Þjóðviljinn - 15.02.1968, Page 9
Fimmtudagur 15. febrúar 1968 — X>JOÐVTLJINN — SÍÐA 0
Afstaða íslam/s til EFTA
Frarah. af 7. síðu.
baxátta an völd og leiðir og
búast iriegi við sambræðslu V-
Evrópu áður en Nató-samning-
urinn er úti.
EETA er samsett af sundur-
leitum pg ólíkum löndum,se!m
a£ ýmsum ástæðum töldu sig
ekki eiga leið með EBE í upp-
hafi. Brezka stjómin óttaðist í
upphafi hrun brezka heimsveld-
isins og neikvæð áhrif á land-
búnaðinn. Svfþjóð, Austurríki og
Sviss töldu EBE-aðild ekki sam-
rýmast hlutleysisstefnu. sinni.
Norðurlönd standa á fornum og
rótgrónum viðskiptasambönd-
um við Bretland. Og Portúgal,
sem sömuleiðis hefur lotið á-
hrifum Bretlands, taldi sér
hentugra vegna veikrar efna-
hagsstöðu, að halla sér að efna-
hagsheild, sem meira svigrúm
gefur en EBE. Þó að Portúgal
viðhalldi ennþá nýlendukúgun i
sinni fomu mynd og stjómi op-
inberlega hinum svokölluðu
.,overseas provinces“, nær
EPTA-samningurinn ekki frem-
ur en hjá Bretum til hinna fjar-
liggjandi yfirráðasvaeða.
Bæði að því er varðar upp-
byggingu og takmark er EFTA
mjög frábrugðið EBE.
Samkvæmt Rómarsáttmálan-
um myndar EBE tollabandalag,
sem þróast skyldi í eitt sam-
eiginlegt efnahags- og gjald-
eyxisbandalag. Samkvæmt hug-
myndum frumkvöðlanna skyldi
það þróast í sterka stjórnmála-
einingu. Það mikilvægasta i
uppbyggingu EBE er þó tví-
mællalaust ákvörðunarréttur í
höndum „yfirþjóðlegra“ stjórn-
arstofnana Bandalagsins, fram-
kvæmdastj&rnar og dómstóls,
sem bindandi er fyrir aðildar-
ríkin, þ.e. vald, sem stendur
sjálfsákvörðunarrétti aðildar-
ríkjanna ofar og getur gripið
inn í ýmsa mikilvæga þætti i
innan- og utanríkismálum með-
limanna. <
Stokkhólmssáttmáli EFTA
kveður hinsvegar einungis á
um fríverzlunarsvæði með
auknum innri viðskiptum og
verzlunarhagræði. Báðir aðilar
hafa afnám innri tolla að
stefnumarki. Samkvæmt á-
kvörðunum EFTA geta aðiidar-
ríkin ákveðið sjálf tolla, verzl-
unarhöft og verzlunarpólitík
gagnvart öðrum en aðildarríkj-'
unum og rekið sjálfstæða póli-
tík. Rómarsáttmálinn kveður
hinsvegar á um sameiginlega
tolla, bæði inn á við og út á
við og myndar sameiginlegan
tollamúr.
Æðsta og um leið hiö eina
stjórnarráð EFTA er hið svo-
kallaða EFTA-Ráð, sem kemur
reglulega saman. Það er sam-
sett af fulltrúum allra meðlima-
ríkjanna. Andstætt því, semer
í EBE hefur sérhvert land ein-
ungis eitt atkvæði. Valdahlut-
föll eftir stærð eða smæð að-
ildarríkjanna er ekki til sam-
kvæmt lögum EFTA.
Efta ráðið starfar á tvennum
vettvangi:
a. á vettvangi fastanefndar-
innar í Genf
b. á vettvangi EFTA-ráð-
herraráðsins, sem kemur
saman eftir þörf nokkrum
sinnum á ári í Genf eða
höfuðborg einhvers EFTA
landsins.
Ákvarðanir Ráðsins eru að
vísu bindandi fyrir öll aðild-
arríkin, en þær verða að vera
einróma samþykktar ef þær
eiga að færa meðlimunumnýj-
ar skyldur. Þó dugar meiri-
hluti atkvæða, ef um er að
ræða undanþágur frá skyldum
eða undanþágureglugerð.
