Þjóðviljinn - 12.02.1970, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVTLJINN — PiMimtudagur 12. febrúar 1970- ,
Söluskattur
Drá'ttarvextir falla á söluskatt fyrir 4. ársfjórð-
ung 1969, svo og nýálagðar hækkanir á ööluskatti
éldri tímabila, hafi gjöld þessi ekki verið gréidd
í síðasta lagi fyrir 16. þ.m.
Dráttarvextimir eru \Vz% fyrir hvem byrjaðan
mánuð frá gjalddaga, s-em var 15. jan. s.l. Eru því
lægstu vextir 3% og vérða innhéimtir frá og með
16. þ.m. — Sama dag hefst án frekari fyrirvara
stöðvun atvinnurekstrar þeirra, sem eigi hafa gért
full skil.
Hafnarfirði, 11. febr. 1970.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Sýslumaðurinn í Gullbringu-
og Kjósarsýslu.
10%
afsláttur af
öllu kaffi þessa viku.
Gerið helgarinnkaupin
’tímanlega.
MATVÖRUBÚÐIR
Nemendur MH
og aðrir
Halldór Blöndal spjallar um rasðumennsku fímmtu-
daginn 12. fébrúar í skólanum M. 8,30.
Allir velkomnir.
Málfundafélag Menntaskólans
við Hamrahlíð.
Rannsóknarstoð
Hjartaverndar
óskar að ráða eftirfarandi starfsfólk:
1. Hjúkrunarkonu til starfa við hóprannsókn á
Akranesi frá 1. ínarz til 30. júni.
2. Meinatækni til starfa við hóprannsókn á Akra-
nesi frá 1. marz til 30. júní.
3. Meinatsekni .til starfa eða allan daginn í rann-
sóknarstöð samtakanna, Reykjavík.
4. Ritara til starfa við rannsóknarstöðina í Reykja-
vík. Góð kunnátta í vélritun og ensiku og einu
norðurlandamáli er nauðsynleg.
Skriflegar umsóknir sendist til skrifstofu Hjarta-
vemdar, Austurstræti 17, fyrir 18. febrúar n.k.
ÁVARP
vegna
Angmagssalik
Taeplega sex hundruð kíló-
metra vestur frá Látrab.iargi
er svæði bað sem í fomum
ritum var kallað: Krosseyjar,
á aiusturströnd Grænlands.
Um langan aldur huldist
minningin um tiivist bess
móðu þeirri, er samskipta-
leysi veldur. — í>að var ekki
fyrr en eftir miðja síðustu öld.
að sSimgöttgur þangað tókust
að nýju méð rannsóknarferð
Danans Gustaivs Holm. Þama
er aðalmiðstöð byggðar Græn-
lendiniga á austurströnd Græn-
lands. — Á sieinustu árum
hefur aðalþorpið: Angmasalik
lik vaxið upp í um 800 manna
bæ, þar sem öli samfélags-
þróun hefur gengið í þá átt
að skaipa betri afkomumögu-
leika fyrir fólkið og að bygg.ia
upp hjá því þá menningu,
sém við tedjum okkur ekki
geta verið án.
Núna filutti útvarpið okkur
þá hörmulegu fregin, að ofsa-
veðrið, sem gekik yfir þann
6. febrúar hafi rutt þessu
þorpi næstum því í rúst.
Slíkur atburður, svona ná-
lægt okkur, hlýtur að vekja,
okkur til umihuigsunar umþað
hvílfkt voða ástand hlýturað
rfkja þama núna á þessum
tíma. — Daiglega heyrum við
um veðurfarið þama Margir
íslend-ingar hafa einnig séð
þetta þorp á seinni árum,
síðan flugferðir hófust þang-
að. — Það er því ekki ólfk-
legt að kunninigsskapur hafi
orðið með Islendingum og
þessu fidlfci.
Tilgangur minin með þess-
um línum er því só að skora
á landia mína að bregðast nú
veil við og lóta eittihvað af
hendi rakna, sem fljótlega
gæti hjálpað þessum nágrönn-
,um okkar í neyð þeirra.
Ég sendi öllum dagMöðum
bæ.iarins þessa óskorun ogbið
þau að birta hana, sem og
greiða fyrir fólki, sem kæmi
tál þeirra með fórnfýsi sína.
— Það væri lika einstaWega
vel viðeigandi, ef kirkjuytfir-
völdin okkar sæju sér fært
að gangast fyrir hjálpsemi í
þessu skyni.
Með fyrirfram þaikkilæti,
Reýkjavík, 8. febrúar 1970-
Ragnar V. Sturluson.
