Þjóðviljinn - 01.02.1968, Qupperneq 3
Fönmtudagur 1. fébráar 1968 — ÞJÖÐVTUTNN — SÍÐA J
Pulltrúi stjórnarvalda Norðnr-Kóren:
Erum reiðubúnir til
úð ræðu um,Puebio1
TOKIO 31/1 — Einn af leiðtogum Norður-Kóreumanna
sagði í diag að þeir myndu ekki sætta sig við lausn á „Pu-
eblo“-málinu á vegum SÞ, en tók jafnframt fram að þeir
myndu fúsir til viðræðna um það ef það yrði tekið upp
á réttum vettvangi, þ.e. í vopnahlésnefndinni í Kóreu.
Fréttastofa Norður-Kóreu hafði
þessi ummæli eftir miðst.iómar-
mamni í Verklýðsflokki Kóreu.
Hann kvað Sameinuðu þjóðirnar
ekki hafa neina heimild til að
fjalla um .,Pueblo“-málið, en
hins vegar væru fordæmi fyrir
því að mál af svipuðum toga
hefðu verið tekin fyrir á fund-
um vopnahlésnefndanna í Pan-
munjom.
Bandaríkin hefðu engan rétt
haft til þess að skjóta málinu
til öryggisráðs St>: það hefðu
þau gert aðeins í því skyni að
villa um fyrir mönnum.
Bandaríkjamönnum skjátl'aðist
ef þeir héldu að þeir gætu leyst
málið með hervaldi eða málskoti
til SÞ. Hitt gegndi öðru máli,
að ef þeir kærðu sig um væri
hægt að fara þær leiðir til lausn-
ar málsins sem áður hefðu ver-
ið reyndar í svipuðum tilvikum.
Það væri alveg undir Banda-
ríkjamönnum komið hvernig mál-
ið æxlaðist. Héldu þeir áfram
vopnabraki sínu, yrðu þeir að
bena ábyrgð á þeim afleiðingum
sem af því gætu hlotizt-
Fulltrúi Sovétríkjanna í Ör-
yggisráðinu. Morosof, sagði í dag
að hann væri bjartsýnn á að
lausn fyndist á „Pueblo“-málinu.
Svo virðist sem Bandaríkjastjóm
setji ekki lengur það skilyrði að
bæði skipi og áhöfn verði sleppt,
láti sér nú nægja að skipverjar
verði látnir lausir, segir frétta-
ritari Keuters hjá SÞ.
Couve de Murville, utanríkis-
ráðherra Frakklands, tók fram
í dag að Frakkar myndu láta
,,Pueblo“-málið afskiptalaust með
öllu. Hvor aðili héldi sínu fram
og það væri ekki Frakka að
gera upp á milli þeirra.
Stjómir Indlands og Sovétrfkjaima:
Loftárásunum verði
bætt skilyrðisluust
NÝJU DELHI 31/1 — Stjómir Indlands og Sovétríkjanna
hvöttu í dag til þess að Bandaríkin hætti loftárásum sín-
um á Norður-Vietnam skilyrðislaust og lýstu jafnframt
stuðningi við viðleitni Kambodju til að varðveita hlut-
leysi sitt í Vietnamstríðinu.
Þetta er tekið fram í sameig-
inlegri yfirlýsingu sem gefin var
út í Nýju Delhi í dag að lokn-
um viðræðum forsætisráðherr-
anna Indiru Gandhi og Alexei
Kosygins. Þau sögðu stjómir sín-
ar hafa af því þungar áhyggjur
að Bandaríkjamenn hafa enn
ekki fengizt til að hætta loft-
árásunum.
Dönsk stjórn mynduð í dag,
ágreiningur um herútgjöld
KHÖFN 31/1 — Hilmar Bauns-
gaard, leiðtogi Róttæka flokks-
ins danska, hefur nú lokið við
að mynda stjórn þriggja flokka,
Vinstri- og íhaldsflokksins auk
síns eigin, og mun hann leggja
ráðherralista sinn fyrir Friðrik
konung á morgun. Stjórnin hef-
ur traustan meirihluta á þingi-
Stjórnarmyndunin reyndist
nokkru erfiðari en ætlað hafði
verið og mun erfiðast hafa geng-
ið að ná samkomulagi um þá
kröfu Róttækra að dregið verði
allverulega úr útgjöldum til víg-
búnaðar. Það var einkum íhalds-
flokkurinn sem reis öndverður
gegn þessu og bar fyrir sig að
ArshátíÖ og
þorrablót *•
Alþýðubandalagsins
í Reykjavik
verður að.HOTEL BORG
föstudaginn 2.febrúar.
