Þjóðviljinn - 03.04.1969, Page 8

Þjóðviljinn - 03.04.1969, Page 8
g SlÐA — ÞJÓÐVILJINN — Ffrnmtiudaaur 3. apríl 1969. Ný kenning um uppruna íslenzkrar menningar TJm þessar mundir flytur Einar Pálsson, B.A., forstöðu- rrtaður málaskólans Mímis, átta erindi í Norræna húsinu um niðurstöður sínar af margra ára rannsóknum á táknmáli íslenzkra fomsagna, en á þeim bygigir hann nýj ar kenndngar, sem hann setur fram í fyrirlesitrunum, er hann nefnir einu nafnd: „Rætur ís- lenzkrar menningar“. Og eins og nafnið bendir til fjallar Emar þar um uppruna ís- lenzkrar menningar, tengsd henn-ar við eldri menningar- samfélög og á hyem hátt má rekja feril hennar um 3000 ára skeið allt frá samfélöigum fljótadalanna við Indus, Efrat og Níl í lok steinald'ar norður og vestur um Evrópu til Dan- merkur og þaðan hingað út til íslands. t>ar sem hér er um að ræða efini, sem öllum ísienddnigum alla menningar«agnfraíðd í 30iO0 ár. — Eru þessar rannsóknir þínar ekki orðnar mjög um- fangsmiklar? — Jú, frumrannsóknim-ar fylla orðið 3400 stórar vélrit- aðar síður, þannig að fyrir- lestramir sem ég nú er að flytja eru aðeins stutt saman- tekt úr Öllu því efná. — Hyggistu gefa fyrirlesitr- ana út eða rita stænri bók um þetta efni? — Ég er með efnið tilbúið til útgáfu, ef eimhver útgef- andi finnst sem óvíst er hér á landi. Það er eins vist, að ég verði að gefa þetta út á ensku fyrst, þótt mér sé það allt ann- að en ljúft. Ée tel að þetta ætti fyrst að birtast á ís- lenzku. — Hvemig hefurðu svo að rannsóknum þínum, hverju eru þær fólgoar? RÆTT VIÐ HÖFUNDINN, EINAR PÁLSSON, B.A. ætti að leika mikil forvitni á að kynnast, hélt blaðam'aður frá Þjóðviljanum á fund Ein- ars sl. mánudag og rabbaði við hann stundarkom um rannsóknir hans og niðurstöð- ur í þeirri veru að reyna að gera lesendum Þjóðviljans nokkru nánari grein fyrir þeim en hægt er að gera 1 Stuttri frétt. Varð Einar góð- fúslega við því að láta í té nokkrar upplýsingar um þetta efni, þótt hann vildi eðlilega ekki skýra náið frá efni þeirra fyrirlestra sem enn eru óflutt- ir, en hann flutti fyrstu tvo fyrirlestrana sl. sunnudag og flytUir næstu tvo í dag. Hefurðu unnið lenigi að þessum rannsóknum, Einar? — Það eru yfir tuttogu ár frá því /ég fór fyrst að fást við þetta efni og sl. sex ár hef ég unnið að rannsóknun- um Sleitolaust. Fyrir um það bil tveim árum hafði mér loks tekizt að ráða visst tákn- mál íslenzkra fomsagna til þeirrar hlítar, að ég íann út frá þeim kerfið, sem ég byggi kenningar mínar á, síðan hef ég verið að sannprófa það og ekki birt neitt um þetta fyrr en nú, að ég tel mig búinn að kanna það til þrautar. Écr vil hins vegar, að það korni skýrt frarn strax, að þetta er kenning sem ég set fram. vinnutilgáta, ekki etað- hæfing. en verði þessi kenn- ing viðurkennd eigum við þar með mælistiku til að leggja á Ég bef fyrst og fremst laigt stund á að rannsaka trúar- brögð og hugmyndafræðí þessa tíma, efnd sem er lítt eða árannsakað hér á landi. Ég hef ekki rannsakað fomsög- umar sem bókmenntir heldur til þess að komast að hugsun- inni sem býr á bak við þaiu tákn sem í þeim er að finnia. Rannsóknir á táknmáli fom- sagnanina hefur verið alger- lega óplsegður akuir. Þetta er líkt og að ráða fram úr merk- imgu glataðs tumgumáls. Ég komst fyrst á sporið, er ég fór að rannsaka skipulega tákn- mál goðsagniann-a, en.