Þjóðviljinn - 22.08.1971, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 22.08.1971, Qupperneq 12
12 SÍÐA — Þ’JÓEWmTNTSI — Stmnudiaguif 22. ágúst 1921. meö fólki Söngkonan Peggy Lee söng sálminn „Lords Prayer“ við útför Louis Armstrongs í New York. ENGINN VEIT HVAÐ ÁTT HEFUR, FYRR EN... Jimi Hendrix. Fallið hafa frá með örskömmu imillibili fjórar skærar stjörnur: Strawinsky, Jimi Hendrix, Janis Joplin og Louis Armstrong. Þau nutu mjög mislanga ævidaga, en öll eiga þau það sameiginlegt, að áhrifa þeirra mun gæta um ókomna framtíð á margbreytilegum sviðum tónlistarinnar. Þau gáfu tónlistinni og um leið okkur ööll- um sinn ferska skapandi huga blandaðan lífs- krafti, kærleika og þrá þess fólks, sem þrátt fyrir heimsfrægð og gífurlegar vinsældir og viðurkenningu, verður oft að lúta einimana- leikanum í sinni bitrustu mynd útilokað og innilokað í sínum eigin heimi. Öll unnu þau brautryðjendastarf hvert á sínu sviði. Strawinsky var sá maður sem hvað mest hefur unnið að því að frelsa tónlistina frá þröngum formum fortíðarinnar og gaf innra eyranu hluta af því frelsi sem það þráir og óttast í senn. Jimi Hendrix lyfti bandarískri negratónlist í nýar hæðir, og smátt og smátt er að renna upp fyrir fólki að textar hans eða ljóð innihalda einnig eitthvað sem ekki liggur á hverju götu- horni, auk þess sem þau renna saiman við tón- list hans þannig að úr verður einstæð heild. Janis Joplin var einstæð söngkona sem dreifði lífskrafti allt í kringum sig. Hún samdi einnig sjálf nokkuð af þeirri tónlist sem hún flutti og er því ein þeirra sem nú ryðja kven- þjóðinni braut til þátttöku 1 tónlistarsköpun, en á því sviði hefur beinn hlutur kvenþjóðar- innar verið næsta hverfandi til þessa. Louis Armstrong er líka dáinn, en hárín blés á sínum tíma nýjum hljómi og nýjum -takti í jazzinn og hefur með áhrifum sínum átt meiri þátt en flestir aðrir í að gera jazzinn að þeirri voldugu listgrein sam hann nú er.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.