Þjóðviljinn - 24.03.1968, Side 9
STjmnudagur 24. fc. islvz 1988 — ÞJÓÐVIUINN — SlÐA 0
g’afst nokkurt tœkifæri til vam-
ar. Eiinkum var þetta áberamdi
á fiiugveUinum vid Hurghada
á strönd Rauðahafsins.
Framhald af 7. síðu.
elsríkis og sendu fljótlega her-
sveitir inn á yfirráðasvæði
þess, en þær urðu að lúta í
lægira baldi fyrir barðskeyttum
vamarher .'ísraelsmanna. Olli
þessi ósigur því m.a. að ekkert
varð úr stofnun ríkis araba í
Palestínu og jafnframt tóku nú
arabískir flóttamenn að streyma
tug- og bundruðum þúsunda
saman til grannlandá ísraels.
Þetta flóttamannavandamál hef-
ur síðan verið einn meginþrösk-
uldurinn í vegi samninga um
friðsamlega lausn deilumála
fsraels og arabalandanna.
Þarflaust er að minna á þá
miklu óbilgimi sem sýnd hef-
ur verið í þessu máli á báða
bóga, en vekja má athygli á
þvi að ísraelsmenn hafa not-
faert sér út í æsar þá ríku
samúð sem trylltar gyðingaof-
sókhir og fjöldamorð þýzku
názistanna vöktu með þjóðum
Heims, j afnframt því sem of-
stækisfull þjóðrembingsstefna
héfttr löngum og á ýmsan hátt
rharkað afstöðu og aðgerðir
leiðtoga arabaríkjanna. Þessi
stefn<a arabaleiðtoganna hefur
svo sannarl. spillt málstað þeirra
á margan máta, beint athygli
manna frá einföldum og óbrekj-
andi rökum að ögrunum þeim
og ofbeldisaðgerðum sem eru
ávöxtur þjóðrembingsins. Af
þessum sökum hefur svo ísra-
elsmönnum tekizt furðanlega
að réttlæta hemaðarárásir
sínar og leifturstríð gegn ná-
grönnum sínum, t.a.m. haust-
ið 1956 og á sl. sumri.
Það fór ekki framhjá okkur
ferðafélögunum, þegar við vör-
urn í Egyptalandi í janúarmán-
uði sl., að júnístríðið í fyrra
hefur valdið stórfelldri röskun
á öllum sviðum þar í landi og
gífurlegu tjóni. í fyrri grein-
um hefur verið vikið að þeim
afleiðingum sem herför ísraels-
manna hefur haft á þann at-
vinnuveg, vaxandi og æ þýð-
ingarmeiri fyrir egypzka þjóð-
arbúið, sem bundinn er móttöku
erlendra ferðamanna, og jafn- •
framt voru nefnd nokkur dæmi
um ytri merki sex daga stríðs-
ins á götum úti í Kaíró og
annarsstaðar. Það hefur held-
ur ekki farið leynt í fréttum
að hemaðarlegt tjón Egypta
var óskaplegt, flugherinn var
gjörsamlegia þu-rrkgfíur út og
landherinn gerður óvígur að
heita mátti; auk þess töpuðust
stór landsvæði sem bæði veikja
framtíðar vígstöðu Egypta og
svipta þá ráðum yfir bagnýtum
og mikilvægum auðlindum. Við
landamir sáum — rúmum sjö
mánuðum eftir ledfturherför
fsraelsmanna — víða á flúg-
völlum flök egypzkra herflug-
véla sem gyðingamdr eyðilögðu
á jörðu niðri áður en Egyptum
-------------------------------®
Plaslmo
ÞAKREKNUR OG NIÐURFALLSPÍPUR
RYÐGAR EKKI
ÞOLIR SELTU OG SÓT,
ÞARF ALDREI AÐ NIÁLA
MarsTrading Coinpany Irf
IAUGAVEG 103 — SlMI 17373
Alúðar þakkir flytjum við öllum þeim, fjær og nœr, sett
auðsýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og jarð-
axför.
JÓNS G. BRIEM
sem andaðist 2. marz s.I.
Guðrún Gunnlaugsdóttir Briem
Zophania og Gunnlaugrur J. Briem
Málfríðnr og Steindór J. Briem
Soffía og Signrður J. Briem
og barnabörn.
Kveðjuathöfn um
fc
HALLDÓR GUÐMUNDSSON frá Súðavik,
sem andaðist að Hrafnistu hinn 17. þ.m., fer fram A-á
Fossvogskirkju mánudaginn 25. marz kl. 1.30.
Börnin.
Þökkum innilegia auðsýnda samúð við ancflát og jarðarför
BÉNEDIKTS ÞÓRÐARSONAR bónda, Kálfafelli
Ingunn Þórðardóttir,
böm, tengdabörn og barnabörn.
