Þjóðviljinn - 15.02.1968, Blaðsíða 12
Tíðar uppsagnir
hjá gosdrykkja-
verksmiðjum
A dögunum sagði Sanitas
b.f. upp tug af starfsfólki
sinu og var það einkum fólk
með lengri uppsagnarfrest,
sagði Björn Þorláksson, fram-
kvæmdastjóri í viðtali við
Þjóðviljann í gærdag.
Við höfum orðið að fara
út á þessa braut vegna óvRsu
í iðnaðinum. Hafa þar ýmsir
þættír áhrif á reksturinn eins
og rekstursfjárskortur og
verðlagsákvæði á framleiðslu-
vörum okkar, sagði Björn.
Mörg fyrirtæki í borgfinni
hafa þennan hátt á málum að
segja nú upp hluta af starfs-
fólki sínu vegna óvissu um
hag fyrirtækisins á næstu
vikum og vilja ekki sitja uppi
með marga menn á til dæmis
þriggja mánaða uppsagnar-
fresti.
Þá hefur ölgerð Egils
Skallagrímssonar h.f. sagt upp
22 af starfsfólki sínu og
vissulega er ekki ástæðulaus
þessi svartsýni hjá fyrirtækj-
um. ,
Lögregluþjoitn
féll á hálku
Reykvískir lögregluimenn sóttu
1 gærkvöld starfsbróður sinn suð-
ur í Kópavog og fluttu hann á
Slysavarðstofuna. Maðurinn,
Magnús Daníelsson var að fara
inn í hús við Hlíðarveg er hann
féU á hálku, kom þungt niður
og handleggsbrotnaði.
Ný þingsköp Alþingis
□ Flutt var á Alþingi í gær frumvarp um breytingu á
lögunum um þingskop Alþingis, og eru flutningsmenn úr
öllum þingflokkunum, Sigurður Bjamason, Benedikt Grön-
dal, Þórarinn Þórarinsson, Lúðvík Jósefsson og Jón Skafta-
son. ’ _
Felur frumvarpið, sem samið
er af milliþinganefnd, i sér all-
ýtarlegar breytingar á þingsköp-
um, og eru þessar talldar helztar
í greinargerð frumvarpsins.
1. Lagt er til, að kjörbréfanefnd
verði kosin fyrir alllt kjör-
timabilið. >
2. Lagt er til, að ef sæti efri
deildar þingmanns losnar og
varamaður tekur sæti á þingi
skuli sá þingflokkur, er skipa
á sætið, tilnefna mann úr
sínum flokki til efri deildar.
3. Lagt er til, að nefndarmenn
í utanríkismálanefnd verði
bundnir þagnarskyldu um þá
vitneskju, sem þeir fá í
nefndinni, ef formaður eða
ráðherra kveður svo á.
4. Sett eru nú og fyllri ákvæði
um skýrsllur, sem ráðherrar
óska að gefa Alþingi, og um
rétt þingmanna til þess að
óska slfkra skýrslna.
5. Ákvæðin um fyrirspumirí í
sameinuðu Alþingi eru gerð
fyllri en nú er og stefnt að
því að gera umræður um
þær nokkru styttri og hnit-
miðaðri. Er lagt til, að munn-
legar fyrirspumir vérði tekn-
ar fýrir á sérstökum fundi í
sameinuðu Alþingi, þannigað
þær dragi þar ekki um of
tíma frá öðrum þingmálum.
Þá er lagt til, að það ný-
mæli verðd tekið upp, að
þingmenn geti borið fram
Norðurlandsáætlunin var enn
til umræðu á Alþingi í gær
skriflegar fyrirspurnir, er ráð-
herrar svara síðan skriflega.
6. í sambandi við útvarps- og
sjónvarpsumræður er lagt til,
að það nýmæli verði tekið
upp, að útvarpa skuli innan
tveggja vikna frá þingsetn-
ingu stefnuræðu forsætisráð-
herra og umræðum um hana.
Er þá gert ráð fyrir, að slík-
ar umræéur komi i staðinn
fyrir útvarp fjárlagaræðu og
umræðum um hana. Þá er
lagt til, að á síðari hluta
hvers þings skuli útvarpa al-
mennum stjórnmálaumræð-
•um, er standi í eitt kvöld.
