Þjóðviljinn - 15.02.1968, Síða 1
Fimmtudagur 15. febrúar 1968 — 33- árgangur — 38- tölublað.
Eindreginn stuðningur viðASl
□ Fundur í Sósíalistafélagi
Reykjavíkur haldinn í gærkvöld
samþykkti einróma þessa álykt-
un:
„Fundur lialdinu í Sósíalista-
félagi Reykjavíkur 14. febr 1968
ítrekar enn eindregið fylgi sitt
við samþykktir ASÍ um kjara-
mál, og heitir stéttarsamtökum
alþýðunnar öllum þeim stuðn-
ingi, sem félagið hefur yfir að
ráða, til að knýja fram kröfur
samtakanna um bætt launakjör
og atvinnu.
Fundurinn skorar á forystu
"erkalýðssamtakanna að vinda
bráðan bug að því, að megin-
kröfur hinna ýmsu verkalýðsfé-
laga verði samræmdar eins og
kostur er, sem og aðgerðir
þeirra til að fá kröfunum fram-
gengt“.
!<•>-
Frumvarp um breytingu á lögunum um atvinnuleysistryggingar
Bótagreiðslur til atvinnulausra
verði 70-80% af dagkaupinu
□ Sex alþingismenn úr Alþýðubandalaginu og
Framsóknarflokknum flytja á Alþingi frumvarp
um breytingar á lögunum um atvinnuleysistrygg-
ingar, og eru aðalatriði breytinganna þessi:
1. Bótagreiðslur verði hækkaðar, þannig, að þær
nemi eigi lægri upphæð á viku fyrir kvæntan
mann, en sem nemur 80% af vikukaupi verka-
manns í Reykjavík fyrir dagvinnu og 70% af
sama vikukaupi fyrir einhleypan mann.
Hámark bóta á viku til einstaklings, ásamt
bótum vegna bama, megi vera sama upphæð
2.
og vikukaup verkamanns í Reykjavík fyrir dag-
vinnu.
Numið verði úr lögunum það ákvæði sem skil-
yrði fyrir bótagreiðslu, að menn hafi ekki á síð-
ustu sex mánuðum haft tekjur, sem fara fram
úr vissu hámarki.
Atvinnuleysisbætur verði greiddar til allra
vinnufærra manna, sem lögin taka til og at-
vinnulausir eru, einnig þótt þeir séu orðnir 67
ára og njóti ellilífeyris.
!
i
i
*
Víðtæk leit gerð út af Vestfjörðum:
Mb Trausta frá Súðavík
saknað - 4 menn um borð
□ Um fjörutíu bátar, flugvél Landihelgisgœzlunn-
ar TF-SIF, flugvél Bjöms Pálssonar TF-VOR og varð-
skipið María Júlía leituðu í gær að Mb. Trausta
frá Súðavík, en leitin hafði ekki borið árangur er síð-
ast fréttist.
□ Á Mb. Trausta eru fjórir menn; skipstjórinn er
frá Isafirði, einn skipverja er úr Ögurhreppi og hinir
tveir eru búsettir á Súðavík.
Mb. Trausti ÍS-54 er 40
lesta éikarbátur, smíðaður í
Reykjavík 1956 02 er eig-
andi hans Þorgrímur h.f. á
Súðavík. Báturinn fór I róður
á mánudagskvöldið og var
búizt við honum aftur til
Súðavíkur á þriðjudagskvöld-
ið.
Milli kl. 16.30 og 17 á
þriðjudaginn hafði Mb. Guð-
ný frá ísafirði samband við
Trausta. Voru skipverjar á
Trausta þá hættir að draga
Iínu og lagðir af stað áleið-
is til lands. Ætluðu þeir að
hafa s-amband við Guðnýju
seínna um daginn en síðan
hafa þeir ekki svarað kalli.
Lesin var upp tilkynning á
ensku og íslenzku gegnum
Ísafjarðarradíó og skip . á
þessum slóðum beðin að svip-
ast um eftir, Trausta. Sömu-
leiðis var Trausti beðinn um
að sv-ara kalli í neyðartal-
stöð en það bar ekki árang-
ur.
Er Mb. Guðný hafði sam-
band við Trausta var síðar-
nefndi báturinn staddur 27
sjómílur frá Galtarvita og
3072 sjómílu frá Riti. Var
leit hafin um kl. 20 á þriðju-
dagskvö'ld og þá leitað SV af
þeirri staðarákvörðun sem
báturinn gaf upp síðast. Tóku
margir bátar þátt í leitinni
á þriðjudagskvöldið og i gæ/
var leitinni haldið áfram
fram i myrkúr. Eins og fyrr
segir hefur verið leitað á
stóru svæði út af Vestfjörð-
um og var áformað að halda
leitinni áfram í dag. í gær
var gengið á fjörur og bátar
sigldu grunnt með ströndum.
