Þjóðviljinn - 05.07.1969, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 05.07.1969, Blaðsíða 10
 10 SfÐA — ÞJÓÐVTUINN — Laugardagur 5. júlí 1969. ROTTU- KÓNGURINN EFTIR JAMES CLAVELL- — Hann spyr hvort þú hafir nokkuð handa honum? — Segðu honum nákvæmlega það sem ég segi, Peter. Kóngurinn rétti fram úrið. Peter Marlowe sá sér til undr-. unar að það var eins og nýtt. — Segðu honum að náungi sem ég þekki vilji selja það. En það er dýrt, og ef til vill ekki eins og hann hefur hugsað sér. Jaínvel Peter Marlowe sá á- gimdorglampann í augum Kóreu- mannsins þegar hann bar úrið upp að eyranu, umlaði eitthvað og lagði það aftur á borðið. Peter Marlowe þýddí svar hans. Hefurðu nokkuð annað? I>vi mið- ur lítið uPP úr Omega úrum að hafa í Singapore um þessar mundir. — í>ú talar p'óða ni'alayisku, bætti Torusumi við og sneri sér að Peter Marlowe. — I>akk fyrir. — Hvað segir hann, Peter? — Að ég taifi góða matayisku, það er allt og sumt. — Jæja, segðu honum að mér þyfci það leitt, en ég hafi ekki annað. Kón'gurinn beið þair til búið var að þýða orð hans, svo yppti hann öxlum, stakk úrinu í vas- ann og reis á fætur. — Salamat, sagði hann. Torusumj sýndi aftur tennJUm- ar, svo gaf hann kóngmum merki um að setjast aftur. — I>að er eklki af því að ég hafi áhuga á úrinu. saigði hann, en af því að þú ert vinur minin og hefur haft fyrir þesisu, langar mig að spyrja hvað eigandinn viiji Jfá fyrir það. — Þrjú þúsund dollaira, svar- aði kóngurinn. — Mér þykir leitt eð verðið skuli vera svo hátt. — Já, víst er það hátt. Eigand- inn getur ekki verið með réttu ráði. Ég er fátækur maður. en af þvi við höfum áður ábt sam- an viðskipti og til að gera þér greiða. stkal ég bjóða þrjú hundr- uð dollara. — Mér þykir það leitt. I>að fEFNI SMÁVÖRUR : TÍZKUHNAPPAR HÁRGREIÐSLAN Hárgreiðslustofa Kópavogs Hra«ntun,gu 31. Sími 42240. Hárgreiðsla. SnyTtmgar. Snyrtivörur. Fegrurarsérfræðingui § staðnum. Hárgredðslu- og snyrtistota Steinu og Dódó Eaugav. 18. III. hæð (lyfta) Sitni 24-6-16. Perma Hárgreiðslu- og snyrtistofa Garðsenda 21. SÍMI 33-968. þori ég ekki að samþykkja. Mér skilst að aðrir kaupandur vilji greiða hærra verð gegnum aðra milliliði. Omega úr eru auðvit- að ekki sérlega verðmætt, en eins og þú skilur, þá væri þáð móðg- un við eigandann að bjóða hon- um lægra verð en fyrir annars flokks úr. — Það er satt. Kannski gæti ég hækkað verðið ögn, því að jafn- vel fátækur maður á sitt stolt, og það væri heiðarlegt að reyna að bætá úr skorti annarra á þess- um erfiðu tímum. Fjögur hundr- uð. 22 — Ég þakka þér fyrir áhugann á vini mínum. Þú segir að verðið á Omegaúrum hafi lækkað, en ef til vill eru aðrar ástæður fyr- ir því að þú vilt ekki eiga við- skipti við mig. Heiðarleguir mað- ur er alltaf hreinskilinn — — Ég er líka heiðarlegur mað- ur. Ég hef engia löngun til að skaða mannorð þitt eða eigand- ans. Ef til viH ætti ég að hætta mannorði minu og reyna að telja Kinverjaskrattann sem ég skipti við á, að greiða sanngjamt verð aldrei-þesisu vant. Ég er viss um að þú verður mér sammála um að fimm hundruð eru hámark þess sem heiðarlegur maður gæti fengið sig til að greiða fyrir Omega úr, jafnvel áður en þau féllu í verði. — Satt er það, vinur