Skulu þessar umræður koma
í staðinn fyrir eldhúsdags-
umræður og Verða því all-
miklu styttri en þærhafaver-
, ið.
7. Þá er lagt tiH, að það nýmæli
verði tekið upp, að ef Ríkis-
útvarpið óskar að útvarpa
umræðum frá Alþingi eða
hluta af umræðum, þá verði
það heimilað, að höfðu sam-
ráði við formenn þingflokka.
ðlfar Þormóðsson
formaður Aljiýðu-
bundal. Suðurn.
Aðalfundur Alþýðubandalags-
ins á Suðurnesjum var haldinn
sunnudaginn 4. febrúar sl. í Að-
alveri í Keflavík.
Á fundinum fóru fram venju-
leg aðalfundarstörf og voru eft-
irtaldit menn kjörnir í stjórn
fyrir næsta starfsár^ Formaður
Úlfar Þormóðsson, varaformað-
ur Gylfi Gunnarsson, ritari Odd-
bergur Eiríksson, gjaldkeri Grét-
ar Haraldsson. meðstjórnendur
Sigurður Brynjólfsson, Ari Ein-
arsson og Sigurður Hallmanns-
son. Varamenn í stjórn eru Karl
Sigurbergsson, Bjarni Einarsson
og Sveinn Pálsson.
Fimmtudagur 15. febrúar 1968 — 33. árgangiur — 38. tölublað.
Götur í Reykjavík
eru nú 380 talsins
Kleppsvegur fjölmennasta gatan
□ í Reykjavík eru nú 380
skráðar götur samkv. skýrslu
frá Hagstofu fslands sem
Þjóðviljanum hefur borizt.
Við þessar götur eru alls
heimilisfastir 38.972 karlar
og 40.841 kona, samt. 79.813
en þar af 'eru fjarverandi
1.177 og skráðir aðseturs-
menn eru 1.460.
Á Alþingi urðu í gær enn
nokkrar umræður í fyrirspuma-
tíma um Norðurlandsáætlun.
Taldi Ragnar Arnalds ófull-
nægjandi hugmyndir fjármála-
ráðherra um Norðurlamdsáætlun,
Síðasta umferð
tefld I kvöld
í kvöld verður tefld síðasta
umferð i meistaraflokki á skák-
þingi Reykjavíkur og er staðan
1 riðlunum nú þessi að loknum
biðskákum er tefldar voru í
fyrrakvöld.
A-riðill: 1. Guðmundur Sigur-
jónsson 8V2; 2. Gunnar Gunnars-
son 7%; 3. Björgvin Vilmund-
arson 6; 4. Benóný Benediktsson
5; 5. Jón Pálsson 4V2; 6. Andrés
Fjeldsted 4; 7. Jón Þorvaldsson
Framhald á 3. síðu.
að hún ætti fyrst og fremst að
vera almenn „kortlagning á
varrflamálum“ atvinnulifsins þar
nyrðra. Hitt væri brýnna að
gera áætlun um atvinnulega 1
uppbyggingu einstakra staiða-
Fólk væri orðið . fjárvana til
stórframkvæmda; Það sem gera
þyrfti væri að ákveða og skipu-
leggja atvinnufyrirtæki, sem
tryggt gætu fólki vinnu þó afla-
leysisár kæmu.
Fjármálar^herra Magnús Jóns-
son taldi hins vegair að þetta
gæti farið saman, að gerð væri
heildaráætlun um vandamál
landshlutans og jafnframt að
tekin væri til athugunar at-
vinnuuppbygging einstakra staða.
En hann taldi að sú atvinnu-
uppbygging ætti að koma frá
einstaklingum og félagssamtök-
um og sveitarstjómum á stöðun-
um sjálfum; ríkið ætti fyrst og
fremst að veita ’ fjárhagslegan
stuðning.
Mastraskógur
i Rvikurhöfn
Heldur hefur verið dauft yfir
vertíðinni það setti aif er. 1 fyrstu
var beðið eftir fiskverðinu og
frystihúsin tóku ekki á móti
fiski fyrr en ríkisstjómin hafði
gert þeim úrlausn. Siðan róðr-
ar hófust hafa hins vegar verið
stopular gæftir enda tíð verið
mjög umhleypingasöm að und-
anförnu. Bátarnir liggja því oft
hópum saman og er yfir aið sjá
eins og heill mastraskógur í
höfninni eins og myndin hér að
ofan sýnir. — (Ljósm. Þjóðv.
