannað að fara í símann. Þá bað blaðamaðurinn um samband við lækni sjúkra- hússins en fékk það svar að hann mætti ekki vera að því að tala við Reykjavík. Spurði síma- stúlkan á Patreksfirði þá hvort blaðamaðurinn vildi ekki tala við hjúkrunarkonu á sjúkrahús- inu og var það að sjálfsögðu þegið — en eftir andartak kom símastúlkan aftur í símann og sagði að hjúkrunarkonan segði áð sjúkrahúsið gæfi engar upp- lýsingar um líðan mannanna. Fylkingin ★ N.k. þriðjudagskvöld kl. 9 heldur Einar Olgeirsson áfram flutningi erindaflokks síns „Sósí- alisminn og íslenzk stjórnmál í 50 ár.“ ★ Erindið verður flutt í Tjarn- argötu 20 og er öllum heimill aðgangur. Æ.F.R. Rösklega 700 manns skráðir atvinnulausir norðan lands □ í gærdag hafði Þjóðviljinn samband við tólf pláss á Nörðurlandi og kom þá í ljós, að rösklega 700 manns eru nú skráðir atvinnulausir á Norðurlandi þessa dagana og víða er útlitið svo svart í atvinnu- málum á þessum stöðum, að fyrirsjáanlegt er vax- andi atvinnuleysi í vetur. D Þá er einnig víða. stopul vinna í þessum plássum og fá menn aðeins átta tíma dagvinnu eða. enga suma dagana og mun þessi tala ekki gefa rétta mynd af atvinnuleysinu í hinum norðlenzku plássum. Er at- vinnuleysið mun meira en tölur gefa til kynna. Hér fara á eftir frásagnir frá 13 stöðum á Norðurlandi. Skagaströnd Hér eru um 25 verkákonur og verkamenn atvinnulaus og um 20 til 30 manns hafa at- vinnu í frystihúsinu þriðja hvern dag, sagði Björgvin Jónsson varaformaður Verk- lýðsfélags Skagastrandar í viðtali við Þjóðviljann í gær. Slæmt útlit er fyrir vinnu í vetur. Fjórir bátar róa héðan og strandaði einn á dögunum við Röfðan og er nú í slipp á Akureyri. Hofsós Hér eru um 50 manns skráð- ir atvinnulausir, sagði Þórð- ur Kristjánsson, formaður Verkamannafélagsins Farsæls, í viðtali við Þjóðviljann í gær. Þá er ennfremur um að ræða hóp af verkamönnum, sem hefur haft stopula vinnu síðan í haust, og nokkrirhafa farið úr plássinu í atvinnu- leit. Einn bátur rær héðan á línu í vetur og nú er frysti- húsið stopp, sagði Þórður að lokum. Þórshöfn Hér hafa 40 manns verið skráðir atvinnulausir siðan í desember, sagði Njáll Þórðar- son, formaður Verklýðsfélags- ins á Þórshöfn í viðtali við Þjóðviljann í gærdag. Þar af eru innan við helmingur verka- konur, sagði Njáll. Atvinnuútlitið er ekki gott hér á Þórsihöfn í vetur, sagði Njáll að lokum. Raufarhöfn Hér ríkir algjört atvinnu- leysi og hófst atvinnuleysis- skráning í fyrradag og hafa um 40 látið skrá sig atvinnu- lausa, sagði Guðmundur Lúð- víksson i viðtali við Þjóðvilj- ann í gærdag. Hér er ekki um lokatölur að ræða og er atvinnuleysis- skráning ennþá í fullum gangi. Atvinnuhorfur eru ískyggi- legar hér á Raufarhöfn í vet- Akureyri Þessa stundina munu vera á annað hundrað verkamanna atvinnulausir á Alkureyri, en miJdu minna gætir þar nú at- vinnuleysis hjá verkakonum en áður — til dæmis hefur verið stöðug vinnsla í Hrað- frystihúsi ÚA með vinnu handa 70 verkakonum, þá hef- , ur Niðursuðuverksmiðja K. J. unnið úr miRjsíld, sem hefur veiðzt á Eyjafirði síðan um miðjan nóvember og skapar það vinnu fyrir á annað hundrað verkakonur svo aö dæmi séu tekin af stærstu fyrirtækjum. 1 byrjun febrú- ar fer fram atvinnuleysis- skráning að venju. Siglufjörður Atvinnuleysisbætur voru greiddar 13. janúar til 162 verkamanna og verkakvenna, sagði Óskar Garibaldason, for- maður Verlkllýðsfél. Vöku á Siglufirði í gærdag. Meiri-, hlutinn af þessum atvinnu- leysingjum eru verkakonur eins og stendur. Um tvö hundr- uð manns hafa til'kynnt sig atvinnulausa faér í Siglufirði, sagði Óskar að lokum. Sauðárkrókur Fyrir viku síðan voru 30 verkamenn og 32 verkakonur skráð hér atvinnulaus eða samtals 62, sagði Jón Karls- son, formaður Verkamanna- félagsins Fram í viðtali við' Þjóðviljann í gærdag. Síðan hefur ástandið versn- að og má búast við hærri tölu, þegar næsta skráning fer fram upp úr helginni. Hér eru slæmar atvinnuhorfur fram- undan í vetur, sagði Jón að lokum. Hjalteyri Hér eru 6 til 8 verkamenn atvinnuílausir. Aðrir erufarn- ir burtu í atvinnuleit. Hér hefur engin atvinnuleysis- skráning verið í gangi. Blönduós Hér eru 10 til 15 manns atvinnulausir, en aðrir fá að- eins átta tíma vinnu, sagði Pétur Pétursson, formaður Verklýðsfélags Austur-Húna- vatnssýslu í viðtalli við Þjóð- viljann í gaspdag. Atvinnuhorfur eru slæmar hér framundan, sagði Pétur. Bakkafjörður Hér er um 15 manns at- vinnulausir, en aðrir eru fam- ir 'burt í atvinnuleit, sagði Hilmar Einarsson í^iðtali við Þjóðviljami í gær. Hér hefur ríkt vandrasðaá- stand í heilt ár. Sfldarverk- smiðjan fór aldrei í gang sl. sumar. og hefur verið algjört atvinnuleysi, sagði Hilmar. Ólafsfjörður Hér eru að minnsta kostí eitt hundrað manns atvinnu- lausir núna í janúarmánuði — um 50 verkamenn og 50 verkakonur, sagði Sveinn Jó- hannesson í viðtali við Þjóð- viljann í gærdag. ' Atvinnuástandið er i ákaflega bágborið hér í bænum og er hér miðað við landverkafólk. Á síðastliðnu ári var um hálf miljón kr. greidd í at- vinnuleysisbætur — einkum til verkamanna, sagði Sveinn að lokum. Dalvík og Hrísey Á Dalvík eru 15 skráðir at- vinnulausir, sagði Angantýr Einarsson, starfsmaður Verk- lýðsfélagsins Einingar á Ak- ureyri í viðtali við Þjóðvilj- ann í gærdag. ★ Þá voru 22 skráðir atvinnu- lausir í Hrísey fyrir áramót og mun eitthvað hafa bætzt við síðan, sagði Angantýr.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.