Hinn lögbundni neitunarrétt-
ur allra aðildarríkjanna í öll-
um meiriháttar málum sem og
sá stofnskrárbundni réttur að
segja sig úr samtökunum: með
12 mánaða fyrirvara aðgreinir
EFTA algjörlega frá. stóra bróð-
ur, EBE.
Þá má að lokum geta þess
mismunar milli þessara stofn-
ana, sem fram kemur í land-
fræðilegri legu og samsetningu.
Hin 6 EBE ríki mynda eitt
samfellt efnahagssvæði; EFTA
ríkin hinsvegar liggja á dreif
umhverfis.
1 EBE eru (tvö stór imperial-
ísk ríki, V-Þy2kalandogFrakk-
land, sem að vísu berjast um
völdin innan bandalagsins, en
standa sem jötnar yfir hinni
tiltöluilega efnahagslega veiku
Italíu log smáríkjunum þremur.
Valdabrölt V-Þjóðverja og
Frakka styrkir þó að nokkru
leyti stöðu smáríkjanna.
í EFTA eru hinsvegar 7smá-
ríki gegn einu stónveldi, sem
kemur vilja sínum fram á flest-
um sviðum. Hin dreifða lega
smáríkjanna og ólík innri sam-
setning stuðlar að drottnunar-
valdi Bretlands í samtökunum.
Til glöggvunar má geta þess
að iðnaðarframleiðsla allra
EFTA smárikjanna nemur að-
eins helmingi þeirrar þrezku.
í EFTA-löndunum er talsvert
hærri lífsstandard og hærri
meðaltekjur á íbúa. En hvað
snertir efnahagslega og póli-
tíska stöðu er EBE hinnsterki.
Það hefur m.æ helmingi fleiri
fbúa, um 65% hærri heildar-
þjóðartékjur, talsvert meiri iðn-
aðar- og landbúnaðarfram-'
leiðslu og um helmingi meiri
utanríkisverzlun.
★
(Annar hiluti birtist í stinnu-
dagsblaði Þjóðviljans).
Sængrurfatnaður
HVÍTUR OG MISLITUR
- * -
ÆÐARDpNSSÆN GUR
GÆS ADÚNSSÆN GUB
DRALONSÆNGUR
— * —
SÆNGURVER
LÖK
KODÐAVER
Skólavörðustig 21
Klapparstíg- 26
Simi 198Q0
BUÐIN
Condor
Nýkomið
BAÐMULLARGARN
í 12 falleguim litum.
Verzlun H. TOFT
Skólavörðustíg 8.
FRlMtRKI—FRÍMíRKl
‘ I ' • ’ . *
innlend og erlend i úrvali.
Útgáfudagar — Innstungubækur — Tengur og
margt fleira. — Verðið hvergi Lægra.
Verzlun GUÐNÝJAR,/ Grettisgötu 45.
Konan mín
ÓLAFÍA STEPHENSEN
andaðist í Borgarsjúkrahúsinu aðfaranótt 14. febrúar.
/þróttír
Framhald af 4. síðu.
Það var því varla við þvi að
búast að þessi fundur yrði þess
umkominn að finna neinalausn
á þessum vanda knattspymunn-
ar, enda kom það fram að
menn vildu lítið um þetta taila,
og urðu um það litlar umræð-
ur, góðu heilli að ég held.
Reynir Karlsson flutti þarna
skrifaða ræðu, sem ekki var
sérlega sannfærandi, en hann
hefur það sér til afsökunar,
að á hann og Sæmund Gísla-
son hefur verið svolítið ráðizt
ómaklega í þessu sambandi.
Þá tók til máls Ríkarður
Jónsson og kom víða við. og
benti á ýmisilegt sem betur
mætti fara í knattspyrnumálum
okkar.
Hann hélt því 'fram að við
kæmumst ekki lengra nema að
gerðar væru ýmsar breytingar
á þessum málum, fylgzt væri
betur með þjálfun manna en
gert er af ráðandi mönnum.
Hann taldi að landsliðsmenn
margir hverjir á undanf. árum
hefðu ekki ■ verið í forsvar-
anlegri bjálfun. Ef menn mega
ekki vera &ð þessu þá eigum
við að taka þá sem hafa tima
og vilja, en það eru þeir sem
við þurfum. Það er enginn
vandi að komast í þjálfun, það
er aðeins vilji sem til þarf.
