Þjóðviljinn - 23.02.1968, Qupperneq 9
Föstudagur 23. febrúar 1968 — ÞJÖÐVILJINN
SIÐA §
A tvinnuleysistryggingasjóður
Framhald af 1. síðu.
ekki að hann veiti þá lágmarks-
tryggimgu sem honum i upphafi
vsr ætluð og hann hefur getu
til að veita.
Bæturnar alltof lágar
Samkvæmt núgildandi lögum
sjóðsins eru atvinnuleysisibætur
fyrir einhleypann mann 923,00
kr. á viku, en það eru 39,7%
af lágmarkskaupi Dagsbrúnar,
fyxir kvaentan mann eru bætum-
ar 931,00 kr. á viku eða 45% af
kaupi miðað við lágmarkstíma-
kaup Dagsbrúnar. Hámark bóta
getur numið 1256,00 kr á viiku
eða 60,5% af sömu viðmiðun.
Hámarkið er fyrir kvæntan mann
með 3 börn.
Hvað þýðg þessar tölur?
Hverjir eru afkomumöguleikar
atvinnuleysingjans sem hefur
þær einar til að lifa af. Tökum
dæmi um kvæntan mann en
barnlausan; hann fær kr. 931,0Q
á viku þ.e. kr. 133,00 á dag. Fyr-
ir þessar 133 kr. getur fjölskyld-
an keypt sér þrjá lítra af mjólk,
1 kg af kjöti og þá eru tæpar
30,00 kr. eftir til greiðslu á öll-
um öðrum lífsnauðsynjum.
Tökum annað dæmi, kvæntur
maður með þrjú börn fær á
mánuði sem næst kr. 5.380,00.
Gerirm ráð fyrir að hann búi
mjög þröngt og þurfi ekki að
greiða í húsaleigu nema 4 þús.
kr. á mánuði, sem er mjög var-
lega áætlað. Hann á þá eftir kr.
1380,00 til annarra þarfa fjöl-
skyldunnar eða kr. 46,00 á dag.
Með öðrum orðum að þegaf hann
hefur greitt tiltölulega lága húsa-
Ieigu á hann eftir fyrir rúmlega
Vi kg. af súpukjöti á dag.
Breytingarnar
Fleiri .slík dæmi mætti taka,
t.d. um styrk einhleypings, sem
dugar honum fyrir hálfri annarri
máltíð á ’dag. En ég hygg að
þessar tölur og dæmi sýni svo
að ekki verði um villzt hversu
fjarii fer þvi að sjóðurinn full-
nægi .þeirri frumskyldu semhon-
um er ætlað að gegna.
Þær bréytíanigar sem frum-
varpið á þskj. 279 felur í sér
frá núgildandi lögum. um At-
vinnuleysistryggingasjóð eru skv.
1. gr. frumv. að úr 15. gr. lag-
anna verði fellt niður það á-
kvæði að þeir sem eru orðnir 67
ára gamlir og njóta éllilífeyris
eigi ekki rétt á bótumv úr sjóðn-
um. Þetta skerðingarákvæði í
núgildandi lögum er óréttlátt.
Sá sem missir atvinnutekjur
vegna atvinnuleysis á að eiga
fullan rétt til atvinnuleysisbóta,
hvort sem hann nýtur ellilíiþyr-
is eða ekki. Á sama hátt og hann
heldur ellilífeyhsrétti þótt hann
hafi atvinnutekjur. Hafi hamri
hinsvegar misst vinnutekjur af
öðrutm ástæðum en atvinnuleysi
heyrir það undir önpur ákvæði
laganna. Ákvæði 2. gr. um að
síðari málsgrein 16. gr. falli nið-
ur leiðir af þeirri breytíngu sem
1 gr. felur í sér.
