Þjóðviljinn - 24.02.1968, Síða 4
4 SÍKA — MÚÐ'V.EWKÆBÍ
Sí. ■frfawámi. ,M6S.
DIOOVIU
Otgeíandi; Sameiningarfiakkur aJLþýðu — Sósialistaflokkurinn.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson, (ób.), Magnós Kjaxtansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fnéttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson,
Augiýsingastj.: Sigurður T. Sigurðsson.
Framkvstj.: Eiður Bergmann.
Ritstjóm, afgreiðsla. auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðustig 19.
Sími 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 120.00 ó mónuði. —
Lausasöluverð krónur 7,00.
Neitað um verðtrygginu
Jgtjónnendur Vinnuveitendasambandsins svo-
nefnda hafa ekkert lært og engu gleymt. Á
samningafundinum með fulltrúum alþýðusamtak-
anna í gær þverneituðu þeir að verða við kröfu
verkalýðshreyfingarinnar um verðtryggingu kaups,
enda þótt vísitölugreiðslur á kaup væru beim for-
senda samninganna sem nú er farið eftir. Enn
einu sinni rís veggur afturhalds og ósvífni,
þrjózku og skilningsleysis gegn réttmætum og
sanngjörnum kröfum alþýðusamtakanna. Talsmenn
Vinnuveitendasambandsins hafa sjálfsagt haldið
nokkrar ræður á þá leið að atvinnufyrirtækin
þyldu það ekki ef verkamenn fá nokkra kauphækk-
im nú um mánaðamótin, til að mæta dýrtíðaröld-
unni sem misvitur ríkisstjóm hefur vakið. En hafa
þessir menn, stirðnaðir í „andanum frá 1920“
nokkru sinni viðurkennt að atvinnurekstur þeirra
þyldi hina minnstu kauphækkun? Hafa þeir ekki
látið Morgunblaðið og Vísi flytja nákvæmlega
sama þruglið um burðarþol atvimnuveganna jafnt
á góðæristímum og stórgróðatímum og endranær?
Muna menn til þess að Morgunblaðið og Vísir
beittu sér fyrir því í kjarasamningunum 1964 og
1965 að kröfur verkalýðshreyfingarinnar næðu
fram að ganga? Raunar er sú röksemd að atvimnu-
rekstúrinn þoli ekki neina kauphækkun eldri en
Morgunblaðið og Vísir, hún er reyndar jafngömul
verkalýðshreyfingunni! Fyfirremnarar núverandi
máttarstólpa Vinnuveitendasambandsins kunnu
hana eins vel og Kjartan Thórs, Gunnar Guðjóms-
son (frá verkbannssamtökunum Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna) og Björgvin Sigurðsson. Þeim virð-
ist ekki ljóst hversu gatslitin þessi „röksemd“ er
orðin af lamgvarandi brúkun. Hitt mun hverjum
hugsandi manni ljóst að erfiðleikar atvinnuveg-
anna stafa ekki af of háu kaupi' heldur rangri og
hættulegri stjórnarstefnú íhaldsins og Alþýðu-
flokksins, ríkisstjórnin hefur látið íslemzka at-
vinnuvegi drabbast niður og enga framtíð séð nema
þá að ofurselja auðlindir landsins erlendum auð-
hringum. Það er hin alræmda „viðreisn“, sem hér
er að verki og á sök á því að til atvimnuleysis hefur
komið eftir langt góðæristímabil, um leið og ytri
aðstæður útflutmingsatvinnuveganna versna.
^fleiðinguna af hinni skynlausu þrjózku stjórn-
arklíku Vinnuveitendasambandsins vissu menn
fyrir. Verkalýðsfélögin hófu þegar í gær að boða
verkföll frá 4. marz, til, að leggja áherzlu á kröfu
sína um verðtryggingu kaupsins. Meðal þeirra er
Verkamannafélagið Dagsbrún í Reykjavík og fleiri
öflugustu verkalýðsfélög landsins. Mun það skýr-
ast nú um helgina hversu víðtæk verkfallsboðun-
in verður. Þær athafnir eru einnig rökrétt afleið-
ing hinnar vanhugsuðu og ósvífnu árásar Bjarna
Benediktssonar, Gylfa Þ. Gíslasonar og félaga á
verkalýðshreyfinguna, er þeir ákváðu að afnema
verðtrygginguna frá júmísamningunum 1964. Átök-
in nú eru í framhaldi þess verknaðar; athafnir
verkalýðsfélaganna eðlilegt svar við misbeitingu
ríkisvaldsins og meirihluta Alþingis til kjaraskerð-
ingar hiá alþýðufólki. — s.
Ritneínd: Guðrún Steingrímsdóttir, Jón Sigurðsson, Olaíur Ormsson og Þorsteinn Marelsson
Um listamannalaun
Enn einu sinni hefur lista-
mannalaunum verið úthlutað
með pomp og pragt. Skilvind-
an rnikla hefur urnnið sitt starf.
Enn einu sinni hefur hún
sannað oss fáráðuhátt bók-
menntagagnrýnenda dagblað-
anna, sem oftast verðlauna ó-
sæmilegar bækur.
Ekki er furða þó mönnum á
borð við Guðberg Bergsson
(klúr m.m.), Hannes Sigfússon
(erindreki Kina, sbr. kvæði í
Jarteikn), Jóhannes Helgi (veit-
ingin í fyrra slys) o. fl. hafi
verið kippt burtu. Eiginlega
ættum vér að æpa húrra fyrir
flestum nefndarmanna (iþó ekki
þeim sem eru með múður).
