Þjóðviljinn - 29.03.1968, Page 2
2 STDA — ÞJÓÐVHJTNN — BíSsbudagur 29. marz 1968
Handknattleikur; pressuleikurinn:
Reykjavíkurmótið í svigi:
Jóhann og Hrafn-
hildur H. sigruðu
Reykjavíkurmótinu í svigá
var haldið áfram um síðustu
helgi, en áður var lokið keppni
í unglingaflokkunum. Skíða-
deild Ármanns sér um Reykja-
vikurmótið að þessu sinni, og
er það haldið á skíðasvæði fé-
lagsins í Jósepsdal.
Keppnin um síðustu helgi
var svigkeppni, og keppt í A- og
B-flokki karla og kvennaflokki.
Mótsstjóri var formaður skiða-
deildar Ármanns, Halldór Sig-
fússon. en brautarstjóri vax
, hinn gamalkunnj skíðakappi
Sigurður R. Guðjónsson og
lagði hann brautina af mikilli
snilld. Úrslit urðu sem hér seg-
ir:
A flokkur karla:
Jóh. Vilbergsson KR
74,3
Norman Mailer
Bandaríski rithöfundurinn
Norman Mailer (höfundur
skáldsögunnar Naktir og dauð-
ir) hefur nú gert sína fyrstu
kvikmynd, er nefnist Wild 90.
Hún fjallar um þrjá glæpa-
menn .í undirheimum New
York. Mailer fer sjálfur nieð
hlutverk í myndinni.
Jóhann Vilbergsson.
Knútur Rönnig ÍR 76,4
Guðni Sigfússon ÍR 76,8
Bjarni Einarsson Á 79,4
B FLOKKUR
Öm Kjæmested Á 74,2
Sigurður Guðmundsson Á 75,7
Sigm. Ríkharðsson Á 77,7
KVENNAFLOKKUR
Hrafnh. Helgadóttir Á 61;3
Jó-na Bjamadóttir Á 8(X2
Frels-
ishjal
Guðmundur H. Garðarsson,
verklýðsmálaleiðtogi Sjálf-
stæðisflokiksins og áróðurs-
stjóri bedrrar öflugu aitvinnu-
rekendasamsiteypu sem niefn-
ist Sölumiðstöð hraðfrysitíhús-
arana, skrifar í gær afar ein-
keninilega grein í Monguníblað-
ið. Tilgangur greinarinnar
virðist vera sá að bera blak
af þeirri ráðsmennsku frysti-
húsaeigenda að stofna um-
búðaverksmiðju, þótt ömmur
sé fyrir í landinu sem fuil-
nægt getur öllum þörfum
okkar, og flytja heldur inn
umbúðir frá Bandar&junum
en kaupa jafn góðar en mum
ódýrari umjbúðir frá Kassa-
gerð Reykjavíkur. Röksemdir
Guðmundar eru þessar: „Það
er okkar skoðun, að sérhver
skuli hafa fullt frelsi til að
ráðstafa fjármunum sínum að
vild, og að það sé þeirra
einkamál, hvort þeir stofn-
setji eða taki þátt I upp-
bygginigu annarra fyrirtækja
... íslenzkir hraðfrystihúsa-
eigendur eiga edns og aðrir
að hafa fullt freisi til at-
hafna.“ Einhverjir gætu tekið
þetta frélsistal alvarlega ef
frystihúsaeigendur væru' í
rauninni að ráðstafa „fjár-
munum sínum“, en svo er
ekiki. Þeir leita sem kunnugt
er á náðiy ríkissjóðs hvenær
sem á bjétar — og raun
ar ednnig þótt eikíki bjáti á.
Bein og óbein framaög til
þeirra úr opinberum sjóðum
nema í ár hundruðum milj-
óna króna, og menin sem
sjálfir hafa farið fram 4
„þjóðmýtingu" af slfku tagi
eru þess ekki umikominir að
tala digurbarkalega um
„frelsi“ sdtt án tillits til
þjóóarhags.
