Þjóðviljinn - 02.12.1970, Page 7
Míðvi'kudagxir 2. dleisemlber 1970 — í>JÖÐVTIaJnsrisr — SlÐA J
Ingimar Erlendur Sigurðsson:
ENGINN
MAÐUR
ER
EYLAND
Ingimar Erl. Sigurðsson
Eins og skýrt hefur verið
frá í Þjóöviljanum gangast
MFÍK, Menningar- og
friðarsamtök íslenzkra
kvenna, fyrir lands-fjár-
söfnun um þessar mundir
til byggingar heilsuvemdar-
stöðvar og sjúkrahúss fyrir
konur og börn sem Al-
þjóðasamband lýðræðis-
sinnaðra kvenna hyggst
reisa í Víetnam.
Fjársöfnun hófst raunar í
sumar — og stendur enn
yfir — og f tiiefni af því
flutti Ingimar Erlendur Sig-
urðsson rithöfundur eftir-
farandi ávarp á vegum
samtakanna á opinbemm
fundi að Hótel Borg.
Enginn maður er eyland, ein-
hlítur sjálfum sér: hver maður
er brot meginlandsins, hluti
veraldar; ef sjávarbylgjur skola
moidarhnefa til hafs, minnkar
Evrópa, engu síður en eitt an-
nes væri, engu síöur en óðal
vina þinna cða sjálfs þín væri:
dauði hvers manns smækkar
mig, því ég er íslunginn mann-
kyninu; spyr þú því aldrei
hverjum klukkan glymur; hún
glymur þér.
Hvað varðar ofldkMr srvo um
Víetnam.
Þessa fjarlægu þjóð sem við
fæst naumast vissum að væri
til fyrr en hún stöikk alblóðug
framá sýndarsvið sögunnar í
fjölmiðlum — er ekkert frétt-
næmt láta framhjá sér fara —
og hefur síðan verið fastur
liður í hversdagsskammti okfcar
af hlaðalestri og sjónvarpsgóni.
Eins og veðurfregnirnar: norð-
austan kaldi á miðunum . . .
bandarískar hersveitir felldu
333 Viet-cong skæruliða við —
æ einhverja skollans hæð — í
snarpri orustu i gær.
Hvað kemur friðsælli þjóð á
títtnefhdum hjara veraldar
þetta stríð við?
Svo enu þetta efldki ednu sinni
hvítir menn heldiur sikáeygir og
dvergvaxnir guilingjar. Einn
stríðsaöili — meira að segja
höfuðstríðsaðilinn — er að vísu
hvítur (jafnvel negramir verða
í hernum næstum hrvítir) en
einhvern veginn á margur erf-
itt meö að finna til Wuibtekn-
ingar með þeim þóitt samililtir
séu og menningarlega og kristi-
lega samlkenndir og jafnvel
„verndarar“ okkar.
Þó er sferáð eitt dæmi sMfcrar
hluttetoningar: Morgunþlaðsleið-
ari segir stríðið í Vletnam
„bandarískan harmleik". Takið
eftir: „bandaríslfeur lhairmlei'feur“
— ekkd víetnamdskur harmleik-
ur. Þetta dæmi er nú á slæmri
leíð með að verða heimsfrægt
dæmi sjúfelegrar hluttekningar.
Aðrir eiga bégar imieð —
samvizkunnar vegna — að flnna
til hluttekningar með Banda-
ríkjamönnum og verjast hlut-
tekningu með víetnömskum
andstæðingum þeirra — vondr-
ar samvizku vegna.
Þótt einkennilegt megi virð-
ast er það hin góða samvizka
(til dæmis Morgunblaðsins) sem
ljær Bandaríkjamönnum lið í
þessu ójafnaðarstríði. Enda
sagði miannvinurinn Schweitzer:
að góð samvizika væri upp-
fínnding djöfulsins. Það mastti
vera kennisetning hins vest-
ræna heims á þessari stríðsóðu
öld og feoma í stað allra boð-
orðanna og bannorðanna sem
enginn hvort eð er Wlýðir.