I 3. gr. felst sú breyting frá
núgildandi lögum að fellt verði
niður ákvæði um að ekki
eigi rétt til bóta þeir sem hafa
ásíðustu 6 mánuðum haft tekjur,
sem fara fram úr 75% af meðal-
árstekjum almennra verkamanna
eða verkakvenna ef um konu er
að ræöa.
Margar ástæður liggja tíl þess
að þetta skerðingarákvæði nú-
gildandi laga er óréttlátt. I fyrsta
lagi sú staðreynd að tekjumarkið
sem sett er, er alltof lágt. Sveifl-
ur á tekjum manna geta verið
mjög miklar svo að sá sem verð-
ur atvinnulaus kann að vera
með mjög takmarkaðar tekjur
yfir lengra tímabil þótt hann
hafi á síðustu 6 mánuðum haft
tekjur sem fara yfir það lág-
mark sem sett er og skerði því
rétt hans til bóta.
Þess utain marka tekjumögu-
leikar manna mjög lífshættí
þeirra svo að sá sem hefur haft,
segjum góðar tekjur getur verið
jafn ófær að mæta skyndilegu
atvinnuleysi og oft á tíðuim verr
undir það búinn, ekki sízt ef
hann 'stendur í húsbyggingum,
dragandi á eftir sér alla þá
skuldahagga sem því fylgir. Það
skerðingarákvæði, sem nú er, á
því ekki rétt á sér, og hliðstæð
ákvæði eru ekki skilyrði fyrir
öðrum tryggingarbótum.
4. gr. er um þá breytingu á
18. gr. laganna að bætur verði
hækkaðar frá því sem nú er, að
þær verðl fyrir einhleypan mann
í kr. 248,00 á dag, fyrir kvænt-
an mann i kr. 284,00 á dag og
fyrir hvert barn yngra en 16
ára í kr. 24,00 á dag og að há-
mark bóta megi nema kr. 356,00
á dag. Þessar tölur eru grunntöl-
ur og skulu fylgja brejdingum
sem kunna að verða á 2. taxta
Dagsbrúnar.
Þótt hér sé síður en svo um
neina rausn að ræða ætti sú
breyting sem hér er lagt til að
gerð verði að vera nokkur bót
frá því sem nú er.
Ber sjóðurinn hækkanir?
Sú spuming kann að vakna
hvort sjóðurinn hafi möguleika
til að standast þær kröfur sem
slík breyting kynni að gera til
hans ef um atvinnuleysi yrði að
ræða. í því sambandi vil ég vísa
til ítrekaðra yfirlýsinga verka-
lýðshreyfingarinnar að atvinnu-
Ieysi er böl sem hún ætlar sér
ekki að una og að allt verði að
gera til að koma í veg fyrir
slíkt ástand. Cndir það hefur
reyndar eiijnig verið tekið hér
innan veggja þingsins.
Því til ’viðbótar er rétt að
staldra við nokkrar kunnar stað-
reyndir.
í árslok 1966 nam höfuðstóll
Aívinnuleysistryggingasjóðs kr.
940 milj. Vaxtatekjur hans það
ár námu 61,6 milj. Ef við mið-
um við bótagreiðslu frumvarps-
ins til kvæntra mgnna dygðu
vaxtatekjumar einar til að
greiða 1450 mönnum bætur í
25 vikur á ári.
Á þessu má glöggt sjá að
hann er vel fær um að standast
þær kröfur sem samþykkt þessa
frumvarps myndi gera til hans.
Eins og áður er fram komið
hefur hlutverk sjóðsins verið tví-
þætt:
Að veita lán til atvinnuupp-
byggingar og með því komið í
veg fyrir atvinnuleysi sem ann-
ars hefði orðið.
Og það sem er hans fyrsta
skylda, að styrkja félaga verka-
lýðshreyfingarinnar til lifsfram-
færis í atvinnuleysi.
