Þjóðviljinn - 11.10.1970, Qupperneq 12
Vestmannaeyingar fá læknamiðstöð, heilsuverndarstöð og rannsóknardeild
Fyrsti áfangi nýs sjúkrahúss í
veriur tekinn í notkun um áramótin
Summuidagiur II. oktöber 1970 — 35. árgaixgiuir — 231. töluibOað.
Fyrsti áfangi nýs sjúkrahúss í
Vestmannaeyjum verður að öll-
um líkindum tekinn í notkun í
janúar. Verður þá merkum
áfanga náð, því að í þessum
áfanga verður heiisuverndarstöð,
Iæknamiðstöð fyrir fjóra lækna
og rannsóknastcfur, sem hingað
til hefur vantað tilfinnanlega í
Eyjum. Ennfremur röntgendeild,
en tækin fyrir þá deild koma
þó ekki til landsins fyrr en
seinna, að sögn fréttaritara
Þjóðviljans i Eyjum, Garðars
Sigurðssonar.
Kostnaður við byggingu sjúkra-
hússins er nú þegar orðinn ríf-
lega 30 miljónir króna. Frágangi
hússins að utan er að fullu lokið
og múrhúðun innanhúss er langt
komið Og lokið í þeim áfanga
sem opnaður verður uppúr ára-
mótum. Innréttingum er komið
vel á veg, þeim átti að vera
lokið um mánaðamótin síðustu
en nokkur töf varð á þeim m. a.
vegna verkfalla.
1 fyrsta áfanganum eru ekki
sjúkrastofúr, en þegar sjúkrahús-
ið verður tfullbyggt verða þar
uppundir 60 sjúkrarúm.
Gamla sjúkrahúsið
Gamla sjúkralbúsið í Vest-
mannaeyjum var vígt 30. des-
ember 1927 og afhent bæjar-
stjórninni til eignar og umráða.
Hófust sitörf þar þó ekfci fyrr
en 5. apríl 1928.
Gísli J. Johnsen var aðal frum-
kvöðull að stofnun sjúkrahússins.
Hann var útgerðarmaðuir og var
fyrirgreiðslumaður brezkra ttog-
ara sem leituðu hafnar í Vest-
mannaeyjum, iðulega með sjúka
menn og slasaða, árið 1907 varð
hann brezkur rasðismaður á
staðnum. Leitaði Gísli fyrir sér
um fjárstyrk af hálfu Rreta, sem
hér áttu mörgum fremur hags-
muna að gæta. Hlaut það æski-
legar unddrtektir, en að áliðnu
sumri 1914, þegar að því var
kwnið, að hið brezka fé skyldi
reitt af hendi, skail fyrri heims-
Styrjöldin á og gerði þær fjár-
vonir að engu.. Segir frá þessu
í bókinni Læknar á íslandi.
★
Lá nú málið niðri í heilan
áratug, unz Gísli hófst handa að
nýju vorið 1924 og fékk þá ýms-
ar stofnanir og einstaklinga í lið
með sér. Bar fjársöfnun til
sjúkrahússins þann árangur, að
ári síðar lét Gísli hefja bygg-
ingarframkvæmdir og hét að
gefa úr sjálfs sjóði, það sem á
vantaði til að greiða allan bygg-
ingarkostnað. Eins og að var
staðið, fóru Vestmannaeyingar
algerlega á mis við byggingar-
styrk úr ríkissjóði til sjúkrahúss
síns, sem vitaskuld hefði legið
laus fyrir ef bæjarstjó-rnin hefði
haft framkvæmdirnar með hönd-
um.
Frá 1928 hefur sjúkrahúsið ver-
ið rekið sem bæjarsjúkrahús í
Vestmannaeyjum án umtals-
verðra breytinga annarra en
þeirra, að þegar í upphafi var
aukið við sérstakri byggingu með
líklhúsi, þvottahúsi og nokikrum
starfsmannaherbergjum. Skráður
sjúkrarúmafjöldi sjúkrahússdns
hefur verið breytilegur, 30 rúm
1928—’30 en frá 1956 38 rúm.
J> rrrrrrrrr rrn rrr ;
ijliill
.
Gamla sjúkrahúsið
••• :-»>
og hið nýja sjúkrahús í Vestmannaeyjum.
Föst mánaðarlaun lækna nú
38 til 64 þúsund kránur
Geng-iö var endanlega frá
samningum við Læknafélag
Reykjavíkur af stjómarnefnd
ríkisspítalanna í fyrrad. en samn-
ingsaðilar em Læknafélagið ann-
ars vegar og stjómamefndin og
Reykjavíkurborg hins vegar.
Samningarnir vom undirritaðir
4. október síðastliðinn.
Var samið um 15% kaíuphækk-
un fyrir sj úkrahúslækna. Eru
föst mánaðarlaun þá frá 38 þús-
undum króna (læknakandidatar)
til 64 þúsund króna (sérfræðing-
ar). Innifalið í þessari upphæð el
lífeyrissjóðsgreiðslur, veikindafrí
umfram 2 vifcur á ári og bííla-
styrkur.
