Þjóðviljinn - 10.09.1970, Blaðsíða 10
10 SlÐA — ÞJÓÐVTLJíNN — Fimmtudagur 10. septemfoer 1970.
12
þess svo mikið sem lita á mig.
Hafði þetta í rauninni gerzt i
gær, eða hafði mig dreymt það
allt saiman? Flurry gaf henni
langdregna og mjög svo ýkta
skýrslu um það að „hópur af
drullusokkum" hefði bmtizt inn
í kofa Dominics, meðan þú og
hann voruð að daðra hvort við
annað niðri á ströndinni.
Andartak var eins og hjartað
í mér hefði hætt að slá; svo
áttaði ég mig á því, að þetta
var ekki annað en vanalega rugl-
ið í Flurry. Ég held að þetta
hafi verið í fyrsta skipti sem ég
gladdist yfir því, að hann skyldi
vera svo mikill glópur að ég gæti
rólegur haldið áfram hinum
hættuilega leik án þess að eiga
á hættu að upp um mig kæmist.
Harry virtist ekki hafa mikinn
áhuga. — f>ú verður að gæta
þess að hafa læst hjá þér, sagði
hún aðeins.
— Hverjum dettur í hug að
það sé eftir einhverju að slægj-
ast hjá mér?
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav. 188 III. hæð (lyfta)
Simi 24-6-16.
Perma
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðastræti 21. SÍMl 33-9-68.
Hún lyfti allt í einu höfðinu og
horfði beint á mig með dálítið
ertnislegu brosi, sem ekki var
hægt að villast á. Jafnvel Flurry
hefði orðið hvumsa ef hann hefði
séð það. En hann var að randa
um eldhúsið og fiktaði við nið-
ursuðudósir uppi í hillu
— Hefurðu ekkert þarflegra að
gera, gamli glópur? sagði konan
hans.
— Þarna heyrirðu hvernig hún
talar við mig, sagði Flurry og
leit ástúðlega á hana. — Og
þama situr hún sjálf á dausnum
og þykist vera Drottningin af
Safoa.
Ég var svo ringllaður að ég
vissi ekki hvað ég átti að segja.
Síminn hringdi og Flumy rölti
fram til að svara Harry þaut
upp úr stólnum og vafði hand-
leggjunum um hálsinn á mér.
Ég reyndi árangurslaust að hrista
hana af mér.
— Ekki hérna. I guðs bænum,
tautaði ég.
Hún skaut upp kryppu Og
hvæsti. — Æ, farðu til fjandans
og hafðu með þér mömmu þína
og allar gömlu fræntoumar. Get-
urðu ekki sagt nokkum skapað-
an hlut annað en „ekki hérna“?
Hún sleppti mér og kledp mig
svo fast í bafchlutann að óg gat
ekki að mér gert að segja „æ,
fjandinn sjáffur". Ég þreif um
höndina á henni og ýtti henni
aftur á baik, svo að loks lá hún
á hnjánum fyrir framan mig.
Við hljótum að hafa verið eins
og frístundaleikarar í hjákátleg-
um gamanleik, oig ég var feginn
því að vinir mínir, gáfnaijósin
í London, stóðu ekiki álengdar
sem áhorfendur.
Við héyrðum Flurry koma
stikandi úr símanum frammi á
ganginum. Við Harry . sátum
skikkanleg og hsafilega langt
hvort frá öðru þegar hann kom
inn í stofuna.
— Það var faðir Bresnihan.
Hann var að spyrja hvort þú
vildir borða kvöldmat hjá hon-
um á morgun. Ég sagði að það
vildirðu gjarnan Þú ætlar von-
(gníinenlal
HINIR
HEIMSÞEKKTU
JEPPA
HJÓLBARÐAR
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR
Opið alla daga frá
kl. 8—22, einnig um helgar.
GÚMMÍVINNUSTOFAN HF.
SKIPHOLTI 35 REYKJAVÍK
SÍMI 31055
andi efcki að gera neitt annað?
Ráðsikona prestsins vísaði mér
inn í skrifstöíu hans heilagleika.
— Látið eins og þér séuð heima
hjá yður, herra Eyre. Faðir
Bresnihan kemur eftir andartak.
Bænaskemill og róðukross.
