Þjóðviljinn - 06.02.1968, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 06.02.1968, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJlNN — Þriðjudagur 6. íebrúar 1968. I Jm Útgelandi: oameiningarílokkur alþýðu — Sósiaiistaflokkurinn. Ritstjórar: ívar H. Jónsson, (áb.), Magnús Kjartansson. ‘ Sigurður Guðmundsson. Fréttarítstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson. Auglýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson. Framkvstj.: Eiður Bergmann. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar prentsmiðja: Skólavðrðustíg 19. Sími 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 120.00 á mánuði. — Lausasöluverð krónur 7,00. Tilgangurinn jþegar f járlög voru samþykkt nokkru fyrir jól með stórfelldari tekjuöflun en nokkru sinni fyrri í sögu þjóðarinnar hét fjármálaráðherann því að endurgreiða almenningi um 250 miljónir króna af þessum mettekjum í lækkuðum tollum. Jafnframt var skýrt frá því að þing yrði kvatt saman um miðjan janúar svo að hægt væri að afgreiða þessa tollalækkun sem fyrst. Ekkert af þessum fyrir- heitum hefur staðizt; ekkert tollalækkunarfrum- varp sá dagsins ljós í januarmánuði, og þegar frumvarpið birtist nú loksins kemur í ljós að tolla- lækkanirnar verða um 100 miljónum króna lægri en boðað hafði verið. í þokkabót er hér ekki um að ræða endurgreiðslu á of hárri tekjuöflun ríkis- sjóðs fyrir jól, heldur er nú rætt um að afla nýrra tekna til þess að standa undir tollalækkununum! Það á semsé að leggja á almenning nýjar byrðar ofan á allt það sem áður var komið til þess að hægt verði að lækka tolla smávægilega. Ýmsum kunna að virðast þetta tilgangslausar hundakúnstir, en þær hafa engu að síður til- gang. Tollalækkuninni var aldrei ætlað að bæta hag almennings, heldur var tilgangur hennar sá að samræma tollakerfi okkar hliðstæðu kerfi í efnahagsbandalögunum í Evrópu. Það og það eitt vakir fyrir ríkisstjórninni. Hún stefnir enn að því að tengja okkur Fríverzlunarbandalaginu og Efna- hagsbandalaginu, enda þótt slíkum tengslum fylgi stóraukin réttindi útlendinga til umsvifa hér’ á landi. Slík réttindi erlendra fyrirtækja til sam- keppni hérlendis hafa verið aukin til muna á und- anförnum árum, og eiga þau verulegan þátt í því atvinnuleysi sem nú nær til um 2.000 skráðra manna um land allt. Engu að síður ætlar ríkis- stjórnin að halda áfram á sömu braut; þrátt fyrir ótvíræðan dóm reynslunnar rígheldur hún sér enn í kreddukenningar hagfræðinga sinna. Tiivaiið jpyrir nokkrum árum vöktu þeir Karl Guðjónsson og Lúðvík JósepsSon máls á því á þingi að það væri mikil nauðsyn að fullgera hringveg um land- ið. Það mál er nú flutt á þingi af mönnum úr öll- um flokkum og hlaut einróma undirtektir í um- ræðum í sameinuðu þingi fyrir nokkrum dögum. Öllum er ljóst að framkvæmdin mun kosta mikið fé, og í umræðunum benti Karl á eina tilvalda tekjuöflunarleið. Hann minnti á að í fjárlögum þessa árs er 34,5 miljónum króna varið til að fram- kvæma umskiptin til hægri umferðar. Hér er um að ræða greiðslu sem aðeins er bundin við þeíta ár, en ef að vanda lætur verður tekjuöflunin látin halda sér þott verkefninu sé