minn. En mér dettur nokkuð í hug. Kannski befur verðið á Omega úrum alls ekki fallið. Kannsiki eru J>essi r Kínverjar ciðeins að feypa að féfletta heiðarlegan mann, Það er ekki nerna vika síðan að eiran af landsmöraraum þínum keypti svona úr af mér og greiddi þrjú þúsund dollara. ð þér þetta aðeins fyrir ngrar vináttu sakir. — Ertu að segja mér sannleik- ann? Torusumi sþýtti reiðilega á gólfið. Kónigurinn lét ekiki koma sér úr jafnvægi. Hamingj'an góða, hugsaði Pet- er Marlowe, hann er með stál- taugar. Kóngurinn ' tók íram tóbakið sitt og fór að vefja sér sígarettu. Þegar Torusumi sá það, róaðist hann og bauð honum úr pakka sínum. — Ég er hissa á því að þessir bannsettir Kínverjar, sem ég er að leggja lif mitt í hættu fyrir, skuli geta verið svona svívirði- legir. Ég er agndofa yfir því sem þú hefur nú sagt mér, vimur minn. Að hugsa sér að þeir skuli hafia misnotað trúnað minn á þennan Vátt. f heilt ■ ár hef ég átt viðskipti við sama manndnn. Og að hugsa sér að hann skuli haía verið að blekkja mig allan þenn- an tíma. Ég held ég verði að drepa haran. — Þú verður bara að vera snjallari en hann, sagði kóragur- inn. . — Hvernig þá? — Segðu honum að þú hafir fengið upplýsingar sem sanni að hann féfletti þig. Segðu honum að ef hann borgi þér ekki al- mennilegt verð framvegis að viðbættum tuttugu 'prósentum fyrir allt tapið sem þú hefur orð- ið að þola — þá gætirðu kannski hvislað orði í eyra á réttum yf- irvöldum. Og þá bitni það á hon- um og konu hans og bömum. — Þetta er sannarlegt heilræði. Ég faigna orðum vinar míns. Vegna umhyggju bans og vináttu okkar leyfi ég mér að bjóða 1500 dollara. Það eru allir þeir pen- ingar sem ég á. Kóngurinn laut niður og sló til mosikítóflugnainna á fótleggj- um sínum. Þetta yar vitið meira. vinur sæll. hup'saði hann. Sjá- um nú til. Tuttugu væri mikið. Átjan ágætt. Fimmtán ekki af-1 leitt. — Kóngurinn biður þig að . bíða, . túlkaði Peter Marlowe. —j Hann þarf að ráðfæra sig við veslings manninn sem viU selja úrið sitt. Kóngurinn íann Prouty maj- ór sveittan af taugaósfyrk í skugganum hjá skálanium. Kvíði Proutys ágerðist." Hann var tilneyddur að selja. Hamingj- an góða, hugsaði hann, ég verð einhvem veginn að útvega pen- inga. — Vill hann alls ekki bjóða í það? — Ég gat með engu móti kom- ið honum ofar en í íjögur hundr- uð. — Fjögur hundruð! Allir vita að Omega úr er að minnsta kosti työ þúsund dollara virði. — Ég er hræddur um að það sé.þjóðsaga, herra majór. Jæja, en nann virðist vera eitthvað tor_ trygginn og efast um að það sé Omega úr. — Hann Ar ekki með réttu ráði. Auðvitað er það Omega úr. — Mér þykir það leitt, herra majór, sagði kóngurinn og stirðn- aði ögn. — Ég er aðeins að skýra frá . . . — Það er m:Ln sök, liðþjálfi. Ég ætlaði alls ekki að ásaka yð- ur. Það er alltaf eins með þessa gulu þrjóta. Hvað á ég nú að gera? spurðj Prouty sjálfian sig. Ef ég sel ekki i'yrir milligönigu kóngsins, vérður ekkert úr neinni sölu og klíkan þarf á peningun- um að halda og allt okkar strit yrði til einskis. Hvað á ég að gera? Prouty íhugaði málið stiundar- korn, svo sagði hann. — Reynið hvað þér getið, liðþjálfi. Ég get ekki sætt mig við minnia en tólf hundruð. Það get óg með engu