Vinnuvikan er nú ögn styttri
en áður, að sögn Georgs Lúð-
víkssonar, framfcvæmdastjóra á
skrifstofu ríkisspítalanna. Er
vinnuskylda lækna nú 36 stundir
á viku, en þó er yfirlæknum
skylt að skila 42 stundum, að-
stoðarlæknum 45 stundum og
kandidötum 47 stundum, etf þann-
ig stendur á. Samkvæmt fyrri
samningum var þeim gert að
Skila allt að 50 stundum á viku
án þess að fá greitt ytfirvinnu-
kaup.
☆
Það nýmaéli fékkst nú ínn í
samningana að sérfræðingar fá
greiddan kostnað við námsferð
til útlanda ednn mánuð annað
hvort ár. Aörar breytingar á
launakjö-rum lækna eru þær
helztar, að sjúkra'húslæknar mega
nú stunda almennar lækningar
utan sjúkrahússins 6 stundir á
viku í stað 3ja óður. Samræm-
ing var gerð á samningum fyrir
lækna á vegum borgar og ríkis
og eru nú allir sjúkrahúslæknar
lausráðnir með 2ja mónaða upp-
sagnarfresti, og teljast þvi eikífct
í launakerfi opinberra starfs-
manna.
>■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
j Ekki verkfaíl !
í Aburðar-
■ - - ■
! verksmiðju
:
Á fundi í fyrrakvöld náð- j
* ust samningar með starfs- ;
j mönnum Áburðarverksmiðj- i
unnar og atvinnurekendan- !
■ um. Var haldinn starfs- ;
5 mannafundur síðdegis í gær i
: þar sem samkomulagið var i
■ borið upp til staðfestingar. j
i — Verkfall hefði skollið á i
5 á miðnætti í nótt, hefðu i
i samningar ekki náðst fyrir i
; þann tima.
: ■
•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■..
Ifestmannaeyingur
sýnir í Unuhúsi
Páll Steingrímsson frá Vest-
mannaeyjum opnaði myndlistar-
sýningu í Unuhúsi í gær. Þar
sýnir hann uppundir 30 myndir,
sem allar eru unnar ú-r íslenzku
grjóti.
Einu sinni áður hefur Páll
sýnt myndir í Reykjavík, var
það í Bogasalnum 1962. Síðan
helfur hann ihaldið nokikrar sýn-
inga-r í Vestmannaey.ium.
Syningin í Unuhúsi er opin
f-rá kl. 4—10 daglega út nsestu
viku.
&
Leikhús og æskulýðs-
hús opnaS i Eyjum
líklega um áramótin
Undirbúningur stendur nú yfir
fyrir opnun Ieikhúss og tóm-
stundaheimilis fyrir æskufólk í
Vestmannaeyjum og verður þessi
starfsemi öll í sama húsinu.
Stúkumar í Eýjum reistu þetta
hús fyrir 12 árum en þá var
því lokað áður en byggingafram-
kvæmdum var að fullu lokid.
Fyrir tveimur árum keypti bær-
inn húsið af stúkunum en þetta
er tveggja hæða steinhús.
f fyrrinótt varð umférðarsilys á
Eyrartoa'kkavegirium, frá Selfossi:
Bíll ók fram úr öðrum á brú, en
lenti utan í brúarhandriðinu og
síða-n út í skurð og vailt.
Gun-nar Sigurmundsson í Eyj-
um gaf blaðinu þær upplýsingar
að Leikfélagið væri nú að ganga
frá samningum við ‘ bæinn um
að opnað yrði ■ leikhús um ára-
mótin í h'úsinu. Verður það á
neðri hæðinni. Sæti verða fyrir
180 manns og leiksviðið frekar
stórt, búið fullkómriurn ljósa-
tækjum. Er ætlunin að .þar fari
fram leiksýningar og tónleikar.
■Æskulýðsráð sér um rekstur
tómistundáheimdlis á etfri hæðinni.
Er nýkjörinn æskulýðsfuilltrúi í
Vestmánnaeyjum Elías ;Baldvins-
son. Skótar og íþróttafélög .' hafa
fengið inni í húsinu með skrif-
stofur sínar. Tónlistars-kólinn
hefur verið þar að undanfömu
x/ýþ'-:-'-.
x-,
Tómstundaheimili og leikhús verður í þessu húsi. Sigurjón Jóhannsson tók myndirnar,
en starfsemi . hans .verður að
flytja þegar tómstundaheimilið
verður opnað. Á annarri hæðinni
verður danssalur og leilktæki
ýmiss konar fyrir unglinga. Einn-
ig em þar minni herbergi, þar
sem verða skrífstofur æskulýðs-
félaga, aðstaða fyrir áhugafólk
um ljósmyndun og fleira.
TAKIÐ
EFTIR
í húsgagnaverzlun vorri eru 600 ferme’trar þaktir húsgögnum. — Bjóðum uppá yfir 20 gerðir af
glæsilegum sófasettum, einnig höfum við vandað úrval af skrifborðum, borðs’tofuhúsgögnum,
skattholum, eldhúshúsgögnum, svefnherbergishúsgögnum, stólum og mörgu fleiru.
GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR.
HÚSGAGNAVERZLUN guðmundar GUÐMUNDSSONAR, SKEIFUNNI 15.
Sími 82898 Sími 82898.