ó-
rökrétt
Guðmumdur víkur að þvi að
Kristján Jóh. Kristjánsscm,
aðaleigandi Kassaigerðar
Reykjavíkur, sé stórgróðamað-
ur og segi£ „1 þeésu sam-
bandi er vert að vekja ait-
hygli á því, að örfáir en á-
hrifaimildir fjármálamenn.
sem hafa auðgazt á þjónustu-
starfsemi t.d. við hraðfrysti-
húsin, virðast mega eiga um-
búðáverksmiðju upp á hundr-
uð mi|jóna, í flugfélagi sem á
miljarða eignir og hefur tæp-
an miljarð í' veltu, í öflugu
tryggingafélagi, í einlkabönk-
um, í steypuverksmiðju og
ekiki nóg með það, hcldur
eiga hinir sömu menn í dag-
þlaðsútgáfu, sem er notuð sér-
stafelega í , þeim tiTgamgi , að
skrifa niðrandi leiðaraummæli
um sjálfstæða atvinnuirek-
endur í útgerð og fískiðnaði.’1
Bkki fer það milli mála að
Kassagerð Reykjavíkur hefur
hagnazt vél á viðskiptum við
fískiðnaðinn, en það eru ekki
slkynsam|eg viðbrögð við þeim'
staðreynd að stofna nýja og
þjóðhagslega óþairfa kassi-
gerð, því afleiðimigin verður
sú ein að kassagorðimar
Enn einu sinni missti iands-
liðið tökin í seinni hálfíeik
„Við ættum að reyna að
semja við Dani um að leika
bara tvo fyrri hálfleiki", sagði
einn gárungi eftir að hafa séð
landsliðið okkar tapa niður átta
marka forskoti í síðari hálfleik
Pressuleiksins sl. miðvikudags-
kvöld.
Öllu gamni fy.lgir nokkur al-
vara segir máltækið og svo er
einnig hér. Þetta er orðið ugg-
vænlegt vandamál sem lands-
liðið okkar á við að stríða, að
Ieik eftir leik skuli það forskot
sem unnizt hefur i fyrri hálf-
leik apast niður i þeim sið-
ari. Oftast hefur þrek- og út-
haldsleysi verið kennt um þeg-
ar við erlend lið hefur verið að
etja. I þessum leik var því ekki
til að dreifa, því að nú voru
andstæðingarnir félagar þeirra,
er notið hafa algjörlega sömu
þjálfunar og aðstöðu.
---------------------------------$>
Ársháiíð Vals er
á morgun
Árshátíð knattspymufélags-
ins Vals'verður haldin í Tjam-
arbúð laugardaginn 30. marz
n.k. og hefst með borðhaldi kl.
19,00. Fjölbreytt skemmtiatriði
verða þar og m.a. munu þeir
Hermann Gunnarsson. Sigfús
Halldórsson og Hjálmar Gísla-
son skemmta en þeir eru öllum
Vals-mönnum góðkunnir. Einn-
ig mun RÍÓ tríóið skemmta.
Miðar á hátiðina eru afhentir í
félagsheimilinu að Hlíðarenda
og í Kjörbúðinni, Hverfisg. 50.
verða báðar reknar á óhag-
kvæman hátt og þjóðarheildin
tapar. Hitt hefðu verið rök-
rétt viðbrögð að frystihúsa-
eágendur hefðu mótmælt þvi
að jafn mikilvægt einokunar-
fyrirtæki og Kaséagerð
Reykjavíkur vaari í einkaeign.
flutt tillögur um að það væri
tekið eignamámi og síðan
rekið sem þjónustusitofiniun við
fiskiðnaðimn. 1 amnan stað
hefðu frystihúsaeigendur get-
að krafízt þess með fulluim
rökum að tekið yrði upp
strangt verðTagseftirlit með
fiskumbúðum og þaninig
tryggt að iðnaðurimn fengi bá
vöru á sanngjömu verði.
Eina
leiðin
ATmemnar huigleiðiingar Guð-
mundar um eámkaireksitiur og
opinbenan rekstur í þessu
saimbandi eru aðedns til marks
um það að hann hefur eldd
enn áttað sig á því hvar
hann er staddur í veröldinni.
Hann býr ékki í stóru óg
öfluigu rfld, heTdur í örlitlu
samféTagi sem verðjir að
leggja heildarmat á atvimnu-
rekstur sinn ef etkki á illa að
fara. Á mörgum sviðum er
aðeins rúm fyrir eitt fyrir-
tæki á íslamdi; við fáum að-
eins staðizt samkeppni við
aðra að við samednum getu
okkar á þann hátt. Vamdinm f
ístonzkum efnahagsmálum sitaf-
ar ékiki sizt af því að menm
hafa verið að reynia að apa
eftir hasitti tífalt og hundr-
aðfalt stærri þjóðfélaga, með
þeim aflleiðingum að fyrirtæk-
in hér hafa orðið örsmá og
einskis megandi og grafið
hvert umdam öðru. Það er fyr
ir löngu arðið tímabært að
íslendimgar horfist í aiuigu við
þessa grumdvaHarstaðneynd.
einlkarékstursmenn á rfkis-
framfærj ekki síður en aðr- ,
ir. — Austri.