það er samtvinnað leturspeki og töl- vísi. Til grundvallar liggur sameiiginlegur indóevrópskur arfur er hefur borizt himgað um Danmörku eins og ég sýni fram á. Þetta er eins konar öfug orðsifjaíræði, þ.e.a.s. maður byrjar á hugmyndinni, sem að baiki orðanna býr. — Kemur þetta þá ekki inn á svið skylt málfræðirann- sóknum eða hvemig koma nið- urstöður þínar heim við þær? — Allt sem ég hef fundið í mínum rannsóknum kemur heim við það sem menn bafa áður fundið með málfræði- rannsóknum og fomleifafræði- rannsóknum og styður það að sjálfsögðu fræðilegt gildi þeirra. — Og hverjar eru svo helztu niðurstöður ranneókna þdnna? Hvert liggja rætur íslenzkrar menningar samkvæmt kenn- ingu þinni? — Aðalatriðið «r þetta: Ég fann á Ranigárvöllum með rannsóknum minum á tákn- máli fomsagnanna heimsmynd sem gerð er eftir vissu kerfi, sem hægt er að reikna ná- kvæmlega út, því það er fast- bundið mælieiningum. Þessa heimsmynd hafa landnáms- mennimdr flutt með sór tii landsins er þeir komu frá Nor- eigi og tenigt hana siðan sjálfir hinu nýja landi. Þetta er ná- kvæmleg það samia og gerzt hefur víðast hvar annars stað- ar í öðrum löndum við sams konar aðstæður. Þetta kerfi heimsmyndsr- innar virðist fasttengt Skjöld- ungum, enda landnámsmaður- inn, Ketill hæn.gur, af þeim kominn. Nákvæmlega sams konar kerfi fann ég svo í Danmörku og þar var það bundið danska konungssetrinu Jellin.g á Jótlandi. Hér ber því allt að sama brunni. Með að- stoð danskrar fomleifafræðd er svo hægt að reikna út hve- nær þetta kerfi berst til Jót- lands, það er um 2090 fyrir Krist. Og þetta er sams konar talnaikerfi og menn notoðu í fljótadölunum við Indus, Efr- at og Níl við uppbygigingu sinnar heimsmyndar. Þannig gétum við rakið tenigslin við Austurlönd nser við Jelling í Danmörku um 2000 f. Krist og síðan allt til fslands um 885. Eitt meginatriði þess sern í ljós kemur við rannsóknir mínar «r, að við sjóum, að Ásatrúin, Sém er fastten.gd þessu kerfi, hefur verið sikipu- leg og kerfisbundin nákvæm- lega eins og trúarbrögð ann- arra samfélaga er búa við líkt menningarstig. Það er hins vegar ríkjandi kenning nú. að Ásatrúín hafi veirið í upplausn er hún barst hingað, því er jafnvel baldið fram, að hún hafi aldrei verið kerfisbundin, en bvert á móti hefur trúin á Vani og Æsi verið ein og sömu tirúarbrögð, ekki tvenn eins og sumir vilja vera láta. — Þú hefur sérstakleiga rannsakað Njálu með tilliti til táknmálsins, hvað vilto segja um niðurstöður þeirra rann- sókma? — Njála hefur algera sér- stöðu í fomfoókmenntonum að því leyti hve hún er gegnsýrð, beinlínds byggð upp af tákn- 1 máli, en því efni mun ég gera nán'ari skil síðar. sagði Einar að lokum. Næstu fyrirlestrar Einars verða fluttir í daig í Norræna húsinu og hefst sá fyrri kl. 3 síðdegis. þamæstu tveir fyr- irlestrar verða fluttir á annan í páskum á sama tíma og hin- ir síðustu tveir miðvikudag- inn 9. apríl n.k. kl. 22. E,r ekki að efa að manga mun fýsa að kynnast kenningu hans n.ánar en af blaðafregnum lausum í reipum. Athugasemd vegna fréttar um ,aprí/gabb' Vegna fregnar í bleðinu í gær um aprilgabb 1 sambandi við flutníng á lfki vestan af Mýrum, h«fur Þjóðviljinn haft samband við sýslumann Mýra- og Bor garí j ar ð arsýslu, Ásgeir Pétursson, um þetta atvik. Skýrði hann blaðinu frá því, að um kl. 18 í fyrradag hefði héraðslæknirinn í Borgamesi leitað til sín um heimild til flutnings á líki konu, s«m lát- izt hatfði í eyju undan Mýrum, úr lögsagnarumdæminu til Reykjaví’kur, þar sem ófært væri út í eyjuna tll þess að framkvæma laeknisekoðun. Eftir öllum atvikum kvaðst sýslumaðuirinn hafa fallizt á þessa tilhögun, enda myndi hann þá jafnframt úrskurða um réttarkrufningu. Héraðslæknir- lnn sá um útvegun flugvélar, «n sýslumaðurinn fól lögregl- unni í R«ykjavík að taka við hinni látnu og flytja í rann- sóknarstofu báskólans. Jafn- framt var krufning staðfest með símskeyti til rann6Óknarstof- unnar. Flutningurinn var síðan fram- kvæmdur með flugvél og flutti lögreglan í Reykjavík hiraa látnu í gærmorgun í rannsókn- amtofuna samkvæmt því sem ákveðið hafði verið. Sýslumaðurinn