Eins og áður hefur verið get-
ið voru hindr egypzku leið-
sögumenn okkar, fulltrúar gest-
gjafanna, hinir prýðilegustu
ferðafélagar og meiri heiðurs-
menn en svo að þeir færu að
troða einhliða sjónarmiðum sín-
um eða sinna stjómiarvalda upp
á okkur umfram það sem alltaf
er gert óbeinlínis í svona boðs-
ferðum með því að sýna gest-
um eitt frem-ur en annað. Við
urðum til dæmis jafnan að
vekja að fyrra bragði máls á
sambúðarvandanum við ísra-
elsmenn og viðhorfum í aust-
urlöndum nær eftir júnístríð-
ið. Þegar málinu hafði hinsveg-
ar verið hreyft í samræðum
stóð að jafnaði ekki á undan-
hragðalausum svörum. Þeir
viðurkenndu af fullri hrein-
skilni að ástæðuroar fyrir því
að Egyptar almennt fitjuðu ó-
gjaroa upp á tali um ósigurinn
mikla í fyrra væri sú, að þeir
skömmuðust sín irmst inni;
allir hafi verið kokhraustir fyr-
irfram en stóru brðin haldlítil
þegar á alvöruna reyndi. Hins-
vegaú myndi þetta tap reynast
þeim dýr en þörf lexía, þeir
yrðu jafnhliða endurhervæð-
inigu að leggja aukna áherzlu
á að koma sjónarmiðum araha
sem víðast á framfæri, kynna
þau rök sem ekki verður með
réttu í móti mælt. Þeim rök-
•semdum hefur oft verið lýst
hér í blaðinu og skal ekki
frekar farið út í' þá sálma að
sinni, aðeins lögð áherzla á
tvennt, sem vafalaust er hvað
þyngst á meturium. Hiíð fyrra
er flóttamannavandamálið, sem
áður var drepið á, hiið algera
tómlæti og aðgerðaleysi um
málefni miljóna Palesstínuaraba
sem búið hafa við ótrúlega
frumstæðan kost og kjör um
langt árabil, allt að tvo ára-
tugi. Hið síðara er sú hætta
sem allstaðar er fyrir hendi og
fylgir í kjölfar þeirrar ískyggi-
Iegu þróunar er veldUr þvi að
bilið milli fátækra og ríkra
þjóða breikkar slfellt.. f þessu
tilfelli er annarsvegax ísraels-
ríki, þangað sem streymt hef-
ur mikið' auðmagn erlendis frá
og menntaðir og starfsþjálfað-
ir innflytjendur; hinsvegar fá-
tæk ríki araba, þar sem fram-
farir hafa til þessa verið til-
tölulega hægfara og misjafnar
á hinum ýmsu þjóðfélagssvið-
um. í Egyptalandi hefur til
dæmis náðst mjög verulegur
árangur í skóla- og heilbrigðis-
málum, en þróunin orðið hæg-
ari enn sem komið er í at-
vinnumálunum og að því er
snertir húsnæðismál, neyzlu og
matvælaframleiðslu svo dæmi
séu nefnd. Vonir Egypta um
verulegar breytingar í þessum
efnum til hins betra eru fyrst
og fremst bundnar við hinar
miklu framkvæmdir við Assú-
an. \
Engum getum yil ég leiða að
möguleikum á samningum
ísraels og arabaríkja í náinni
framtíð. Ljóst er þó að sitthvað
verður að breytast frá því sem
nú er áður en aðílar setjast að
samningaborði og trúlegt að
arabar taki ekki slíkar samn-
ingaviðræður í mál fyrr en
ísraelsmenn hafa látið af hendi
aftur landsvæði ‘þau, a.m.k.
langmestan hluta þeiirra, sem
þeir þertóku í júnístríðinu í
fyrra. Egyptar segja gjaroa:
— Þegar ísraelsmenn tala um
„frið“ eiga þeir við „frið“ eftir
þeirra höfði og enigra aunarra.
Slík friðargjörð kemur ekki til
mála, þegar af þeirri ástæðu
að hún stefnir að hemaðarlegri
, undirokun þjóðar. af kynsijofni
araba. Undirokun sem þessi er
ósamrýmanleg fri ði á sairea hátt
og sú andstaða er af henni
leiðir. Aukin andstaða, araba
ætti raunar að ,ger-a Israels-
mönnum skiljanlegt að þeir
mtind -ekki framax na friði að
eigin geðbótta. Fyrár 5. júní
í fyrra töluðu ísraelsmenn um
frið. Þeir töluðu. um frið áð-
ur en Súez-árásim' hófst ísra-
elsmenn hafa ekki linnt sínu
friðarhjali síðan þedr flæmdu
miljóriir araiha út í eyðimörk-
ina í fyrstu árás þeirra sem
gerði þeim kleift að hremma
væna sneið af Palestínu araba.