Hvorutveggja er mikilvægt, en
æskilegt væri að hann þyrfti
aldrei að sinna því síðara. En
staðreyndin er sú, að bætur úr
sjóðnum em nú eina von allt-
of margra launþega. Og fyrst
þjóðfélagið stendur ekki við þá
frumskyldu að allt vinnufært
fólk búi við atvinnuöryggi, þá
getur hið háa alþingi ekki skotið
sér undan að bréyta lögunum
um Atvinnuleysistryggingasjóð á*
þatin veg að hann sé fær um að
greiða bætur sem þjóni a.m.k.
þeirri lágmarkskröfu atvinnu-
leysingjans að hafa fæði og
klæði.
Herra forseti, ég vil að lok-
um aðeins segja þetta: Á þingi
Verkamannasambands í'slands og
alls staðar annars staðar inn-
an verkalýðshreyfingaririnar þar
sem þessi mál hafa verið til um-
ræðu og ályktunar hafa allir
verið á einu máli um nauðsyn
þess að bætur atvinnuleysis-
trygginga verði hækkaðar og ó-
réttlát og óþörf skerðingar-
ákvæði felld niður.
Um málið hefur 5 verkalýðs-
hreyfingunni fjallað fólk frá 6-
líkum starfsgreinum víðsvegar
að af landinu og með ólíkar
pólitískar skoðanir og óskir þess
um breytingar hníga allar í sömu
átt. Það er von okkar flutnings-
manna þessa fmmvarps, að svo
verði einnig hér á hinu háa al-
þingi að þrátt fyrir ólíkar póli-
tískar ekoðanir háttvirtra þing-
manna verði þeir einnig sam-
mála um nauðsyn þeirra breyt-
inga á lögum um atvinnuleysis-
tryggingar Sem frumvarpið ger-
ir ráð fyrir og að þeim breyting-
um verði hraðað svo sem frekast
em föng á.
Herra forseti, ég leyfi mér að
leggja til að málinu verði vísað
til heilbrigðis- og félagsmála-
nefndar að lokinni þessari um-
ræðu.
LOKAÐ
Sltrifstofur félagsins verða lokaðar í dag kl.
14,30 vegna jarðarfarar
SIGURJÓNS JÓHANNSSONAR,
, fyrrverandi skrifstofustjóra
BRUNABÖTAFÉLAÓ íslands.
Enska landhúnaðarsýningin
Framhald af 7. síðu.
shires, sem hafa sérkennileg
horn, standa einnig framarlega.
Einnig ber að telja Jerseys og
Guemseys, sem eru heimsfræg-
ar mjólkurkýr.
Nær því 30 sauðfjárkyn em
sýnd. Meðal lagðsíðra kynja
má sjá Leicesters, Lincolns og
Romney Mareh. En meðal lagð-
stuttu kynjanna má sjá Ox-
fords, Southdowns og Hamps-
hires, og meðal fjallakynja Che-
viots, Kerry Hill og Welsh
Mountain.
Svínakyn ná nærri því tylft.
Fyrst má telja Large White,
sem nú ar alþjóðakyn, þekkt
vegna hæfileika til kynblönd-
unar. Þá eru Middle Whites,
Essex og Wessex Saddlebacks,
Large Blacks, Tamworths og
önnur kyn. sem tengd eru ein-
stökum stöðum, en þó athygl-
isverð.
Áhaldadeildin
Áhaldadeild sýningarinnar er
viðurkenndur \ markaður fyrir
alla þá, sem áhuga hafa á vél-
um. Þetta er sá staður, þar
sem margir brezkir bændur
velja áhöld sín, þegar þeir hafa
gert samanhurð og metið hæfni
hinna mismunapdi tegunda,
Fleiiri og fleiri erlendir bænd-
ur geta á þessum stað skoðað
brezk áhöld og rætt um þau í
urmhverfi, þar sem þeir hafa
þetra heildaryfirlit yfir land-
búnað en á nokkrum öðrum
stað.
