Þjóðviljinn - 06.02.1968, Page 5
T
ÞriðjoKlagur 6. febrúar 1968 — Í>JÖÐVTLJ1NN — SlÐA Jj
HancHcnattleikur, 1. deild:
Fram og FH skiidu jöfn á
sunnudagskvöldið, 17—17
Q Á sunnudagskvöld fóru fram tveir leikir í
meistaraflokki karla í handknattleik og áttust
þar viið í öðrum leiknum Íslandsmeistararnir
Fram og FH. Var leikur þessi á vissan hátt nokk-
uð sérkennilegur, þar sem segja má, að Fram hafi
átt mun meira í fyrri hálfleik, en FH-ingarnir
áttu svo meira í þeim síðari. Mikil átök voru ekki
í leiknum þó að viss spenna væri undir lokin.
Þrátt fyrir slœmt veður og
færð voru áhorfendur margir
og var greinilegt að búizt var
við skemmtilegum leikjum, og
það verður ekki sagt að það
hafi orðið vonbrigði fyrir nokk-
um, sem vildi sjá líflegan
hamdknattleik og á köflum tví-
sýnan.
-<S
Akureyri vann
Reykjavík 17:0
Á laugardag var háð bæja-
keppni í ísknattleik milli Ak-
ureyrar og Reykjavíkur. Leik-
urinn fór fram á Akureyri og
sigmðu norðanmenn með mikl-
um yfirburðum 17:0.
Akureyri sigraði
Veslmannaeyjar
Akureyringar sigruðu Vest-
mannaeyinga með yfirburðum i
tveim leikjum 2. deildar hand-
knattleiksmótsins sem fram
fóru á Akureyri um helgina.
f fyrri leiknum voru marka-
tölur 45:19, í þeim síðari 38:11
(20:6).
Það voru FH-ingamir sem
byrjuðu að skora og var það
Geir sem þar var að verki,
skaut í gegn niðri. Það leyndi
sér ekki að það voru jöfn og
sterk Jið sem áttust við, því að
lítið var skorað af mörkum.
Á 7. mínútu skorar Páll fyrir
FH og standa leikar þá 2:0.
Liðnar voru 10 mínútur ]x>gar
Fram skorar fyrsta mark sitt
og var það Gunnlaugur sem
skorar úr vítakasti, og litlu síö-
ar bætir hann öðru viö moð
hörkuskoti úr horni, mjög vel
gert.
Enn h'ða fjórar mínútur þar
til mark er skorað, en það
gerði Birgir íyrir FH eftir sér-
lega góða sendingu frá Geir.
Guðjón jafnar fyrir Fram með
skoti úr víti og örstuttu síðar
taka Framarar forustuna með
vítakasti sem Gunnlaugur tek-
ur. Geir er næmur á smugurn-
ar og jafnar með góðu skoti
niðri í gegn 4:4. Á 20. mínútu
taka Framarar aftur forustuna
með góðu skoti frá Arnari, og
nú virðist sem FH-ingar hafi
misst móðinn, það er eins og
þeir nái ekki saman, sóknar-
leikurinn verður hægari en
þeirn er eðlilegt að leika og
það var svo alvarlegt að þeir
skora ekki fleiri mörk í hálf-
leiknum, en Framarar bæta
þrem við og skora því 4 síð-
ustu mörkin fyrir leikhlé.
Loikurinn jafnast og FH
tekur forustu
Þetta virðist ætia að halda
áfram, því að Sigurður Einars-
son skorar laglega af línu á
fyrstu mínútu leiksins, og þess
má líka geta að Þorstcinn
varði víti frá Einari á síðustu
mínútu fyrri hálfleiks. Nokkru
síðar skorar Páll fyrir FH: 9:5,
Fram í viil. Geir nær óvænt
knettinum og einleikur fram,
og skorar. Virðist leikur Hafn-
firðinga mun líflegri og á-
kveðnari, og eins og Framarar
taki þetta ekki eins alvarlega
og áður. Sigurbergur bætir við
fyrir Fram, en þeir Auðunn og
Páll minnka bilið með sínu
markinu hvor 10:8. Gylfi Jó-
hannsson skorar mark og stað-
an er 11:8 Fram í hag.
Það er greinilegt að FH-ing-
arnir ætla sér að gera Islands-
meisturunum erfitt fyrir, og
taka nú sprett sem um munar,
og fá Framarar ekki rönd við
reist. Þeir sækja mjög íast, og
vöm Framara er einnig ákveð-
in en dómari dæmir 2 víta-
köst í röð og skorar Páll úr
báðum. Og Birgir jafnar svo
með góðu skoti á 11. mínútu
og standa leikar þá 11:11. FH-
ingar láta ekki þar við sitja,
. því að Auðunn og Einar bæta
sínu markinu við hvor og
standa þá leikar 13:11, og liðn-
ar eru 16 min. af síðari hálf-
leik. Var mikil spenna í leikn-
um og skemmtu áhorfendur sér
mjög vel að horfa á bennan
jafna ieik.
