Þjóðviljinn - 16.02.1971, Page 3

Þjóðviljinn - 16.02.1971, Page 3
30. íEe'bnöar SŒ w — SfÐA 3 m m tryggingar r • • r. _ jBL* i einu skirtelm vatnstjónstrVggin® glertrygging\ | FOKTRYGGING \ 1 BROTtiJLUTNiNGÍ| OG HÚSALEIGUT%GGII innbrotsTryggi™3 KAIRO og TEL AVIV 15/2 — Sadat, forsetá Egyptalands, segir í blaðaviðtali að hann sé reiðubúinn til að fallast á að erlent gæzlulið verði við mynni Akabaflóa ef það geti flýtt fyrir friðargerð, og býður upp á að Súezskurðurinn verði opnaður gegn því að ísraelsmenn verði á brott af Sínaískaga að mestu leyti. ísraelsk stjórnvöld hafa tekið dauflega í þessi tilboð að sögn. auk þess sem þau telja að Gunnar Jarring sáttasemjari S.Þ. hafi hallazt um of á sveif með Arabaríkjirm. Hermenn úr Pathet Lao útbúa bækistiið í helli, þar sem skjól er fyrir Ioftárásum Bandaríkjamanna. Ho Chi Minh vegurinn sagður lokaður Bandaríkjamenn gera loft- árásir á samherja sem évini SÁfGÓN. VIENTIANE 15/2 — Bandarískar flug- vélar hafa valdið mikluifn uslia á bækistöðvum hægrisinna og CIA virð Krukkusléttu í Laos „af misgáningi“. Her Saigonstjórnar telur sig hafa lok- að Ho Chi Minh veginum svonefnda en sækir hægt fram. Miklir fjöldafundir hafa verið haldnir í Kína gegn bandarískri heimsvaldastefnu. Bardágar í Laos Bandarískar þotur af Phant- om-gerð köstu&u af misgáningi sprengjum á aðaiLbækistöðva r sónþjálfaðra sveita hægrisinnaös hershöí'ðing.ja, Vangs Paos, við bæinn Long Cheng í gær Að minnsta kosti 30 hermenn þessa Bandaríkjavinar létu lífið og 00 særðust að þvi er segir f frétt- um frá Vientiane. Long Cheng er um leið miðstöð fyrir starf- semi bandarísku leyniþjónust- unnar CIA i Laos, en CIA hefur stutt lið Paos með ráðum og dáð í banáttunni um Krukku- sléttu. Long Oheng er um 80 kíiómetra frá Vientiane. ' Vang Pao hafði beðið um að- stoð bandarísks flughers á þeim forsendum að um 300 manna á- hláupasveit, sem sögð er firá Ví- etiiamj hafði gert áhlaup á stöðvár hans og CIA. Banda- ríkjamenn forðuðu sér í byrgi, en ein aif IitJum eldiflaugum á- hlaupsmanna er sögð hafa lent í rúmi Vangs Paos. CIA hefur um alllangt skeið stjómað loft- hernaði gegn þjóðfrelsisher Pat- het Lao. Yfirmaður herliðs Saigons- stjómar í Laos, Hoang Xtian Pam, sagði í dag að sínir menn hefðu sótt fram um 45 km inn LONDON 15/2 — Hinir vana- föstu Bretar tóku upptöku nýs myntkerfis, sem byggir á tuga- kerfi, með mestu ró og spaug- semi í dag, Verzlun og viðskipti gengu ágætlega, þótt ýmsir væru seinni á sér en venjulega við af- greiðslu. í pundi eru n>ú 100 pence — en áður voru í því 20 shillingar og í shilling 12 pence edns oig menn vita. í landið á 40 km. breiöu belti. Kveðst hann hafa feHt um 700 andstæðinga og fundið allmikl- ar birgðir vopna og vista Pam ssigði að sínir men-n hefðu nú Jokað alveg Ho Ohi Minh stígn- um svonefnda. Lét hann um leið að því liggja, að lið sitt væri til Laos komið til lengri tíma, sem stangast á við fyrri fullyrðingar um að innrásin sé gerð til skamms tíma. Fréttastofa Pathet Lao segir, að í átökum undanfarinna daga háfi 89 bandarískar ffltiigivélar verið skotnar niður. Bandaríkja- menn segja sjálfir að þyrlur þeirrá hafi fárið 4.500 ferðir á undanförnum dögum til aðistoðar við innrásarlið Saigonstjómar- innar. Kína Miklir mótmælafundir gegn Bandaríkjaxnönnum hafa verið haldnir í helztu borgum Kína um helgina. Til dæmis tóku mörg hundruð þúsundir þátt í miklum