Bókaskápar og skjalaskápar með-
fram veggjunum. Rytjuiegur sófi
og tveir hægindastólar fyrir
framan arininn. Skjöl í snyrti-
legum hlöðum á burði í miðju
herbergi. Þetta líktist meira op-
inberri skrifstofu en lestrarstofu
prests. Þrátt fyrir eldinn í am-
inum var svo kalt inni, að það
fór hrollur um mig. Ég hafði
tíma til að líta aðeins yfir bæk-
urnar — kaþólsk guðfræði, heim-
speki, mörg söguleg ritverk um
írland, skáldsögur frá fyrri öld
— áður en presturinn kom inn
og hélt á bafcka með sherry-
karöflu og tveim glösum. Hann
hellti í glösin, sparkaði í móeld-
inn, kveikti í sígarettu (hann
keðjureykti allt kvöldið) og
spurði hvort ég kynnj vel við
mig í fcofanum.
— Ég vona að Kathleen sé
með eitthvað gómsætt handa
ofcfcur. Það hvarflaði að mér
að fara með yður út og láta
„Colooney“ framreiða matinn
handa okkur. f Dýflinni er sagt
að hótel sé góður matstaður, ef
margir , prestar snæðj þar.
Áhyggjusamt, meinlætalegt and-
lit hans hýrnaði í brosi. — Það
er mjög sjaldan sem ég matast
á „Colooney".
— Þér eruð með ljómandd
gott sherry.
— Kevin Leeson útvegar mér
það. Prófessor mofckur við May-
noothprestaskólann mælti með
þessu sérstaka sherrýi við mig
fyrir mörgum árum.
— Kevin virðist leysa állan
vanda. Hann hefur verið leigj-
anda sínum mikil hjáiparheMa.
— Það gleður mig. Og gengur
starfið vel?
— Já, svo sannarlega.
— Ég öfunda yður að geta
einbeitt yður að einu, átoveðnu
verki. Hann benti á einn skjala-
.sfcápinn. — Sóknarprestur þarf
að vera kennari, kaupsýslumað-
ur, annast' góðgerðastaitfsemi og
sitt hvað fleira, auk þess sem
hann er sálusorgari. Nú sem
stendur er ég að reyna að út-
vega peninga fyrir nýjum skóla.
Því miður er sókn mín í einu af
fátækustu héruðum landsins.
— Já, en ég er viss urn að
stjómin —
— Menntamálaráðherrann er
góður kaþólikiki. En við lítum
ekki á skóla og kennslu sem
nokkuð sem veraldleg yfirvöld
eiga að einoka. Yður finnst þetta
trúlega gamaldags sjónarmið, er
ekki svo?
— Jú, að vissu leyti.
Maður heillaðist að gáfulegum
augum föður Bresnihans, sem
glóðu af einlægni og heiðarleik.
Hann var enn önnum kafinn við
að reyna að sannfæra mig um
hinn þýðingarmifcla þátt kirkj-
unnar í skólamálum, þegar okk-
ur var tilkynnt að maturinn
væri framreiddur Lambasteikin
var ljúffeng og kartöilurnar
gómsætar, en grænmetið var
mauksoðið og ein ólystileg beðja.
— Snertið ekki grænmetið,
herra Eyre. Kathleen hefur aldrei
kunnað að meðhöndla grænmefi,
sagði hann við mig, þegar hún
var farin fram í eldhúsið. —
Ég borða það sem eins konar
yfirbót.
Rauðvínið var ails engin yfir-
bót. Bröndóttur, hálfvaxinn kett-
lingur stökk upp í fangið á hon-
um og hringaði sig malandi á
hnjám hans. Við vorum komnir
að vandamáli ritskoðunar. Faðir
Bresnihan viðurkenndi að marg-
ar af bókum helztu evrópskra og
amerískra rithöfunda hefðu ver-
ið bannaðar í írlandi Hann vildi
frábiðja sér að írsk menning yrði
fyrir áhrifum a'E þessum „slef-
andj slordónum“; ritskoðun var
óhjákvæmileg nauðsyn þess að
sál Mands héldist ósnortin —
þjóð sem byggir alla tilveru
sína á trú — „enginn leyfir
smábörnum að leika sér að eld-
spýtum". Bændurnir okkar eru
frumstæðir og áhrifagjarnir. Þess
vegna er þeim fremur en öðrum
og kærulausari þjóðfélagshópum
hætt við að bíða tjón á sélu
sinni með því að lesa óhæfar
bætour.
— Haldið þér í raun og veru
að bækur geti haft óheppileg
áhrif á fólk? spurði ég.
— Þær geta leitt til siðferði-
legs sljóleika, herra Eyre. Og
því betri bókmenntir sem bækur
eru, því hættulegri geta þær
verið.