T rotskistar
hsndteknir
PRAG 9/2 — R.úmlega 30 ung-
menni hafa verið handtekin í
Prag og Pilzen fyrir þátttöku í
pólitískum öfgasamtökum. Inn-
anríkismiáilaráðuneytið skýrðd frá
því í s.l- mánuði, að samtök þessi
væru starllandi í landinu og
hyggðu á að steypa valdhöfum af
stóli. Var sagt, að samtök þessi
væru m.a. bygigð upp á skoðun-
um Trotskys.
Námskeiö fyrlr
tol Istarf smenn
Fjármálaráðuneytið efnir til
námskeiðs í næstu viku I R-
vík um EFTA-tollameðferð-
Verða þátttakendur 67; tollstarfs-
menn í Reykjavík og úti á landi
— og starfsfólk í verzlur.um og
iðnaði.
Björn Hermiannsson deildar-
stjóri í ráðuneytinu sagði að
námsfceiðið yrði haldið þriðju-
dag, miðvikudag og fimmtudag
í næstu yifcu. Fullitrúi frá
danska fjánmálaráðuneytinu, A.
Presterud, flytur fyrirlestra
þessa þrjá daga, um tollameð-.
ferð á vörum é EFTA-svæðinu.
Þama verða sem fyrr segir
tollstarfsmienn, inn- og útfflytj-
endur og svo menn frá iðnaðar-
samitökunum. Námskeiðið fer
fram í Norræna húsdnu.
FRiMERKI
1 fomöld, eða á öldunum
fyrir Kristsburð, höfðu menn
óljósa hugmynd um löndin
norðan Danmerkur. Frá þéim
tímum mun upprunnið orðið
Últíma Thule. Er talið að
landkönnuðurinn gríski, Pyt-
heas, sem uppi var um 300
árum fyrir Kristsburð, hafi
notað það um hin ókönnuðu
iönd í norðri, og gat þá þetta
nafn, eftir þvi sem visinda-
mienn nú á dögum álíta, ótt
, við Hjaltlandseyjar, Noreg eða
Island. Það átti því ekki illa
við að nefna verzlunarstöð
norðarlega á vestunströnd
Grænlands þessu nafni. Hún
var stofnsett árið 1910 og var
stofnandinn hinn kunni Græn-
lands-könnuður Knud Rasm-
ussen, sem þá hafði í nokkur
ár verið í rannsóknarleiðangri
um Norður-Grænland.
Þetta land — Grænlamd —
er stærsta eyja í heimi. Að
vísu er Ástralía stærri, en á
hana verðum við að líta frem-
ur sem meginland, enda sér-
stök heimsálfa.
Grænland er hluti af damiska
konumgsríkimu, en hefur þó
sín eigin frímerki. Það mun
hafa verið árið 1938, sem
fyrstu póstfrímerkin komu út,
en áður höfðu komið út svo-
kölluð bögglamerki (Pakke-
porto)
Thule-frímerkin komu út
árið 1935 og voru gildandi að-
eins í Thule-héraði umhverfis
verzlunarstöðina. Annars var
það svo, að á árunum fyrir
1938 fengu Grænlendingar all-
an póst sinn fluttan burðar-
gjaldsfrítt og jafnvel allt til
ársins 1959 var póstur frá Dan-
mörku til Grænlands fluttur
ókeypis.
Eins og áður er sagt var
það Knud Rasmussen, sem
stofnaði. Thule-stöðina árið
1910 og átti hún því 25 ára
afmæli 1935, enda var þeissi
frímerkja-útgáfa það ár af-
mælisútgáfa verzlunarstöðvar-
innar. Voru þá liðin tvö ár frá
dauða K. Rasmussen Hamn
var fæddur árið 1879, danskur
að ætt, en uppalinn í Græn-
landi. Rasmusen stundaði nám
í Kaupmannahöfn og að loknu
stúdentsprófi var hann um
skeið með Löppum norður á
Finnmörk. Kynnti hann sér
hreindýrarækt, enda varð
hanm síðar hvatamaður þess,
að hreindýr voru flutt frá
Noregi til Grænlands í til-
raunaskini. Knud Rassmusen
gerðist áhugasamur landkönn-
uður á Grænlandi á fyrsta
áratugi þessarar aldar. AlTsfór
hann sjö langar könnunar-
ferðir um byggðir og óbyggðir
Grænlands og þá oft á hunda- ,
sleðum. Oft hafði hann vetur-
setu meðal Eskimóa, enda var
hann orðinn vel að sér i tungu
þeirra. Hann safnaði og skráði
mikið safn af þjóðsögum
Grænlemdinga og a.m.k. einá
bók gaf hann út á máli Eski-
móa
Knud Rasimussem andaðist
1933. Árið 1960, 24. nóvember,
var gelfið út grænlenzkt frí-
merki með mynd hans. Er sú
útgáfu til minningar um 50
ára afmæli Thule-stöðvarinn-
ar. Þetta frímerki er rautt að
lit og verðgildi þess 30 aurar.