Hin góða samvizika lýgur í
nafni sannleika, svífcur í nafni
sátta, spifllir í nafni sakleysis,
stelur í nafnl gjafa, kúgar í
nafni freflsis, stríðir í nafni frið-
ar.
Já drepur í nalfni lífsins.
Hver kannast ekki vlð þetta
þótt ekkert sé til sparað að villa
dómgredndina á hinni löngu
krókaledð miUi orða og gjörða
svo rangt miegi sýnast rétt?
Hvi þuwfa sumiar þjóöir að titla
sjálfar sig „frjáflsair og friðeflsilt:-
andi þjóðdr?“ Ekiri gáfu aðrar
þjóðir — til dæmis Kínverjar
— þeim slíka nafngift eða eink-
unn.
Hin góða samvizika þeirra
sjálfra gaf þeim hana — og öll
fallegu orðin — til að réttlæta
fyrirfram og eftirá illar gjörðir.
Var það ekfci hin góða sam-
vizka þýzku þjóðarinnar sem
myrti tuga miljónir meðbræðra
í síðustu heimsstyrjöld? Hún
var svo góð að þjóðin vissi ekki
einu sinni af útrýmingu sex
mr.ljóna gyðinga — fýrir utan
gluggana sínal
Nú er góða samvizkan í and-
arslitrunum — guði sé lof —
og vonda samvizkan í fæðingu
— guði sé krf.
Ekkert hefur flýtt svo fæð-
ingu hinnar vondu samvizfeu ^
sem stríðsæði Bandaríkjamanna
í Víetnam. Þetta er því í viss-
um sldlningi gott stríð.
Gott fyrir okkur með hvítu
sanwizifcuna.
Þessi gula dvergþjóð er því
að berjast fyrir olkkiur, fyrir
otekar samvizku, já samvizfeu
allls mannkyns. Ef til vill er það
hinn leyndi styrikur hennar til
að berjast gegn mesta hervefldi
sögunnar, fáliðuð og fátæk
bændalþjóð. Hún er á góðri leið
með að sigra risavaxinn and-
stæðing sinn — innamfrá —. eða
kann sagan ndkkuirt dæmj þess
að þjóð hafi háð styrjöld með
svo vondri samvizku sem
Bandaríldn 'þessa?
Ekki höfðu hinir fomu Róm-
verjar samvizfcubit af herleið-
öngrum sínum — eða forfeður
okfcar norrænir vífcingar — þeir
milduðust af þeim og þóttust
menn að meiri fyrir miorðin.
Þetta hefur manneskjumni þé
miðað áfram og stærsta sporið
hefiur hin skrefstutta viet-
namsfca þjóð stigið — í sam-
vizfcu hins hivtfta manns. 1 viss-
um skilningi er þetta styrjöld
(og reynar flestar slcærur Asíu
og Afrífcu) milli hinna hvítu pg
hinnar lituðu samvizku. Hin
litaða samvizka er á hægri og
öruggri sigurgöngu um veröfld-
ina, einnig hér á hjara hennar.
Hinn hviti forréttindamaður
er nauðboygður til að viður-
kenna hin lituðu fómardýr sín
sem mannverur. Meira að segja
sem fuUigiilda meðbræður og
jafnrétth’áa til lífsins — firemur
en dauðans!
Samvizfca hans er nefnilega
að vera gul eða svört.
Þess vegna erum við hér
samianfcomin — fyrir sákir
vomdrar samvizfcu — tdl að
samednast um framlaig að líf-
húsi fyrir þessa halsærðu þjóð
sem berst fyrir manniesfejcinni 1
oktour. Meðan Bandaríkjaforseti
hefur ekki verri samvdzfcu en
svo að hann hyggst kalla heim
hluta árásathersinns á einu ári
til að framlengja stríðið í að
minnsta kosti eitt ár. Á sama
tíma og ungir menn sundurrífa
mannslátrunarbréfin fyrir utan
glugga hans.