Á 18. mín. minnkar Sigur-
bergur bilið, en Geir bætir við
og standa leikar 14:12 og 10
mínútur eftir til leiksloka.
-<S>
Þarna glíma þeir til úrslita Ómar og Gunnar Ingvarsson. Ómar tílfarsson skjaldarhafL
Skjaldarglíma Ármanns:
Ómar Úlfarss. KR sigraði
□ Skjaldarglíma Ármanns, hin 59. í röð-
ínni, var háð í Reykjavík sl. sunnudag. Kepp-
endur voru átta að þessu sinni og bar Ómar
Úlfarsson KR sigur úr býtum.
Ómar hlaut 5 vinninga, en
Gunnar Ingvarsson Víkverja,
sem var í öðru sæti hlautjafn-
marga vinninga. 1 aukagilímu
sigraði Óttnar og hreppti nú
Ármannsskjöldinn i fyrsta
skipti.
1 þriðja sæti var Hannes Þor-
kelsson Víkverja með 4VaVinn.
og Sigtryggur Sigurðsson KR
varð fjórði einnig með 4*/s v.
Sigtryggur er fyrrverandi
skjaldarhafi, hann sigraði i
Skjaldarglímunni 1965, 1966 og
1967.
Nú á 59. Skjaldarglímu Ár-
manns var í fyrsta skiptidæmt
eftir nýjusp keppnisreglum.
Dæmt er víti á FH, og tekur
Gunnlaugur það, en skotið fór
í stöngina, og enn bæta FH-
ingar við er Auðunn skorar og
nú er þriggja marka munur og
um 8 mínútur til leiksloka.
FH-ingar fara ekki nógu var-
lcga og missa knöttinn um of
með ýmsum hætti og nú gera
Framarar sér lítið fyrir og
jafna á 24. mínútu, voru það
Ingölfur, Gunnlaugur og Pétur
sem þar skoruðu.
Litlu síðar er dæmt víti á
Fram, en Páli brást í þaðskipti
bogalistin og skaut framhjá
markinu. Fram fær knöttinn
og Ingólfur skorar 16:15, og
aftur er dæmt víti á Fram, en
nú brást Páli ekki skotið og
jafnar 16:16. örstutt til leiks-
loka, og örlögin virðast ráðin.
Nei. Kristján skorar fallega og
óvænt úr horni 17:16. Framar-
ar sækja sem fastast, og um
það bil sem leikurinn er aö
enda dæmir Magnús Pétursson
víti á FH, strangt dæmt þegar
sækjandi keyrir á brjóstinu
innfyrir línuna. Annars voru
Magnúsi óvenjulega mislagðar
hendur í þessum leik.
Eftir gangi leiksins má segja
að jafntefli hafi verið nokkuð
sanngjörn úrslit. Þó var síðari
hálfleikur FH-inganna heldur
betri en fyrri hálfleikur Fram-
ara, þannig að þeir voru ívið
nær sigrinum. Við þessi úrslit
minnkar heldur spennan í
mótinu, til þess hcfur Fram of
mikla yfirburði í stigum.
Liðin:
Eins og fyrr sagði var leik-
urinn misjafn áf béggjá hálfíi,
þó þæði liðin ættu lakari leik-
kafla en maður á að venjast,
af svo ieikvönum liðum og
jöfnum. Lið Fram er jafnt og
traust, með þá Gunnlaug, Ing-
ólf, Þorstein í markinu og Sig-
urberg og enda Guðjón sem
beztu menn.
FH-liðið var líflegra liðið
yfirieitt, en þeir fengu á köfl-
um ekki það út úr leik sínum
sem búast hefði mátt við, og
sérstaklega í fyrri hálfleik
virtist sóknarleikurinn fatast.
Framhald á 7. síðu.
Haukar unnuKRmeð
yfírburðum—22:16
n. DEILD:
Þróttur vunn
Kefíuvik
Á sunnudagskvöld fór fram
einn leikur í annarri deild i
Laugardalshöllinni, og áttust
þar við Þróttur og Keflavík.
Eftir frammistöðu Keflvíkinga
undanfai-ið var gert ráð fyrir
jöfnum leik og að þeir sunn-
anmenn hefði ekki síður mögu-
leika. Þetta fór á aðra lund,
þeir töpuðu með miklum mun.
Voni þeir mun lákari en t.d.
i leiknum við Ármann umdag-
inn. Féllu ver saman og fengu
knöttinn ekki til að fara leik-
andi á milli, skutu of mikið,
og við það bættist að þeir
gripu ver, og voru ónákvæm-
ari. Við það bættist að þeim
tókst ekki að skora úr 5 víta-
köstum sem þeir fengu, og þar
þarf eitthvað að laga.