Þótt ég gæti efcki fallizt á
röksemdir hans, varð ég að við-
urkenna að hann setti þær fram
ai£ stillingu og myndugleik; án
þess að virðast óþægilega sjálf-
umglaður kom hann því þannig
fyrir, að það var eins og hann
hefði réttinn sín megin.
Þegar við höfðum á ný fært
otokur inn í skrifstofu hans,
leiddi ég talið að öðru efni:
„Blástökkum“ O’Duffys hershöfð-
ingja og hina óskiljanlegu hrifn-
ingiu rithöfundarins W. B. Yeats
á þeim.
— Villi Yeats hefur alltalf ver-
ið veikur fyrir ofbeldisstefnu;
hann er enginn lýðræðissinni. En
hann á eftir að sjá í gegnum
þessa gasprara.
— En þetta er ósvikin fas-
istahreyfing. Hún getur naumast
átt marga áhangendur hér á
landi. Það er ekki notokur þjóð
í heimi sem lætur eins illa að
stjóm og Irar.
Faðir Bresnihan upphóf fróð-
lega lýsingu á upptötoum Blá-
statókahreyfingarinnar og tilraun-
um I. R. A. og Fianna Fail-
flokksins til að berjast gegn
henni.
— í Englandi finnst ykfcur
þetta auðvitað ekki annað en
vindbóla
— Við vitum svo lítið um
það sem er að gerast bak við
tjöldin í írskum stjórnmálum.
Haldið þér að Hitler hafi sam-
band við hreyfingu O’Dulflfys
hershöfðingja?
— Sá óttalegi guðleysingi! Það
getur svo sem verið. En de Va-
lera er staðráðinn í að halda
írlandi hlutlausu.
— Og á meðan gera Blá-
stakikarnir og lýðveldisöfgasinn-
arnir allt sem þeir geta til að
draga Irland inn í deilur stór-
veldanna.
— Það er augljóst mál. En ég
er nú enginn sérfræðingur þegar
stjómmál eru annars vegar.
— Þá hljótið þér að vera eini
Irinn sem er það ekki.
— Nei, heyrið mig nú, þetta
er ekki rétt. Hér er enniþá alltof
mikið af beiskju og örvæntingu;
en flestir samlandar mínir eru
dauðþreyttir á ofbeldi; þeir vilja
aðeins frið.
— Fagnaðarerindi hinnar hlut-
lausu einangrunar
— Það fagnaðarerindi að við
eigum að byggja upp kristið
þjóðfélag á rústum síðustu tutt-
ugu ára.
— En er það ekki skylda sér-
hvers sannkristins manns að
berjast gegn nasismanum og eðli
hans?
— Ef styrjöld verður, þá vænti
ég þess að mikið verði um írska
sjálfboðaliða í brezka hemum.
— En de Valera vill etoki grfa
ofckur frjálsan aðgang að írskum
höfnum?
— Nei, það vill hann ekki. Þá
væri þýzk innrás óumflýjanleg.
Faðir Bresnihan hellti í annan
bolla handa mér af vonda kaff-
inu hennar Kathleenar og opnaði
nýjan sígarettupakka.
— Eiga Blástakkarnir áhang-
endur í yðar sókn?
— Nei, Guði sé lof. Ekki
svo ég viti. Biskupinn hefur
fordæmt hreyfinguna afdráttar-
laust. En auðvitað er aldrei að
vita nema einhver valdafíkinn,
ungur skýjaglópur tæki upp á að
notfæra sér hreyfinguna til hags-
muna fyrir sjálfan sig.
HARPIC er ilmandl efni sem hreinsar
salernisskálina og drepnr sýkla
Hvað nefnist Ijóðabókin
og hver er höfundurinn?
> :'ú>'
'ÚW/M
9. MYND
Bókin nefnist
Höfundurinn er
SÖLO-eldavélar
Framleiði SÓLÓ-eldavélai af mörffum stserðum
og gerðum. — Einkum hagkvæmar fyrir sveita-
bæi, sumarbústaði og báta.
VARAHLUTAÞJÓNUSTA.
Viljum sérstaklega benda á nýja gerð einhólfa
eldavéla fyrir smærri báta og litla sumarbústaði
ELDAVÉLAVERKSTÆÐI
JÓHANNS FR.
KRISTJÁNSSONAR h.f.
Kleppsvegi 62 . Sími 33069
Dömusíðbuxur — Ferða-
og sportbuxur karlmanna
Drengja- og unglingabuxur
O.L.
— Laugavegi 71 — sími 20141
i