Þjóðviljinn - 29.03.1968, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 29.03.1968, Blaðsíða 5
Föstudagur 29. marz 1968 — Í>JÓÐVILJINN — SlÐA J m Hlébarðinn gullpálmann í Cannes 1964. •Alhir texti myndarmnar er sunginn. Catherine Deneuve fer með aðalhlutverkið. Elébajréinn. Luohino Visconti 1963. Claudia Cardinale og Burt Lancaster á einum stórkostlegasta dansleik, sem sézt hefur á kvikmynd. Betra myndaval Talsverður fjörkippur virð- ist kominn í kvikmyndahúsin hér sem sýna nú mörg hver ágaetar myndir og eiga von á ýmsu asnð forvitnilegu. Það er óskandi að þetta sé merki um að íslenzkir kvikmynda- húsaeigendur séu famir að fylgj - ast betur með. Ég vona að fólk bregði vel við og saeki þess'ar myndir, aðeins þannig er unnt að tryggja betra mynda- val en tiðkazt hefur. Repulsion Kópavogsbíó hefur nú synt Repulsion eða Chok eftir Rom- an Polanski i rúmar þrjár vik- ur. Polanski sem er talinn einn af merkustu ungu kvikmynda- höfundurn í dag er af pólsfcum asttum. Hann stundaði nám við kvikmyndaháskólann í Lodz og þar gerði hann sína fyrstu mynd, Tveir menn og klæða- skápur (stutt). Helztu myndir hans eru Hnífur í vatninu (Pól- land 1962), Repulsion (Bret- Iand 1965) og Cul de Sac (1966) sem fékk gullbjöminn í Berlín það ár. Chok er óvenjuleg mynd og tæknilega afar vel gerð. Leikur Catherine Deneuve í hlutverki s.iúku stúlkunnar er snillidarlegur, ýmsum finnst sem slíkur hryllingur sem fram kemur í myndinni eigi alls ekki rétt á sér, og þykir mér Polanski ofgera hann með því að sýna tvö morð í m.yndinni auk hinnar sífellu sýningar á dauðri kanínu á mismunandi rotnunarstigum. Hann ver ekki neinu af tíma sinum í rann- sókn eða lýsingu á þvi hvem- ig sjúkdómur stúlkunnar þró- aðist og þess vegna verður saga hennar ekki eins áhuga- verð; hann lýsir aðeins hrylli- legum afleiðingum sjúkdóms- ins. Polanski hefur sagt: „Ef þú hittir fólk á förnum vegi þá veiztu ekki ástseðumar fyrir því hvernig það hegðar sér, þú sérð það aðeins eins og það kemur fyrir. Mannleg hegð- un er flóknari en svo að hægt er að útskýra hana með fáum einföldum orðum“. Ástir í Stokkhólmi Austurbæjarbíó sýnir bráð- skemmtilega ítalska gaman- niynd Ástir í Stokkhólmi. Hún fjallar um ítalskan kaupsýslu- mann sem kemur til Stokk- hólms í viðiskiptaerindum. Á leiðinni les hann með ákefð ferðapésa með eftirfarand' klausu um sænsku stúlkurnar: „í>ær spyrja þig ekkiumaldur, 'eða hvort þú eigir konu og börn. Þær eru ekki með neinaóbarfa tilfinningavellu. Stúlkan te'kur í hönd þína og leiðir þig inn í herbergið sitt, tendrar Ijós á tveim kertum og horfir þög- ul í augu þér. I>á finnurðu að þú hefur aldrei fyri-þekktham- ingjuná“. En margt, fóf” öðru- vísi en ætlað' var hjá þessum lávaxna þybbna Ítaía og verð- ur hann þeirri stundu fegnast- ur er hann leggur af stáð suð- ur á bóginn. Menn ættu ekki að láta þessa. mynd fram. hjá sér fara og ekki hræðast hið islenzka heiti hennar. Næsta mynd Austurbæjarbiós verður Regnhlífar Cherbourgar er hlaut Nýja bíó endursýnir nú Hlé- barðann eftir ítalska leikstjór- ann Luchino Visconti. Þetta er róman-tísk og á köflum gam- ansöm lýsing á ítalskri fjöl- skyldu svo og á Italíu á tím- um Garíbaldis. Myndin er ein- staklega falleg og stílhrein og vil ég eindregið hvetja fólk til þess að sjá hana. Það hefur áður verið vikið að þvi hér á síðunni, að kvikmyndahúsin ættu að gera meira af því að endursýna beztu myndir sínar og fækka þannig eitthvað þeim ruslkvikmyndum sem því mið- • ur eru; alltof algengar. Þá hefur Stjörnubíó hafið sýningar á nýrri sænskri kvik- mynd Ég er forvitin, eftir Vil- got Sjöman. Þessi mynd hefur vakið feikna deilur vegna hispursleysis í ástarlýsingum og pólitiskum skoðunum. Hennar verður getið nánar síðar hér í blaðinu. Cul- de Sac (Blindgata). Roman Polanski (1966). Myndin fjallar um miðaldra mann sem býr með ungri stúlku í fomiim kastala á lítilli eyju. Þangað flýja tveir glæpamenn. Myndin greinir svo frá samskiptum þessa fólks í kastalanum. Donald Pleasance og Francoise Dorleac leika skötuhjúin. Myndin hl-aut gullbjöminn í Berlím 1966. Repulsion (Chock). Catherine