Brezkir framleiðendur geta
boðið fram allt, sem þarf fyr-
ir eitt hið alfjölbreyttasta land-
búnaðarkerfi sem til er, kerfi,
sem 'í hlutfalli við flatarmál
notar mieiri vélbúnað en nokk-
urt annað. í landi matjurta-
garðanna má ekki 'leiða hjá sér
hið fjölbreytta úrval af garð-
yrkjudráttarvélum og öðrum á-
höldum.
Kynslóð fram af kynslóð hafa
bændur sótt sýninguna til þess
að skoða úrvalsbúfé; í daggeta
þeir séð eiiihverjar afkasta-
mestu vélar í heimi, og fundið
eitthvað athyglisvert, hversu
langt sem þeir eiga að.
Gripir og kóngafólk
Á sfnu sviði eiga hinar stóru
fylkingar verðlaunagripa af öll-
um kynjum ekki sinn .líka, þvi
hvergi er að líta jafn áhrifa-
miklair nautgripasýningar. Þá
eru aðrar sýningargöngur, sem
hver um sig hefur sitt gildi —
stórir og smáir hestar, hrútar,
og nú á vélaöldinni dráttairvél-
ar og tilheyrandi jarðyrkjuá-
höld.
En þó vekur hesturinn mesta
eftirtekt á sýningarsvæðinu;
hann er sýiidur með alls konar
aktýgjum, og auk þess fer fram
keppni í hindrunarstökkum.
öðru hvoru að degi til má sjá
sýningar á hæfni fjárhún'da,
hópa refhunda ög annarra
veiðihunda. 'Héma hafa menn
tækifæri til þess að hvflast í á-
horfendastúkunni óg virða fyr-
ir sér hin margbrotnu sýning-
aratriði.
Meðlimir konungsfjölskyld-
unnar eru tíðir og áhugasam-
ir áhorfendur 'að þessum sýn-
ingaratriðum, isem enduirvarpa
hátíðarblæ og vékja minning-
ar um viðhafnarsýningar og
OSICATÆICB
Fjölskyldunnar
Sambyggt
útvarp-sjónvarp
starfsiþróttamót til sveita.' —
Þess mé geta, að drottming Eng-
lands var á sýningunni ásamt
eiginmanni sínum.
Blóm og smíðar
Margt er það, sem fyrir augu
ber á sýningunni. Eitt það, sem
menn leiða aldrei hjá sér er
blómasýningin, sem er meiri-
háttar viðburður á sínu sviði.
1 ró og næði geta menn notið
þar litskrúða og blómailms.
Skógræktardeildin er ævin-
íega eftirtektarverð og um-
fangsmikil, og þar sýna skóg-
arhöggsmenn listír sínar pg
keppa í smíði á hliðum og öðr-
um hlutum úr óunnu timbri.
Þá er smiðjan athyglisvert
sýningaratriðd. Hópar áhorfenda
næstum því eins stórir og þeir,
sem horfa á þegar keppt gr uim
að jáma hesta, flykjast að, þeg-
ar samkeppni í jámsmíði 'fer
fram.
Félög ungra bænda sjá um
mörg sýningaratriði á sviði
handiðnaðar, og ekki má ganga
fram hjá upplýsinga- og leið-
beiningadeildunum, eða því,
sem vísindin og tæknin hafa
upp á að bjóða.
Þannig tekur eitt sýningarat-
riðið við af öðru, allt frá bý-
flugnarækt til ullarvinnu. Þá er
enn eitt atriði, sem sérstaklega
vekur athygli, en það er, þegar
heiðursmerki eru afhent land-
búnaðarverkamönnum fyrir
Ianga og dygga þ'jónustu hjá
sama húsbónda. --
Umbætur og þjónusta
Félagið vinnur að eflingu
landbúnaðar og v umbóta á
margvíslegan annan hátt. Einn
þáttur þess er fræðsla. Félagið
fór að láta til sín taka á
fræðslusviðinu fyrir nær þvi
hundrað árum, og stendur fyrir'
prófum og gefur út skírteini
handa mörg hundruð nemend-
uim í bæði almennum landbún-
aðarfræðum og mjólkurvinnslu.
