Þjóðviljinn - 19.04.1968, Síða 10
Mikil þoka yffir
Faxaflóa og við
Breiðafjörð
Mikil þoka, svokölluð útgreisl-
unaxþoka, var yfir Faxaflóa og
Breiðafirði í gær og fyrradag.
Á Veðurstofunni spáðu menn
því að í dag yrði ekki lengur
sama hægviðrið og verið hefur,
heldur norðaustan gola, þoku-
laust og bjart veður.
Þjóðviljinn hafði tal af veð-
urfræðingi og sagði hainin að
mjög eðlilegt væri á þessum
tíma, að um nætur kólnaði jörð-
in og loftið mikið og ef nægur
raki væri fyrir í loftinu mynd-
aðist þoka. Auk þess er sjórinn
kaldur og var í gær frekar þunn
þoka á stóru svæði útd á Fló-
anum.
Þokan var eins og fynr seg-
ir yfir Faxaflóa og við Breiða-
fjörð en annars staðar á land-
inu mun yfirleitt hafa verið
heiðskírt t.d. var þokulaust á
Þingvö'llum, fyrir austan Fjall
og í Borgarfirði.
Tuttugu ára
kosningaaldur
orðinn að lögum
Fruimivarp tál laga um breyt-
imgar á kosningalögum varsam-
þykkt í gaer sem lög frá efri
deild Alþingis með 15 atkvæðuim
gegn 2.
Meginefni þeirra breytinga er
að lækka kosningaaldur niður í
20 ár. Auk þess var saimþykkt
tiliaga dómsimálgráðherra um
framþoðsrétt aðila á vegum
stjómmálaifllokika,
Siglingaleiðin
fyrir Langanes
er enn erfið
SIF, flugvél Landhelgisgæzl-
unnar, fór í ískönnunarflug í
gær og kom þá í Ijós að sigl-
ingaleiðin fyrir Langanes erenn
mjög erfið.
Vakir liggja inn með Langa-
niesi að sunnaanverðu, en lokast
á móts við Edðisvfk og virðist ó-
fært út úr ísnum þar. 11 sjö-
mflur austur af Digranesi virð-
is-t samfelldur ís enda, og þaða/n
að Gerpi eru aðeins stakir jaik-
ar og jakahópar, einkum út af
Bjaimarey. Kögri og Sandvfk.
Jakar þessir liggja djúpt í og
sjást ömígglega illa eða ekiki í
ratsjá. Ekki sést niður sunnan
Gerpis, sökum þoku.
Eldur f húsi við Bergstaðastræti i gærdag
Föstudagur 19. april 196S — 33. árgangur — 77. tölublað.
Hermenn steypa hefforingjastiórn:
Stjórnarbylting gerð
í Sierra-Leoneí gær
MONROVIU 18/4 — Her og lögregla tóku völdin í Afríku-
ríkinu Sierra Leone í gærkvöld og hafa formaður og vara-
formaður hins þjóðlega umbótaráðs verið handteknir.
Laust fyrir kl. 2 í gær var slökkviliðið kvatt að Bergstaðastræti 63, sem er timburhús, tvær hæðir
og ris. Hafði komið þar upp eldur á neðstu hæð og lagði mikinn reyk um allt húsið. Fljótlega tókst
að slökkva eldinn en talsverðar skemmdir urðu á neðstu hæðinni bæði á innréttingum og innbúi,
hins vegar komst eldurinn ekki upp á efri hæðina- Hús þetta er í eigu Silla og Valda. Myndin er
tekin um það bil sem slökkvistarfinu var að ljúka. — (Ljósm. Þjóðv. G. M.).
Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir
samdrætti atvinnuveganna
Framkvæmdir aiúmínverksmiðju geta ekki komið
í staðinn fyrir eflingu íslenzkra atvinnuvega
I skýrslu sem fjármálaráðherra, Magnús Jónsson, flutti
Alþingi í gær um framkvæmdaáætlunina 1968 kom fram
að samdráttur í atvinnuvegunum er fyrirhugaður. Ríkis-
stjórnin virðist einnig telja að ekki séu fyrir hendi brýn
verkefni í eflingu íslenzkra framleiðsluatvinnuvega. Því
sjónarmiði mótmælti Lúðvík Jósepsson, formaður þing-
flokks AIþýðubandalagsins, eindregið.
