Þjóðviljinn - 18.02.1970, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.02.1970, Blaðsíða 7
Miðwikuriagur 18. íetorúar 1970 — ÞJÓÐVTIJTNTJ — SlöA J að liía af. Því er latgt til, að sjúkmsamlög greiði hœrri hluta lyfj akostnaðar og iæknishjálp- ar fyrir þetta fólk en aðra sam- lagsmenn, í ýmsum tilvikum að fullu. Gaetu þá bót.afj árhaeðim- ar komið sem óskertastar til framfserslu, og mun ekki af veita. t>á er lagt til, að sjúkrasam- lög greiði hluta kostnaðar við t.annlsekningar, en í núgildiandi lögum er einungig heimild til þess. Naumast verður séð nein skynsamleg ástæða til þess, að almennar tannlækningar séu undanskildar( í tryggingakerf- inu, ekki sízt þar sem vitað er, að heilbrigðar tennur eru eitt undirstöðuatriði að heil- brigði á ýmsum öðrum svið- um og aukin þjónusta í tann- vi'ðgerðum gæti leitt til sparn- aðar á öðrum sviðum heilbrigð- ismála. Stighækkandi fjölskyidubætur í samræmi við þá skoðun flutningsmanna, að aukna á- herzlu beri að leggj a á, að það fé, sem varið er til almanna- trygginga, renni fyrst og fremst til þeirra sem brýnasba hafa þörfina, er lagt til, að tilhögun greiðslu fjölskyldubóla verði endurskoðuð og miðað við stig- hækkandi greiðslu eftir barna- fjölda eða aðra leið, sem stefn- ir að sama .marki. Með stór- hækkuðum saluskiatti í firam- baldi af meiri hækkun a.lgeng- ustu matvara á undanfömum árum en annarxa vara, er þess nú sérstök og brýn þörf að koma til móls við barnafjöl- skyldur með auknum fjöl- skyldubótum til }>eirra, sem við mesta ómegð búa. Svo sem áður er að vikið, er uppeldiskostnaður unglin.ga oft og tíðum hvað mestur, eftir að þei.r hafa náð 16 ár.a aldri, en þá falla niður greiðslur fjölskyldubóta vegna þeinra, og þar á ofan bætist, að eftir að þesisum aldursmörkum er náð, ber þeim að greiða almanna- tryggingar og sjúkrasamlaigs- iðgjöld, sem námu á sl. ári. samtals 6.210 til 7.460 krónum eftir því, hivort um stúliku eða pilt er að ræða. í 2. lið a) í þingsályktunar- tillögu þessari er gert ráð fyrir rétti til f j ölskyldubóta, mæðra- launa og bamalífeyris vegna, barna á aldrinum 16 til 18 ára með hliðsjón af efn-aha.gsástæð- um viðkomandi bótaþega. 1 8. lið þingsályktunartillögunnar er lagt til, að l^anmað verði, hvort ekki er full ástæða til þess að breyta ákvæðum al- mannatryggingalaga um ið- gjaldagreiðslur á þann veg, að þær hefjist ekki fyrr en við 18 ára aldur. % Tryggingabætur vísitölutryggðar Á undanförnum árum hefur aukið fjármagn til almanna- trygginga naumast fen.gizt nema í kjölfar efnahagsráðstafana, sem hækkað hafa allt verðlag í landinu. Hafi í byrjun vesrið um að ræða einhvem ávinning varðandi tryggingab&tur, hef- ur hann horfið fyrr en varir í verðbólguflóði næstu ára. Við næstu efnahagsráðstafanir eru hinar skertu bætur að jafnaði enn hækkaðar nokkuð í krónu- tölu, en sú hækkun hverfur síðan þegar við fyirstji afleið- ingar hinna nýju efnabaigsnáð- stafana. Ef miðað er við, að það sé ekki beinlínis ætlun stjóm.ar- valda, að tryggi ng.abætur minnki miarkvisst að ra.un- gildi í þeimri verðbólguþróun,. sem yíkir hér á landi, þá er óhjákvæmilegt að tryggja gildi þeirra með vísitöluuppbóbum. Þegar stjórnarvöld, sem diregið hafa trygginigabætur á eftir sér í verðbólguflóðinu, hafia tekið ákiíarðanir um kirónu- líðvarð Sigurðsson Karl Guðjónsson Gils Guðmundsson töluhækkun þeirra til að mæta verðlagshækikunum, er jafnan miðað við hækkun framfærslu- vísitölu og það látið nægja, að tryggingabætuir dragist sem minnst aftur úr hækkun þeinr- ar vísitölu. Það er skoðun flutningsmanna, að í fyrsta lagi sé nauðsynlegt, að trygginga- bætur verði vísitölutryggðair með lögum, og í öðru lagi, að engan veginn sé viðunandi að miða við framfærsluvísitölu. Sú vísitala byggist á skiptingu útgjalda fjölskyldu, sem námu um 240 þús. kr. árið 1965, en það ætti að svara til um. 320 þús. kr. nú cða nær 27 þús. kr. á mánuði. Slikur mæli- kvarði er algerloga óraunhæí- ur ga.gnvart raungildi trygg- ingabóla. Þeir, som hafa ekki annað ep tryggingabætur til að lifa af, nota þær að sjálfsögðu að mestöllu leyti til kaupa á brýnustu matvörum, en þœr hafa hækikað meir en allt ann- að í( þjóðfélaginu hin síðustu