móti. — Já, herra majór. Ég held ég geti lítið gert, en ég skal reyna. — Þakka yður fyrir. Ég treysti yður. Ég hefði ekki viljað selja það svo ódýrt, en þér vitið hvem- ig þetta er. Maturinn 'er af skorn- um skammiti. — Já, herra majór, sagði kóng- urinn kurteislega. — Ég skal reyna, en ég er hræddur um að ég geti ekki komið honum öllu hærra. Hann segir að Kinverj- amir séu ekki lengur eins fíkn- ir í að kaupa. En ég geri hvað ég get. Grey hafði tekið eftir að Toms- umi va*r á leiðinni og hann vissi að bráðum rynni stundin upp. Hann hafði beðið nógu lengi, og nú var timinn kominn. Hann reis á fætur og gekk út úr skál'anum. Hann þurfti ekkert vitni, orð hans voru nógu þung á metunum. Og því fór bann eiran. H ann var með dálítinn hjart- slátt eins og ævinlega þegar hanin ætlaði að framkvæma handtöku. Hann fór framhjá skálaröðinni og inn á aðalveginn. — Grey- Hann leit í krin.gum sig. Sam- son ofursti kom til móts við hann. — Já, herra ofursti? — Það var gaman að hitta yð- ur, Grey. Hvemdg gengur? — Ágætlega, herra ofursti, svaraði hann undrandi yfir hinni alúðlegu kveðju. Þótt hann væri áfram um að komast leiðar sinn_ ar. var nann mjög glaður. Samson ofursti gegndi ákveðnu hlutverki í sambandi við framtíð Greys. Samson hafði góð sam- bönd í hermálaráðuneytinu. Mað- ur eins og hann myndi koma að góðu gagni — síðarmeir. Samson var í berforingj'aráðinu í austur- löndum fjær og þekkti alla her- forinigj'araa. — Mig langar til að tala dálítið við yður, Grey, sagði Samson. Trésmiðaþjónustan Tökum að okkur viðgerðir, breytmgar, viðbyggingar, gler- ísetningu og mótauppslátt. Útvegum einn- ig menn til flísalagnínga og veggfóðrunar. Athugið: Tökum einnig að okkur verk upp til sveita. — Vönduð vinn með fullri ábyrgð. — Sími 18892. EJNUM STAD FóiS þér íslenzk gólffeppi fr<5i TEPWIf Há.ilaiJýJW ZUtima úS i sát~ í ms 1 TEPPAHUSIÐ Ennfremur ódýr EVLAN teppí. Sparið fíma og fyriffiöfn, og verröð ó einum sfaS. SUÐURLANDSBRAUT10. REYKJAViK PBOX1311 Látfft ekki j»k^mitidar karlöflur k»ma yður f vont skap. IVofiiil COLMArVS-kartöfluduft veitir húseigendum fullkomna viðgerða- og við- haldsþjónustu á öllu tréverki húseigna þeirra ásamt breytíngum og annarri smíðavinnu úti sem inni. — SÍMI 41055. Jarðýtur — Traktorsgröfur Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtur, traktors- gröfur og bílkrana. til allra framkvæmda, innan sem utan borgarinnar. aröviunslan sf J Sí^pmúla Í5 — Símar 32480 — 31080. Heimasímar 83882 — 33982. Íslenzk frímerki ný og notuð kaupir hæsta verði RICHARD RYEL Háaleitisbraut 37 (áður Kópavogi). Sími: 84424. — (Bezt á kvöldin). HÚSAÞJÓNUSTAN s.f. MÁLNINGARVINNA ÚTI — INNl Hreingemingar, lagfærúm ým- islegt s.s. gólfdúka, flísalögn, mósaik. brotnar rúður o- fL Þéttum steinsteypt þök. — Bindandi tilboð ef óskað er. SÍMAR: 4 0 258-8-322 7 SÓLÓ-eldavélar Framleiði SÓLÓ-eldavélar af mörgum stærðum og gerðum. — Einkum hagkvæmar fyrir sveitabæi. sumarbústaði og báta. Varahlutaþjónusta. Viljum sérstaklega benda á nýja gerð einhólfa elda- véia fyrir smærri báta og litla sumarbústaði. ELDAVÉLAVERKSTÆÐI JÓHANNS FR. KRISTJANSSONAR- h.í. Kleppsvegi 62 — Sími 33069 i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.