lokið. Lagði Karl til að sama upphæð yrði látin standa í fjárlögum næstu árin en að henni yrði eftirleiðis varið til bess að standa undir kostnaði af því að gera hring- veg umhverfis Iandið. — m. MINNINGARORÐ ÁGÚST JÖSEFSSON Ágúst Jósefsson er látinn í hárri elli. Hann varð 93 ára, f. 14. ágúst 1874 að Belgs- stöðum, bæ sem nú er í eyði, „skammt fyrir sunnan Akra- fjall“. Faðir hans var háseti á skipi sem fórst í vertíðarbyrj- un 1879, og drukknuðu allir skipverjar. Móðir hans brauzt áfram með drenginn og fluttist til Reykjavíkur 1880 og dvald- ist Ágúst þar til tvítugsaldurs, og var oft „svangur, kaldur og klæðlítill — en óx þó og þrosk- aðist vel þrátt fyrir alit og talinn stór eftir aldri, og laus við alla smákvilla og krank- leika. Vetrarhörkur voru með ódæmum þessi árin og óáran bæði til sjós og lands, svo að allur almenningur átti við hin mestu eymdarkjör að búa. Móðir mín vann fyrir okkur með því að taka að sér ýmis störf hjá fólki, svo sem sauma- skap, þvotta og hreingeming- ar, en kaup var lágt og lítið um peninga, svo að mest af vinnulaununum fékk hún greidd með matvælum eða á- vísunum á vöruúttekt í ein- hverri af verzlunum bæjarins. En vinna þessi var mjög stop- ul og oft þótti henni hvíldar- dagarnir of margir". Þannig segir Ágúst frá æskudögum sínum í bók sinni „Minningar og svipmyndir úr Reykjavík" sem út kom 1959, og hafði hftnn sjálfur ritað bók sína hjálparlaust, þó háaldraður væri, enda prýðiílega ritfær. Á sextánda ári komst Ágúst í prentnám í fsafoldarprent- smiðju, og varð það með nokkrum hætti menntunarleið hans; hann segir sjálfur um það mál: „Vegna iðnar sinnar voru prentarar fróðari um ým- islegt en alþýða manna yfir- leitt um þessar mundir, þótt ekki nytu þeir meiri skóla- menntunar. Engan þátt tóku þeir þó í stjórnmálum og ekki rnan ég til að þeir töluðu um eða heíðu 'nein aískipti af kosningum, hvorki til Alþing- is eða í bæ'jarstjórn. Þetta breyttist þó síðar (eftir 1890). Risu þá upp í stéttinni bæði skáld, listamenn og pólitísk- ir áhugamenn, sem ræddu sín á milli ýmis þjóðfélagsmál sem efst voru á baugi, bæði hér- lendis og erlendis. Að þetta voru meira en orðin tóm sýn- ir bezt, að prentarar stofnuðu vel skipulagt stéttarfélag, og skömmu síðar komu þeir á fót fyrsta sjúkrasamlaginu hér á landi, sem varð þeim ómetan- legur styrkur í lífsbaráttunni“. Útþrá og menntun arlöngu n knúðu Ágúst Jósefsson til ut- anfarar, og átti hann náfrænda, Valtý Guðmundsson, í Kaup- mannahöfn sem stuðlaði að því að hann komst til vinnu og framhaldsnáms í prentiðn í Danmörkuj ogr dvaldist hann þar tíu ár. ■ „Ég tel það eitt mesta gæfuspor sem ég hef stigið, þegar ég ákvað að fara utan,“ segir Ágúst. „Þar lærði ég framsækni og hafði betri skilyrði til sjálfsmenntunar, og þar fann ég fyrst til eigin manngildis. Hefði ég dvalið á- fram heima við óviss og léleg kjar, hefði ég ekki öðlazt það sjalfstraust, sem ýtt hefur mér áfram til þess að ná sæmilegri fótfestu í lifsbaráttunni". Hann lagði af stað til Kaup- mannahafnar 1. apríl 1895. Tveimair árum síðar kvæntist hann danskri stúlku, Pauline Sæby, sem hann hafði kynnzt í Reykjavfk og viarð