Eitthvert brak fannst um 40
sjómílur út af Kóp en ekk-
ert benti til að það væri úr
Trausta.
Veðrið á þessum slóðum var
sæmilegt á þriðjudaginn, vest-
læg átt, þar til um kl. 14,
þá gerði snöggt áhlaup og
um kl. 17 voru komin 8-9
vindstig á norðaustan og frost.
Sjólag var mjög slæmt og
fékk vélbáturinn Dan, 85 lest-
ir að stærð, á sig brotsjó á
svipuðum slóðum. Fylgdi
Mb. Guðný bátnum til hafn-
ar. Lentu fleiri bátar í hrakn-
ingum út af Vestfjörðum.
Leit,arskilyrði voru ákjós-
anleg í gær, hagstæft veður
var til leitar bæði úr lofti
og af sjó.
>
I
!
Bandaríska flugvélin talin gereyðilögð
Dýrmætum mælitækjum
var bjargað óskemmdum
Eins og frá var sagt hér í blað-
inu í gær hlekktist bandarískri
Skymaster-flugvél á í lendingu á
Reykjavíkurflugvelli í fyrra-
kvöld, rann flugvélin út af enda
flugbrautarinnar við Nauthólsvík
og út í sjó að framanverðu.
Sigurður Jónsson yfirmaður
loftferðaeftirlitsins skýrði Þjóð-
viljanuín svo frá í gær, að orsök
slyssins myndi hafa verið sú, að
snögglega hefði setzt mikil ísing
á flugbrautina, vair úrkoma rétt
áður en flugvélin lenti en frost
hefur verið niðri við jörð og úr-
koman því orðið að ísingu eða
svelli um leið-
Framhald á 3. síðu.
Flutningsmenn frumvarpsins
eru Geir Gunnarsson, Jón Snorri
Þorleifsson, Ragnar Amalds, Sig-
urvin Einarsson, Þórarinn Þórar-
insson og Stefán Valgeirsson.
Lagt er m.a. til að 18. gr. lag-
anna orðist svo:
Atvinnuleysisbætur skulu vera
kr. 248.00 á dag fyrir einhleypan
mann, kr. 284 00 á dag fyrir
kvæntan mann log kr. 24.00 á dag
fyrir hvert/barn yngra en 16 ára,
sem er á fullu framfæri bóta-
þega.
Hámark bóta til einstakilinga
að meðtöldum bótum vegna
barna má nema kr. 356.00 á dag.
Ofanskráðar upphæðir eru
grunnupphæðir og skulu fylgja
breytingum, sem verða kunna á
2 kauptaxta Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar í Reykjavík.
Eigi má gera fjárnám eða lög-
tak í bótafé samkv. lögum þess-
um né halda því til greiðslu op-
inberra gjalda.
Sjóðurinn eign verka-
lýðsfélaganna
í greinargerð segir:
Lög um atvinnuleysistrygg-
ingasjóð voru sett 1956 sem þátt-
ur í lausn hinna miklu vinnu-
deilna, er urðu á árinu 1955.
Samþykktu verkalýðsfélögin þá
að draga úr kröfum um Eauna-
hækkun gegn því, að byggður
yrði upp atvinnuleysistrygginga-
sjóður með iðgjöldum atvinnu-
rekenda og framlögum úr ifkis-
Sjóði og sveitarsjóðum, sem færð
yrðu á sérreikning viðkomandi
stéttaifélaga.
Á undanförnum árum hafa ið-
gjöld sjóðsins hlaðizt upp, þar
sem naumast hefur verið um at-
vinnuleysi að ræða, nema á
stöku stað úti á landr,- og er at-
vinnuleysistryggingasjóður nú
stærsti sjóður landsins. Munu
eignir hans nema meir en 1 þús.
milj. króna.
Nytsemi sjóðsins hefur t.il
þessa einkum komið fram í því,
að fé hans hefur verið lánað til
atvinnuuppbyggingar víðs vegar
um landið. Nú þegar atvinnu-
leysi er tekið að herja á ný í
ríkum mæli, reynir á, hver raun-,
verullegur styrkur verkafólki er
að þessari eign sinni til trygg-
ingar daglegri afkomu. Án efa
hefur mönnum almennt komið á
óvart, hversu knappar þær
greiðslur eru, sem lögin gera ráð
fyrir, að atvinnuleysingjar fái úr
sjóðnum, en samkvæmt þeim
reglum nema atvinnuleysisbætur
til einhleypra 823 kr. á viku, en
hámarksgreiðslur til f^plskyldna
nema 1256 kr. á viku. Miðað við
núgildandi verðlag á neyzluvör-
um og húsnæði fer því mjög
fjarri, að þessar upphæðir geti
talizt nálgast það að vera nægi-
Framhald á 3. síðu.