Bæði Eysteinn Jónsson og Lúð-
vík Jósepsson átöldu sem geir-
samlega óhæf þau vinnubrögð
ríkisstjómarinnar að flytja
skýrsluna um framkvæmdaáætl-
un ársins 1968 á síðustu dögum
þingsins, þegar ekikert tóm er til
að þingmenn kynni sér bana að
nokkru ráði og geti rætt hana
ýtarlega. Meira að segja er hesp-
að gegn um þingið frumvarpi um
lánaheimild vegna framkvæmda-
áætlunarinnar, og svo flutt
skýrslan um áætlunina sjálfa,
sem að sjálfsögðu er ómissandi
sem greinargerð með lánafrum-
varpinu.
Franska sendiráðið
heidur bókasymngu
Frönsk bókasýning verður opn-
uð í dag í Bogasal Þjóðmínja-
safnsins af menntamálaráðherra,
Gylfa Þ. Gíslasyni og verður for-
seti íslands viðstaddur athöfn-
ina. Sýningin er haldin á veg-
um franska sendiráðsins.
Bátur strandar
víð Garðskaga
I þokunná í gærmorgun strand-
aði 10 tonna bátur, Ema KE 36,
við Garðsikaga og bað um að-
sitoð. Björgunarskipið Elding var
þar á næsitu slóðum og dróErmu
á fflot. Kom þá í ljós að gat
hafðd komið á bátinn og var
taisverður leki. Froskimanni úr
Eldingiu tókst að þétta lekann
og komst Errna inn til Keifflaivík-
ur. Logn var og bláða og var
áhöfnin á Emu aldrei f neinni
hættu.
Franski sendiherrann og franski
sendikennarinn við Háskóla fs-
lands ræddu í gær við blaða-
menn um bókasýninguna sem
verið var að koma upp í Boga-
salnum.
Á sýningunni eru nokkur
hundruð bækur og keenir þar
ýmissa grasa. Þar eru m.a. skáld-
sögur, listaverkabækur, bækur
um vísindi, bamabækur og
myndabækur frá Frakklandi. Er
aðaltilgangurinn með sýningunni
sá að kynna franska bókagerð,
bæði ódýrar, smekklegar útgáfur
og vandaðri, og þá um leið dýr-
ari bækur.
Aðeins rúmlega 20 af þeim
bókum sem sýndar eru verða
sendar aftur til Frakklands; og
mun íslenzkum stofnunum gef-
ast kostur á að eign-ast hinár
bækumar.
Franska bókasýningin verður
opnuð kl. 4 í dag og verður opin
frá kl. 2—10 í eina viku.
-k Samdráttur
Lúðvík kvaðst einungis drepa
á fáein meginatriði í skýrslu ráð-
herrans.
Ljósit væri að ríkisstjórndn
gerði ráð fyrir að árið 1968 verðd
mjöig veruleg tilfærsia á fram-
kvæmdum í landinu, og talsvexð-
verður samdráttur, einnig þegar
á heildina væri litið. Gert væri
ráð fyirix miklu minni fjármuna-
myndun en árið áður í öllum
helztu greinum atvinnulifsins.
Þannig væri reiknað með að f j ár-
munamyndun í landbúnaði drag-
ist siaman um 55 miljónir, í fisk-
veiðum 365 miljónir eða um
meira en helming, í vinnsiu
sjávarafurða um 50 miljónir.
Fjármunamyndun í vega- og
brúragerð væri áætluð 35 mdlj-
ónum lægri, gatna- og holræsa-
gerð 20 miljónum lægri, í al-
mennum hafniargerðum (að frá-
talinni Straumsvík) 60 miljónum
lægri. Talsverður annar sam-
diráttur er áætlaður í atvinnu-
lífinu.