hjónaband þeirra langt og farsælt Pau- line lézt 1941. Ágúst kom heirn í ársbyrjun 190S og gengur þá í Hið ís- lenzka prentarafélag, og átti þar fyrir höndum drjúgt fé- lagsstarf. En mikil hafa við- brigðin orðið frá Kaupmanna- höfn, en þar hafði Ágúst tekið þátt í félagsstarfi hinna öflugu dönsku prentarasamtaka og sósíaldemókrata. Daufleigt var í Reykjavík 1905 miðað við stórborgarlifið ytra. „Mér fannst eiginlega allt vera öðru- vísi en ég hafði gert mér í hugarlund. Bærinn hafði að vísu staskkað allmikið og fólk- inu fjölgað, en bæjarlífið fannst mér ósköp fábrotið og fólkið þunglamalegt í tali og framkomu. Ég kunni hálfilla við allt og alla, svo að úr þessu varð töluvert óyndi fyrstu vikurnar, sem ég dvaldi í bænum. En þetta breytt- ist eftir að konan og bömin komu heim, og við eignuðumst aftur sameiginlegt heimili“. Ágúst Jósefsson tók þegar að vinpa að eflingu alþýðu- hreyfingar og sósíalisma. Hann lýsir því í minningum sínum er þeir frændumir, Pétur G. Guðmundsson og hann, undir- búa útgáfu litla Alþýðublaðs- ins 1906, og samtímis var Verkamannaíélagið Dagsbrún stofnað í Reykjavík og gegndi Ágúst þar oft formannsstörfum fyrstu árin í fjarveru Sigurð- ar Sigurðssonar, en Ágúst var varaformaður félagsins. Hann skrifar í Alþýðublaðið, með- an það lifði, óg þegar Hið íslenzka prentarafélag hafði komið sér upp málgagni 1910 er hann í ritstjóm þess og ritar þar ágætar greinar. Með- al þeirra er grein hans Um 8 stunda vinnudaginn og 1. maí (1912) sem hann prentar upp í bók sinni, og má kallast tímamótaigrein í vinnutímamál- inu. Og prentaramir ná fyrst- ir átta stunda vinnudegi í Framhalld á 6. síðu Minningarorð Þórarinn Biörnsson. skólameistari Við andlát Þórarins Björns- sonar, skólameistara Mennta- skólans á Akureyri, vakna á ný minningar um kynni, sem stóðu ekki nema tvo vetur fyrir rúm. um 20 árum, en skildu eftir í huganum áhrif, sem aldrei hafa máðst út og eru alltaf jafnsterk í hvert skipti sem þau rifjast upp. Ég er einn úr hópi þeirra hundraða, sem stunduðu nám í menntaskólanum á Akureyri er Þórarinn Björnsson kenndi frönsku og latínu í tvo vetur. Kynni okkar urðu aldrei nánari en gerist og gengur milli nem- anda og kennara. Að öðru leyti en því, að við nemendurnir kynntumst Þórarni Björnssyni betur í kennslustundunum en öðrum kennurum. Persónuleiki hans var á þann veg. Eftir að við skildumst við prófborðið vorið 1945 lágu leiðir okkar sjaldan saman og aldrei til nán- ari kynna. En það samband sem tókst milli okkar í skólastofunni þessa tvo vetur hefur samt reynzt svo sterkt, að nú, þegar Þórarinn er látinn, kemur and- lát hans yfir mig eins og harma- fregn. Þórarinn var yfirburðakenn- ari, um það hef ég aldrei heyrt deilt. Hann var þvílíkur yfir- þurðakennari, að af þeim tugum kennara, sem ég hafði á náms- ferli mínum, gæti ég í hæsta lagi hugsað mér að setja tvo honum jafnfætis og var hvor- ugur þeirra íslendingur. Þeir voru reyndar báðir kennarar í raunvísindagreinum. í húman- ískum greinum kynntist ég aldrei kennara er gæti mælt sig við hann. Þessir yfirburðir hans voru auðvitað samtvinnaðir af mörgum þáttum. Sjálfur var hann ljónskarpur