Um Thule-merkin er það að
segja, að uþplag þeirra var
uim 250 þúsiund sett. Megnið af
þessum frímerkjum mun hafa
verið selt til frímerkjasafnara, .
því að póstþjónusta og notkun
frímerkja til bui'ðargjalds
mun hafa verið hverfandi lítil
norður þar.
Mikil þátttaka í sýningunni
„Heimilinu" komandi vor -
Svo sem áður hefur verið
skýrt frá verður efnt til stórr-
air sýningar í Sýningarhöllinni
í Laugardai dagana 22. maítil
7. júní n.k. Er hér um aðræða
fyrstu heimilissýninguna, sem
haldin hefur verið hérlendis,
er svipar til hinna vinsælu „id-
eal home“ sýninga* erlendis.
Nafn sýningarinnar erHEIM-
ILIÐ — „Veröld inman ve@gja“
en fyrirtækið Kaupstefnan —
Reykjavik, sem áður hefuir
haildið margar stórsýningar
hérlendis, stendur fyrir henni
og skipulegigur. Undirbúningur
' sýniingarinniar hofur nú staðið
í 10 mónuði og miðar vel á-
fram. Þáitttaka í sýningunni
vair boðin út í vetrarbyrjun
gagnvart hugBamilegum aðiTum,
voru umdirtefctir þegar mrjög
góöar, og má nú segja að mest
ailllt sýningairsvæðið sé fiúH-
pamtað, og biðiisti myndastum
vissa hluta þess. —
80 sýnlngaraðilar
Aðilair, sem nú þegar hafa
staðfest þátttöku eru um 80 —
innílendir- framleiðendur, er-
lend fyrirtæki og umboðsmenn
þeirra, opinberar stofnanir qg
félagssamtök aðila, er veita
heimiilinu þjónustu. — Munu
sýningamar skipta þúsundum
í mikluim fjölda vöruflokka á
sviði alls þess er snertir mý-
tízku heimilisreksitur. Má bú-
ast við því að svipur sýning-
arinnar verði hinn geðþeikkasti,
enda undirbúningstími rúmur.
Sérsýning í nýjum sal
Þá er í undirbúningi og at-
huigum sérsýning á sportvörum, <í>-
viðleguútbúnaði, veiðitækjum
o-þ.h. í 200 fienm. nýjum sal.
sem nú er fýrst verið aðopna
í suður-enda Sýmiingárhailllar-
innar. Þá er og hugsanlegt að
hliuti útisvæðisins, austan meg-
in við Sýningarhöllina verði
notað fyrir áfcveðna vöruflokka,
svo sem garðtæki, báta, lítil
sumiarhús o.þ.h.
Fræðslu- og skemmtidagskrár
Auk sýminigarmuna og ým-
issar stairfsemi í sýnimgar-
deildunum sjálfuim verður
margt annað um að vera á
sýningunni. 1 undirbúnin.gi eru
um 20 sfcemmitidagskrár, sem
fram iniunu fara á sérstakilega
byggðum palli fremst á áhorf-
endasvæðinu, og sjást mun vel
til úr adalsailnuim, og mun
Svavar Gesits hafa með hendi
umsjón þess efnis. Þá verða
nær daiglega flutt stutt fræðslu-
erindi um einstaka þætti heim-
ilishallds í veitingasai Sýnimga-
hallarinnar, sórS'takir sýningar-
trúðar verða til staðar til á-
naegjuauka fyrir yngistu sýn-
mgargestina o.sirv.
A ðstoðarlæknastöður
Þrjár aðstoðarlæknisstöður við Barnaspítala Hrings-
ins í Landspítalanum eru la-usar til umsóknar.
Stöðurnar veitast til 6 mánaða, tvær frá 1. apríl
1970 og ein frá 1. júlí n.k. Laun samkvæmt kjara-
samningi Læknafélags Reykj avíkur og stjórnar-
nefndar ríkisspítalanna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, námsferil
og fyrri störf, sendist stjómamefnd ríkisspítal-
anna, Klapparstíg 26, fyrir 13. marz n.k.
Reykjavík, 10. febrúar 1970.
Skrifstofa ríkisspítalanna.