Til mótvægis kemur svo fjár-
munamyndun
sambandi váð
Búrfellsvirkjuninia og Straums-
víkurframkvæmdir, fjármuna-
myndun sem fcalin er nema 885
miljónum króna aukningu.
■ Stærstu verkefnin eftir
Þetta getur þýtt mjög hættu-
lega tilfærslu á vinnuaflinu í
landinu sem getur átt eftir að
koma óþyrmilega við hina venju-
legu atvinnuvegi landsmannia.
Fjármálaráðherra sagði að gert
væri ráð fyrir að minnka all-
verulega fjármuniamyndunina
einmitt í atvinnuvegunum, en
það myndi ekki koma að sök
því þar væri ekki nú um aðkall-
andi vandamál að ræða. Ég hef
allt aðra skoðun á þeim málum,
sagði Lúðvik. Ég tel margar
greinar atvinnulífsdns svo stadd-
ar að þar sé eftir að takast á
við stærstu og þynigstu verkefn-
in, ef atvinnuvegir okkar eiga
að duga á komandi árum.
Hugsazt gæti að vel mætti
draga nokkuð úr kaupum á
stærstu bátunum til síldveiða. En
hvað líður því verkefni að byggj a
upp fiskiðnað íslendinga á breið-
ari grunni? Hér verður að ráð-
ast í það verkefni að hefjá nið-
ursuðu fiskmetis í stórum stíl.
Það virðast áætlunarhöfundar
telja útilokað að íslendinigar geti
í ráðizt. Og hvað um íslenzka
togaraútgerð? Hefur uppbygging
hennar farið fram? Er endumýj-
un togaraflotans lokið? Skyldi
nokkru fjármagni verða varið til
að byggja upp þá atvinnugrein?
Talað er um að gera útfflutnings-
atvinnuvegina fjölbreyttari. Það
er hægt að byggja upp nýjar
greinar útflutninigsatvinnuvega.
En ekki virðist eiiga að verja fé
til þess.
★ Tekjur sjómanna lækkuðu
um 400 miljónir
Mikið hefur verið talað um að
aflabrestur og verðfall leggi
Framhald á 7. síðu.
Samkvæmt fréttum sem sam-
veldismálaróðuineytinu í Londo-n
hafa borizt byrjaði vaildaitalkan
mieð þvi að herskólanemar sem
staðsettir eru í útjaðri höfuð-
borgarinmar Freetown, gerðu upp-
reisn gegn liðsforingjum sínum.
Símiasamband hefur verið rofið
milli London og Fraeitown síðan
í gærikvöldi.
o o o
Formaður umbótaráðsins var
Juxton-Smith liðsforingi, sem
stýrði yaldatöku hersins í Sierra
Leone í marz í fyrra. Setti hamn
borgaralega stjóm af og hefur
síðan verið við völd, en setti á
stofn nefnd edna í febrúar sem
átti að koma aftur á borgarálegri
stjóm í landinu. Valdaitakan í
rrarz í fyrra átti sér stað að ný-
lokmium kosninigiuim, en herinn
hólt því fram að í þeim hefðu
verið brögð í taiffli. Síðan hefur
stjóm Juxtons-Smiths sakað ýmsa
fyrrverandii ráðherra um mis-
ferli í starfi og aðra spillin-gu.
Pólitís'ka fflotoka hafði hún bann-
að.
O O O
Þeir herskólanemar sem nú
standa að uppreisminnii hafa að
sixmiu leyti saikað yfiirmene sína
uim spillingu og myndað „And-
spillinigarróð hersins", i þvi eru
14 menn og er Patrick Gordon
uinidiirliðþjálfli fonmaður þess. —
Fréttir frá Freetowm henma að
strjál skothrfð hefði heyrzt í
borginni en hinir nýju valdhaf-
ar virtust hafa stjóm á öllu.
Janos Kadar
fer sér hægt
BUDAPEST 18/4 — Formaður
un-gverska kommúnistafflokksinis,
Janos Kadar, sa-gði í dag að ekki
mundi kom-a til neinna ofsafeng-
inna breytinga í Ungverjalandi.