Húsið opnað kl..1'9 fyrir þá er snæða
vil'ja þorramát. Skemmtiatriði hef jast
um -ki.21.-30
Til skemmtunar
l.Arni Björnsson.,
spjallar um
karlinn þorra.
2.Sigurður Jónsson
hljóðfæraleikari
•leikur einleik á
sitar
5.HÍjómsveit'Hauks
Horthens le.ikur
.fyrir dansi
3.Kjartan Ragnarssoh
.les^ úr verkum
Guðbergs. Bergssonar
4. 'Þrir háir tónar
(Rim tríó.) sýngjá þjóðlög
ög mótmæíásöngva N
Verð aðgöngumiði kr.350.- fyrir
matargesti en kr. 15p.- fyrir • aðra gesti.
Pöritun og sala aðgöngumiðá á skrifstofu
Áiþýðubandalágsins Miklubraut 34»
simi 1 80 81 , opið frá kl.3,'til kl.6 eh.
og bókabúð Máls og Menningar
Tryggið' ykkur miða sem fyrst.,:
SKEMMTINEFNDIN
samkomulag hefði 1960 verið
gert milli stærstu þingflokk-
anna um landvarnamál og út-
gjöld til þeirra. Sætzt var á þá
málamiðlun að sósíaldemókröt-
um sem einnig stóðu að því sam-
komulagi verði boðið til við-
ræðna með stjórnarflokkunum í
því skyni að athuga hvort hægt
sé að minnka vígbúnaðarút-
gjöldin um 125-150 milj. d. kr.
Kosygin sem dvalizt hefur sex
daga í Indlandi og m.a. verið
þar viðstaddur hátiðahöld í
Nýju Delhi í tilefni af þjóðhá-
tíð Indverja hélt frá höfuðborg
Indlands til Afghanistans og tók
Múhameð Zahir konungur á
móti honum á flugvellinum við
Kabúl í dag.
í yfirlýsingu stjórna Indlands
og Sovétríkjanna er ennfremur
tekið fram að ísraelsmenn eigi
að skila aröbum aftur þeim
löndum sem þeir lögðu vmdir
sig í júnístríðinu.
Ajsenustjórn fær
efns árs frest
STRASSBORG 31/1 — Ráð-
gjafaþing Evrópuráðsins sam-
þykkti í dag að Grikklandi verði
vikið úr ráðinu, verði ekki bú-
ið að koma á lýðræðislegri þing-
ræðisstjóm í landinu fyrir ára-
mót.
Árásir þióðfrelsishersins
Framhald af 1. síðu.
ið. Ráðizt var á margar helztu
borgir landsins og á níu her-
stöðvar Bandaríkjamanna, allt
frá Danang nyrzt á strönd Suð-
ur-Vietnams, til Pleiku og Kon-
tum á miðhálendinu og Can Tho
syðst í landinu. á óshólmum
Mekongfljóts. Enn mun ekki
einu sinni bandaríska herstjóm-
in hafa fullt yfirlit yfir það
tjón sem hún hefur orðið fyrir
í þessum árásum, en talið er að
Bandaríkjamenn hafi misst a.m.k.
fimmtíu flugvélar. Einna mest
mun tjónið hafa orðið í Dan-
ang, enda er þar stærsta flug-
stöð Bandaríkjamanna í Viet-
narri.
Árásirnar í Saigon
Aðgerðir þjóðfrelsishersins í
Saigon hafa vakið furðu manna
og skelfingu Bandaríkjamanna
og Saigonstjómarinnar. Hann
réðst samtímis á margar helztu
byggingar borgarinnar, og þá
fyrst og fremst á bandaríska
sendiráðið sem er nýbyggt, tek-
ið í notkun fyrir tæpu ári, og
sérstaklega víggirt einmitt til að
koma í veg fyrir slíka skyndi-
árás. Fyrir tæpum þremur ár-
um var bygging sú sem sendi-
ráðið var þá til húsa í stór-
skemmd í sprengjuárás.
