Þjóðviljinn - 02.10.1970, Page 10
|Q SÍÐA — ÞJÓÐVILJI'NN — Föstuda.gur 2. október 1970.
i,
31
Þetta sagði hann. Orðrétt. Ég
gleymi því aldrei. Á prenti lítur
það ef til vill út eins og bull-
andi tilfinningasemi. En á mig
höfðu þessi orð svo djúp áhrif,
að ég varð innilega snortinn og
skammaðist mín um leið eins
og barinn hundur. Hvernig
hafC mér nokkurn tíma getað
dot-' ð í hug að Fiuny hefði
barið þennan mann á bai-num,
aðeins vegna þess að hann hafði
tapað peningunum? Hvar hafði
ég haft augun þegar hann æddi
út á skeiðvöllinn og tók hana
í fang sér! Það var hann sem
gat kennt mér 'sitt af hverju
um ástina. Þessi langdrukkni
sveitaslöttólifur hafði elskað
Harriet af svo fórnfúsri ást, að
mér fannst ég sjálfur vera aum-
ur og vesæll kvennabósi.
Ég fór hjá mér við orð hans
og ég var öldungis sannfærður
um að hvert einasta þeirra væri
mælt af heilum hug. Ég var
að þvtf kominn að leysa frá
skjóðunni og játa allar syndir
mínar. En það myndi aðeins
verða til að auka á harm hans
og hvað bætti það úr skiák þótt
ég væri líka þrúgaður af sam-
vizfcubiti?
— Ég var rétt í þessu að fá
skýrslu frá Goncannon. Harry
var ófrísk.
Ég starði á hann skellfingu
lostinn.
— Hún var búin að segja mér
það — fyrir svo sem tveim
mánuðum — gaf í skyn hvernig
ástatt væri fyrir henni. Og ég
trúði henni ekiki. Ég — það var
svo langur tími liðinn, skilurðu.
Ég hélt að ég væri ekki maður
til þess, tautaði hann svo lágt
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
^augav. 188 IH. hæð (lyfta)
Sími 24-6-16.
Perma
Hárgreiðslfu- og snyrtistofa
Garðastræti 21 SÍMI 33-9-68.
að ég heyrði naumast orðaskil
meðan hann starði niður í
whiskýglasið sitt. — Ég hló að
henni. Hló að henni.
Ég var alveg ringlaður. Harriet
var sem sé búiij að tryggja sig;
hún hafði verið að blekkja mig
þegar hún sagði að hún gæti i
versta falli skotið skuldinni á
Flurry. Eða var þetta í rauninni
barn Flurrys og hafði hún ætl-
að að nota sér ástand sitt til að
reyna að fá mig til að kvænast
sér. Ég svipaðist um í ruslara-
legu eldhúsinu. Það var strax
orðið öðru vísi en áður og
minnti á kabyssu á fiskibáti,
þár sem karlmenn verða að
komast af kvenmannslausir.
— Það hefði gerbreytt lifi
okkar — bamið, sagði Flurry.
— — Mig hefur alltaf • langað
til að eignast barn. Grá, vatns-
sósa augun urðu allt í einu eitil-
hörð. — Og nú hef ég tveggja
lífa að hefna.
— Hefna?
— Hlustaðu nú vel á, Dom-
inic. Hver svo sem gerði þetta,
hver svo sem hann var, þá
sfcal ég hafa upp á honum og
ganga af honum dauðum. Að því
búnu geta þeir gert við mig það
sem þeim sýnist, þá stendur mér
á sama um allt.
—Já, en —
— Geturðu sagt mér hvað ég
..helf nú að lifa fyrir?
Þögn.
— Það hlýtur að hafa verið
einhver úr nágrenninu. Seaimus
segir að enginn aðkomurnaður
hafx verið í margi-a mílna fjar-
lægð þetta kvöld. Og það var
ekki einn einasti utanhæjarmað-
ur í Charlottestown.
Ég mundi hvemig Flurry hafði
hefnt sín á ensku hermönnunum
þremur og það fór hrollur ura
mig.
— Ég vildi óska að ég gæti
gert eithvað til að hjálpa þér,
sagði ég í örvæntingu og - svo
demdi ég mér út í það. —
Concannon grunar mig.
— Þig. Hamingjan hjálpi mér,
hverju skyldi sá maður finna
upp á næst? Flurry reyndi að
hlæja, en það varð ekki annað
en hvæs. — Er það satt? Já,
en þú getur ekki tekið það alvar-
SAGA — 1
lega.
— Það er víst ekki að undra
þótt hann —
— Já, en þér þótti vænit um
Hapry.
— Ég élskaði hana.
Þá var ég búinn að segja það.
