Þjóðviljinn - 20.09.1970, Side 4

Þjóðviljinn - 20.09.1970, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÖÐfVTIJINN — Sunmidagur 20. septemlber 1970. Útgefandi: Framkv.stjórh Bitstjórar: Fréttaritstjóri: Ritstj.fulltrúi: Auglýsingastj.: Útgáfufélag Þjóðviljans. Eiður Bergmann. Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson Sigurður Guðmundsson Sigurður V. Friðþjófsson Svavar Gestsson. Olafur Jónssoa Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavðrðust. 19. Simi 17500 (5 línur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00. Fé/agsleg viðhorf og BÚR ^ fundi borgarstjómar á fimmtudag gerði Sigur- jón Pétursson borgarráðsmaður Alþýðubanda- lagsins að umtalsefni þau fráleitu ákvæði togara- kaupaskilmálanna að sveitarfélög skuli leggja fram fé til einkaaðila við togarakaup. í Reykjavík er um það að ræða, að gengið er á möguleika fyrir- tækis Reykvikinga sjálfra, Bæjarútgerðar Reykja- yíkur, til þess að endumýja togaraflota sinn. Að sjálfsögðu ber borgars'íjórn að sjá 'til þess að láns- traust og fjánmagn borgarinnar til togarakaupa sé notað til eflingar Bæjarútgerðarinnar, sem er helzta og traustasta atvinnufyrirtæki Reykvík- inga. Þessum sjónaæmiðum hélt Sigurjón Péturs- son fram á borgarstjórnarfundi á fimm'tudaginn ■— um leið og hann minn'ti á hve fallvalt er að treysta gróðahyggjunni til forsjár í atvinnulífi. Gróðahyggjan getur aldrei orðið traustur gmnd- völlur atvinnulífs, því að gróðamennirnir leita þangað sem gróðinn er og hirða ekkeft um hags- muni almennings í því sambandi. Einungis með eflingu fyrirtækja eins og Bæjarútgerðar Reykja- víkur er unnt að hafa þau félagslegu viðhorf í heiðri, seim að sjálfsögðu eiga að ráða ferðinni: Framleiðslan er félagsleg, og því ber að stýra henni félagslega í þágu heildarinnar en ekki gegn henni. Trúið aidrei... jpyrir nokkrum dögum birtibt í Þjóðviljanum grein þar sem m.a. var minnt á ægivald Morg- unblaðsins hér á landi; var á það bent í greininni að útbreiðsla Morgunblaðsins hérlendis væri hlutfallslega meiri en öll útgáfustarfsemi þýzka blaðakóngsins Axels Springers. Eins og kunnugt er lögðu vestur-þýzkir námsmenn til sérstakrar atlögu við Springer-hringinn í Vestur-Þýzkalandi, þar sem þeir töldu blöð hans hættuleg og fasísk á köflum. Ef útbreiðsla Morgunblaðsins er borin saman við útbreiðslu blaða í Danmörku sést að Morgunblaðið hefur um það bil fimm sinnum meiri útbreiðslu hlu'tfallslega en útbreiddasta blað Danmerkur. Þannig mætti vafalaust rekja dæmin enn lengur; útbreiðsla Morgunblaðsins á vart nokkurn sinn líka. Þessi staðreynd er ákaflega al- varleg vegna þess að Morgunblaðið misnotar dag- lega aðstöðu sína — það fer með staðleysur og rangfærslur á ummælum andstæðinga sinna, það blekkir og dregur hulu yfir það sem óþægilegt er fyrir þann piálstað sem Morgunblaðið heldur fram. Þetta birtist ekki einasta í skrifum blaðsins um alþjóðamál. Það er sama hvort skoðaður er fréttaflutningur þess af atvinnuleysi, tillögu- og málflutningi í borgarstjóm Reykjavíkur eða á alþingi: Alls staðar ber hið saima við. Það er nauð- synlegt fyrir alla hugsandi Íslendinga að gera sér þennan háska ljósan. — sv. Tillegg í kosningabaráttuna. — Rjúpnaveiðar. — Amen, halelúja. I