Deneuve í hlutverki sinu. / stuttu máli Máfurinn í sumar byrjar Sidney Lum- et (höfundur m.a. The Hill og The Pawnbroker) töku kvik- myndar eftir hinu þekkta leik- riti Tjekoffs Máfurinn. Aðal- hlutverkin verða leikin af Sim- 'one Signoret, James Mason, David Wamer og Harry Andr- ews. Myndin verður tekin við stöðuvatn eitt nálægt Stokk- hólmi en í því umhverfi hyggst Lumet ná líkingu með rússneska skóginum sem er bakgrunnur í leikriti Tjekoffs. Godard og Bítlarnir Samningar standa nu yfir á milli franska leikstjórans Je- ans Luc Godard og brezku Bítl- anna um töku kvikmyndar. God ard semur söguna, sem fjallar um vanfæra stúlku er kemur til London í leit að elskhuga sínum en finnur þar allt ann- að en hún leitar að. Bitlarnir munu sjá um fjárbagshliðina en ekki er ákveðið hvort þeir komi sjálfir fram í myndinni. Edgar Allan Poe Leikstjóramir Louis Malle, Roger Vadim og Federico Fell- ini vinna nú hver að sínum hluta kvikmyndar, sem gerð er eftir þrem sögum Edgar Alan Poe. Meðal leikara eru Brigitte Bardot, Alan Delon, Jane Fonda og Terence Stamp. Ævi Che Guevara Ákveðið er að gera kvikmynd um sevi kúbaneka byltingafor- ingjans Che Guevara. Tveir ít- alskir leikstjórar þeir Franc- esco Rosi og Valentino Orsini bafa dvalið á Kúbu í þessu skyni. En það eru fleiri sem hafa áhU'ga fyrir verkefnihu, m.a. hinn þekkti brezki leik- stjóri Tony Richardson og sér við hlið hefur hann rithöfund- inn Aian Sillitoe. Ekki er enn séð fyrir um hver þeirra hlýtur kvikmyndaréttinn. Japönsk mynd / Laugarásbíói Onibaba. LaugarásMð á á mörg- Japanir framleiða nú árlega 400-500 langar kvikmyndir, og er það heimsmet. Langstærsti hluti þeirra munu harla ómerk- ar skemmtimyndir, en í annan stað hafa þeir sent frá sér stórbrotin og kynngimögnuð listaverk sem oft eru byggð á fomum sögnum úr hinni löngu og blóðugu sogu lands- ins. Laugarásbió sýnir nú eitt þessara verka, Onibaba. Mynd- in gerist á miklum hórmung- artimum til forna. Hún fjallar um tvær konur sem draga fram lífið á að drepa hermenn og selja af þeim klæði og vopn. Þær búa afskekkt á fenjasvæði, hátt sefið umlykur bústað þeirra. Hermemnirnir villast í endalausum sefbreiðum og þar vinna konurnar á þeim. Hér skal''efnið ekki rakið nánar til að spilla eigi fyrir mönnum spennu myndarinnar. Þetta er sniTldarmynd um hroðalegt efwi. Jaþönsku leikstjóramir Ozu, Mizoguchi, Kurosawa, Kobay- ashi og Ichikawa hafaáundan- fömum árum gert kvikmyndir sem vakið hafa hedmsathygli og hlotið ótal verðlauna. Þeir hafa með myndum sinum skap- að mjög sérkerjni'Iegan stíl, sem sannanlega er' rfkjandi í þess- ari mynd Kaneto Shindo. Með frábærri myndatoku i svart- hvítu cinemascope ná þeir sér- stæðum áhrifum í lýsingum sínum á hroðalegustu atburð- um. I Onibaba er það sefið spm skapar hið magnaða and- rúmsloft, þetta háa sef sem bylgjast undan bla&num, stund- um heyrist ekkert hljóð nema skrjáfið í stránum. Þótt unun sé á að horfa hversu fallega sefið er kvikmyndað verður óvissan um hvað í þvi leynist þeirri aðdáun yfinsterkari; það fyllir mann óhugnan. Og á einum stað í sefbreiðunni er uppþornaður brunnur, þar í várpa knnumar likunum, þar hafa hræfúglamir viðdvöl, þangað niður fer önnur konan eftir vopnum og klæðum her- manns er hún ginndr í þessa gröf. Japanskar kvikmyndir hafa verið sjaldséðar hérlendis. Þó hafa verið sýsdar hér þærsem hæst hafa borið á síðari árum eins og Rashomon (1950) og Tojimbo (Lífvörðnrinn, 1961) gerðar af Akira Kurosawa, Nobi (1959) efitir Kon Ichikawp, Harakiri (1962) gerð af Masaki Kobayashi og Olympíuleikarnir í Tokyo. Við bíðum enn eftir myndum eins og Konan í sand- inum (1964) sem fékk sérstök heiðursverðlaun í Cannes 1964 og var valin bezta japanska kvikmyndin það ár, og Kwaidan sem hlaut sömu verðlaun í Cannes 1965 en hún er gerð af höfundi Harakiri. um góðum kvikmyndum m.a. hefur bíóið tryggt sér sýning- arrétt á nokkrum nýjum tékkri- eskum myndum og eru nú all- ar horfur á að bióið muni skjóta hinum reykvísku bíó- unum langt aftur fyrir sigmeð vönduðu myndavali. Þ.S.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.