Skæruliðar brutu 1 með loft-
varnabyssuskpti gat á múrvegg
þann sem umlykur sendiráðslóð-
ina og komust þannig innfyrir
múrinn. Eins og fyrri daginn eru
Bandaríkjamenn margsaga um
það sem gerðist í sendiráðinu.
Hermenn þeirra sem þar voru til
varnar eða sendir voru þangað
með þyrlum eftir að árásin hófst
segja að skæruliðar hafi verið
búnir að leggja undir sig sex af
sjö hæðum hússins, áður en þeir
voru hraktir þaðan. Westmore-
land herstjóri segir þá aðeins
hafa komizt upp á fyrstu hæð
og húsráðandinn, Bunker sendi-
herra, hélt því frarti að þeir
hefðu aldrei komizt lengra en
inn á lóð sendiráðsins. Hvað sem
því líður vörðust skæruliðar
sem munu liafa verið um tuttugu
talsins miklu * ofurefli f sex
klukkustundir og segjast Banda-
ríkjamenn hafa fellt 17 þeirra,
en misst sjálfir fimm.
Samtímis þessu var ráðizt á
útvarpsstöðina í Saigon pg hún
eyðilögð með sprengjum. Áhlaup
var- gert á forsetahöllina, á sendi-
ráð Filipseyja og á aðalbækistöð
Westmorelands hershöfðingja.
Bandaríkjamenn segja að öllum
hafi þessum árásum verið hrund-
ið, en þeir viðurkenna að þær
hafi komið á óvart og verið
þaulskipulagðar. Skæruliðar sóttu
einnig að aðalflugvellinum við
Saigon og létu sprengjum rigna
yfir hann. Þeir voru þar enn
þegar síðast fréttist. ....... ,
Um allt landið
Fréttirnar af aðgerðunum í
Saigon hafa að sjálfsögðu vakið
mesta athygli og að sögn frétta-
manna mikið hugarvíl í Wash-
ington, en enn athyglisverðara
er þó að þjóðfrelsisherinn gat
samtímis gert slíkar stórárásir á
borgir og bandarískar bækistöðv-
ar nærri því í hverju einasta
héraði landsins. Virðist hafa
verið lögð höfúðáherzla á árásir
á hiná mörgu flugvelli sem
Bandaríkjaher hefur í Suður-
Víetnam.
Otvarp Þjóðfrelsisfylkingarinn-
ar sagði í dag að þessar' árásir
hefðu verið gerðar vegna þess
að Bandaríkjamenn og Saigon-
stjómin hefðu fyrst takmarkað
vopnahléið sem hafði verið boðað
vegna tunglnýársins og síðan af-
lýst því með öllu.
Fjaðrafok í Washington
Síðan, fréttimar bárust frá
Saigon hefur allt verið á öðr-
um endanum á æðstu stöðum i
Washington. Hver ráðstefrian rak
aðra í Hvíta húsinu og fyrir
Johnson íbrseta höfðu verið
lagðar 26 skýrslur um atburðina
og stöðugt bættust nýiar við
Algert ráðleysi ríkir í Washing-
ton og skýringar talsmanna
Bandaríkjastjórnar mjög á reiki
Ýmist eru árásirnar sagðar hafa
verið gerðar til að dreifa athygl-
inni frá þeirri stóromstu sem
sé í vændum við Khe Sanh
norðvesturkrika Suður-Víetnams
þar sem 5.000 bandarískir land-
gönguliðar eru nú algerlega inni-
króaðir. eða þá að „undirbúning-
ur“ undir bá orustu hafi verið
settur á svið til bess að skæm-
liðar gætu komið Bandaríkja
mönnum í opna skiöldu með
skyndiárásunum í Saigon og
annars staðar.
Þá er sú skýring gefin f Wash
ington að sóknaraðgerðir þjóð
frelsishersins miði að því að
sýna Bandaríkjamönnum og
leppstjórn þeirra f tvo heimana
og neyða þá að samningaborð
inu.
Það byrjar ekki björgulega
fyrir Johnson Bandaríkja-
forseta í upphafi þessa síð-
asta árs á kjörtímabili hans.