StoliS skart-
gripum fyrir
56 þús. kr.
í fyrrinótt var stolið úr
sýningarglugga skartgripa-
verzlunar Steinþórs og Jó-
hannesan að Laugavegi 30
verðmætum skartgripum
sem þar var stillt út. Var
rúða gluggans brotin og
hirt mestallt sem í honum
var.
Vann rannsóknarlögregl-
an í gær að rannsókn á
þjófnaðinum, en ekkert
hafði þá komið fram sem
bent gæti til hverjir hér
hefðu verið að verki.
Lögreglunni var tilkynnt
um innbrotið kl. 2.35 um
nóttina og var það kona í
húsinu á móti verzluninni,
sem heyrt hafði brothljóð-
in og hringdi þegar í stað
til lögreglunnar, en þegap
komið var á staðinn vorú
þjóf arnir horfnir. Höf ðu
þeir ekki gefið sér tíma
til að fara inn í verzlun-
ina. en hirt það sem þeir
náðu úr glugganum með
góðu móti. karlmanna- og
kyenguílhrmgjum með dýr-
mætum steinum og mjög
verðmætu hálsmeni, sam-
tals að verðmæti 56.585.00
krónur.
Umbúðirnar utan af
hringjunum fundust í húsa-
sundi við Hallveigarstíg, en
annað hefur ekki fundizt.
Samdráftur í atvinnulífinu:
Sindri h.f. hefur
sagt upp 10 manns
□ Eitt af traustustu fyrirtækjum borgarinnar feindri h.f.
sagði upp tug af starfsfólki sínu í gærdag og er það ein-
göngu gert í varýðarskyni, ságði Einar Ásmundsson, for-
stjóri í viðtali við Þjóðviljann 1 gærdag.
Hér er um að ræða fólk með
þriggja mánaða uppsagnarfrest,
eins og skrifstofustúlkur, bíl-
stjórar og fleiri, sagði Einar.
Því miður eru slík teikn á
lofti, sagði Einar — að okkur ‘
þykir réttara að vera við öllu
búnir og standa til dæmis ekki
uppi með fólk með svona lang-
an uppsagnarfrest, ef þrengist
um verkefni.
Þannig heldur samdrátturinn
áfram í atvinnulífi borgarinnar
og hefur Verið mikið um upp-
sagnir á fólki hjá ólíklegustu
fyrirtækjum. Mörg af þessum
fyrirtækjum hafa gjarnan þann
hátt á að segja upp einum til
tveimur mönnum í einu til þess
að forða sér frá athygli og um-
tali. Hafa þau verið að mylgra
út þessum uppsögnum á starfs-
fólki sínu á undanförnum vikum.
Aðild íslands
uð GATT
Á dagskrá Alþingis i gær var
m.a. tillaga ríkisstjórnarinnar
um að Alþingi heimili ríkis-
stjórninni að gerast fyrir ís-
lands hönd aðili að „hinu al-
menna samkomulagi um tolla
og viðskipti" sem kunnugt er
undir skammstöfuninni „GATT“,
og bókun þeirri sem við það
samkomulag sem gerð var 30.
júní sl. og kennd er við Genf.
Viðskiptamálaráðherra Gylfi
Þ. Gíslason fluttí ýtarlega fram-
söguræðu, en að henni lokinni
var málinu vísað til allshcri-
arnefndar.
Ntikii atvinnuleysi
er ná á SeySisfirði
★ í öndverðum mánuðinum voru
sextán manns skráðir hér at-
vinnulausir, sagði Gísli Sig-
urðsson, bæjarfulltrúi á Seyð-
isfirði í viðtali við Þjóðvilj-
ann í gærdag.
★ Senn er allri síldarvinnu lok-
ið hér í Seyðisfirði og kemur
þá tala atvinnulausra manna
til með að hlaupa upp úr
öllu valdi, sagði Gísli.
★ Almennur borgarafundur var
haldinn hér nýlega til þess að
ræða um atvinnumálin. Þar
kom fram meðal annars til-
iaga um að beina því til
stjórnar S.R. að láta Haförn-
inn flytja loðnu hingað til
bræðslu í síldarverksmiðj-
unni, en hún hefur þegar
auglýst móttöku á loðnu til
bræðslu.
»
★ Annars er illt útlit hér 1 at-
vinnumálum í vetur og horf-
ir mjög iskyggilega út með
atvinnu fyrir fólk. Fiskiðju-
ver í eigu ríkisins er í lama-
sessi og þegar síldinni slepp-
ir er atvinnulíf hér í kalda
koli, sagði Gísli að lokum.
1