dag eru á dagskrá próf- kjör og áróðurssneplar, rjúpnaveiðar á banntíma og loks feer íþróttafréttaritari blaðsdns ádrepu í bréfi frá K.H. Bæjarpóstur minn. 1 dag var stungið inn um dyralúguna hjá mér áróðurs- snepli fyrir einn af kandídöt- um íhaldsins við prófkjör. Á honum var allra lagjegasta mynd af viðkomandi ásamt ýmsum persónuiegum upplýs- ingum um hann, og ágæti hans tíundað í velvöldum orð- um. Það vantaði bara upp- lýsingar um hjúskaparstétt, bamafjölda, mál, vog og mat- aræði til þess að snepillinn gæti talizt verulega neyzlu- þjóðfólagslegur, en úr þvi verður væntanlega bætt fyrir næstu kosningar Hvað kostar svona tiltæki, mér er spuro? Allt bendir til þess að lýðræðið sé að fær- ast á það hástig hérlendis, að engir nema auðkýfingar geti tekið þátt í stjórnmála- baráttunni, helzt vammlausir auðkýfingar með snoppufríðar eiginkonur og fallega klædd böm. Mér er tjáð, að einn prófkjörsframbjóðandi hafi opna kosningaskrifstofu heima hjá sér, þar sem hann hafi til sýnis húsgögn og konu, og að hann telji það vænna til- legg í kosningabaráttuna en góðan málstað. Þetta bendir lókiega til þess, að allmargir kjósendur láti sig litlu skipta, hvort menn berjast fyxir endursköpun atvinnulífsins, réttlátari skiptingu þjóðar- tekna, úrsögn Islands úr NATO, aðalatriðið sé, að þeir taki sig vel út á myndum og lifi óspilltu lífemi. Enn- fremur að þeir hafi peninga til að auglýsa þessa ágætu kosti sína, svo að fólk þurfi ekki að kaupa köttinn í sekknum. Er pólitíkin orðin alger loddaramennska? N.N. Kæri bæjarpóstur. Á sunnudaginn var ég á skemmtigöngu við Lyklafell hjá Sandskeiði. Skyndilega heyrði ég skotgný og sá þar, hvar tveir menn voru að skjóta á rjúpnáhóp þar hjá. Þetta voru rjúpnahjón með unga sína, tæplega fleyga, þannig að hér var um auð- fengna bráð að ræða. Svo sem kunnugt er, má ekki skjóta rjúpu fyrr en um miðjan október, og sjálfsagt hefur umræddum mönnum ekki verið ókunnugt um það, en þegar ég spurði þá, fóru þeir undan í flæmingi og vildu ekkert um rnálið tala. Vita- skuld er það ógjörningur að hafa eftirlit með að rjúpna- veiðar séu ekki stundaðar á banntíma, og mér finnst að allar skyttur ættu að sjá sóma sinn í þvi að láta fugl- ana í friði meðan þeir em friðaðir. Rciður göngumaður. Bæjarpóstur góður. Ég ætla að nota mér dálka þína tii að komá á framfæri gagnrýni á knattspymuskrif blaðsins. Yfirleitt er íþrótta- fréttaritari Þjóðviijans góður, nema þegar eitt ákveðið knattspyrnulið kemur við sögu, en þá er líka eins og hann sjái rautt. Hér er um að ræða Keflavíkurliðið. sem honum virðist af einhverjum ástæðum mjög í nöp við. Hann notar hvert tækifæri til að láta í ljós vanþóknun sína á því, og þegar hann neyðist til þess að segja eitthvað gott um þá, á hann greinilega mjög bágt. Hinsvegar á annað lið, Akranes, mjög upp á pall- borðið hjá honum, og það liggur við að hann byrji all- ar greinar sínar um það á hálelúja og endi þær á amen. Þessi hlutdrægni keyrir fram úr öllu skynsamlegu hófi, og ef þetta á að halda svona áfram, sé ég ekki annað en að Þjóðviljinn verði að fá annan mann til að skrifa um leiki þessara liða, þvi að um- rædd skrif fara Þjóðviljanum mjög illa. Með kærri kveðju. K.H. Bæjarpósturinn er yfirleitt mjög