fjöldafundi í Peking í gær. ! dag fóru og miklir skarar fól'ks um götur kínverskra borga og hrópuðu m.a.: Við munum aldrei leyfa að Bandaríkjamenn fari sínu fram í Indó-Kína. Málgagn ldnverska hersins segir dag, að kfnverska þjóðin muni eklki neitt til spara að styðja þjóðir Víetnams, Kam- bodju og Laos í baráttunni við bandarískan árásarheir. Sadat kveðst í viðtali við bandaríska vikuritið Newsweek geta fallizt á erlent gæzlulið í Sharm el Sheik við mynni Akaibaflóa, en þaðan má loka siglingum til ísraelsku hafnar- bcxrgarinnar Eilat. Israelsmenn notuðu m. a. lokun Akabaiflóa 1967 sem tilefni tál að hefja sex daga stríðið. Sadat tekur fram að Nasser forseti hafi ekki vilj-að fallast á slíka málamiðlun og þjóð sinni muni mislíka hún, en hann sé reiðubúinn til að hætta á hana ef það geti flýtt fyrir friðar- samningi. Sadat segir ennfremur, að ef Egyptar eigi að opna Súezskurð aftur, verði ísraelskur her að draga sig til baka að línu sem lægi skammt frá EI Arish — en það er hafnarborg við Miðjarð- arhaf, um 40—50 km frá eigin- legum landamærum Israels. Þetta þýddi, að ísraelsmenn héldu einum tíunda aif því svæði, sem þeir nú hafa hemumið á Sínaískaga. Þetta mundi og þýða að Egyptar lofuðu að fram- lengja vopnahléd til að gefa sáttasemjara S. Þ., Jarring svig- rúm til friðaumleitana. Sadat tók um leið fram, að friðarsamningur væri óhugsandi án þess að leyst yrðu mál Pale- stínuaraba. Tel Aviv Tilboðum Sadats hefur verið tekið fremur kuldalega í ísrael, þótt það sé játað, að þau séu gerð í mildari tóni en annað sem frá Kaíró hefur komið. Fréttaskýrendur telja að Israel fái of lítið í aðra hönd fyrir að halda frá mestöllum Sínaí- skaga, oig ekki sé einu sinni lofað að ísraelsk skip fái að sigla um Súezskurð. Israelsstjórn kveðst ekki munu gera athuga- semdir við tilboð Sadats nema þau séu borin fram beint við hana eða Jarrin-g sáttasemjara. Jarring hefur borið fram mála- r.iiðlunartillögu sem lýtur að því, að Egyptaland viðurkenni ísrael sem ríki. gegn þvi að ísraelskur her verði á brott af hernumdu svæðunum. Gazasvæðið verði fyrst um sinn undir ísraelskri stjórn, en síðan muni gæzlulið frá S. Þ. taka við. Þessum tillögum hefur verið mjög illa tekið í Israel, og er því haldið þar fram af opinberri hálifu að Jarring hafi farið út fyrir hlut- verk sitt sem málamiðlari með því að koma með eigin tillögur sem séu hagstæðar öðrum aðil- anum. Muni Israelsmenn aðeíns geta haldið áfram aðild að fund- um með Jarring á grundvelH eigin tiilagna, og væri fyrsta skrefið að Bgyptar viðurikenn<iu ísraelsríki. ísraelsk blöð ræða nftikið um það, að sambúð Bandarikjanna og ísrael fari enn kólnaijdi — og nú einmitt vegna ági-einings um hlutverk Jarrings. Sisco, aðstoðarutanríkisráðherra Banda- ríkjanna lét svo um mælt í Washington í gær, að báðir að- ilar verði að laga sig eftir að- ferðutn Jarrings, og lét að öðru leyti liggja að því, að neikvæð afstaða Israelsmanna væri stjóm sinni ekki að skapi. Verkfall í Lodz í Póllandi WARSZAWA 15/2 — í iðnaðarborginni Lodz hófst á föstu- dag verkfall þúsunda verkamanna í vefnaðarverksmiðj- um sem krefjast hærri launa og betri vinnuskilyrða. Hinn nýi forsætisráðherra Póllands, Jaroszewicz hefur átt langa fundi með fulltrúum verkfallsfólksins, sem nú mun flest hafa tekið aftur til starfa. Jaroszewicz og Jan Szydlak, sem sæti á í miðstjórn Pólska verka- mannaflokksins, ræddu við