Þjóðviljinn - 14.06.1972, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 14.06.1972, Qupperneq 1
UOmiUINN Miðvikudagur 14. júni 1972 — 37. árgangur —129. tölublað. Alþýóubankinn hf ykkar hagur okkar metnaöur V Umhverfisráðstefnan í Stokkhólmi F ordæmir tilraunir með atómvopn STOKKHOLMUR 12.-1R. 6. — Hvorki hefur gengiö né rekið á umhverfisráðstefnunni i Stokk- hólnii siðustu daga. ,A mánudag voru 45 tilliigur lagðar fram, en umræður leiddu ekki til samstöðu um neina þeirra. Eins og fram hefur komið i fréttum hafa kinversku full- trúarnir látið mikið að sér kveða á ráðstefnunni og m.a. fordæmt harðlega skipulagða gróðureyð- ingu Bandarikjamanna i Vfetnam. Fulltrúar Bandarikja- stjórnar hafa litið haft sér til málsbótar i umræðum um þetta efni en aðeins farið fram á að um- ræðum um málið yröi hætt þar sem Vietnamstriðið væri ekki á dagskrá ráðstefnunnar. Á mánudag var samþykkt að fordæma allar tilraunir með at- omvopn með mótatkvæðum Kina og Frakklands. Kinverjar gerðu grein fyrir atkvæði sinu og sögðu að þeir væru nauðbeygðir til að halda áfram tilraunum sinum með atómvopn þar til þeir stæðu jafnfætis stórveldunum tveimur USA og USSR. Frakkar tilkynntu að þeir myndu halda áfram vetnissprengingum á Kyrrahafi þrátt fyrir fjölda mótmæla sem þeim hafa borizt m.a. frá Nýja- Sjálandi. t gærkvöldi voru ráðgerö mót- mæli i Stokkhólmi gegn Vétnam- striðinu með kröfugöngum og úti- fundum. Búizt var við miklu fjöl- menni og jafnvel að til átaka kynni að koma. Sjá leiðara siðu 6 um Umhverfisráðstefnuna og hernaðinn i Vietnam. jFlogið á I Bárðar- Ibungu | Cinc nff cl/vrf vor I I Eins og skýrt var frá hér i blaðinu á sunnudag, var i fyrsta skipti i sögunni lent á Bárðar- bungu á Vatnajökii s.l. laugar- dag, þar er að scgja að sömu vél tókst hvort tvcggja, lending og flugtak. Á Z. siðu blaðsins i dag, er við- tal við Sigurjón Rist, vatna- mælingamann, en hann var einn þeirra, sem i vélinni voru, og tók hann þessa mynd á Bárðar- bungu á laugardagsmorguninn. Á myndinni eru, taldir frá vinslri: Magnús Kjartansson, ráðherra, Einar Pálsson, verk- fræðingur, Sigurður Þórarins- son, jarðfræðingur og Sigurður Stcinþórsson, jarðfræðingur. Fjölsóttur fundur I I I Bandaríkjamenn fœra stöðugt út stríðið í Indó- Kína og eru nú síðast farnir að — ÖGRA KÍNA MEÐ LOFTÁRÁSUM Norður-Vietnamar hafaskotið niður rúmlega 200 bandariskar flugvélaryfir landi sinu i 2 1/2 mánuð. — Enn er allt i óvissu um friðarfundina i Paris vegna tregðu Bandarikjamanna á að koma til viðræðna. SAIGON 13/6 — Bandarikja- menn héldu áfram loftárásum á Norður-Vietnam með B-52 þotum sjötta daginn i röð. Orustu- sprengjuflugvélar voru sendar til að sprengja upp tvær brýr aðeins 40kilómetra frá kinversku landa- mærunum. Þetta er gert þrátt fyrir orðsendingu Kinverja i gær að árásirnar i grennd við landa- mærin væru ógnun við öryggi Kina. f gær, mánudag, var farið i 290 árásarferðir yfir Norður- Vietnam, og var þá m.a. eyðilögð járnbrautarbrú á leiðinni frá Hanoi að kinversku landamærun- um. Norður-Vietnömum tókst að skjóta niður eina flugvél, og hafa þeir þá grandað alls 201 flugvél siðan hernaðarátökin jukust 30. marz s.l. Barizt var af hörku við borgina An Loc i alla nótt, en þar er liðs- auki frá Saigon að reyna að brjót- ast gegnum varnarmúr Þjóð- frelsishersins um borgina. Samkvæmt heimildum i Saigon hafa um 10 þúsund óbreyttir borgarar flúið borgina, og eru þeir fluttir lengra suður á vöru- bflnum. En litt mun vera hugsað um öryggi flóttamannanna og varð hópur þeirra i dag fyrir skot- hrið við hernaðarátök milli and- stæðra fylkinga. I Paris kröfðust fulltrúai Frh. á bls. 15 á Höfn Alþýðubandalagið hélt al- mennan stjórnmálafund á Höfn i Hornafirði siðdegis á sunnudag og var fundurinn vel sóttur. Það var mikið um stjórnmálafundi á Höfn um siðustu helgi og Horn- firðingar áttu þess kost að kynnast hinum ýmsu túlkunum á stjórnmálaviðhorfunum i dag. Þannig var Framsóknar- flokkurinn með fund á föstudag. Sjálfstæðismenn á laugardag. en fundur Alþýðubandalagsins á sunnudag var sá fjölmennasti. A fundi Alþýðubandalagsins fluttu þeir Helgi Seljan al- þingismaður og Magnús Kjartansson ráðherra fram- söguræður um stjórnmálavið- horfið, aðgerðir siðasta Alþ. störf rikisstjórnarinnar og framtiðaráform. Kom fram fjöldi fyrirspurna að loknum ræðum þeirra og urðu umræður fjörugar. Rikti almenn ánægja ‘ hjá fundarmönnum með þennan 1 velheppnaða fund. SAMIÐ YIÐ IÐNEMA i gær var undirritað sam- komulag um kjör iðnnema milli Alþýðusambands islands og Vinnuveitendasambands islands. Náðust fram nokkrar kjarabætur á kjörum iðn- nema. í samningum fyrir Alþýðu- samband islands voru Bcne- dikt Daviðsson, formaður 8.B.M., Magnús Gcirsson, for- maður Rafiðnaöarsambands- ins og Guðjón Jónsson, vara- formaður M.S.t. Þá tók einnig þátt i viðræðunum Snorri Jónsson, formaður M.S.Í. og þrir iðnnemar úr stjórn Iðn- nemasambandsins. Viðræður um kjör iönncma hafa staðið yfir siðan i nóvem- ber. Verður þetta samkomu- lag borið undir félagsfundi hjá meisturunum og iðnnemum á næ 'onni. (Ljósm. Þjóðviljinn «' r).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.