svo að fyrir bragðið veittist honum auðvelt að útskýra alla hluti. Þetta eitt hefði þó ekki nægt, ef ekki hefði komið til annar veigamik. ill þáttur í skapgerð hans. Hann var allra manna lítillátastur og samvizkusamastur. Þessi dýr- mæti eiginleiki hans leiddi til bess, að í hverri einustu kennslustund lagði hann sig fram til þess ítrasta, eða þann- ig orkaði það eihlægt á mig að minnsta 1 kosti. í þessu var kannski fólginn sterkasti eigin- leiki hans sem kennara. Þár var ekki verið að draga af sér — og væri skólamálum þjóðar vorrar betúr borgið, ef sá eigin. leiki væri ríkari hjá kennara- stéttinni. Hann ópnaði hug sinn meira en títt er hjá íslendingum. Og það var þessi óvenjulega ein- lægni ásamt því, að honum lá alltaf svo mikið á hjarta, sem olli því, hve sterkt samband var milli hans og okkar sem sátum frammi í skólastofunni. Og auð- vitað var framkoma hans við okkur vegna hins óvenjulega lítillætis alltaf eins og við jafn- ingja. Af því hann gaf í hverri einustu kennskistund svo mikið af sjálfum sér ætlaðist hann til þess sama af okkur. Það var löngum frægt, hve miður sín hann varð, ef við kunnum ekki lexíuna. Þá varð hann óstilltur, greikkaði sporig um gólfið, því auðvitað sat hann ekki í kennslustundum, og þegar verst lét varð hann dálítið önugur. Sem betur fer kunnu menn bet- ur lexíuna hjá honum en öðr- um kennurum. Við þoldum ekki að sjá hann verða miður sín. Þess vegna lásum við fyrir hann iafnvel frekar en sjálfra okkar vegna. Samvizkusemi hans og ósérhlífni orkaði sem sé gagn- kvæmt fram í skólastofuna. Hann var manna mælskastur og málsmekk hans skeikaði ó- gjarna eins og lengst mun minnzt af þýðingu hans á Jó- hanni Kristófer. í tungumála- kennslunni beittj hann þessum hæfileikum óspart. Hann kenndi ekki bara málið heldur sagði okkur frá þjóðum sem töl- uðu það eða höfðu talað og þá einkanlega menningarsögu þeirra. Ég er þeirrar skoðunar, að allra bezt hefðu hæfileikar hans notið sín sem kennara í sögu. í fáum námsgreinum veit égmeiri þ "rf á að kennarar séu það sem á skandinavísku er kallað „overskudsmenneske" sem hann var flestum mönnum fremur. Þórarinn Björnsson ólst að vissu leyti upp undir handar- jaðri Sigurðar Guðmundssonar skólameistara, þess furðumerki- lega skólamanns, sem við höf- um líklega eignazt fáa slíka, og varð svo hægri. hönd hans, er hann kom heim frá námi og gerðist kennari við MA. Það ■mun því flestum hafa þótt eðli- legt, að Þórarinn tæki við skól. anum er Sigurður hætti. Ég hafði ekki kynni af skólameist- aranum Þórarni Björnssyni en ég veit að hann muni hafa sett sér það mark að reyna að láta anda Sigurðar Guðmundssonar svífa þar yfir vötnum. Ekki býst ég við að honum hafi tekizt þáð til fulls, því Sigurður var svo sérstæður persónuleiki og ger- ólíkur Þórarni — og raunar öll- um sem ég hef kynnzt — en enginn var þó líklegri til þess en Þórarinn þrátt fyrir allt. Stundum ræddi Þórarinn við okkur í tímum um það.aðeig- inlega ætti enginn kennari að kenna nema ein tíu ár í einu. Ef hann stundaði kennsluátarfið af því lífi og þeirri sál sem Framhald á 6. síðu. í

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.