Þá benti Ríkharður á hinn
langa vinnudag sem svo marg-
ir hafa orðið að vinna, sem
truflað hefur æfingar, og þreytt-
ur maður getur ekki Hagt eins
að sér og sá sem óþreyttur er.
Þá ræddi Ríkharður um þess-
ar stöðugu breytingar á kapp-
leikjaskránni og taldi það trufla
keppnistímabilið, og sagðist
vilja að einn sérstakur dagur
yrði tekinn fyrir kappleiki, t.d.
laugardagur. Hann gat þess að
oft liðu nokkrar vikur án þess
að félag léki, en önnur væru þá
að leika í hverri viku.
Hann gat þess að sér fyndist
eðlilegt að Reykjavíkurmótið
yrði látið víkja fyrir landsmót-
inu. Ég vil ekki að við úti á
landsbyggðinni bíðum meðan
Reykvíkingamir eru að leika
sér í Reykjavfkurmótinu, sagði
hann.
Það er oft svo að þegar eitt-
hvað kemur fyrir í knattspymu
okkar, að þá eins ög verði að
krossfesta einhvem sem sára-
bót, en þetta er ekki rétt. Það
skiptir ekki máli með þennan
leik, sem hér er til umræðu.
hann breytir engu, ef við höld-
um áfram á sömu braut. Ég
vona að allir sem hér eru séu
einhuga um að leysa þetta mál,
sagði hann.
Að lokum sagði Ríkarður að
hann treysti því að næsta stjóm
taki þetta mál fyrir og aðhaf-
ist eitthvað sem markar spor.
Hermann Hermannsson ræddi
nokkuð um leikaðferðir o.fl. og
benti á viðbrögð nokkurra
þjóða þegar syrti í álinn hjá
þeim knattspymulega.
Þannig féllu frekari umræð-
ur niður um þetta máll, sem
eigi að síður bfður úrlausnar og
áætlana næstu stjórnar KSl.
I heild var fundur þessi
skemmtilegur, og áhugi manna
var greinilegur fyrir erindi hins
danska gests, sem var þökkuð
koman hingað og ámað góðrar
heimferðar.
Frímann.
SIGURÐUR
BALDURSSON
hæstaréttarlögmaðuT
LAUGAVEGI 18. 3. hæð
Símar 21520 og 21620.
Auglýsingasími
Þjóðviljans er
17 500
INNHeiMTA
LÖOFKÆVt&Tðfí*
Mávahlið 48. — S. 23970 og 24579.
úr og skartgripir
JQDRNELfUS
JÖHSSON
skúlapörúustig 8
S Æ N G U R
Endumýjum gömlu sæng-
urnar. eigum dún- og fið-
urheld vei og gæsadúns-
sængur og kodda af ýmg-
um stærðum
Dún- og
fiðurhreinsun
Vatnsstig 3. Sími 18740.
(örfá skref frá Laugavegi)
éSKATÆKI
Fjölskyldunnar
Sambyggt
útvarp -sjónvarp
GRAND FESTIVAL
23” eða 25"
KRISTALTÆR MYND OG HLJÓMUR
• MeS lnnbyggðri skúffu
fyrir plötuspilara
• Piötugeymsla
• Ákaflega vandað verk, — byggt
með langa notkun fyrir augum.
• Stórt útvarpstæki með 5 bylgjum,
þar á meðal FM og bátabylgju.
• Allir stillár fyrir útvarp og
sjónvarp í læstri veltihurð
• •ATHUGIÐ, með einu handtaki
má kippa verkinu innan úr
tækinu og senda á viðkomandi
verkstæði — ekkert hnjask með
kassann, lengri og betri ending.
ÁRS ÁBYRGÐ
Fást víöa um iand.
AðalumboS:
EINAR FARESTVEIT & CO
Vesturgötu 2.
VB ER óezt
KHRK3
VAUXHALL
BEDFORD
UM BOÐIÐ
ÁRMÚLA 3 SÍMI 38900
O SMURT BRAUÐ
Q SNITTUR
□ BRAUÐTERTUR
éNACKBÁR
Laugavegi 126
Sími 24631.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
ÖNNUMST ALLA
HJÖL6ARÐAÞJÖNI1SIU,
FLJBTT 06 VEL,
i MED NÝTÍZKU T/EKJUM
bílastæd:
HJÓLBflRÐflVIÐBERÐ KÓPflVOGS
Kársnesbraut I - Sími 40093
Kristinn Björnsson.