Þjóðviljinn - 13.06.1971, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 13.06.1971, Blaðsíða 1
Sunnudagur 13. júní 1971— 36. árgangur — 130. tölublað. Muníð kosningasjóð — Eflið kosningastarf C-Iistans! Breytum spúdómunum um stórsigur Al þýð u banda lagsins í veruleika í dag ÚRSLITIN VELTA Á STARFINU I DAG DAGURINN í DAG RÆÐUR ÚRSLITUM Störfum af kappi. Lótum einskis ófreistað’ r~ | I Kosningabarátta Alþýðubandalagsins hefur mótazt af sókn sem stöðugt hefur verið að eflast og birtist á eftirminnilegan hátt í fundinum mikla í Laugardalshöllinni, stærsta stjórnmálafundi sem nokkur flokkur hefur haldið fyrir kosningar á fslandi. f spádómum manna um úrslit kosninganna er eitt atriði sameig- inlegt, hvaða stjórnmálaskoðanir sem mepn aðhyllast: □ Allir eru sammála um það að Alþýðubandalagið muni vinna verulegan kosningasigur. í dag er verkefnið að gera þessa spádóma að veruleika. Þar ræður úrslitum starf allra þeirra sem skilja nauðsyn þess að raunveruleg valda- hlutföll á alþingi breytist. Allir stuðni ngsmenn Alþýðubandalags- ins eru hvattir til þess að taka þátt í störfum allt frá því að kosn- ingar hefjast og þar til þeim lýkur, slej>pa engu tækifæri, hagnýta alla kosti. Úrslitin geta oltið á einu ein- asta atkvæði. LÁTIÐ ATKVÆÐIN KOMA AÐ GAGNI Ollum er ljóst að átökin í Reykjavík snúast um það hvort Svava Jakobsdóttir verður kjör- dæmakosinn fulltrúi Reykvíkinga eða hvort sjötti lögfræðingurinn á lista Sjálfstæðisflokksins nær kjöri. Vinstri menn hafa styrk til þess að tryggja sigur Svövu; hættan er sú ein að atkvæði 'fari til spillis — vegna þess að Framsókn fær enga uppbótarþingmenn og gæti eyði- lagt 1.000—2.000 atkvæði í höf- uðborginni, og listarnir F og O geta aðeins eyðilagt atkvæði. Fyr- ir Alþýðubandalagið er hver kjör- dæmiskosinn maður í Reykjavík örugg ávísun á uppbótarþingsæti, vegna þess að hér er atkvæðamagn- ið bak við þingmann miklu meira en í nokkru öðru kjördæmi. HLUTUR UNGA FÓLKSINS Mörg örlagarík mál hafa verið rædd í kosningabaráttunni og menn verða að muna þau ölL Sér- staka ástæðu hafa launamenn til að minnast þess að kosningarnar eru liður í kjarabaráttunni; úrslitin í dag skera úr um stöðu verklýðs- félaganna í átökunum í haust og hvort efnahagsmálin verða leyst á kostnað launafólks eða þeirra sem breiðari hafa bökin. Nái Svava Jakobsdóttir kjöri, verður Jón Snorri Þorleifsson uppbótarþing- maður Alþýðubandalagsins í Reykjavík, og Sigurður Magnússon varamaður þriggja þingmanna Al- þýðubandalagsins. Árangur Al- þýðubandalagsins birtist ekki að- eins í atkvasðatölum, heldur og í samningsákvæðum um kaupgjald og réttindi launafólks, í kjörum aldraðs fólks og öryrkja KOSNINGARNAR ERU KJARABÓT Stjórnarblöðin hafa að undan- förnu talað um deyfð í kosninga- baráttunni og tala þar vafalaust af sárri reynslu. Alþýðubandalagið hefur ekki orðið vart við neina slíka deyfð, heldur almennari og víðtækari áhuga en nokkru sinni fyrr. Mikill fjöldi af nýju fólki hef- ur komið til starfa fyrir Alþýðu- bandalagið, fólk sem áður hefur aðhyllzt aðra flokka, og ekki sízt unga fólkið sem nú kýs í fyrsta skipti. Unga fólkið er nú stærri hluti af kjósendum en nokkru sinni fyrr, og þátttaka þess mun ráða úrslitum. Unga fólkið hefur á- kveðnar hugmyndir um breytt stjórnarfar á íslandi, og það getur í dag náð mjög mikilvægum á- fanga, tryggt veruleg umskipti í valdahlutföllunum á þingi. Það vakti mikla athygli þegar Svava Jakobsdóttir rit- höfundur tók sæ'ti á lista Alþýðubandalagsins í Reykja- vík, og þátttaka hennar í kosningabaráttunni hefur ekki vakið minni athygli — og mjög greinilegan óhug í mál- gögnum annarra flokka. Þjóðviljinn sneri sér í gær til Svövu og spurði hana hvernig henni hefði líkað kosn- ingabaráttan. — Svava svaraði: — Alþýðubandalagið hefur kynnt málefni sín bæði í riti og í ræðu á fjölmörgum fundum hér í Reykjavík og úti á landi. Allir fundimir hér í Reykjavík hafa ver- ið með eindæmum vel sóttir — en fundarsókn er ekki eini mælikvarði á stuðning. Hinar góðu undirtektir, sem Svva ]akobsdóttir f málefni Alþýðubandalagsins hafa hlotið, tala einnig skýru máli. í fyrirspurnum og umræðum höfum við fundið, að launafólk setur traust sitt á forustu Alþýðubanda- lagsins. Raddir um tekjujöfnun, aukna félagslega þjón- ustu, valfrelsi einstaklingsins, manndóm í utanríkisstefnu og atvinnumálum, um nútímaleg viðhorf í stjómarstefn- unni yfirleitt, er ekkert „valdboð að ofan“, heldur stefna vinstrimanna og sósíalista, sem Alþýðubandalagið er ein. huga um að hrinda í framkvæmd. í þessum kosningum er því ekki aðeins um það að ræða, að kjósa þessa stefnu þennan eina dag — dagurinn í dag ræður úrslitum um, hvort þessar raddir vinsMmanna eigi að berast út úr Alþingishúsinu í framtíðinni. I

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.