Öllu þessu frfðartali hafa fylgt
hem aðaraðgerðir.
Og Egyptar bæta við: — Auk
þess hafa arabar engin þau
friðsamlegu ráð á takteinum er
fært geti þeim aftur rétt
þleirra. og hafa þeir þó fullan
hug og vilja á því að kanna
allar • hugsanlegar pólitískar
leiðir til að víkja óvininum
með friðsamlegum hætti burt
af þeim landsvæðum er hann
hefur hernumið og endurheimta
fullan rétt araba í Palestínu.
Þannig eru málin lögð fyrir
af flestum Jlgyptum; þeir
kunna. að vera misjafnlega orð-
hvatir eins og gengur en meg-
insjón:armiðið er hið sama
hver sem í hlut á.
f.H.J.
(Þetta var lokagreinin i þess-
um flokki svipmynda úr Eg-
yptalandsferð. Fyrri greinar
birtust í Þjóðyiljanum 14., 17.,
22. og 27. febrúar og 2. og
23. marz).
■■ . \
S/ENGUR
EndumýjUm gömlu sæng-
umar eigunn dún- og fið-
urheld ver og gæsadúns-
sængur og fcodda aí vms-
um stærðum
Dún- og
fiðurhreinsun
Vatnsstig 3. Sinu 18740
(örfá skref frá Laugavegi)
?É
ist# Émf
OSKATÆKI
Fjölskyldunna’r
Sambyggt
útvarp-sjónvarp
II
11 -
n
Áhuga-
ljósmyndarar
M *
Munið ljósmynd-asam-
keppni Umferðamefnd-
ar og lögreglunnar í
Reykjavík um „bezfai
svipmyndina“ úr um-
ferðinni. — Góð verð-
laun.
★
Skilfrestur til 15.
apríl næstkomancli.
II
II
II
xl.
m
I
ii
ii
iil:
!:Í
Síminn er 17500
Þjóðviljinn
:iíí; FRÆÐSLU-OG
I UPPLÝSINGASKRIFSTOFA
' UMFERÐARNEFNDAR
gg REYKJAViKUR,
. . ....
M
I
i
ll'i:
p
il
II
1
II
HITTO
JAPÖNSKU NITT0
HJÓLBARDARNIR
f flestum stsarðum iyrirliggjandi
f Tollvörugeymslu.
FUÓT AFGREIÐSLA.
DRANGAFELL H.F,
Skipholti 35 - Sfmi 30 360
GRAND FESTIVAL
23” eða 25"
KRIStALTÆR MYND OG HUÓMUR
• Með innbyggðri skúffu
fyrir plötuspilara
• Plötugeymsla
• Ákaflega vandað verk, — byggt
með langa notkun fyrlr augum.
• Stórt útvarpstæki með 5 bylgjum,
þar á meðal FM og bátabylgju.
• Allfr stillár fyrir útvarp og
sjónvarp f læstri veltihurð
• ATHUGIÐ, með einu handtaki
má kippa verkinu innan úr
tækinu og senda á viðkomandi
verkstæði — ekkert hnjask með
kassann, lengri og betri ending.
ÁRS ÁBYRGÐ
Fást víSa um land.
Aðalumboð:
EINAR FARESTVEIT & CO
Vesturgotu 2.
□ SMTJRT BRAUÐ
O SNITTUR
□ BRA UÐTERTUR
VAUXHALL
BEDFORD
UMBOÐIÐ
ÁRMÚLA 3 SÍMI 38900
BRAUÐHUSIÐ
SNACK BÁR
Laugavegi 126
Sími 24631.
V5 s&'Vtn+ua'&t />ezt
ÍRHAKi
Auglýsingasími
Þjóðviljans er
17 500
Kaupið
Minningarkort
V Slysavarnafélags
íslands
HÖGNI JÓNSSON
Lögfræði- og fasteignastofa
Bergstaðastrætl 4.
• Simi 13036.
Heima 17739.
Laugavegi 38.
Skólavörðustíg 13.
Nýjar sendingar af
hinum heimsfrægu
T R I U M P H
brjóstahöldum,
m.a. mjög falleg sett
handa
fermingarstúlkum.
Póstsendum um
allt land.
Sængurfatnaður
HVÍTUB OG MISLITUR
ÆÐARDÚNSSÆNGUR
GÆSADÚNSSÆNGUR
DRALONSÆNGUR
— * -
SÆNGURVER
LÖK
KODDAVER
Mði*
Skólavörðustíg 21.
1
t