Þróttarar virtust hafa yfir-
burði, og ná vel saman. þó
verður leikur þeirra ekki
dæmdur eftir þessari frammi-
stöðu; til þess var mótstaðan of
veik.
í hálflcik var staðan 12:9, en
leiknum lauk með 23:15.
Dómarar voru Jón Frið-
steinsson og Óskar Einarsson.
1 lið KR vantaði Karl Jó-
hannsson og kom fljótt- fram
að hann er þcim alltaf mikils
virði, en hann mciddist svolít-
ið í Ieik KR við Fram um
daginn. Þó var strax og mcst-
allan tímann nokkur spcnua í
Iciknum, og barizt af krafti
og ákafa. .Það cr greinilcgt að
Ilaukum cr að fara fram og
þeir eru að ná sér upp aftur,
cftir slæma byrjun í vctur. KR-
liðið er með marga unga
menn, sem enn hafa ckki feng-
ið þá reynslu sem til þarf.
Það voru þó KR-ingarnir
sem skoruðu fyrsta markið, en
sú forusta stóð ekki lengi því
að næstum á sömu mínútu jafna
Haukar og var Ólafur þar að
verki, en Gísli Blöndal skoraði
fyrir KR. Haukar taka svofor-
ustuna með skoti frá Þórði, en
Hilmar jafnar úr víti. Enn taka
Haukar forustuna mcð skoti frá
Ólafi, og eftir það breikkar
heldur bilið alilt til leiksloka.
KR-ingum tókst aldrei að
hrista Haukana af sér og um
miðjan hálfleikinn standa leik-
ar 6:3 Haukum í vil og í leik-
hléi er staðan 12:8.
Síðari hálfleikur er sterkari
af hálfu Hauka, og léku þeir
oft vel og með töluverðum
hraða, sem setti KR-ingana oft
útaf laginu. Að vísu eiga KR-
ingar við markmannserfiðleika
að stríða, og er það alvarlegt
fyrir eitt lið að ráða ekki yfir
góðum markmanni. Sæmundur
varði þó stundum sæmilega, en
það er líka annað en gaman
þegar vörnin opnast, að standa
berskjaldaður fyrir skotum
mótherjanna, en hið unga KR-
lið kunni ekki nóg á því tökin
að loka vörninni í tæka tíð.
Þetta lið Haukanna er oft
skemmtilega leikandi og ef það
heldur saman og getur farið að
taka þátt í kappleikjum fyrr
en það fær aðstöðu til mú, gæti
það náð langt. Logi lék líka
með Jiðinu, en þess var getið
i blöðum að hann væri að fara
til náms eriendis, en hannmun
að öllum líkindum leika með
Haukum í vetur.
Beztu menn í liði Haukanna
voru Þórður, sem er ört vax-
andi maður, Stefán, Ólafur og
Viðar, sem stjómar liðinu oft
vel og með festu.
í liði KR var Hilmar bezti
maðurinn, og sá sem alltaf má
treysta, Halldór er gott efni,
heldur ör ennþá, en það lag-
ast. Sigurður Óskarsson var á-
gætur, og enda Gísli Blöndal,
sem þó tókst ekki að fylila upp
í eyðuna sem kom við fjarveru
Karls, hitt mun sanni nær að
hann hafi vantað Karl til að
mata sig og gefa traust, en
Gísli er gott efni, en virðist þó
ekki í góðri þjálfun. En sem
sagt KR-liðið er ungt og með
samheldni á það að geta náð
góðum árangri.
Þeir sem skoruðu fyrir Hauka
voru: Þórður 6, Viðar 5, Óiat-
ur og Stefán 4 hvor, Þórarin»
2 og Sturla 1.
Fyrir KR skoruðu Gísli 4 (3
úr víti), Hilmar 4 (2 úr víti)
Gunnar Hjaltason, Geir Frið-
geirsson og Sigurður Óskars-
son skoruðu 2 hver.
Dómari var Óli Ólsen, og
slapp heldur veil frá því.
— Frímann.
S Æ N G U R
Endumýjum gömlu sæng-
urnar, eigum dún- og fið-
urheld ver og gæsadúns-
sængur og kodda af ýms-
um stærðum.
Dún- og
fiðurhreinsun
Vatnsstig 3. Simi 18740.
(örfá skref frá Laugavegi)
FRÍMERKI- FRÍMERK!
innlend og erlend í úrvali.
Útgáfudagar
margt fleira.
Verzlun GUÐNÝJAR, Grettisgötu 45.
Innstungubækur — Tengur og
Verðig hvergi lægra.
ABAIFUNDUR
Byggingasamvinnufélags atvinnubifreiðastjóra
verður haldinn þriðjudaginn 13. febrúar n.k. að
Skipholti 70 og hefst kl. 20,30 stundvíslega.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjómin
i