A. K.).
Fjölmennasta gatan i Reykja-
vík er Kleppsvegur með 2.386
íbúa. Næstar koma Hraunbær
með 2.255 íbúa og Háaleitis-
braut með 2.086 íbúa. Við Álfta-
mýri búa 1.374, við Langholts-
veg 1.335, við Álfheima 1.303 og
við Hvassaleiti 1.042. Eru þess-
ar tölur miðaðar við 1. des-
ember, 1967.
Allmargar götur eru með fá-
um eða engum íbúum, eru það
ýmist verzlunargötur eða smá-
stígar. Af þessum götum má
nefna til gamans: Ármúla, þar
er einn karlmaður heimilisfast-
ur. Við Bolholt á enginn lög-
heimili, en þar eru 5 skráðir
aðsetursmanna. Við Efstaland búa
þrír, tveir karlar og ein kona,
við Flugvallarveg býr einn karl-
maður og þrír íbúar eru við
Kringlumýrarblett. Einn karl og
ein kona eru einu íbúamir við
Laugamýrarblett og einn karl-
maður býr við Laeikjarteig. Marg-
ar. fleiri götur eru með frá 0-10
íbúum eða alís um 50 götur.
Mjög margar götur eru með
600-1000 fbúar t.d. Laugavegur
þar býr 961 maður.
Arekstur í gær
Árekstur varð í gær á mótum
Leifsgötu log Þorfínnsgötu. Tveir
bflar rákust saman og meiddist
kona sem var farþegi í öðrum
bílnum. Fékk hún höfuðhögg og
skarst á höfði. Konan var flutt
á Sllysavarðstofuna.
Leynilegar NATO-reglur um
pólitíska USA-flóttamenn?
□ Eins og fram koin í frétt í Þjóðviljanum í gær, hefur
enn ekki verið ákveðið hvort Bandaríkjamanninum George
Noell verður veitt hér hæli sem pólitískum flóttamanni,
þótt hálfur mánuður sé liðinn frá þvj að hann kom hingað,
og er m.a. borið við að kanna þurfi milliríkjasamninga og
skuldbindingar vegna aðildar að NATO og vegna „varnar“-
samningsins.
Tvisvar sinnum tvö orð í Keflavík
Njarðvík 14/2 — 13. febrúar var haldinn fundur í bæj-
arstjóm Keflavíkiur. Til umræðu voru atvinnumál og
fjárhagsáætlun bæjarins. Einnig var kjörið í nefndir
og ráð. Einum hinna sikeleggu fulltrúa íhaldsins fannst
þó ekki ástæða til að taka til máls um atvinnumál né
heldur fjárhagsáætlunina en leysti heldur betur frá
skjóðrpmi við kosningu til trúnaðarstarfa og mælti þá
af tilfinningu tvisvar sinnum tvö orð.
Fundurinn hófst með því að Einn af fulltrúum íhalds-
rætt var um atvinnumál sam-
kvæmt beiðni Njarðvíkur-
hrepps þess efnis, að Kefla-
víkurbær og Njarðvíkurhrepp-
ur byðu til fundar við sig
þingmönnum kjördæmisins á-
samt iðnaðarmálaráðherra og
ins, Alfreð Gíslason, taldi
vænlegra að bæjarstjórn
Keflavikur og hreppsnefnd
Njaxðvíkur færu til Reykja-
víkur og ræddú við ráðherra
til að forða því að málið
yrði gert að æsingafrétt í
sjávarútvegsmálaráðherra til blöðum og jafnvel tekið al-
að ræða m.a. greiðslugetu-
leysi útvegsins og trygginga
varlega. Bæjarstjóm tóomát
ekki að neinni niðurstöðu í
til skipasmíðastöðva og þar málinu _ og var því vísað tii
af leiðandi getuleysi þeirra bæjarráðs. ,
til launagreiðslna. Þá var tekin fyrir til 2.
umræðu fjárhagsáætlun bæj-
arins. Áætluð útsvör eru 44
miljónir króna eða 21 prós-
ent hækkun frá fyrra ári.