Annar þáttur er efling véla-
framleiðslu eftír ákveðnum
brautum. Á fyrstu érum. sinum
hét það verðlaunum að upphasð
500 pund handa þeim, sem gæti
smíðað fyrsta nothæfa gufu-
plóginn, og nýlega hefur verið
heitið verðlaiunum að upphæð
3.000 pundum í samkeppni um
fullkomna kartöfluuppskeruvél.
Þjónusta og sérréttindi til
handa meðlimum er mikilvæg-
ur þáttur i störfum félagsins.
Það veitir meðlimum sínum
leiðbeiningar hæfustu sérfræð-
inga, og meðlimirnir hafa að-
gang að bókasafni, þar sem
finna má hvess konar upplýsing-
ar um landbúnað. Einnig fá
þeir á hverju ári eintak af ár-
bók félagsins, sem hefur inni
að halda imarkverðar greinar
um landbúnað, og er jafnframt
handbók basnda á sviði rann-
sókna, en handibókin er ef tíl
vill verðmætasta búnaðarritíð,
sem út kemur á hverju ári, og
þá ekki síður fyrir okkur Is-
lendinga.
GRAND FESTIVAL
23” eða 25"
KRISTALTÆR MYND OG HLIÓMUR
• Með innbyggðri skúffu
fyrir plötuspilara
• Piölugeymsla
• Ákafiega vandað verk, •— byggt
með ianga notkun fyrir augum.
• Stórt útvarpstæki með 5 byigjum,
þar á meðal FM og bátabyigju.
• Allir stillár fyrir útvarp og
sjónvarp í læstri veltihurð
• ATHUGIÐ, með einu handtaki
má kippa verkinu innan úr
tækinu og senda á viðkomandi
verkstæði — ekkert hnjask með
kassann, lengri og betri ending.
ÁRS ÁBYRGÐ
Fást víSa um iand.
AðalumboS:
EINAR FARESTVEIT & CO
Vesturgötu 2.
VAUXHALL
BEDFORD
UMBOÐIÐ
ÁRMÚLA 3 SÍMI 38900
INNHetMTA
lÖ0F8ÆV/<STðtlP
Mávahlíð 48. — S. 23970 og 24579.
Auglýsingasími
Þjóðviljans er
17 500
úr og skartgripir
iKDRNHlUS
IÓNSS0N
skólavöráustig 8
S Æ N G U R
ffindumýjum gömlu sæng-
amar, eigum dún- og fið-
urheld ver og gæsadúns-
sængur og kodda af ýms-
- um stærðum
Dún- og
fiðurhreinsun
Vatnsstlg 3. Siml 18740.
lörfá skreí frá Laugavegl)
□ SMURT BRAUÐ
□ SNITTUR
□ BRAUÐTERTUR
BRAUÐHUSIÐ
élMACK BÁR
Laugavegi 126
Sími 24631.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-10L
Laugavegi 38
Skólavörðustfg 13
ÚTSALAN
ER i
FTJLLUM
GANGÍ
Eins og Jafnan
áður er stórkostleg
verðlækkun á
ýmis konar
fatnaði.
NOTIÐ
TÆKIFÆRIÐ
OG GERIÐ
GÓÐ KAtTP
Vd ÍRtjejzt
KHH8CÍ
ÖHNUMSI ALLA
HJÚLBARÐANÖNUSTU,
FLJÓTT OG VEL,
MEÐ NÝTÍZKU TÆKJUM
IW* NÆG
BÍLASTÆÐ!
QPID ALLA
DAGA FRÁ
kl. 7.30-24.00
HJOLBARÐAVIÐGERÐ KQPAVOGS
Kársnesbrant 1
ími 40093
4