Síðustu dagana hefur banda-
ríska stórveldið orðið fyrir
hverju áfallinu öðru meira.
Hrap bandarísku kjarna-
spréngjuþotunnar við Græn-
land vakti óhug um víða ver-
öld, magnaði andúð manna á
Bandaríkjunum og tortryggni
á að óhætt sé að treysta
samningsbundnum loforðum
þeirra. („Washington Post“
taldi vafalaust að sigur Rót-
tæka flokksins í dönsku kosn-
ingunum ætti rætur sínar að
rekja til þessa, þar sem flokk-
urinn hefði jafnan verið and-
vigur aðild Dana að Nato).
Tveimur dögum • síðar var
bandaríska njósnaskipið „Pu-
Honum sagðist svo frá í gær:
„Fréttimar frá Saigon, rétt
eftir töku „Pueblo“, komu
eins og reiðarslag yfir valds-
menn í Washington sem
klukkustundum saman vissu
ekki sitt rjúkandi ráð. Hver
ráðstefnan af annarri var
haldin i Hvíta húsinu þar
sem Johnson forseti hefur sitt
eigið ,stríðsherbergi‘ í kjall-
aranum og það er almanna-
rómur að eitthvað mikið
verði að gerast eða segjast
a.m.k. Menn grunar einnig
að þær fréttir sem borizt
hafa, einkum frá • þeim níu
flugstöðvum sem ráðizt var
á, séu enn mjög af skomum
skammti og að sóknarlotunni
kunni enn að vera ólokið.
Almenningur er undantekn-
ingarlaust æfur yfir því að
„Kvalafullt endurmat
IV
eblo“ tekið í norðurkóreskri
landhelgi án þess að hið vold-
uga herveldi fengi rönd við
reist og fullyrt var að hers-
höfðingjamir í Pentagon teldu
að vegna gangs Vietnam-
stríðsins væri það bandarísku
stríðsvélinni ofviða að rétta
hlut Bandaríkjanna með her-
valdi þar sem hún þyldi ekki
nýtt stríð á meginlandi Asíu.
Og nú hefur Þjóðfrelsisfylk-
ingin í Suður-Víetnam greitt
Bandaríkjamönnum slik högg
að lengi mun svíða undan.
Hún hefur enn einu sinni
sannað að henni eru allir
vegir færir. . Þegar menn
hennar geta setzt að í ramm-
girtum vistarverum æðsta
fulltrúa heimsveldisins, þótt
ekki sé nema um stundarsak-
ir, þá þarf víst engan að
undra að þeir geri'sig heima-
komna á óvirðulegri stöðum.
Það eru ekki liðnar nema
nokkrar vikur síðan Ells-
worth Bunker sendiherra, sem
fékk svo óvænta gesti í fyrra-
dag, gerði sér ferð til Was-
hingtan til að færa Johnsort
forseta þau tíðindi að Banda-
ríkjamenn væru „stöðugt að
vinna á“ í Vietnam. Tveim-
ur dögum síðar (15. nóv.)'
skýrði Westmoreland her-
stjóri bandarískum þing-
mönnum frá því að „gangur
stríðsins væri mjög, mjög
uppörvandi“. Han bætti því
við að eftir eitt-tvö ár gætu
Bandaríkjamenn farið að
„draga úr“ (,,phase-out“) að-
gerðum sínum í Vietnam og
fækka í herliði sínu þar („U.
S. News and World Report“
27. nóv.). Sagt var að „fjand-
mönnunum hefði greinilega
hnignað, mannfall kommún-
ista hefur stórum aukizt og
sóknaraðgerðum rauðliða hef-
ur verið haldið niðri. . . Ráð-
gjafar (Bandaríkjastjórnar)
halda því fram að á árinu
1968 kunni að fara að síga
á seinni hlutann, ef gangur
stríðsins heldur áfram að
vera jafn hagstæður og nú“
(,,U.S.N.W.R.“). Þessi bjart-
sýni hélzt fram yfir áramót.