Mér létti svo mjög að því verður
ekki með orðum lýst.
— Auðvitað gerðirðu það,
sagði Flurry — en ég gat ekki
lengur áttað mig á því hvort
hann var fcvíðafullur eða bara
Volkswageneigendur
Höfum fyrirliggjandi BRETTl —> HURÐIR — VÉLALOK
og GEYMSLULOK á Volkswagen 1 allflestum Utum. —
Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir ákveðið
verð. — REYNIÐ VIÐSKIPTIN.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar.
Skipholti 25. — Símd 19099 og 20988.
vandræðalegur. Ég var að leysa
frá skjóðunni.
— Ég á við að hún var — við
vorum elskendur. Ég verð að
segja þér það.
Augu hans urðu fjarræn og
hann forðaðist að líta á mig.
Það var eins og hann væri
kominn í sama gamla sljóleika-
ástandið. Hið eina sem rauf
þögnina var tifið í eldhúsklukk-
unni það leið langur tími áður
en hann tók aftur til máls.
— Ég vil ekki tala um það.
Ég er búinn að segja þér það.
En samvizka mín rak mig
áfram. Ég sagði Flurry atlt sem
gerzt hafði nóttina sem Harry
var myrt — hvernig faðir
Bresnihan hefði getað talið mig
á að rjúfa sambandið við hana,
hvemig ég hafði ákveðið stefnu-
mót við Harry hjá ánni og
hefði loks fundið hana látna á
sama stað næsta morgun. Flurry
hlustaði á frásögn mína í djúpri
þögn.
— Varst það þú sem myrtir
hana, sagði hann, þegar ég hafði
lokið máli mínu. — Segðu mér
það h rei nsfci 1 nislega.
— Það held ég ekki.
— Þorirðu að sverja það!
— Já! En síðan þetta gerðist
hefur mér fundizt þetta vera
mér að kenna. Ef ég hefði ekki
skilið hana eftir eina —
— Það kemur ekki málinu við.
— Ég þorði ekki að segja Con
cannon að ég hefði komið niður
að ánni þetta kvöld.
— Þú þarft ekkert að óttast
að ég segi honum það, sagði
Flurry' og brosti við.
Óhugnanlegri hugs-un skaut
upp í huiga mér — ef það hefði
verið Flurry sjállfur sem varð
Harriet að bana, þá hafði hann
nú allt ráð mitt í hendi sér
hann þurfti ekki annað en segja
Concannon frá því sem ég hafði
verið að trúa honum fyrir. Eða
þá — og öllu líklegra — að hann
gat sjálfur kveðið upp dauða—
dóminn yfir mér.
Ég gerði mér grein fyrir að
þetta var örlagastund fyrir okk-
ur báða, Flurry og mig. Hann
sat og reri til stóru, þyngsla
legu höfðinu eins og sært dýr.
Ég gat ékki hu-gsað mér hann
sem banamann eiginkonu sinn-
ar. En ég þekkti fortíð hans og
vissi að hann gat verið hættu-
legur eins og villt rándýr, þegar
hann var reittur til reiði.
— Þú getur áreiðanlega fengið
föður Bresnihan til að segja þér
frá samtaili okikar.
— Það get ég víst. En hann
er víst að leggja upp í predikiun-
arferð eða nvað það er nú kall-
að. Seamus sagði mér það. Flurry
horfði á mig en hugur hans var
víðs fjarri. — H£ hann hefði
ekki setið hér og blaðrað þetta
kvöld, hefði ég kannski farið út
að leita að Harry áður en hún —
en ég var alveg miður mín eftir
allt kjaftæðið í honum og allt
alkóhólið sem ég varð að hella
í mig. Þegar hann hundskaðist
loks af stað, leið ekki svipstund
áður en óg var steinsofnaður í
rúmi mínu. Ég var ennþá sof-
andi klukkan hálfsex næsta
morgun, þegar Seaimus barði að
dyrum. Hann var þá búinn að
finna hana.
— Þá hefur hann verið
snemma á fötum.
— Seamus hefur ekiki sofið
værum svefni síðan á slæmu
árunum. Þá var hann ekki ann
að en unglingsgrey. Stundum fer
bann á fætur og ráifar um á
næturnar eða í dögun. Con
cannon var þess vegna með
hann í sigti. Hann leitaði í öll
um fflötunum hans og dótinu. En
hann myndi ekki gera neitt slíkt
fremu-r en ég. Nei, ekki hann
Seamus.
Það var byrjað að rökkva Og
fuohsíumar og hin blómin fyrir
utan virtust öll orðin samlit.
— Það er gott að þú heldur
að ég gæti efcki — annars hefð-
irðu fuilla ástæðu til að gruna
mig Flurry.