Það er einkennilegt að þeir
sem týnt hafa andlitinu sfeuili
þurfa að fela andlitið!
Hin engilhreina ásjóna Banda-
ríkjahérs síðustu heimsstyrjald-
aldar hefiur glatazt þedm í
myrkviðum Asiu. Hann ber nú
afskræmda grímu glæpaveinka
sinna á fconum og bömum sem
körlum. Unz vondri samvizku
heimsins þóknast að gefa hon-
um andlit á ný — kannski gult
í nafni víetnömsfeu þjóðaitonar.
Æ hvað varðar oiklkur um
þetta stríð?
Við erum þreytt á tölufræð-
ingum fjölmiðlanna sem sífleillt
stagla: 333 Víet-eong-skæru(liðar
hafa falíldð í gær eða dag; fleiri
sprengjum hafi verið varpað en
í allri síðustu heimsstyrjöld; svo
og svo margar fluigvélar, skrið-
direkar, efldvörpur — sýkflar
En við skulum ekki nauð-
þreytast og loka skynfærunum
(aiuðvitað skrúfum við efldki fyr-
ir sjónvarpið sem við borgum)
heldur vekja samvizku okkar
til vitundar um að þúsund
rríorð eru érigu betri en eitt
morð!
Eru efeki öiH böm í einu
bami?
Hver maður er sem allir
menn — í dýpsta sfcilningi — og
allir menn sem einn maður:
gulir og svartir og hvitir. Svo
sem segir í Ijóðinu og Nixon
forseti ætíð skyldi lesa í stað
hemaðarsfeýrsla:
No man is an island, intire of
it self, every man is a peace of
the continent, a part of the
maine, if a Clod bee washed
away by the Sea, Europe is
the less, as well as if a promon-
torie were, as well as if a
manor of thy fricnds or of
thine own werc, any mans
death diminishes me, because
I am involved in mankind, and
therfore never send to know
for whom the bell tolls, it
tolls for thee.
Ingimar Erlendur Sigurðsson.
Fimmtíu ára málfundafélag
Heldur mun það vera fátítt,
að málfundafélag starfi í hálfa
öld svo að aldrei falli starfsem-
in niður. Þetta er þó raunin á
um málfundafélagið Magna í
Hafnarfirði. Það var stofnað 2.
desemer 1920, og minnast
Magnamenn afmælisins með
samkomu nú í kvöld.
Porgöngumenn að stofnun fé-
lagsins voru tveir menn aust-
fírzkir, búsettár í Hafnarfirði,
báðir gamlir ungmennafélagiar:
Þorleifur Jónsson, slðar lengi
bæjaxfulltrúi, og Valdimar
Long, síðar kaupmaður. Sfldp-
uðu þeir báðir fyrstu stjóm fé-
lagsins'og auk þedrra Asgrímur
Sigfússon útgerðarmaður. —
Þorleitfiur er enn á fifi og telfeur
þátt í fundarstönfúm félagsins.
Stofnendur Magna voru 1B að
töiliu, allt ungir menn. Fjölda
félagsmanna hefur jafnan verið
takmörk sett. Nú eiru félags-
menn 48.
MargvMeg hafa umræðuefni
á fundum verið þetta langa
árabil. Og þótt Magna væri
aldrei ætlað að vera fram-
kvæmdafélag, eiga samt marg-
víslegar framifcvæmdir, sem í
Haifnarfirði hafa orðið, rætur
sínar að rdkja til starfsemi fé-
lagsins. Þar hafa nýjar hug-
myndir verið kynntar og rök-
ræddar. Félagsmemn hafa borið
áhrif umræðnanna með sér til
lcunningja sinna og í hið dag-
lega líf. Vísirinn var oft líftill,
en ávöxturinn hefiur stundum
orðið næsita merbilegur.
