Þjóðviljinn - 12.02.1970, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐíVmJINN — Fimmtjudagur 12. febrúar 1970.
— málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Otgefandi: Otgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Rítstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Olafur Jónsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavðrðust 19. Siml 17500
(5 línur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Braskarak/ark/eysi
JJraskarar og gróðabrallarar hafa haft mikil ítök
um stjómarstefnu og stjórnarathafnir íhalds-
ins og Alþýðuflokksins nú í áratug. Fyrir þá hefur
verið stjómað fyrst og fremst, þeirra hefur gróð-
inn og dýrðin af stjórnarsamsíarfinu verið. Þeir
hafa ráðskað með erlendan gjaldeyri landsmanna
að vild í hóflausan óþarfa innflutning, sem alræmt
má heita. í stað þess að 'endurnýja togaraflota
landsmanna hefur verzlunar- og skrifstofuhúsnæði
verið endumýjað svo stórkostlega, að víða eru stór-
vandræði að finna einhver not fyrir hinar fyrir-
huguðu verzlunar- og skrifstofuhallir. Ráðherrar
og óbreyttir liðsmenn ríkisstjórnarinnar hafa
haldið um það margar ræður á Alþingi undanfar-
inn áratug hversu gífurleg þörf á slíkri endurnýj-
un verzlunar- og skrifstofuhúsrýmis höfuðborgar-
innar hafi verið orðin, þegar stjóm sem skildi þær
þarfir komst til valda með samstjóm íhaldsins og
Alþýðuflokksins. En samstjóm þessara flokka
hafði hins vegar megna vantrú á framleiðsluat-
vinnuvegum íslendinga og hirti aldrei þó mikil-
virkustu framleiðslutæki þjóðarinnar í sjávarút-
vegi, togararnir, grotnuðu niður og engin endur-
nýjun togaraflotans yrði á heilum áratug.
graskararnir og gróðabrallaramir hafa einnig att
furðu innangengt í banka landsmanna. Með
stórlánum óg stórfjárfestingu og stórbraski hafa
þeir márgir hverjir rakað saman auðæfum. Ein-
stök dæmi hafa verið nefnd um fjárfestingar og
einkalúxus. braskara sem ekki bera ýkjahá opin-
bér gjöld, og það svo að jafnvel einu stjómarblað-
anna hefur blöskrað! í sambandi við skattafram-
tölin í vetur kom eitt og annað opinberlega fram
um þær leiðir sem notaðar em til að sleppa við
skattheimtu, þó nógir séu fjármunimir. Líklega
er það þess vegna að Morgunblaðið er tekið að
emja og væla dag eftir dag vegna tillögu sem ligg-
ur fyrir Alþingi um eignakönnun. Margur mun
ætla að hér sé einungis um kosningaæsing að ræða,
Morgunblaðið ætli að hræða imenn með eigna-
könnunarógnunum fram að næstu kosningum, og
það er sjálfsagt aðaltilgangurinn. En engu að síð-
ur ber óvenjuleg emjan og þessi áróðurshrina
Morgunblaðsins vegna hugmyndarinnar um eigna-
könnun einnig vitni ótta braskaranna og ska'tt-
svikaranna við það að kannað yrði hverf stór-
gróðinn hefur lent undanfarinn áratug. Ríkis-
stjóm íhaldsins og Alþýðuflokksirts þorir áreið-
anlega ekki að láta eignakönnun fara fram. En
afsakanir telur Morgunblaðið að þurfi að flytja
fyrir því hugleysi,’ og því er nú emjað. — s.
