Þjóðviljinn - 19.08.1970, Side 4
4 SíÐA — feJÖBWiIinJININ — MiðwiIkiU)dag|Ulr, 19. églúafc 1970
Fyrírboði
Jgftir sveitars’tjómarkosningarnar í vor kom í ljós
að innan Framsóknarflokksins hafði verið tek-
in ákvörðun um það, að fulltrúar flokksins skyldu
hvarvetna freista þess að ná samvinnu við íhaldið
um stjóm sveitarfélaga. Víða sleit Framsóknar-
flokkurinn vinstrisaímvinnu sem staðið hafði um
langt skeið og borið góða raun og kastaði sér í
staðinn í náðarfaðm íhaldsins. Svo mikil var
áfergjan að málefni bar sjaldnast á góma; keppi-
keflið var aðeins helmingaskipti um völd.
^uðvitað er ekki enn komin reynsla af þessum
umskiptum, en þó hafa athyglisverð einkenni
þegar séð dagsins ljós. Menn vita fná fomu fari
að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkur-
inn magna ókosti hvor annars þegar þeir vinna
saman; flokkamir eru afleitir hvor fyrir sig en
verstir í sameiningu, þá verða afturhaldsöflin í
báðum flokkuím að samnefnara. Árangurinn birt-
ist í sérhagsmunastreitu og valdníðslu. Dæmin
eru þegar kunn, til að mynda frá Kópavogi. Nú
síðast hefur hinn nýi meirihluti þar vikið úr starfi
Svandísi Skúladóttur fóstru> sem um fimm ára
skeið hefur verið starfsmaður leikvallanefndar
kaupstaðarins og unnið störf sín af sérþekkingu,
hugkvæmni og dugnaði sem hlotið hefur almenna
viðurkenningu bæjarbúa. Ástæðan fyrir brott-
rekstrinum var annarsvegar pólitískt ofstæki, því
að Svandís hefur verið einn af beztu forustumönn-
um AlþýðubandaLagsins í Kópavogi, og hins vegar
hin alkunna valdagræðgi, því að starfið var síðan
veitt án auglýsingar konu sem hvorki hefur sér-
þekkingu ná starfsreynslu en þá verðleika eina
að heyra til hinu nýja valdakerfi.
^stæða er til þess að landsmenn allir veiti slík-
um atburðum athygli. Þeir em fyrirboði þess
sem koma skal, ef afturhaldsmönnum í báðum
flokkum verður að þeim ásetningi sínum að
mynda nýja stjóm eftir næstu alþingiskosningar.
Ódýrast að eitra
jyjengunin er eitthvert ískyggilegasta vandamál
mannkynsins um þessar mundir og háskinn
er viðurkenndur af ölluim í orði, m.a. af núver-
andi forseta Bandaríkjanna sem haldið hefur
hjartnæmar ræður um þetta vandamál. Engu að
síður eru bandarísk stjómarvöld nú að sökkva í
sæ miklu magni af taugagasi og skeyta hvorki
aðvörunum vísindamanna né mótmælum annarra
ríkisstjóma, þar á meðal þeirrar íslenzku. Það er
talið ódýrast fyrir bandaríska herinn og auð-
hringi þá sem að honum standa að losna við eitr-
ið á þennan hátt, og er þá ekkert um það skeytt
hversu dýrt eitrið kann að verða mannkyninu.
Þrátt fyrir hjartnæm orð em hemaðarhagsmunir
og peningasjónarmið miklum mun yfirsterkari
öllum félagslegum viðhorfum. — m.
Húsáð fullbúið.
Ljósniyndiinar tók Hjörleifur Guttormsson,
Snæfellsskáli reistur
Vestan við Snæfell, í 800 metra
hæð, er nú risinn snotur ferða-
mannaskáli, eða sæluhús. Það
er hið nýstofmaða Ferðafélag
Fljótdailsihéraðs, sem á heiður-
inn af þwí verki, en Ferðafélag
íslands veitti styrik til etfnis-
kaupa. Félagar í Ferðafélagi
Fljótsdalsihéraðs unnu að smíði
hússins í sjálfboðavinnu undir
stjóm formanns félagsins, Völ-
undar Jólhannessanar á Egils-
stöðum.
. Föstudagsfcvölldið 7. ágúst
lagði 60 manna hópur af stað
frá Egilsstöðum á 10 jeppabif-
reiðum og vöruflutmingabílurn,
sem fltrtta skálaefnið áiéiðis
inn að Snæfelli. Var elcið inn
fyrir Aðalból í Hrafnkelsdal
jxpa kvöldið og nábtað. þar í
tjöldum. Morguninn efitir var
svo ekið austar á heiði og
eftir laglfærðri sióð inn að
skálastæðinu, og tók sú ferð
röska 4 tíma. 1 hópnum var
fólk á öllum aldri, fflest af
Hóraði, en nolckrir neðan af
fjörðum eða lengrá að komnir.