!■»•■■■■■■■•«■■■■■■»•■■»•■••»•»••■■■■■■»■■«■■■■■■■
Hvað það er sem veldur
þessu er ekki gott að segja, en
hvorki mannaskipti í liðinu né
þjálfaraskipti geta kveðið þenn-
an draug niður. Ef til vill gerði
landsliðsnefnd réttast í því að
ráða sálfræðing sem fjórða
manm í nefndina. því að þetta
sýnist vera verðugt verkefni
fyrir slika sérfræðinga.
Þessi pressuleikur var á
köflum nokkuð skemmtilegur á
að horfa, einkum seinni hálf-
leikur eftir að leikurinn tók
að jafnast. Fyrri hálfíeikur var
aftur á móti mjög ójafn. en þá
sýndi landsliðið á köflum skín-
andj góðan leik. Vöm pressu-
liðsins var allan tímann mjög
opin, sér í lagi í fyrri hálfléik,^
en það kom ekki eins að sök í
þeim síðari eftir að allt fór í
handaskolum hjá landsliðinu.
Einar Magnússon. sem átti
mjög góðan leik. skoraði fyrsta
mark leiksins fyrir landsliðið
og í kjölfarið fylgdu þrjú önn-
ur áður en pressuliðið komst
á blað en Bergur Guðnason
skoraði fyrsta mark pressunn-
ar og staðan var 4:1. Á eftir
þessu fylgdi bezti kafli lands-
liðsinS. sem skoraði nú hvert
markið á fætur öðru. án þess
að pressunni tækist að skora.
Um miðjan fyrri hálfleik
var staðan orðin 8:1 landsliðinu
í vil. Þá var það §em Gísli
Blöndal. sem án nokkurs vafa
spilaði sig inní landsliðið. tók
til sinna ráða og lagaði stöð-
una fyrir pressuna í 10:5, en
hann skoraði þrjú mörk í röð
þesjar staðan var orðin 10:2.
í leikhléi var staðan svo
14:9 landsliðinu í vil. Maður
átti satt að segja von á stór-
sigri landsliðsins og styrktist
heldur í þeirri trú þegar Guð-
jón Jónsson byrjaði síðari hálf-
leik á því að skora 15. mark
lamdsliðsims og ég verð að játa
að ég þóttist sannfærður þegár
staðan var 20:12. átta marka
munur landsliðinu í vil, ög inn-
an við 20 mín. eftir af leik. Þá
kom reiðarslagið.
Á aðeins n'imum 10 minút-
um breyttist staðan úr 20:12 í
21:20. Þetta voru erfiðar mín-
útur hjá öllum þeim sem vilja
veg landsliðsins sem mestan.
og mig rekur vart minni til að
hafa séð annnð éins á jafn
skömmum tíma.
Undir lokin varð leikurinn
æsispennandi. landsliðið komst
í 22:20. Þá skoraði Jón Hjalta-
lín 21. mark pressunnar en Geir
Hállsteinsson skoraði 23. og
síðasta mark landsliðsins en
Gísli Blöndal sá um að jafna
fyrir pressuna með tveim fal-
legum mörkum. Þar með var
þessi martröð á enda.
Það verður a'ð segjast eins og
er að þótt ég hafi átt hlutdeild
í vali pressuliðsins og hefði
þess vegna getað verið ánægð-
ur var langt frá þvi að svo
væri. Hefði pressuliðið verið
betri aðilinn í þessum leik þá
hefðj maður ef til vill getað
verið ánægður, því að þá hefði
hreinlega verið hægt að skipta
um einhverjar stöður í lands-
lininu, en því er bara ekki að
heilsa. Heldur var það 10—15
mfn ALGJÖR ÖRDEYÐA í síð-
ari hálfleik sem gerðj út um
leikinn. Fram að þeim tíma var
landsliðið mjög gott og hafði
alla yfírburði.
Ef sagan endurtekur sig í
landsleikjum. við Dani eftir
rúma viku, þá er útlitið allt
annað en gott, því að við verð-
um að ætla danska landsliðið
ívið skárra pressuliðinu ís-
lenzka! ,
/
Liðin:
f landsliðinu voru beztir Ein-
ar Magnússon, Geir Hallsteins-
son og Þórður Sigurðssom. Þess-
ir þrír menn má segja að hafi
með þessum leik „gulltryggt"
sér landsliðssæti í næsta lands-
leik. Auk þeirra áttu Guðjón
Jónsson, Stefán Jónsson og
Ágúst Ögmundsson allir nokk-
uð góðan leik. Ég held að aðr-
ir leikmenn séu langt frá því
að vera öruggir með sín sæti
í landsliðinu.
