Þjóðviljinn - 11.10.1970, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 11.10.1970, Blaðsíða 5
Sunnudaigur 11. október 1970 — WÖÐVILJINN — SÍÐA g 1 Flugvélasmiðurinn TÚPOLÉF og AER0FL0T ...........»•»”■*«, ...................................................................................................................................................................................................................................................................■ .............................................................................................................. Íiiliil Mijaj ■ ■ • Bill ÍMMfi Ms * .. mm Sovézka flugfélagið Aeroflot er stærsta flugfélag í heimi og samtals eru flugleiðir félagsins 600.000 km á lengd. Á árinu 1969 fluttu Aeroflot rúmlcga 68 miljónir farþega. Á sumrin eru farþegar félagsins rúmlega 350 þúsund á hverjum sólar- hring. Nú flytur Aeroflot um 80 prósent allra ferðamanna innan lands í Sovétríkjunum. Aeroflot heldur uppi reglu- bundnum flugferðum til 54 landa víðsvegar í heimi. Á alþjóðaleiðum fljúga flugvélar félagsins nú rúmlega 100.000 km. Arið 1968 hófust flugferðir frá Moskvu til New York og Dakar (í Súdan), árið 1969 voru teknar upp ferðir till Noregs, Uganda, Singapore, Nígeríu, Mið-Afríku lýðveldisins, Kongo (Brazzaville), og á ár- inu 1970 var Síberíuleiðin milli Evrópu og Japan opnuð. Aeroflot hefur náið samstarf við Alþjóðlegu flugmálasam- tökin IATA. A árinu 1968 voru 1.300.000 tonn af vörum og 300.000 tonn af pósti flutt loftleiðis innan Sovétríkjanna. Á þessu ári er gert ráð fyrir því, að Aeroflot flytji um 75 miljónir farþega. Félagið not- ar margar flugvélategundir, en margar þær þekktustu eru gerðar á teiknistofu Andrei Túpoléfs. IAndrei Túpoléf hefur ■ komið meira við sögu flugvélasmíða en nokkur mað- ur annar. Hann er nú 81 árs og hefur helgað fluiginu 60 ár — allt frá því honum tókst að komast 10 metra upp í loftið á heimatiibúinni svifflugu, er hann var ungur námsmaður. 2Þetta er ANT-2, fyrsta • farþegaflugvél Túpoléfs, gerð árið 1924, aðeins ári eftir að regiulegar flugferðir hóf- ust í landinu. ANT-3 sem kom sköcmmu síðar, var svo fyrsta fluigvélin sem gerð var eingöngu úr málmi. 3ANT-9 (1929) var lengi • álitin bezta farþegaflug- vél heims Árið 1934 gerði Túpoléf svo „Maxím Gorkí“, sem tók 76 farþega og var stærsta flugvél heims afflt til 1950. Og á ANT-25 komust sovézkir flugmenn í fyrsta sinn frá Moskvu tii Ameríku yfir Norðurpól — án lending- ar. Koosevelt Bandaríkjafor- seti sagði um það flug, að það heifði gert meira til að faera þjóðir Sovétríkjanna og Bandarikjanna nær hver ann- arri en diplómatísk samskipti í tíu ár. 4Túpoléf lét heldur ekki • á sér standa, þegar þotuöld hófst TU-104 var fyrsta fanþegaiþota í heimi. Hér er mynd af TU-114, sem kom í gagnið 1961. Hún fer með 850 km. hraða og tekur 170 farþega; þetta er skrúfu- þota, sem mikið er notuð. Og TU-144, sem nú hefur • verið í reynsluflugi um skeið, er fyrsta hljóðfráa farþegaþotan. Eikki líður á löngu þar til hún verður tekin í notkun, en Sovétríkin hafa meiri ástæðu til að smíða svo hraðfleyga far- þegavél en flest ríki önnur, vegna hinna miklu fjarlægða TU-144 á að geta náð 2.500 km hraða á klst. 1 TU-154 er reynt að • samrsema ýmsa kosti véla sem fljúga á 500-5.500 km vegalengdum Þessi vél sameinar hraða TU-104 (allt að 950 km á klst), lang- drægni vélarinnar lL-18 og hún getur. eins og AN-10. látið sér nægja mjög stuttar flugbrautir. Þar að auki flýgur TU-154 hærra en áður- nefndar fulgvélar (11—12 þús. m) og er búin mjög fullkom- inni tækni. Vélin er ætluð 164 farþegum og lyftir 16-19 smélestum. (APN). Ruuði krossinn og stnrf hnns í Jórdnníu Aliþjóðarauðikrossinn hefur sent út hjálparbeiðni til allra Rauðakrossfélaga og níkisstjóma vegna hjálparstarfsins í Jórdan- íu. Ef ekki berst fjárlhagsaðstoð er hætt við að hjálparstarfið komi ekki að þvi gagni sem nauðsynlegt er. Tuttugu lönd halfa sent lækna og hjúkrunarliðssveitir til landsins. Starfið hjé þeim mið- ar fyrst og fremst um þessar mundir að því að leysa brýn- ustu heilbrigðisþarfir í Amman, Zarka, Jerash og Irbid. Aðal- markmiðið er nú að bæta heil- brigðishættj þannig að komið verði í veg fyxir að fairsótitir brjótist út þegar regntíminn genguir í garð. Þá eru hjálparsveitir starf- andi m. a. við að dreifa mat- vælum, sérstaklega bamamat, eggjahvíturíkri fæðu og ávöxt- um meðal þuxfándi fólks. Fjárskortur háir mjög starf- inu og er að óbreyttu fjárhags- ástandi ekki hægt að afla frek- ari matarbirgða. Loftbrú verður haldið opinni milli Beirut og Amman næsta hálfa mánuðinn, og ef til vill lengur. Flutningur á landi er mjög erfiður og dýr þar sem fara verður miklar krókaleiðir á áfangastað. Þótt læknalið geti starfað enn um hríð vantar það mjög lyf og lækningataski, m. a. þar sem mildar birgðir slíkra vara í eigu Rauða krossins eyðilögð- ust af hemaðaraðgerðum. Mjög miklar birgðir eru af matvæknm í Evrópu en erfitt hefur verið að flytja þær með flugvélum til Jórdaníu og mjög dýrt þar sem að þessu sinni hefur ekki verið hægt að fá flutning ókeypis eins og oft áður þegar líkt hefur staðið á og nú. Koma hefur þurft á sérstöku fjarskiptasambandi vegna hjálparstarfsins m. a. í sam- bandj við leit að týndu fólki og sameiningu sundraðara fjöl- skyldna. Rauða krossi Islands bárust þessar fregnir á föstudag * Almennri Jórdaníusöfnun Rauða krossins lýkur á morg- un, mánudag. \ i i í

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.