Meðalútsvör á gjaldanda eru
því áætluð 28-29 þúsund
krónur. Mun Keflvíkinguna
væntanlega þykja. þetta prýð-
isfréttir og * vafalaust er að
þeim verður ekki skotaskuld
úr þeim greiðslum.
Fátt markvert kom fram
við umræðurnar enda fáar,
stuttar og leiðinlegar ræður
fluttar. Þó má geta þess að
fram kom, að reikningar fyr-
ir Bifreiðastöð Keflavíkur.
sem er eign bæjarfélagsins,
hafa ekki verið lagðir fram
sl. tvö ár og þótti sumurn
nóg um.
Þá korn þar að að kjósa
skyldi forseta bæjarstjómar
til eins árs og áður en ald-
ursforseti hafði lýst kjöri
brást einn af forustumönnum
íhaldsins við hart og skjótt
og ljómaði asjóna hans öll
þegar hann mælti fram uppá-
stungu sína: Alfreð Gíslason.
Þar voru komin tvö fyrstu
orð hans á þessum fundi um
atvinnumál byggðarlagsins
og fjárhagsáætlun kaupstað-
arins. Nafn hins mikilhæfa
baráttumanns er Kristján
Guðlaugsson. Leið nú lítil
stund. Hinn nýkjörni forseti
tók við stjórn fundarins og
vildi lýsa eftir uppástungum
um menn í bæjarráð en hafði
vart lokið því er hinn skjót-
huga íhaldsmaður tók aftur
til máls engu minna ljómandi
en fyrr: Alfreð Gíslason.
Varð þá einum viðstaddra að
orði það foma máltæki: Lítið
gleður vesælan. — ti.í*.
Svipað mál er nýkomið upp í
Danmörku, að því er segir í
blaðinu Information sem hingað
bairst í gær, en þar sótti 21 árs
gamall bandarískur hermaður
um hæli sem pólitískur. flótta-
maður fyrir sl. helgi. Kemur
fnam í frétt Information að svip-
að átti sér stað í október sl. er
annar bandarískur hermaður
flúði til Danmerkur af því að
hann vildi ekki verða sendur til
Víetnam, en þann mann sendi
danska lögreglan bandarísku her
yfirvöldunum í Þýzkalandi, þar
sem maðurinn var síðan dæmd-
ur í fangelsi.
Telur Information að sérstakar
.leynilegar NATO-reglur gildi um
afhendingu bándarískna her-
manna sem leita hælis í löndum
innan Atlanzhafsbandalagsins og
fær þessa skoðun sína reyndar
sð nokkru staðfesta hjá fulltrúa
dómsmáláráðuneytisins danska,
s^m segir í'viðtali við blaðið, að
hann kannist við að stérstakar
reglur séu til um svona tilfelli
innan Natosamningsins. Telur
hann þó að þessar reglur gildi
fyrst og fremst um hermenn frá
einu Nato-landi sem verið hafi
við æfingar í ööru.
Hins vegar lítur út fyrir að
dómsmálaráðuneytið danska —
eða danska lögreglan hafi beitt
fyrir sig þessum reglum í máli
fyrra flóttamannsins og er þess
nú beðið með nokkurri eftir-
væntingu hvað skeður í máli
þess, sem sótti um hæli í Dan-
mörku sl. föstudag.
Hér á landi er þess einnig beð-
ið með nokkurri eftirvæntingu
hvað íslenzk yfirvöld táka til
bragðs í máli George Marljham
Noells.
Islendlngur týnd-
ur í Bremerhaven
Aðfaranótt fimmtudagsins 8.
febrúar hvarf ^4 ára gamallmað-
ur, Vaigeir Jó'nsson af togaran-
um Víkingi í Bremerhaven í
Þýzkalandi. Er liðnir vom 14
tímar frá því Valgeirs var sakn-
að fog ekkert hafði til hans
spurzt lét togarinn úr höfn og
sigldi til Islands. Lögreglan f
Bremerhaven leitar að Valgeir
og hefur allt verið gert sem hægt
er til að finna hann.
Sjópróf hófust í málinu í fyrra-
dag og lauk þeim í gærdag. Að
sögn Valdimars Indriðasonar,
framkvæmdastj. Síld^r- og fiski-
mjölsverksmiðjunnar á Akranesi
vom þeir prófaðir sem síðast sáu
Valgeir en ekkert nýtt kom fram
sem upplýst gæti um hyarf hans.
4
1