Og þó, þegar vér hugsum
nánar út 1 veitingu listamanna-
launa, þá vakna ýmsir hug-
draugar upp.
GUÐBERGUR BERGSSON: —
hættulegur þjóðlegu íslenzku
siðferði?
Hvaða tilgangi eiga þessi
verðlaun að þjóna? Eigg þau
að styrkja liðið til hugstarfs
eða eru þau aðeins veitt eins-
og heiðursdingl!
Það er nokkuð af vel efn-
uðum náungum sem hlotið hafa
verðlaqjn í þetta sinn, og þegar
ég fer að hugsa nánar út í mál-
ið held ég að betra væri að
láta þá blönku fá ögn meir af
peningum, svo þeir gætu setzt
niður í friði smástund og
sinnt sínu, þeir sem hafa nóg
(eða meir en nóg) fengu bar-
asta alúmínhest í stáð peninga
(þaö fer vist brátt að verða
gnótt alúmíns hér í landi). Þetta
væri nokkuð góð lausn, beir
blönku gætxu kannski krotað
meira handa okkur að lesa, og
bankastjóramir og alþingis-
ismennimir og konumar þeirra
og allir hinir gætu horft á al-
úmmhestana sína uppá hillu.
vaffell.
Frá Jörvagleði hinni minni
Hlustað á einn af hugmyndaí'Tæðingum Fylking'arinnar. — Ljósm. RH).
□ Æskulýðsfylkingin í
Reykjavík hélt fyrir nokkru
Jörvagleði hina minni að»
Tjarnargötu 20. Þar komu
fram margir snjallir hug-<s>
myndafræðingar og skáld
og lásu úr verkum sínum
við misjafnar undirtektir.
□ Þá voru kyrjaðar
gamanvísur, sýndar skugga-
myndi úr Færeyjaför og
kvikmynd af Reykjavíkur- tíð sósíalískrar hreyfingar á
göngu. Hápunktur kvölds- íslandi. — Myndirnar eru
ins var þó er flutt var leik- teknar á Jörvagleði Fylk-
rit um fundinn um fram- ingarinnar.
Þorsteinn frá Hamri les lljóð
sitt um Færeyjaför þrettán
Fylkingarféiaga.
Gangið í Æskulýðsfylkinguna
ÆF berst fyrir fullri vinnu og bættum lifskjörum.
ÆF fordæmir árásarstríð Bandaríkjamanna í Vietnam.
ÆF krefst afnáms erlendrar hersetu á Islandi og úrsagnar
úr NATÖ.
ÆF berst fyrir sósíalisma a Islandi.
Þetta eru nokkur áf stefnumálum ÆF, en ekki aðeins
stefnumál heldur einnig BARATTUMAL.
Ég undirritaður óska eftir að verða meðlimur i Æsku-
lýðsfylkingunni, Sambandi ungra sósíalista:
Nafn
Heimili ,
Fæðingard. og ár.
Sími:
HANNES SIGFUSSON: — er-
indreki erlends stórveldis?
-<S>
JÓHANNES. HELGI: — óróa-
seggur, sem vili kippa hinum
traustn stoðum undan íslenzku
efnahagslífi?
Sendist Æskulýðsfylkingunni, Tjarnargötu 20, Reykjavík.
«■••■■■■■«■■■■■
Um
mánaðamótin
Nú um mánaðamótin hefur
fjöldí verkalýðsfélaga um land
allt ákveðið vinnustöðvun, í
þeim hópi eru flest stærstu
verkalýðsfélög landsins eins og
Dagsbrún, Trésmiðafélagið, Ein-
ing á Akuxeyri og Hlíf í Hafn-
arfirði. Verkalýðshreyfingip
setur fram þá réttlætiskröfu
að verðtrygging á kaup verði
áfram í gildi eins og samið var
um við ríkisstjómina í júní
1965.
Það sýnir mæta vel hvem
hug rífcisstjómin ber til laun-
þega í landinu, að verkalýðs-
hreyfingin skuli nú þurfa að
beita öllum samtakamætti sín-
um til þess að ná fram verð-
tryggingu kaups sem samið var
um fyrir aðeins um það bil
tveim árum en ríkisstjómin
síðan, eins og öllum launþeg-
um er kunnugt, hefur svikið.
Nú reynir á samtakamátt al-
þýðusamtakanna í þeim átök-
um sem framundan eru. og
aldrei hefur verið brýnna en
nú að ná fram verðtryggingn
kaups. Nú að undanförnu hef-
ur verið ráðizt harkalega á
lífsafkomu alþýðuheimilanna.
allt verðlag hefur hækkað
stórlega áð undanfömu og það
á brýnustu lífsnauðsynjum al-
mennings, t.d. hafa þorskur og
ýsa, svo eitthvað sé nefnt,
hækkað um 20%. Um leið og
við höfum það i huga að allt
verðlag hefur i hækkað gífur-
lega, skulum við minnast þess
að nú hækkar stöðugt tal^ at-
vinnuleysingja hér í höfuð-
borginni og ástandið er ugg-
væfalegt.
Verkalýðshreyfingin er nú
Framhald á 7. síðu.
Erindi Einars
• ÆFR vill vekja athygli fé-
laga á því, að erindi Einars
Olgeirssonar, n.k. þriðjudag
fellur niður. — Stjómin.