vakti athygli blaðsins á þvi, að réttara hefði verið að það hefði leitað sitað- festingar á atviki þessu óður en það birti umrædda frétt, sem óhjákvæmilega hlyti að valda aðstandendum hinnar látnu ó- þægindum. Mannslát væri ekk- ert gamanmál, sem hafa mætti í flimtingum, jalfnvel þótt slíkt bæri að hinn 1. apríl. Framihaid á 13. síðu. ODDNY GUÐMUNDSDÓTTIR: Iíona Pílatusar Eitt sumarkvöld var sigurganga i Róm. Þá sá ég, hvar þeir leiddu bandingjana. Þeir voru í hlekkjum, höfðu fengið dóm. Og heimilt var að kvelja þá til bana. Ég grét það kvöld og gleymdi himni og jörð. Ég gleyimdi öllu nema þjáningunni. Hvað gerir mannleg hjörtu svona hörð? Hver hefur gott af allri stjómvizkunni? Hjarta mitt var heitt af ljúfri þrá. Við horfðum tvö á landið rísa úr sænum. Þar átti heima þrælkuð þjóð og smá. Ég þóttist heyra kveinstafi í blænum. Láttu huggast, hrædda, litla þjóð, því hérna kemur óvænt skip að landi. Nú flýtur aldrei framar saklaust blóð. Með friði og drengskap leysist allur vandi. Ég man þá sól, þann cedrusviðarlund. Ég sat þar heilluð yzt í mannþrönginni. Var loksins komin lífsins sigurstund og ljómi af nýjum degi í veröldinni? Ég heyri bresta hlekki bandingjans. Og hungruðum og þyrstum verður svalað. Leitið fyrst og síðast sannleikans! Ó, svona hafði enginn maður talað. Drekktu tár imín, dauðaþyrsta jörð. Minn draumur, hann var sáralítils metinn, því ágirndin er óguðlega hörð. — Og ekki verður sannleikurinn étinn. (Matth. 27-19: En. er hann sait á dómarastólnum, sendi kona hans til ha.n.s og lét segja: Eig þú ekkert viö þennan réttláta manin, því að mairgt hef ég þolað í diag hans vegma í draumi). Bókasý/sing í Boga- sal Þjóðminjasafns □ Félag íslienzkra teikn- ara opnar bókasýningu í Bogasal Þjóðmin’jasafnsins í kvöld. Er þar úrval íslenzkr- ar bókagerðar 1966, ’67 og ’68 ásamt úrvali norskra og þýzkra þóka frá 1966. — Á veggjum sýningarsalarins eru sýndar myndskreytingar úr nokkrum þókum. Val íslenzku bókanna önnuð- ust þeir Hörður Ágústsson, skóla- stjóri, Ölafur Pálimason, bólka- vörður og Steinþór Sigurðsson, listmálari. Til umsaignar komu 123 bækur og rit frá árunuim 1966, ’67 og ’68. Fengu 24 bækur uimsögn seim birtist í sýningarskrá og aö auki 4 kennslubækur, 1 tímarit, 1 tæki- færisrit og í aukafllokki 9 baek- ur. Norsku bækurnar á sýning- unni eru 24 tálsins og þasr þýzku 50. Þetta er ömnur sýning Félags ísl. teiknara á úrvali íslenzkra bókaigerðar. í fyrsto stóð till að halda slíka sýningu árlega, til að efla jákvæðam álhugia á bóka- gerð, og þá jafnhliða sýna úrval bókagerðar annarra þjóða svo að draga mætti nokkurn lær- dóm af og verða livati til frek- ari átaka í bðkagerð hér á lamdi, eins og segir í sýnimigarskrá. Fá- menni félagsins, og rýrir sjóðir komu þó í veg fyrir að sýning yrði haldin fyrr en nú. Félagið gekkst fyrir viðræð- um um stofn.um sýningarráðs þeirra aðila sem hagsimuna hafa að gæta í bókagerð var lögð fram til samþykkis ný reglu- gerð uim dóminefnd, bókavail og sýningar. Næsta bóikasýning verður líklega haldin af sýning- arráði þessu. . Félagið er aðili að Nordisk Bokkuinst. seim' er samtök á- hugamianna uim bókagerð á Norð- urlöndum. Islenzku bækurnar á sýningunni verða sendar ás-am- sýningu til himna Norðurland- anna. Sýning í Bogasail var opn- uð kl. 8 i gærkvöld og verður opin daglega frá kl. 2-10 til 13. þ.n^ • Danssýhing endurtekin • í dag vorður endurtefcin dansisýning Dansikeninai-asam- bands Islands, sem haldin var í Súlnasal Hótel Sögu á dögun- uim. Þar sýndu börn og full- orðnár 14 dansaiti’iði, barna- dansa, bailleitt, táningadansa og saimkvæmisdainsa. E.r sýningin endurtdtín vegna mlkillar að- sökmar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.