verkafólk á fjögurra sfcunda fundi sem haldinn var i leikhúsi einu í Lodz í gærkvöldi, og hvöttu það mjög til að snúa aft- ur til vinnu. Fyrsta opinbera staðfestingin á verkfallinu kom frá hinni opinberu fréttastofu, PAP, sem sagði frá fundinum, sem hefði verið haldinn til að ræða „truflanir á staríi nokk- urra fyrirtækja" og voru þá nafngreindar tvær vefnaðarverk- smiðjur. I gær höfðu borizt fregnir um að þúsundir veika- fólks, flest konur, hefðu lagt niður vinnu í Lodz, sem er næst stærsta þoirg Póllands, hefur 750 þús. íbúa. PAP segir að Jaroszewicz hefði lýst skilningi stjómarinnar á vandamálum verkamanna, en hærri laun væri ekki hægt að greiða vegná þess að þau yrði að táka af öðrum verkamönnum eða þá fjárfestingarsjóðvm, sem ætlað væri að skapa 1,9 miljón- um manna atvinnu fyrir 1975. Hann sagði, að verið væri að koma til móts við ýmsar aðrar kröfur, einkum í sambandi við aðbúnað giftra verkakvenna. Sjö fulltrúar verkfallsmanna tóku til máls og kröfðust þess að leið- rétt væri nú þegar misrétti í launakerfinu og félagsmálum ýmsum. UPI-fréttastofan segir að verka- fólk hafi farið frarn á um 25% kauphæklkun og að lagðar væru niður gamlar og lítt virkar vélar. Síðustu fréttir: Jaroszewicz forsætisráðherra tilkynnti öllum 'að óvörum í sjónvarpsræðu í kvöld, að pólska stjórnin hefði ákveðið að afnema þær miklu hækkanir á matvælum ser.T leitt hafa til óeirða og verkfalla í landinu síðan í desember. Þær au!:nu fjölskyldubætur og lækk- un á iðnaðarvöru ssm þá var kornið á verða áfram í gildi Ráðherrann sagði þetta mögulegt vegna sovézkra lána, og þess að útMt værl fyrir aukna kjötfram- leiðslu síðari hluta þessa árs. Óvæntir gestir ráðherra Kýr á fundi hjá Efnahagsbandalagi BRUSSEL 15/2 — 1 kvöld mættu óvænt gestár til fundar í ráðherrasal Efnahagsbanda- lagsins á þriðju hæð hallar einnar í Brússel: belgískir bændur höfðu teymt upp þangað þrjér mjólkurkýr og inn á fund þar sem landbún- aðarráðherrar EBE fjölluðu um verðlag á landbúnaðaraf- urðum og breytingar á upp- byggingu landbúnaðar í EBE- löndunum. Bændur höfðú 'feSt á kýrn- ar vígorð um hækkað verð á afurðum og létu þeir óspart í ljós þann vilja sinn að lanð-' búnaðarnefnd EBE væri lögð undir fallöxina. Kýrnar voru hinar rólegustu og litu for- vitnar í kring um sig meðan einn bændanna mjólkaði þær i fötu. Ráðherrar tóku þessu til- taéki fyrst með hlátrum, en brátt kámaði gamanið og var kallað á lögreglu til að ryðja salinn. Tókst það eftir nokk- ur slagsmál og lögðu kusur af sér á meðan kökur stórar. Varð að gera hlé á fundinum meðan göfug teppi voru hreinsuð. Landbúnaðamefnd EBE þingar nú um nolckra hækkun á landbúnaðarafurðum, sem bændur telja of litla, og þessu fyl’gja ýmsar óvinsælar hlið- arráðstafanir — m. a. er stefnt að niðurskurði naut- gripa. Húseigenda trygging fyrir einbýlishús fjölbýlishús og einstakar íbúdir SÓTFALLSTR ÁBYRGÐARTR JáSÖSÍ*'' MeS tryggingu þessari er reynt aS sameina sem flestar áhættur í eitt skirteini.Nokkrar þeirra hefur veriS hægt fá áSur, hverja fyrir sig, en með sameiningu þeirra t eitt skír- teini er tryggingin EINrÖLD, HAG- KVÆM og SÉRLEGA ÓDÝR. IÐGJALD miðast viS brunabótamat alls hússins eða eignarhluta trygg- ingartaka. | Leitið nánari upplýsinga um þessa nýjung Samvinnutrygginget. SAMVINNUTRYGGINGAR Sadat býður upp á opnun Súezskur&ar og gæzlulið SÞ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.