Hann sagði að flokkur sinn
styddi kommúndstaflokk Tékkó-
slóvakíu og Póllamds í einu og
öll-u, virti sjálfstæði þeirra og
vildi gott sa-mstarf við öll sósí-
alísk ríki undantekningarlaust.
Hann sagði u-m leið að staða
Ungverjalands væri traust, og
ekki ástæða fyrir skyndilegum
breytingum. Um leið lagði hann
áherzlu á eflingu sósíalísks lýð-
ræðis, án þess þó svo lamgt væri
gengið að mæla með stofnun
nýrra flokka.
indverjar eru andvígir banni
við útbreiðslu kjarnavopna
NÝJU DEHLI 18/4 — Imdverska
stjórnin ákvað í dag að skrifa
ekki undi-r þau drög að samn-
ingi um bann við útbreiðslu
kjamavopna sem liggur fyrir
afvopnunarráðstefnunni í Genf.
Indverjar hafa ekki borið fram
breytingatiMögur við þessi drög,
en meiri-hluti ráðherra indversku
stjóm-arinnar mun nú á þeirri
skoðun að henni beri að tatoa
saman höndum við Júgóslavíu,
Rúmeníu, Brasilíu og önnur riki,
sem að líkindum munu bera
fram slíkar breytingatillögur.
Indi-r-a Gandihi forsætisráðherra
hefu-r oftar en einu sinni ga-gn-
rýnt drög að þessum samningi
þar eð ban.n leggi takmairkanir
á ríki sem ekki haf-a kjamavopn
án þess að krefjast afvopnunar á
þessu sviði í þeim ríkjum sem
kjamavopn hafa.
Urðu að vísa gestum frá en
6 herbergi stóðu mannlaus
Óvarlegt er að treysta viðskiptum við ferða-
skrifstofurnar, segir hótelstjórinn á Hótel KEA
Um páskahelgina er skíða-
landsmótið var haldið á Akur-
eyri og gestakoma þar með
mesta móti, stóðu 6 herbergi
auð á Hótel KEIA. Ástæðan var
sú að sögn Ragnars Ragnarsson-
ar hótelstjóra, að tvær ferða-
skrifstofur í Reykjavík sem
pantað höfðu herbergi þessi
sendu afpöntun á síðustu stundu.
Hafði hótelið þá áður visað
mörgum pöntunum frá vegna
þess að fullpantað var, og höfðu
ferðamenn því hætt við að koma
til Akureyrar eða komið sér fyr-
ir annars staðar, er afpöntunin
kom fá þessum tveim ferða-
skrifstofum.
Ekki vissii Ra-gnar ástæðuna
fyrir þessum afpwmfcunuim, sem
korau sér að sjáifsögðu mjög iila
fyrir hóted-ið, en samnleikurinn
er sá, sagði Raginar, að óvarlegt
er orðið að treysta viðskiptum
við ýmsar ferðaskrifstofur. Við
höfuim að sjálfsögðu rétt til að
krefja ferðaskrifstofurnar uim
greiðslu, og veit ég ekki hvað
við gerum ef þær fara að leika
þcr„nan leik.
Rekstur ferðaskrifstofanna
margra virðist vera orðinn hrein
æviintýramennska og má t.d.
nefna það að þær fá oft greitt
fyrirfram hjá fólkin-u en borga
okkur sivo ekki fyrr en 3-4 mán-
uðum seinina. Eru þær þannig
að leika sér með annarrg fé
la-ngan tí-ma, sagði Ra-gnar að
lokum, en rétt er að taka fram
að Ferðaskrifstofan Lömd og
Leiðir átti engan hlut að þessu
leiðindaméli sem gerðist hér um
páskahelgiha.
Unglingadans-
leikur ÆFK
Almennur unglingadans-
leikur verður haldinn i Fé-
lagsheimili Kópavogs laug-
ardagin-n 20. apríl n.k.
Hin þekkta tániingahljóm-
sveit Dýrlingamir spila.
Dansað verður frá ki. 9 til
kl. 12,30. ölvun bönnuð.
— ÆFK