í pressuliðinu bar Gísli Blön-
dal af. Hafi nokkur maður spil-
að sig inn 1 landsliðið þá var
það hann, og ég trúi því ekki
að óreyndu að landsliðsnefnd
gangi fram hjá honum. Aðrir
sem áttu góðan leik og koma
sterklega til greina í landslið
voru Jón Hjaltalin, Siguxður
Einarsson og Stefán Sandhólt,
auk þess sem Hjalti Einarssóh
markvörður fer sjálfsagt að
koma sterklega til gréina í
landsliðsmarkið aftur.
Mörkin skoruðu: Fyrir lands-
liðið: Geir 5. Guðjón 3. Gunn-
laugur 2, Öm 1, Hermann 1,
Stefán Jónsson 1. Fyrir press-
una: Gísli 8, Bergur 3, Jón Hj.
2, Sigurður E. 2, Stefán Sand-
holt 4. Sigurður J. 2. Páll 1
og Ragnar 1.
Dæmt var eftir tveggja dóm-
ara kerfinu og dæmdu þeir
Óli Ólsen og Óskar Einarsáon
nokkuð sæmilega.
Sdór.
Æfíngar unglingalandsliðs-
ins íknattspyrnu hafnar
★ Unglinganefnd Knatt-
spyrnusambands íslands
hélt fund með þjálfurum
unglingaflokka allra Rvik-
urfélaganna, einnig fiá
Akranesi. Kópavogi, Hafn-
arfirði og Keflavík. Auk
þess sátu fundinn flestir
stjórnarmenn KSÍ.
★ Fundur þessi var hald-
inn til að kynna starfssvið
unglinganefndarinnar og
undirbúning að þjálfun ung-
lingalandsliðsins. Formað-
ur unglinganefndar, Ámi
Ágústsson skýrði áætlun og
undirbúningsstörf nefndar-
innar, og Jón Ásgeirsson
sagði frá þrekmælingum,
★ t skýrslu formanns kom
fram m.a. að Örn Steinsen
hefur verið ráðinn þjálfari
unglingalandsliðsins 1968.
Hófust æfingar liðsins í
Hafnarfirði i gærkvöld.
fimmtudag.
Meistaramótið innanhúss:
Enn setti Björk
/r
nýtt Islandsmet
Siðari hluti Meistaramóts ís-
, lands í frjálsiþróttum innan-
húss 1968 fór fram í íþrótta-
höllinni í Laugardal laugardag-
inn 23. marz.
Keppt var í þessum greinum,
og urðu úrslit sem hér segir:
1000 m hlaup
Þórður Guðmundss. UBK 2.43,8
fslandsmeistari.
Páll Eiríkssin, KR 2.44,2
Trausti Sveinbj.s. UBK 2,45,0
Öm Agnarss. UÍA 2,45,7
40 m grindahlaup karla
(Þrjár umferðir)
Valbjörn Þorlákss.. KR 17,3
íslandsmeistari
Sig. Lárusson Á 18,7
Hróðímar Helgason Á 19,0
Guðmundur Olafss. ÍR 19,9
40 m grindahlaup kvenna
(tvær umferðir)
Björk Ingimundard. UMSB 13,1
íslandsm, meistaram.m.
Linda Éíkharðsd. ÍR 14,9
Ingunm Vilhjálmgd. ÍR 16,1
Hástökk karla án atrennu
Jón Þ. Ólafsson IR 1,68
íslandsmeistari.
, Valbjörn Þorláksson, KR 1,60
Erl. Valdimarsson, ÍR 1,55
Elías Sveinsson, ÍR 1,55
Hástökk kvenna með atrennu:
Björk Ingimundard., UMSB 1,48
| íslandsmeistari — (nýtt
í slandsmet).
Sigrún Sæmundsd., HSÞ 1,45
ína Þorsteinsdóttir, UBK 1,45
Ingunn Vilhjálmsdóttir. ÍR 1.40
i
Hástökk karla með atrennu:
Jón Þ. Ólafsson, ÍR 2.02
fslandsmeistari.
Valbjöm Þorláksson, KR 1,80
Kjartan Guðjónsson, ÍR 1,80
Eriendur Valdimarsson, ÍR 1,80
Stangarstökk:
Valbjöm Þorláksson, KR 4,15
íslandsmeistari.
Páll Eiríksson, KR 3,75
Guðm. Jóhannesson, HSH 3,60
Magnús Jakobsson. UMK 3,30
Valur Valdimarsson, Á 2,85
Unglinga- og drengjameistari.
—
Skolphreinsun inni ogúti
Sóíthreinsum að verki loknu. — Vakt all-
an sólarhringinn. -
Niðursetning á brunnum og smá viðgerðir.
Góð tæki og þjónusta.
RÖRVERK
Sími 81617.