Tvennar friamtovæmdir hefiur
þó félagið haft með höndum
jaffnfram fúndastarfseminni. I
10 vetur, 1921-1931, héflt félagið
uppi alþýðufræðslu í Haffnar-
firði með fyrirlestrum ogtovöld-
vöitoum. Voru fengnir til fyrir-
lestraihalds og upplesturs hinir
færustu menn, sem þá var völ
á í Hafnarfirði og Reykjavík.
Minnast niargir Hafnfirðingar
enn, hve mikið gagn og gaman
þeir hölföu af þessari starfsemi
félagsins, en öllum var heimill
aðgangur að alþýðufræðslunni
fyrir lítið gjáld.
Hinn þátfcurinn í starfsemi
félagsins er rælktun Héllisgerðis,
hins fræga skemmtigarðs Hafn-
firðinga. Bn það var upphaf
þess máls, að á öðrum starfs-
vetri félagsins hafði Guðmund-<
ur Einarsson, framkva&mdastjóri
í Eiverg, framsögu að máli, sem
hann nefndi: Getur félagið
Magni haft áhrif á útllit Haifnar-
f jarðar? Taldi hann svt> vera og
stakk upp á að félagið kæmi
upp skemmtigarði, þar sem hið
sérkennilega landslag hraunsins
í bænum væri látið haldast.
Var máli hans svo vel tekið og
þannig á etftir fylgt, að land
hafði verið fengið og girt og
byrjað á gróðursetningu trjá-
plantna vorið 1924, rúmum
tveim árum efitir að Guðmund-
ur hreyfði málinu fyrst á fundi.
Síðar hefiur landrými Hellis-
gerðis verið mjög aukið og
ýmsar trjátegundir gróðursettar
þar og miklum fjölda blóm-
plantna komið fyrir á heniug-
um stöðum, auk þeirra sem
fyrir uxu í Gerðinu. Er það að
vonum, að margur maður úr
náflægum byggðarlögum og
lengra að leggur leið sina í
Hellisgerði á sumardögum, því
að leit mun á sértoennilegri,
fiegurrri og firiðsæflli stað. —
Ingvar Gunnarsson kennari sá
um ræktunina í Hellisgerði firá
byrjun og allt til 1943 og varð
frægur fyrir meðal rækfcunar-
manna innan lands og utan.
ESns og gefiur að sfldlja hetfur
ræktun Hellisgerðis og eklri síð-
ur viðhald garðsins kostað mik-
ið fié. Félagsmenn í Magna
hafa jafnan séð um fjáiöflun
til Gerðisins, lagt þar sjállfir
fram vinnu, gengizt fyrir
skemmtunum, meðal annars
hinum vinsaalu Jónsmessuhátíð-
um, sem svovoru nefndar. Fjöldi
Framlhaild á 9. síðu.
>———-------------------------
Fjölgar aamninga-
fundum við ísal
Kjai-asamningar sjö veitoailýðs-
fiéla®a runnu út í gær vió álverfc-
smiiðjuna í Straumsvík. Samn-
ingaffundir haffa veriö haldnir
tvisvar í vifcu að undanfiömu.
Var samningatfundur haldinn í
ffyrrad. milli dedluaðifla í húsa-
kynnum Vinnuveitendasamb. í
Garðastræti. A þessum fundi var
samþyfckt að fjölga samninga-
fundum á næstunná, sagði Her-
mann Guðmundssion. flonmaður
Verkamannafiélagsins HMfiar í
fyrrad. Að öðru leyti varðist Her-
mann firétta af þessum samn inga-
fiunduim og svo var einnig um
Guðjón Jánsson, fiormann Félags
jámiðnaðanmanna í ffyrrad, TIiL
þessa hafa sammngaffundir verið
haldnir á mánudögum í Reyikja-
vík og á fimmtudiögúm suður i
Strauimsvik.