áhugasnauður um íþrótt- ir og lætur slík skrif venju- lega fram hjá sér fara, þann- ig að hann veit ekki, hvað satt er og rétt í þessari ádrepu. Hinsvegar sýndi hann íþrótta- fréttaritaranum brðfið áður en það fór lengra, og sá síðar- nefndi bað hann vinsamlega fyrir þau tiiimæli til K.H. að hann rökstyddj ummæli sín á einhvern hátt. Hér er því sem sé komið á framfæri. SKÁKIN HnBffO ffic rm uoow 'j Ritstjórar: Bragi Kristjánsson og Ólafur Björnsson XIX. Olympíuskák- mótið í Siegen Nú er úrslitakeppnán hafin á XIX. Olympíuskákmótinu í Siegen í V.-Þýzkalandi. Is- lenzka sveitin hafnaði I C- Jón Kristinsson úrslitariðli, þrátt fyrir !tiltölu- lega veikan undanrásariðdl. Övænt töp gegn Koluipbíu og Nýja-Sjálandi settu . strik í reikninginn; Við stoulum athuga skák úr viðureign Islands og Kóluirribíu úr 3. umferð. Á Jón Kristins- son þar í höggi við Cuéllar. Cuellar þessi eír mjög reyndur skáikmeistari, hofur teflt ’ fyrir land sitt á olympíuskákmótum síðan 1956, og yfirleitt á 1. borði. Frægastur er hann þó fyrir sigra sina yfir sovézku stórmeisturunum Kortsnoj og Geller, í tvedm fyrstu urnferð- unum á millisvæðamótinu í Stokklhólmi 1962. Hvitt: Jón Kristinsson: Svart: Cueliar Kóngsindversk vörn. 1. d4 Rfð 2. c4 g6 3. g3 Bg7 4. Bg2 d6 5. Rf3 0-0 6. 0-0 Rc6 7. Rc3 a6 8. d5 Ra5 9. Rd2 c5 10. Dc2 Hb8 11. b3 b5 12. Bb2 e5 13. dxe6 fhj,— (Ofast er leikið hér 13. Rdl— Rh5. 14. e3—f5. 15. f4 o.sfrv:) 13. — fxe6 (eða 13. -Bxe6. 14. cxb5-axb5. 15. Rce4 o.s.frv.). 14. cxb5 axb5 15. Rcc4 Bb7 16. Hadl De7 17. Bxf6 Bxf6 18. Rxf6+ Dxf6 19. Bxb7 — (Hvítur getur haldið í biskup- inn með 19. Re4-Bxe4 20. Dxe4 o.s.frv.) 19. — Rxb7 20. Dd3 b4 21. Re4 De7 22. f4 d5 (Erfitt er að benda á aðra áætlun fyrir svartan.) 23. Rg5 Hbd8 24. e4 Hd6 25. exd5 exd5 26. Hfel Dd7 27. He5 Hd8 28. Hdel Ra5 29. Hé7 Df5 30. Dxf5 — (Einnig virðist 30. Db5 vinna, t.d. 30.-RC6. 31. He8+-Hxe3. (31.-Kg7. 32. Dxc6) 32. Hxe8+ Kg7. 33. Db7+-Dd7 34. Da8 o.s.frv.) 30. — gxf5 31. Rf7 Rc6 32. Hb7 Kf8 (Ekki 32.-C4 33. Rxd6-Hxd6 34. He8 mát.) 33. Rxd8 Rxd8 34. Hxh7 c4 35. bxc4 dxc4 36. Hh5 c3 (Eða 36,- Hd5. 37. He5.) 37. Hxf5+ Kg7 38. Hc5 Re6 39. Hc4 Rd4 40. Kf2 Rc2 41. He2 Rd4 42. Hxb4 Rxe2 43. Kxe2 Hd2+ 44. Kf3 — og svartur gafst upp. Hér kemur svo skékin, sem skaut búlgarska fyrirliðanum svo skelk í bringu, að hann bauð jafntefli á öllum borðum í keppni Islendinga og Búlgara. 9. Del 10. f5 11. exf5 12. Rg5 13. Rge4 14. Rxe4 15. f6 jafntefli. Rd7 gxf5 Rf6 h6 Rxe4 d5 exf6 Larsen Hvítt: Guðmundur Sigurjónsson Svart: Bobozov Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. f4 Rc6 3. Rf3 g6 4. Bb5 Bg7 5. Bxc6 bxc6 6. 0-0 Rf6 7. d3 0-0 8. Rc3 d6 Guðmundur Sigurjónsson setti skrekk í búlgarska fararstjórann Að lokum sjáum við LarSen, vin vorn, í þrengingum í baráttunni við Ungverska stór- meistarann Portisoh. Hvítt: Larsen Svart: Portisch Larsen-byrjun. 1. b3 e5 2. Bb2 Rc6 3. c4 Rf6 4. e3 d6 5. Rc3 g6 6. Rf3 Bg7 7. d4 Bf5 8. d5 Rh4 9. Hcl a5 10. a3 Ra6 11. h3 0-0 12. g4 Bd7 13. g5 Rh5 14. Re4 f5 15. gxf6 fhj. Rxf6 16. Rfd2 Rxe4 17. Rxe4 Dh4 18. Rg3 Rc5 19. Bc3 Hxf2 20. Kxf2 Re4+ 21. Kgl Dxg3+ 22 Bg2 Dxe3+ og hvítur gaf. Bragi Kristjánsson, i

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.