— Já, en þér þótti vænt urn
hana.
Hann sagði þetta svo eðlilega
og blátt áfram, að ég var næst-
um farinn að gráta. Hvað í
ósköpunum átti ég að segja? —
En írskt sikáld heldur því fram
að allir menn drepi fyrr eða
síðar þann sem þeir elska.
— Það er ekki annað en eitt-
hvert bókmenntakjaftæði. Til-
finningalega séð ertu dálítiM
væskill,' Dominic; þú átt þetta
ekki til. Ef þú hefðir séð þessi
gapandi sár — nú, jæja, þú sást
þau! Aðeins maður sem er óður
og trylltur af afbrýði eða ástar-
bríma hefði getað ráðist á kvenn-
mann á þann hátt. Já, ég veit
vel að ég er ekkert gálfnaljós, en
ég veit hvernig maðu.r bregzt
við krepptum hnefa þegar maður
fær hann í fésið Enda hafðir
þú enga ástæðu til að vera af-
brýðisamur. Þú ert ekki sú
manngei-ð að þú látir tilfinning-
arnar hlaupa með þig í gönur —
þú gætir aldrei komizt 1 svo
mikið uppnám að þú misstir al-
gerlega stjóm á þér.
Það var dálítið áfall og ekki
vitund þægilegt að heyra ein-
feldninginn Flurry gera svo
glögga greiningu á sálarlífi mínu
Og næsta athugasemd hans var
næstum enn uggvænlegri.
— Segðu mér eitt, hvenær var
það sem þið Harry komust að
raun um að þið elskuðuð hvort
annað?
Ég starði á Flurry. Þetta var
ófvaxið mínum skilningi. Með
lipurð og háttvísi sem var harla
ólík honum, hjálpaðj hann mér
úr vandanum.
— Ég hef þörf fyrir að tala
um hana, Dominic, og þú ert sá
eini sem ég get talað um hana
við. Hún er dáin og okkur þótti
báðum vænt um hana og hvers
vegna skyldum við ekki tala um
hana? Þú gerir mér mikinn
greiða með því
Þetta var upphafið að furðu-
legasta kvölþinu á ævi minni.
Táldreginn eiginmaður og elsk-
huigi eiginkonu hans' sátu saman
og skiptust á minningum um
konuna, sem báðir höfðu elskgð.
Ég geri ráð fyrir að sumir líti
á þetta sem sönnun þess að
Flurry hafi ekki verið með réttu
ráði, að hann hafi verið haldinn
eins fconar kynórum, en þannig
leit ég ©kki á málið. Enda þótt
SIGURÐUR
BALDURSSON
— hæstaréttarlögmaður —
LAUGAVEGl 18, 4. hæð
Símar 21520 og 21620
SINNUM
LENGRI LYSING
neOex
2500 klukkustunda lýsing
við eðlilegar aðstæður
(Einu venjulegu perurnar
framleiddar fyrir svo
langan lýsingartíma)
NORSK ÚRVALS
HÖNNUN
Heildsala Smásala
Einar Farestveit & Co Hf
BergstaSastr. 10A Sími 16995
UG-RADBKAL - mVDRA GOTT
Frá Raznoexport, U.S.S.R.
B „ , „ MarsTrading Eompanyhf
AogBgæðaflokkar Laugaveg 103 3 - J
sfmi 1 73 73
Hver býður betur?
Það er hjá okkur sem þið getið fengið
AXMINSTER teppi með aðeins 10%
útborgun
AXMINSTER — annað ekki.
£ m: m T y
ANNAÐ EKKI
Grensásvegi 8 — sími 30676.
Laugavegi 45 B — sími 26280.
FYRIR SKOLAFOLKIÐ:
Buxur, skyrtur, peysur, úlpur, nærföt, sokkar og
margt fleira. — Fjölbreytt og fallegt úrval.
PÓSTSENDUM.
Ó.L.
— Laugavegi 71 — sími 20141.
SÓLÓ-elduvélur
Framleiði SÓLÓ-eldavélar af mörgum slærðum
og gerðum. — Einkum hagkvæmar fyrir sveita-
bæi, sumarbústaði og báta.
V AR AHLUT AÞ J ÓNU STA.
Viljum sérstaklega benda á nýja gerð einiiólfa
eldavéla fyrir smærri báta og litla sumarbústaði.
ELDAVELAVERKSTÆÐI
JÓHANNS FR.
KRISTJÁNSSONAR h.f.
Kleppsvegi 62 - Sími 33069
mnfiiD
TEPPAHISil
HEFUR TEPPIN SEM
HENTA YÐUR
TEPPAHUSÍÐ
4
*•
SUÐURLANDS-
BRAUT 10
*•
SÍMI 83570