Lnj
A ð framkvæma kosningaloforðin
Samkvsé.nt' skipulagi borgarinnar er gert ráð fyrir
þvi að gerð verði sundlaug í Breiðholtshverfi og var
það raunar eitt af loforðum íhaldsins fyrir síðustu
kosningar. Alþýðubandalagsmenn gerðu tillögu um það
á fundi borgarstjórnar við afgreiðslu f járhagsáætlun-
ar að staðið yrði við þetta loforð og byrjað strax á
þessu ári að undirbúningi framkvæmda. Fluttu borg-
arfulltrúarnir svofellda tillögu um þetta efni:
„Borgarstjórnin ákveður að láta á næsta ári
hefja undirbúning að byggingu sundlaugar fyrir Breið-
holtshverfi. Þá telur borgarstjórnin að ekki megi leng-
ur dragast að byggðir verði búnirigsklefar við Sund-
laug Vesturbæjar og þannig gengið að fullu frá laug-
inni eins og hún er fyrirhuguð. Fe-lur borgarstjórn
borgarráði að annast undirbúning þessara framkvæmda
í samráði við íþróttaráð".
Er Jón Snorri Þorleifsson borgarfulltrúi mælti fyr-
ir þessari tillögu minnti hann m.a. á loforð íhaldsins
fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar og sagði m.a.:
— Méð því að hefjast nú þegar handa með undirbún-
ing að gerð sundlaugarinnar væri borgin að feta sig
örlítið 1 þá átt, að almenn þjónusta og menningarað-
staða í úthverfum verði skipulögð ekki löngu á eftir
annarri .uppbyggingu úthverfa. Þá er í sömu tillögu .
Alþýðubandalagsins gert ráð fyrír að lokið verði á ár-
inu 1970 gérð og frágangi Sundlaugar Vesturbæjar, !
en eins og kunnugt er hafa búningsklefar við hana
enn ekki verið byggðir. Það mun einnig hafa verið
eitt. af loforðum meirihlutans fyrir síðustu kosningar
að svo yrði gert á kjörtímabilinu. Á sínum tímia fóru
framkvæmdir við Sundlaug Vesturbæjar af stað með
tilstuðlan söfnunarfjár íbúa Vesturbæjarins og verður
að segjast eins og er að það er borgaryfirvöldum illa.
sæmandi að láta dragast svo lengi að Ijúka því verki
sem borgin tók að sér.
— Þessari tillögu Alþýðubandalagsins um sundlaug-
amar var vísað frá í borgarstjóm. Þannig „framkvæm-
ir“ íhaldið kosningaloforðin: Með því að fella tillögur
um að efna þau.
Stöðugt berast ný lyf á markaðinn.
Ofneyzla eiturlyfja
og andlega á mjög skömmum
tíma.
5. Cannabis (Hashisih, marihu-
ana) er stöðugt stærra
vandamál. Efnið er til daém-
is blandað í te eða reykt
sem marihuanavindlingar. Stað-
bundin ofneyzla hefur breiðzt
út eins og „farsótt“ landa á
milii. Efnið er hættulegt vegna
þess að það grípur oft fólk,
sem er veikt fyxir öðrum teg-
undum eiturlyfja, sém það svo
sáðar byrjar að neyta.
í Englandi er cannabis mikið
vandamál.
6. Ofskynjunarlyf (Hallusin-
ogener) LSD, mesfcalin, silo-
cybin. Efnin eru Jíka kölluð
psykotomimetica, þar seim 'þau
framkalla ástand sem líkist
geðveiki. Vímian stendur í' 6-8
klst. Voðaverk eins pg t.d.
morð geta komið fyíir. Efnið
getur bréytt erfðaeiginleikum
neytandans og getur valdið þvi
að börn bans fæðist vansköp-
uð“.
Síðan segir Óskar Harry frá
læknismeðferð og hjúkrun eit-
urlyfjaneytenda og kemur
reyndar víðar við í þessari at-
hyglisverðu grein.
<&-
I nýútkomnu Tímariti Hjúkr-
unarfélags íslands er meðal
annars efnis greinin Sjúkrahús
fyrir eiturlyfjaneytendur. Höf-
undur greinarinnar er Óskar
Harry Jónsson, hjúkrunarmað-
ur. Segir hann frá heimsókn
sinni á fyrsta sjúkrahúsið sem
stofnsett var í Evrópu, er að-
eins sérhæfir sig í meðferð eit-
urlyfjasjúkiinga, en það er
Statens Klinikk for Narkomane
j Hov í Land í Suður-Noregi.