,,Það mun korpa í ljós þegar
á árið líður að ósigur bíður
hersveita kommúnista“, sagði
sama málgagn bapdarískra
heimsvaldasinna 8. jan. og
bætti við að „gild ástæða er
til að ætla í upphafi ársins
1968 að á árinu megi sjá
fyrir endalok stríðsins í Vi-
etnam. Bardögum mun að
vísu ekki lokið á árinu. Eins
og nú horfir mun það taka
114-2 ár til að brjóta hervél
kommúnista alveg á bak aft-
ur. . En endalokin gætu auð-
vitað orðið enn fyrr. Það er
hugsanlegt að kommúnistar
gefist skyndilega upp og hætti
að berjast“. Og í því tölu-
blaði ritsins sem dagsett er
29. jan. er sagt afdráttar-
laust: „Okkur gengur nú stöð-
ugt betur í Vietnam". Hætt
er við að annað hljóð komi
nú í þetta málgagn forhertra
heimsvaldasinna.
rýréttamaður brezka útvarps-
* ins í Washington, Gerald
Priestland, fær lokaorðið.
svo lítið skuli hafa áunnizt
í þriggja ára stríði til að
taka frumkvæðið úr höndum
kommúnista. Frá þingmönn-
um sem eru kannski miður
sín eftir atburði síðustu viku
hefur borizt stöðugur straum-
ur fáryrða og hneykslunar.
Eitt af því sem farið hefur
forgörðum í sóknaraðgerðum
(Þjóðfrelsisfylkingarinnar) er
sú bjarta mynd sem dregin
hefur verið af framgangi
,friðunaraðgerða‘ (í Suður-
Vietnam), af auknu valdi
Bandaríkjamanna og banda-
manna þeirra yfir almenningi
þar, sú bjartsýni sem sérleg-
ir erindrekar JohnSons for-
seta í Saigon hafa undanfarna
mánuði lagt mikið kapp á
að boða. Embættismenn í
Washington hafa lagt hart að
sér við að rétta við hemaðar-
heiður Bandaríkjanna; þeir
hafa bent á að þeir hafi jafn-
an viðurkennt að ekki væri
alveg hægt að koma í veg
fyrir slíkar sóknarlotur, að
skæruliðar hafi orðið fyrir
miklu manntjóni og hafi einn-
ig reynzt ófærir um að halda
til lengdar því sem þeir unnu,
En embættismennirnir hafa
orðið að játa að þeir hafi
aldrei búizt við jafnvíðtæk-
um og vel skipulögðum sókn-
araðgerðum. Bandarískir her-
málaritarar láta nú í ljós hin-
ar mestu efasemdir um alla
herstjóm Westmorelands hers-
höfðingja. Hvorki loftárásim-
ar né hinir stórfelldu Jeitar-
og tortímingarleiðangrar* hafa
hamlað upp á móti kommún-
istum. segja þeir. Þessi vitn-
isburður um óbilaðan sókn-
arstyrk kommúnista hlýtur' að
draga úr baráttuþreki manna,
bæði í Bandaríkjunum og þó
einkum í Suður-Vietnam. Af
Vietcongskjölum sem em til
athugunar í Washington má
ráða að þessar aðgerðir (þjóð-
frelsishersins) séu aðeins upp-
haf af stórfelldri margþættrí
sókn sem á að standa fram
í marz og að þær séu aðeins
þáttur í heildaráætlun sem
nær bæði til hemaðarins og
hugsanlegra samningaviíú
ræðna og er, af sama tagi og
beitt var gegn Frökkum fyrir
15 árum. Það eina.sem vantar
í samlíkinguna er önnur Dien
Bien Phu-orusta, og þótt
Pentagon telji fráleitt að hún
eigi sér stað, er vísi að henni
þegar að finna í bandarísku
herstöðinni við Khe Sanh þar
sem allar aðstæður eru nærri
því jafn slæmar (og voru við
Dien Bien Phu). Svo gæti
farið að fjandmennirnir kæmu
tvíefldir bæði til baráttu og
samninga úr beim átökum
sem fyrir dyrum standa og
kvalafullt endurmat* kynni
þá að verða hlutskipti Banda-
ríkjamanna“. Það var þá
reyndar Foster heitinn Dulles
sem fékk síðasta orðið og
varla verður gefið gleggra
dæmi um ráðleysið í Was-
hington þessa dagana en að
þar skuli helzt leitað úrræða
í hinum fleygu orðum hans
fm þeim tíma þegar kalda
stríðið stóð sem hæst
ás.
4