Sikálasmíðin gekik ágætlega,
og var húsið foklhelt á 6 tímum
og varð húsið fokiielt á 6 kist.
Er húsið gert af timburfleikum,
vel einangrað og með báru-
jámsþaki. Geta þama sofið
20-30 manns með góðu sam-
komulagi, sem oftast rííkir á
slífcum stöðum. Til hliðar við
anddyrið er lítið svefnherbergi,
en innar aðalherbergi hússins
með svefn- og setbúlkum og
eldavél. Uppi á lofti er svo
svafnpláss undir súð. Gengið
var snyrtilega frá umhverfi
hússins með steinhleðslum og
hellrustétt og grasfræi sáð í
væntanlegt tún Snæfellsbænda.
Smávegis lagfæringar em eftir á
húsinu og verður þeim lokið
fyrir haustið. Einnig er fyrir-
hugað að varða leiðina inn
eftir með stikum, en það er
nauðsynlagt til að forða mönn-
um frá vegvillum og óþarfa
akstri utan slóða, sem því mið-
ur er alltof mikið tíðkaður í
óbyggðum. Flu.gvöllur hefur
verið mældur út þarna skammt
frá og verður hann auðkenndur
innan skamms.
Sjálfur skálinn stendur á
stórum mel, sem ffláir mót suð-
vestri, og sér þaðan til allra
átta. Rétt austan við rísa undir-
hlíðar Snæfells og hið efra rís
hamar mifcill og tignarlegur, en
•V- ’ ^ WMfW " '' A % — - ww s \ ■ """ •""v' v.%
Skálaefnið á byggingarstað.
1 m \ i a i n| biwhb
Völundur Jóhannesson,
tindur fjallsins falinn að þaki.
Til suðurs er sléttlendi mikið
vestan Þjófahnjúka og handan
þess úfinn jaðar Brúarjökuls,
en til vestars ýmsir rennilegir
móbergshnjúkar. Þama er því
heillandi öræfaheimur, sem
fremur fáir aðrir en gangna-
menn hafa komizt í kynni við
til þessa. Nú eftir að Snæfells-
skáli er risinn er aðstaða til
ferðalaga þangað inn aftir öll
önnur og betri, og á Ferðafélag
FljótsdalshéraðS mikið lof sikilið
fyrir þetta framtak. Verður það
bezt þakkað með góðri um-
gengni í Snæfelisskála og á
öræfunum þar nær og fjær.
Þótt leið hafi nú verið rudd
inn að Snæfelli, er ráðlegt að
fara þangað aðeins á vel bún-
um torfærubflum og fylgja
slóðinni, sem senn verður
greinilega auðkennd. Þama er
og allra veðra vt>n, jafnivel
um hásumarið, eins p^vpj^oigi^
í Ijós í hretinu í þessari' viku.
Margir munu eflaust hyggja á .
að klífa Snæfell, en þá er .
betra að hafa góðan 'búhað ógf
kynna sér vel göngiuleiðir á
fjallið. Öllum Snæ&Ilsförum
óskum við góðrar ferðar og
Ferðafélagi Fljótsdalshéraðsvél-
gengni í starfi. — H.G,
Pragstjórnin vill
bæta sanbú$ina
við V-Þýzkaland
PRAG 17/8 — Blöð í Prag birtu
í dag áskorun frá Josef Krocak
varaforsætisráðherra til vestur-
þýzkra stjómarvalda um að þau
gerðu sitt til þess að sambúð
Tékkóslóvakíu og Vestar-Þýzka-
lands batnaði, nú þegar Vestur-
Þjóðverjar hafa gert griðasátt-
mála við Sovétríkin. Krocak
sagði í ræðu að hann teldi, að
griðasamningurinn varðaði ekki
aðeins þau tvö ríki sem að hon-
um stæðu, heldur ætti hann að
greiða fyrir bættr; sambúð milli
allra landia Evrópu í austri sem
vestri, og bætti við að sérhvert
frumkvæði af hálfu Bonnstjóm-
arinnar í því skyni að bæta
sambúð landanna myndi fá góð-
air undirtektir í Prag.
□ SMURT BRAUÐ
□ SNITTUR
□ BRAUÐTERTUR
BRAUÐHUSIÐ
SNACK BÁR
við Hlemmtorg.
Laugavegi 126,
Sfcm 24631.