ár og miklu meir en almenn f r am f ærslu ví si tal a. Með ári hverju bafa trygig- ingabætur dugað íyrir fænri og íærri einingum af hinúm hrýnustu matvörum. Er þvi eðlilegast, að tryggingaibætur vorði vísitölutrygigðar sam- kvæmt sérstakri vísitölu trygg- inigáfoófca, }>ar sem fyrst og íremst er miðað við raiungildi bótanna gagnvairt þeim vörum, sem bæturnar eru notaðar til að greiða. Áhrif af minni hækk- un á verðlagi ýmissa vara, sem fólk með háar tekjur getur keypt, eiga ekki að haía álvrif í þá átt að halria niðri upphæð tirygigingiabóta. í 10. lið þingsályktunartillög- unnar er gert ráð fyrir þvi, að sérstök nefnd meti örorku }>eirra, sem sækja um örorku- bætur, en samkvæmt núgild- andi lögum metur tryggingayf- irlæknir örorkuna. Trygginga- yfirlæknir er starfsmaður Tryggingastofnunarinnar, og getur naum.ast talizt eðlilegt, að slíkt mat, sem ræður úr- slitum um bótarétt, sé einung- is á hendi stofnunarinnar sjálfr- ar, enda mun svo yfirleitt ekki vera annars staðar. Umboðsstörf sjúkrasamlaga Samkvæmt núgildandi lögum annast sýslumenn og bæjarfóg- etar umboðsetörf fyrir Trygg- ingastoínun ríkisins utan Reykj avikur. Flutningsmenn telj.a þessa skipan að ýmsu leyli óeðlilega og um of mót- aða af innheimtusjónarmiðum. Ef bótaþegar telja sig misrétti beitta í málefnum alm.anna- trygginga, eiga þei.r að geta leitað til sýslumann.a og bæjar- fógeta um aðstoð sem hlut- lausna aðila, en slíkt or naum- ast íyrir hendi, ef }>eir éru sjálfir umboðsmcnn trygging- anna. Eðlilegast virðist, að þar sem þvi verður við komið, ann- ist sjúkrasamlög umboðsstörf- in. Þar er um að ræða skyldia og nátengda starfsemi, og má búast við, að betri nýt-ing starfskirafba fengist með því móti. í þmgsályktunartillög- unni er því lagt til, að athu.g- að verði, hvort ekki er rétt að gera þá breytingu á, að srjiikna- samlögum verði falin umboðs- störf fyrir Trygginga'Stofnun- ina, þar sem unnt or, þ.e. í hinum stærri bæjum a.m.k. Á því er brýn ]>örf' að úr ágreiningsmálum milli bóta- þega og Tryaginigiastofnuniár- innar um bótarótt fáist skorið á sem skemmstum tírnia, þar sem oft og tíðum er um að ræða fjármuni, sem bótaiþegi verður að treysta á til daglegs lífsfnamfæris. Slík mál draig- ast }>ó tíðum um of á langinn, ef bótaþegi þarf að leggja mál sitt fyrir hina almennu dóm- stóla efti.r úrskurð tirygginga- ráðs, því að að jafnaði þarf að bíða eftir afgreiðslu ann- arna óskyldra mála, sem þeir dómstólar hafa með höndum. Hér er því lagt til, að stofnað- ur verði sérstakur trygginga- dómur, sem hafi það hlutverk eitt að kveða upp dóm,a ; þeim ágireiningsmálum um bætur úr alman natryggi ngum, sem bóta- }>egar áírýja til hans eftir úr- skurð tryggingaráðs. Ætti slik tilhögun að geta komið í veg fyrir, að endanlegir úrskurðir um rétt hinna trygigðu til bóta dragist svo á langinn sem nú á sér oft stað. Aðrar breytingar Að lokum er gert ráð fyrir því i þingsályktunartillöigunni, að sú nefnd sem lagt er til að verði kosin, kanni hver áhrif einstakar breytingar, sem um er rætt í þingisá.lyktunartiUög- unni. hefðu á framlög til al- miannatrygginga. Jafnframt geri nefndin frekari tillögur til Al- þingis um endurhætur á lög- um um alm.annatryggin.gar, eft- ir l>ví sem hún telur þörf á og unnt að framkvæma. Flutningsmenn telja tímá- bært, i að gerð verði veruleg breyting á aimannatrygginga- lögunum í þá átt að tryggja sem bezt afkomu þeirra, seny hafa ekkert eða lítið annað en tryggingabætuj- við að styðjast í lífsbaráttunni. A meðan }>jóð- in telur sig ekk; hafa eíni á ]>ví að t-ryggja öllum svo háar bætur, að þær duigi einar sér til lífsframfæris, verðu.r að haga lagiasetningunm swo, að fjármunum tryggimganna sé þannig varið, að a.m.k. þeir, seon ekkí hafa aðrar tekjur fái svo háar bætur, að þeir ®eti liíað af þeim. Fannfergi á götum og torgum □ Hér eru þrjár. myndir, sem ljósmyndari Þjóðviljans tók í gaer hér í borginni. Þær gefa svolitla hugmynd um fannfergið á götum og torgum, og þarfnast ekki annarra skýringa en getið sé hvar hver og ein þeirra er tekin. Við Miklubraut. Hjá U mferðarmiðstöðimii. Ljósmyndari: Ari Kárason. í I t t

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.