Var Óskar Harry þar á ferð
í apríl sl. er hann var nem-
andi í geðhjúkrunarskóla
norska rikisins.
Alþjóðaheilbrigðism-álaetofn-
unin (WHO) skiptir eiturlyfj-
um í 6 flokka:
1. Verkjastillandi lyf. Opíum,
petidin, ketogan, heroín o.s.frv.
Hér kemur fram hin sígilda
mynd eiturlyfjaneyzlunnar.
Líkamleg vöntunareinkenni eru
mjög sterk.
2. Barbitursýrulyf eru þau
lyf, sem mest voru misnotuð
þar til fyrir 2-3 árum. í þess-
um flokki eru lífca lýf, sem
ekki innihalda barbitursýru, t. d.
doriden, meprobamat, resitenil,
kloral, brórn, librium og vali-
um o.fl. Fyrrverandi alkóhólist-
ar leiðast oft út í ofneyzlu
lyfja í þessum- flokki,
3. Örvandi lyf (sentralstimul-
erandi): Amphetamin, prelud-
in. ritalin og menadit. 1 Sví-
þjóð er þessi tegund lyfja mik-
ið vandamál.
4. Kokain. Sjúklingurinn
brotnar niður bæði líkamlega
Lœkkdð Hfa
iðnverkafólki?
Að undanfarnu hefur borið á
þvi hjá iðnrekendum hér í
Reykjavík að þeir hafi hug á
því að lækka ákvæðisvinnutaxta
hjá starfsfólkinu. Sér iðnverka-
fólkið þánnig fram á Iægra kaup
og ber skarðari hlut frá, borði.
Eftir allan Efta-sönginn að und-
anförnu leggst nú heldur lítið
fyrir iðnrekendur, ef þeir sjá
nú engin úrræði önnur en lækka
kaupið hjá starfsfólkinu. Hætt
er við, að útflutningsiðnaður
blómgist ekki í landinu með þeim
hætti.
Greinin hefst á lýsdngu á
áðumefndu sjúkrahúsi og síð-
an segir: „ . . . Áður en lengra
er haldið væri rétt að skil-
greina hvað ofneyzla eitur-
lyfj a er, en segj a má , að. þ.að
sé tímabundin eða viðloðandi
eitrun, sem er skaðleg fyrir
einstaklinginn sjálfan eða sam-
félagið. Lyfjaþpl (toleranse)
sjúklingsins eykst þannig, að
stöðuigt þarf stærri og stærri
skammta til Pg ómótstæðileg
þörf fyrir áframhaldandi
neyzlu. Einskis er látið ófreisit-
að til að útvega eitrið, í kjöl-
farið koma bæði likamleg og
andleg vöntunareinkennt (ab-
stinenssymptom).
ÓDÝRT — ÓDÝRT — ÓDÝRT — ÓDÝRT — ÓDÝRT — ÓDÝRT — ÓE
q
o
E-
Pd
'*>H
Q
O
E-
P£
>>-I
Q
O
Rýmingarsalaa Laugavegi 48
Ódýrar peysur, kjólar, kápur, ungbarnaföt.
Leikföng í miklu úrvali.'
Vefnaðarvara í metraíali, metrinn á 60—100 kr.
Karlmannaskór, 490 kr. parið.
Inniskór kvenna og barna í fjölbreyttu úrvali.
Sparið peninga í dýrtíðinni og verzlið ódýrt.
RÝMINGARSALAN, Laugavegi 48.
ÓDÝRT — ÓDÝRT — ÓDÝRT — ÓDÝRT — ÓDÝRT — ÓDÝRT
Q
O
E—
pcí
Q
O
E-
pc:
'k—
Q
'O
ÓE